Fleiri fréttir

Engin hætta í byggð

Byggð er ekki talin stafa hætta af nýju gossprungunni sem myndaðist á Fimmvörðuhálsi í kvöld. Nú er búið að ná stjórn á vettvangi við gosstöðvarnar að því er fram kemur hjá Samhæfingarmiðstöð. Ferðamönnum við gosstöðvarnar hefur verið snúið aftur til Skóga og niður í Þórsmörk og einnig hefur farartækjum á Mýrdalsjökli verið snúið til baka.

Fólk í Básum heldur kyrru fyrir þar

Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli hefur öllu ferðafólki verið komið niður af Fimmvörðuhálsi. Veginum inn í Þórsmörk hefur verið lokað en fólk sem statt er inni í Básum mun halda kyrru fyrir þar. Þar er nokkur fjöldi fólks en lögregla hefur ekki nákvæma tölu á fjöldanum.

Landsvirkjun kemur af fjöllum og segir skilyrði uppfyllt á Kárahnjúkum

Landsvirkjun vísar því á bug að ekki hafi verið staðið við öll skilyrði varðandi Kárahnjúkavirkjun en eins og greint var frá í dag hefur umhverfisráðherra ákveðið að láta kanna það. Ráðherra sagðist í daga hafa fengið ábendingar um að skilyrði í úrskurði ráðherra um mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar hafi ekki verið uppfyllt og því hefur Umhverfisstofnun verið falið að kanna málið.

Aukin viðbúnaður vegna nýju sprungunnar

Aukin mönnun er í Samhæfingarstöð vegna óvissunnar á Fimmvörðuhálsi en þar opnaðist ný sprunga um klukkan sjö. Í samhæfingarmiðstöðinni eru nú um 12 manns að störfum. Aðgerðastjórn á Hellu hefur einnig verið boðuð til starfa.

Mælar Veðurstofunnar sýna engin merki um nýja sprungu

Á mælum Veðurstofunnar er ekki hægt að sjá að ný sprunga hafi opnast á Fimmvörðuhálsi eins og raunin er. Að sögn jarðfræðings á vakt eru engin merki um aukinn óróa og engir jarðskjálftar hafa komið fram á mælum.

Allt í lás hjá læknum

Fátt bendir til annars en að neyðarástand skapist á Landspítalanum á morgun þegar sextíu læknar ætla að leggja niður störf vegna deilna um vinnutíma.

Hraunið ekki á hraðferð í Þórsmörk

Hraunið frá eldstöðinni á Fimmvörðuhálsi hefur ekkert nálgast Þórsmörk frá því fyrir helgi. Ástæðan er víxlverkun hraunfossanna ofan í gilin tvö sem veldur því að nýjar hraunspýjur hlaðast upp í giljunum hver ofan á annnarri.

Hraunið myndar skeifu um skjöldinn

Minningarskjöldurinn um ungmennin þrjú, sem fórust á Fimmvörðuhálsi fyrir fjörutíu árum, er enn óskemmdur á sínum stað, rétt við rætur nýja eldfjallsins. Tvær hrauntungur hafa myndað skeifu utan um skjöldinn, en vari gosið lengi gæti minningarreiturinn lent undir hrauni.

Hleypt inn í hollum í Heiðrúnu

Margir hyggja á ferðalög um páskana og því kemur ekki á óvart að mikið hafi verið að gera í vínbúðum borgarinnar í dag. Meðfylgjandi mynd var tekin í Heiðrúnu fyrir stundu og þar var hleypt inn í hollum.

Ráðherra undirritar makrílreglugerð

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur í dag undirritað reglugerð um stjórn makrílveiða íslenskra skipa árið 2010. Í tilkynningu frá ráðuneytinu er tekið fram að ekki hafi náðst samkomulag við önnur strandríki um fyrirkomulag eða leyfilegt heildarmagn makrílveiða, og verða því leyfi til veiða á makríl einungis gefin út fyrir yfirstandandi ár.

Fjórtándi hjálparstarfsmaður Rauða krossins til Haítí

Valgerður Grímsdóttir, hjúkrunarfræðingur, heldur til Haítí þriðjudaginn 6. apríl til starfa fyrir Rauða kross Íslands. Valgerður hefur áður starfað í neyðarverkefnum Rauða krossins í Pakistan og Írak. Í tilkynningu frá Rauða krossinum segir að hún sé fjórtándi hjálparstarfsmaðurinn sem Rauði kross Íslands sendir til Haítí.

Kárahnjúkar: Kannað hvort staðið hafi verið við skilyrði

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur falið Umhverfisstofnun að kanna hvernig staðið hefur verið við þau skilyrði sem umhverfisráðuneytið setti í úrskurði um mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar í desember 2001. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að ábendingar hafi borist um að ekki hafi verið staðið við öll skilyrði sem sett hafi verið og þess vegna hafi ráðherra falið Umhverfisstofnun að kanna það sérstaklega.

Þungar áhyggjur af deilum almennra lækna við Landspítalann

Læknaráð Landspítala lýsir yfir þungum áhyggjum vegna þess ástands sem skapast ef deildar- og aðstoðarlæknar á sjúkrahúsinu mæta ekki til vinnu um næstu mánaðarmót. Tugir lækna gera ráð fyrir að leggja niður störf á morgun ef ekki næst sátt í deilu þeirra við stjórnendur spítalans sem snýst um vinnufyrirkomulag.

Sýna myndir af gosinu í HD gæðum

Stöð 2 Sport HD sýnir um þessa dagana fyrstu myndirnar af gosinu á Fimmvörðuhálsi sem teknar eru upp með svokallaðri HD tækni. Myndirnar hafa verið í sýningu síðan í fyrradag og verða eitthvað áfram, að sögn Haraldar Ása Lárussonar, sem tók myndirnar.

Leggja niður störf á morgun að óbreyttu

Tugir ungra lækna á Landspítalanum munu leggja niður störf frá og með morgundeginum ef ekki næst sátt um breytingar sem fyrirhugaðar eru á spítalanum. Þetta er mikill meirihluti almennra lækna á spítalanum,“ segir Gunnar Thoroddsen, hjá Félagi almennra lækna. Hann segist ekki geta sagt til um hversu margir læknar leggi niður störf. Þó er ljóst að þeir hlaupa á tugum.

Upplýsingavefur um kosningar opnaður

Upplýsingavefur dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins um sveitarstjórnarkosningarnar 29. maí næstkomandi hefur verið opnaður. Á vefnum, sem hefur slóðina www.kosning.is, eins og við aðrar kosningar, er að finna fróðleik og hagnýtar upplýsingar er lúta að framkvæmd kosninganna.

Veiði í Elliðavatni hefst á morgun

Stangaveiði í Elliðavatni hefst á morgun. Það er mánuði fyrr en verið hefur síðustu áratugi. Veiðimenn geta útvegað sér leyfi til veiðanna á

Hraunið fossar niður í Hrunagil

Mikið hraunrennsli hefur verið niður í Hrunagil í morgun frá eldstöðinni á Fimmvörðuhálsi og sjást miklar gufusprengingar reglulega ofan í gilinu sem senda stóra gufubólstra hátt til himins. Mikill kraftur er enn í gosinu.

Menntamálaráðherra las fyrir leikskólabörn

Formaður Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra afhenti nú í vikunni mennta- og menningarmálaráðherra fyrstu eintök af SAFT lestrarbókum fyrir börn um jákvæða og örugga netnotkun.

Fjölmörgum frumvörpum dreift í dag

Engin mál eru á dagskrá Alþingis í dag, en dagurinn verður þess í stað notaður til að dreifa frumvörpum, enda er þetta síðasti dagur til þess á þessu vorþingi. Frumvörp, sem þingflokkar stjórnarflokkanna og ríkisstjórnin hafa samþykkt, skipta tugum, og mörg hver varða endurreysn efnahagslífsins.

Innbrotsþjófar fóru inní fyrirtæki við Skipholt

Brotist var inn í fyrirtæki við Skipholt í Reykjavík i nótt og þaðan stolið dýrum tækjabúnaði, að sögn lögreglu. Það var öryggisvörður, sem tilkynnti um innbrotið, en þá voru þjófarnir á bak og burt og eru ófundnir. Búnaðurinn mun vera sérhæfður og er því ekki talinn markaðsvara á fíkniefnamarkaðnum.

Kveiktu í timburgámi í Borgarnesi

Mikill eldur gaus upp í timburgámi fyrir úrgangstimbur á gámasvæðinu í Borgarnesi í gærkvöldi og skíðlogaði úr honum þegar slökkvilið kom á vettvang. Auk þess lagði mikinn reyk yfir bæinn. Slökkvistarf gekk vel og eldurinn náði ekki að teygja sig í verðmæti í grenndinni. Brennuvargurinn er ófundinn.-Það var líka kveikt í rusli á skólalóð Hólabrekkuskóla í Reykjavík, en ekki hlaust tjón af áður en eldurinn var slökktur. Ekki er vitað hver kveikti í.-

Vildu fá endurgreidda töng sem þeir stálu

Lögreglan á Akranesi handtók í gær tvö kalrmenn um tvítugt á bensínstöð Olís þar í bæ, þar sem þeir voru að reyna að fá endurgreidda forláta töng, sem þeir höfðu skömmu áður stolið í Olísstöðinni í Borgarnesi.

Tifandi tímasprengja á Fimmvörðuhálsi

Björgunarsveit var kölluð út undir morgun eftir að kona hafði fest bíl sinn í krapa og íshröngli í Gilsá í Fljótsdal, en hún var ásamt tveimur öðrum á leið að gosstöðvunum við Fimmvörðuháls.

Hyggjast leigja makrílkvóta

Sú hugmynd er rædd af alvöru innan sjávarútvegsráðuneytisins, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, að makrílkvóta þessa árs, sem er 130 þúsund tonn, verði ekki deilt út til útgerðanna í landinu í neinu samhengi við veiðireynslu þeirra. Útgerðir sem hafa aflað sér veiðireynslu undanfarin fjögur ár muni fá tiltekið magn í sinn hlut en frekari veiðiheimildir þurfi viðkomandi útgerð að greiða fyrir.

Fermdist ásamt dóttur sinni og tvíburasonum

Þjóðkirkjan Séra Bragi Ingibergsson í Víðistaðakirkju blessaði ellefu fermingarbörn á sunnudaginn var. Þar af voru fjögur úr sömu fjölskyldunni, og það elsta að nálgast fertugt.

Níu Fáfnisliðar krefja ríkið um skaðabætur

Níu núverandi og fyrrverandi félagar í vélhjólaklúbbnum Fáfni hafa stefnt ríkinu til greiðslu skaðabóta vegna ólögmætrar handtöku. Sjö þeirra krefjast 600 þúsund króna í bætur og tveir krefjast einnar milljónar.

Össur fagnar viðbrögðum Hillary Clinton

„Við erum mjög ánægð með viðbrögð utanríkisráðherra Bandaríkjanna og teljum að hún hafi lög að mæla,“ segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra um orð Hillary Clinton á samráðsfundi fimm ríkja um málefni norðurskautsins, sem haldinn var í Kanada, „en við höfum reyndar komið þessum sjónarmiðum skýrt á framfæri við bandarísk stjórnvöld í gegnum utanríkisþjónustuna. Og ég man ekki betur en ég hafi verið eini utanríkisráðherra þessara þriggja ríkja sem utan standa, sem kvaddi sér hljóðs um málið á alþjóðafundi fyrir um tveimur mánuðum.“

Bygging á nýju fangelsi fær græna ljósið

„Þetta er ánægjulegur áfangi í fangelsismálum hér á landi," segir Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra um samþykkt ríkisstjórnarinnar í gær um að dómsmálaráðuneyti verði heimilað að auglýsa útboð nýrrar fangelsisbyggingar á höfuðborgarsvæðinu svo fremi sem fjármögnun fáist.

Segja Catalinu seka um mansal

Vitnisburðir kvenna vegna rannsóknar lögreglu á meintri vændisstarfsemi Catalinu Ncoco benda til þess að hún hafi gerst sek um mansal gagnvart sumum þeirra, sem bera að hún hafi selt þær í vændi. Hún hafi beitt ótilhlýðilegri aðferð, ofbeldi, hótunum um ofbeldi og frelsissviptingu gegn konunum. Hæstiréttur framlengdi í gær gæsluvarðhald yfir Catalinu til 23. apríl.

Slysum fækkaði um 15 prósent

Alvarleg umferðarslys í fyrra voru fimmtán prósentum færri en árið áður, eða 170 miðað við 200 árið 2008. Þetta kemur fram í árlegri samantekt slysaskráningar Umferðarstofu.

Mikil mildi að enginn slasaðist

Mikil mildi þykir að enginn skyldi hafa slasast þegar bíl var ekið í gegnum girðingu og inn á lóð leikskólans Suðurborgar í Breiðholti á mánudag. Börnin voru innan dyra þegar atvikið varð.

Kveikt í rusli við Hólabrekkuskóla

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað í Breiðholtið í kvöld en þar hafði verið kveikt í rusli á lóð Hólabrekkuskóla. Að sögn vaktstjóra var um minniháttar eld að ræða og slökkvliðsmenn áttu ekki í vandræðum með að slökkva í glæðunum. Að öðru leyti hefur kvöldið verið rólegt hjá slökkviliðs- og lögreglumönnum.

Níu mánaða fangelsi fyrir þjófnað og ölvunarakstur

Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann í níu mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyri þjófnað og umferðarlagabrot. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn í níu mánuði einnig, en þá var dómurinn bundinn skilorði að fullu.

Ungir framsóknarmenn á Austurlandi vilja hætta ESB viðræðum

Stjórn Eysteins - félags ungra framsóknarmanna á Austurlandi, skorar á ríkisstjórn Íslands að hætta aðildarviðræðum við Evrópusambandið og draga aðildarumsóknina til baka. Það er austfirski miðillinn Austurglugginn sem greinir frá þessu en félagið samþykkti ályktun þess efnis í gær. Þetta er þvert á nýlega ályktun Sambands ungra framsóknarmanna.

Gróðurinn stendur af sér kuldakastið

Kuldakastið undanfarna daga, hefur engin áhrif á gróðurinn, sem byrjaður er að lifna við. Þetta segir Náttúrufræðistofnun. Margir hafa velt fyrir sér áhrifum kuldans á gróðurinn sem er að kvikna eftir veturinn, en það mun vera alvanalegt að kuldaköst sem þessi komi eftir að gróður hefur tekið við sér. Hann mun því harka af sér frosthörkur síðustu daga.

TR borgar bæturnar á morgun

Tryggingastofnun ríkisins hyggst borga lífeyrisþegum mánaðarlegar bætur á morgun eða degi fyrr en vanalega vegna páskahátíðarinnar.

Gosrásin beygði á síðustu stundu til Fimmvörðuháls

Litlu munaði að eldgosið kæmi upp í austurjaðri hábungu Eyjafjallajökuls og ylli stórhlaupi í Markarfljóti sem hefði rofið varnargarða og sett fólk í bráða hættu. Kvikan beygði hins vegar á síðustu stundu í átt til Fimmvörðuháls á leið sinni til yfirborðs.

Sjá næstu 50 fréttir