Fleiri fréttir

Rannsaka þarf sparisjóðina

Rannsóknar­nefnd Alþingis telur að íslenska sparisjóðakerfið verðskuldi sérstaka athugun en að það sé Alþingis að taka ákvörðun slíka rannsókn. Ríkið tók yfir rekstur Byrs og Sparisjóðs Keflavíkur í fyrrakvöld.

Allir þingmenn frá 2008 kunni að víkja

Innan Samfylkingarinnar hefur þess verið krafist að allir þeir sem sátu á Alþingi fram að hruni 2008 segi af sér. Ekki er óhugsandi að þetta sé réttmæt krafa og nauðsynlegt sé að verða við henni. Svo segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.

Öllu vanur eftir þrjú eldgos um ævina

Kristján Guðmundsson býr að Steinum undir Eyjafjöllum og er því í nágrenni eldgossins í jöklinum. Hann kippir sér ekkert upp við eldsumbrotin, enda öllu vanur þar sem þetta er þriðja gosið sem hann sér í návígi.

Hefur trú á að grasið spretti

„Ég hef fulla trú á að grasið spretti upp úr öskunni í sumar því hér er rigningasamt og hlýtt en ég óttast að erfitt verði að heyja á túnunum þar sem askan rótast upp undan vélunum.“ Þetta segir Guðni Þorvaldsson, doktor í gróðurfræðum og einn þeirra sem nú sinnir kindum sínum og klárum við erfiðar aðstæður austur undir Eyjafjöllum. Jörðin hans Raufarfell er á því svæði sem öskulagið er hvað þykkast.

Spara á því að taka strætó

Strætó bs. hefur birt útreikninga sem sýna að taki fólk strætó til og frá vinnu eða skóla, megi spara um 150 þúsund krónur á ári. Þar er miðað við að áfangastaðurinn sé innan við tíu mínútur frá heimili.

Áform um hækkun gjalda á flugið

Kostnaði vegna flugmála verður mætt í auknum mæli með notendagjöldum á næstu árum. Á það meðal annars við um rekstur leiðsögukerfis innanlandsflugsins, viðhaldsverkefni á Keflavíkurflugvelli, byggingu samgöngumiðstöðvar við Reykjavíkurflugvöll og stækkun flugstöðvarinnar á Akureyri. Bæði stendur til að hækka gjaldskrár og leggja á ný gjöld. Fjallað er um þessi áform í nýrri samgönguáætlun en ekki er gerð nákvæm grein fyrir þeim.

Samþykktu vantraust á stjórn

Aðalfundur Lífeyrissjóðs verkfræðinga samþykkti á þriðjudag yfirlýsingu um vantraust á stjórn sjóðsins síðastliðið starfsár. Stjórnin eigi að segja af sér og boða aukafund til að kjósa lífeyrissjóðnum nýja stjórn.

Akureyrarflugvöllur líka úr leik

Fullt var út úr dyrum í gær í flugstöðinni á Akureyrarflugvelli sem þjónaði sem miðstöð millilandaflugs Íslendinga. Breyttar vindáttir lokuðu þó flugvellinum um miðnæturbil.

Hreinsað á Önundarhorni

Þegar hefur verið hafist handa við hreinsum á bænum Önundarhorni undir Eyjafjöllum, en jörðin varð sérstaklega illa úti þegar Svaðbælisá hljóp skömmu eftir að gosið hófst í Eyjafjallajökli.

Stálust til veiða í Þorleifslæk

Fjórir menn, sem sást til við veiðar í Þorleifslæk, flúðu af hólmi úr Stöðvarhyl, einum besta veiðistað árinnar, þegar aðvífandi veiðimaður innti þá eftir veiðileyfi. Mun þetta ekki vera eina dæmið um að sést hafi til veiðiþjófa í Þorleifslæk í vor að því er segir á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur.

Viðhald fyrir 13 milljónir króna

Viðhaldskostnaður Grímseyjarferjunnar Sæfara nemur minnst þrettán milljónum króna á þessu ári, samkvæmt nýrri samgönguáætlun.

Ungir bændur fái nýliðastyrk

Aðalfundur Samtaka ungra bænda beindi því til stjórnar samtaka sinna að beita sér fyrir því að komið verði á „raunverulegum nýliðunarstyrkjum til að tryggja endurnýjun í landbúnaði“ eins og segir í ályktun fundarins sem haldinn var við Mývatn 17. apríl.

Tveir karlar út tvær konur inn

Breytingar hafa verið gerðar á starfshópi um skattkerfið í kjölfar ábendinga um að skipan hans uppfyllti ekki ákvæði jafnréttislaga um jöfn hlutföll kynja.

Telja að Keflavíkurflugvöllur verði lokaður fram yfir helgi

Icelandair gerir ráð fyrir lokun Keflavíkurflugvelli verði lokað fram yfir helgi og hefur sett upp flugáætlun fyrir mánudaginn sem tekur mið af áframhaldandi lokun Keflavíkurflugvallar vegna spár um dreifingu ösku frá gosinu í Eyjafjallajökli.

Flugumferð um Akureyri takmörkuð

Flugumferð um Akureyrarflugvöll verður takmörkuð í kvöld og nótt vegna nýrrar öskufallsspár. Þar verður ekki gefin svokölluð blindflugsheimild, að sögn Hjördísar Guðmundsdóttur upplýsingafulltrúa Flugstoða. Von er á næstu öskufallspá á miðnætti.

Helga leiðir Frjálslynda í Reykjavík

Helga Þórðardóttir, kennari, skipar 1. sætið á framboðslista Frjálslynda flokksins í borgarstjórnarkosningunum í maí. Haraldur Baldursson, tæknifræðingur, skipar 2. sætið. Framboðslistinn var kynntur í gær.

Óróinn bendir ekki til gosloka

Virkni eldgossins á Eyjafjallajökli síðastliðinn sólarhring hefur verið mjög svipuð samkvæmt mælingum og hún var í gær. Vatnsrennsli í Markarfljóti hefur haldist nokkuð stöðugt um 6,1 metri við gömlu Markarfljótsbrúna. Óróinn hefur einnig verið nokkuð svipaður síðastliðinn sólarhring og bendir hann ekki til þess að gosinu sé að ljúka.

Skálmöld á Laugavegi

Eiturlyfjasala, vændi og ofbeldi er daglegt brauð á aðalverslunargötu höfuðborgarinnar, Laugaveginum. Þetta segir verslunareigandi sem vill sýnilegri löggæslu svo að gestir miðborgarinnar fái frið fyrir óreglufólki.

Fólk virði lokanir

Lögreglan á Hvolsvelli minnir á að öll almenn umferð er bönnuð nærri eldstöðinni á Eyjafjallajökli. Bannsvæðið nær yfir jökulinn og hlíðar hans, Fimmvörðuháls og Mýrdalsjökul. Einnig er vegurinn í Þórsmörk lokaður allri umferð. Fólk er beðið um að virða þessar lokanir. Gert hefur verið kort af bannsvæði Eyjafjallajökuls sem fylgir með þessari frétt.

Miðstjórn Framsóknarflokksins kemur saman

Vorfundur miðstjórnar Framsóknarflokksins verður í Valsheimilinu að Hlíðarenda á morgun. Fundurinn verður settur um tíuleytið og síðan tekur við ræða formanns, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.

Keppast við að hreinsa ösku af þökum

Undir Eyjafjöllum keppast slökkviliðsmenn við að hreinsa ösku af þökum. Þótt flestir vonist eftir því að nú fari að rigna duglega umbreytir bleytan öskunni í þykkan leir sem enginn hægðarleikur er að þrífa burt.

Allt flug um Akureyrarflugvöll

Allt flug, til og frá landinu, fer nú um Akureyrarflugvöll á meðan Keflavíkurflugvöllur er lokaður af völdum eldgossins. Mikið álag hefur verið á starfsfólkinu fyrir norðan en allt hefur gengið áfallalaust fyrir sig.

Grunnskólabörn með rykgrímur

Grunnskólabörn á Hvolsvelli þurfa að bera rykgrímur til að verja sig fyrir öskunni úr Eyjafjallajökli sem nú er tekin að fara yfir þéttari byggðir. Almannavarnir vara foreldra og skólayfirvöld við því að leyfa börnum að vera úti að leik á meðan öskufall er.

Lífeyrissjóðirnir tapa 6-8 milljörðum á þroti Byrs

Lífeyrissjóðirnir tapa sex til átta milljörðum króna á þroti Byrs sparisjóðs. Erlendir kröfuhafar höfnuðu tilboði ríkisins um fjárhagslega endurskipulagningu Sparisjóðsins í Keflavík og Byrs í tvígang. Stofnfjáreigendur tapa öllu sínu og ríkið verður eigandi sjóðanna.

Flogið til Varsjár og Alicante á morgun

Iceland Express flýgur frá Akureyri til Varsjár í Póllandi klukkan 6 í fyrramálið. Sætaferðir verða frá BSÍ á miðnætti. Þá fer önnur vél félagsins frá Akureyri til Alicante klukkan 15:30 á morgun og verða sætaferðir frá BSÍ klukkan 9:30 í fyrramálið.

Ekki búist við öskufalli á höfuðborgarsvæðinu

Samkvæmt upplýsingum Veðurstofu hefur heldur dregið úr öskufalli frá eldgosinu í Eyjafjallajökli en spáð er suðaustlægri átt í dag og vaxandi vindi. Eitthvað öskufall er nú í átt að Fljótshlíð og verður líklega áfram norðvestur af eldstöðinni næstu daga. Í dag var tilkynnt um „öskufjúk“ á Rangárvöllum og í Hveragerði, að fram kemur í tilkynningu frá samhæfingarstöð almannavarna.

Samkomulag um byggingu hjúkrunarheimilis í Mosfellsbæ

Félags- og tryggingamálaráðherra og bæjarstjóri Mosfellsbæjar undirrituðu í dag samning um byggingu hjúkrunarheimilis í Mosfellsbæ. Ráðgert er að hefja framkvæmdir í sumar og að heimilið verði tekið í notkun vorið 2012.

Meintir kókaínsmyglarar áfram í gæsluvarðhaldi

Sex manns, fimm karlar og ein kona sem öll voru handtekin um þar síðustu helgi, hafa verið úrskurðuð í áframhaldandi gæsluvarðhald en þau eru grunuð um aðild á innflutningi kókaíns hingað til lands frá Spáni. Um er að ræða rúmlega 3 kg af mjög hreinu kókaíni.

Grunnskólar sameinaðir í Hafnarfirði

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum í vikunni að sameina Engidalsskóla og Víðistaðaskóla frá haustinu undir einni yfirstjórn.

Fóru í annað sjúkraflug til Grænlands

Flugvél frá Mýflugi fór ásamt lækni frá sjúkrahúsinu á Akureyri og sjúkraflutningamanni frá slökkviliðinu til Upernavik á vesturströnd Grænlands, sem er fjórði nyrsti bær í heimi.

Árni ætlar að áfrýja

Árni Mathiesen hyggst áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur en hann ásamt íslenska ríkinu var gert að greiða Guðmundi Kristjánssyni, lögfræðingi, þrjár og hálfa milljón króna óskipt vegna skipunar Þorsteins Davíðssonar sem héraðsdómara á Norðurlandi eystra 2007.

Rúmir þrír milljarðar settir í viðhaldsverkefni

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að setja 3,2 milljarða í viðhaldsverkefni á opinberum byggingum. Því hefur 500 milljónum verið bætt til viðbótar við það sem áður hafði verið samþykkt.

Slökkviliðsmenn þrífa hús á öskufallssvæðinu

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli vinnur nú fjöldi slökkvibíla og slökkviliðsmanna að því að þvo hús á öskufallssvæðinu. Lögreglan segir rólega virkni í eldstöðinni, ekki hafi borist tilkynningar um neitt öskufall en öskumistur er nokkuð vestan við eldstöðina, svo sem í Fljótshlíð og á Hvolsvelli.

Alþjóðlegur dagur bókarinnar er í dag

Alþjóðlegur dagur bókarinnar er í dag, 23. apríl. Deginum var komið á fót af Unesco Alþjóðadegi bókarinnar var komið á fót af UNESCO og er helgaður bókum og höfundarrétti. Ástæðan fyrir valinu er að 23. apríl, messa heilags Georgs, hefur um langa hríð verið dagur bókarinnar í Katalóníu og bóksalar Barcelona jafnan gefið rós eða önnur blóm með hverri bók sem seld er þennan dag.

Þurfa að greiða milljónir í miskabætur vegna skipunar dómara

Árni Mathiesen og íslenska ríkið var dæmt til þess að greiða Guðmundi Kristjánssyni lögmanni óskipt þrjár og hálfa milljón í miskabætur fyrir að skipa Þorstein Davíðsson sem héraðsdómara árið 2007. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Evrópureisan hófst með rútuferð til Akureyrar

Vélar Iceland Express til Kaupmannahafnar og Berlínar, sem áttu að fara í dag, verða sameinaðar í einu flugi frá Akureyri í dag. Farþegarnir eru nú á leið til Akureyrar og fóru rútur frá BSÍ áleiðist norður klukkan tvö. Vél félagsins til London Gatwick, sem fara átti snemma í fyrramálið verður frestað um 24 tíma.

Formaður BÍ: Mótframboð kom á óvart

„Ég verð að viðurkenna að þetta framboð kom mér þó á óvart,“ segir Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, en henni hefur borist mótframboð í formannsembættið frá framkvæmdarstjóra félagsins, Hjálmari Jónssyni.

Sjá næstu 50 fréttir