Fleiri fréttir

Afskriftir nema 4-5 landsframleiðslum

Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir að afskriftir lána vegna bankahrunsins verði óhjákvæmilega þær mestu sem dæmi eru um í sögu vestrænna hagkerfa. „Líklega tapast fjórar til fimm landsframleiðslur í hagkerfinu,“ sagði Gylfi í utandagskrárumræðum á Alþingi í gær. Tapið lendir að langmestu leyti á erlendum kröfuhöfum bankanna.

Rafmagnsstrengur grafinn í sundur

Flugstoðir þurftu að grípa til varaaflstöðvar til að knýja starfsemi sína um hádegið í gær. Grafa, sem var við störf á framkvæmdasvæði í Vatnsmýrinni, gróf rafmagnsstreng í sundur með fyrrgreindum afleiðingum.

KSÍ rukkað fyrir kampavín og klám

Óljóst er hvort fjármálastjóri Knattspyrnusambands Íslands framvísaði korti sambandsins á nektarstað í Sviss eða hvort það var tekið ófrjálsri hendi. Svissneski vefmiðilinn 20minutenonline.ch segir frá því að starfsmaður KSÍ og sambandið sjálft hafi verið rukkað fyrir jafnvirði átta milljóna króna eftir næturheimsókn starfsmannsins á strípibúllu í Zürich. Af þessu hafi spunnist dómsmál.

Strætó bjóði út allan rekstur strætisvagna

Rekstur á strætisvögnum á höfuðborgarsvæðinu verður boðinn út til einkaaðila, verði farið að tillögum Par-x viðskiptaráðgjafar IBM, sem skilað hefur skýrslu til stjórnar Samtaka sveitarstjórna á höfuðborgar­svæðinu. Mikill hallarekstur hefur verið á rekstri byggðarsamlagsins Strætó bs. Sveitarfélögin sem eiga Strætó leggja nú afar mikla áherslu á að þau þurfi ekki að bera neinar viðbótar byrðar vegna strætisvagnarekstursins. Meðal annars hefur verið brugðist við því með ákvörðun um að Strætó kaupi enga nýja vagna á næsta ári.

Rafmagn komið á á Akranesi

Rafmagn er komið á Akranesi. Bilun varð í jarðstreng kl. 18:06 og tókst að tengja framhjá henni og koma á rafmagni hjá öllum notendum kl. 18:45

Nýja Hvítárbrúin steypt

Uppundir 150 manns hafa frá því eldsnemma í morgun unnið að einhverju viðamesta steypuverkefni sem um getur hérlendis, að steypa nýju Hvítárbrúna við Flúðir í Árnessýslu. 32 steypubílar eru í stöðugum ferðum fram á morgundaginn, bæði frá Selfossi og úr Reykjavík.

Rafmagnslaust á Akranesi

Fyrir stundu varð bilun í háspennukerfi sem veldur því að rafmagnslaust er á Akranesi. Unnið er að bilanaleit og verður ráðist í viðgerðir um leið og bilunin finnst.

Tveir stútar stöðvaðir

Tveir voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt. Átján ára piltur var tekinn fyrir þessar sakir í Breiðholti en kauði hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. Karl á þrítugsaldri var svo stöðvaður í Kópavogi af sömu ástæðu.

Stálu staðsetningatækjum

Brotist var inn í nokkra bíla í Reykjavík og Hafnarfirði í gær en sjö slíkar tilkynningar bárust lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Óþarfi að hræðast hjartaþræðingu

„Það hefur bjargað mörgum mannslífum að fara í þetta af því að einkennin eru svo lúmsk," segir Reynir Traustason, ritstjóri DV, sem fór í hjartaþræðingu í gær. Hann ráðleggur fólki sem þarf að gangast undir aðgerð sem þessa að hræðast ekki of mikið.

Borgarstjóri og Rice hjálpuðu leikskólabörnum að gróðursetja

Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri, írski tónlistarmaðurinn Damien Rice og Gísli Marteinn Baldursson, formaður Umhverfis- og samgönguráðs, aðstoðuðu börn af Laufásborg við gróðursetningu fyrstu plantnanna í svokölluðum Laufásborgarlundi í Hljómskálagarðinum í dag. Skrifað var undir samstarfssamning um lundinn eða svokallaðan grenndargarð leikskólans fyrr um daginn.

Erlendum ferðamönnum fækkar

Rúmlega 30 þúsund erlendir gestir fóru úr landi um Leifsstöð í októbermánuði og fækkaði þeim um 7,5% frá árinu áður. Fækkunin nemur 2.455 gestum. Svipaður fjöldi kemur frá Norðurlöndunum, Mið- og Suður-Evrópu og Norður-Ameríku en lítilsháttar fækkun er frá Bretlandi.

Bjarni: Þurfum sátt um niðurskurðartillögur

Ríkisstjórnin þarf að finna leiðir til þess að skera niður og finna sem breiðasta sátt um niðurskurðartillögurnar, sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í utandagskrárumræðum á Alþingi eftir hádegi í dag.

Skráning í svínaflensubólusetningu hefst 16. nóvember

Landsmenn allir geta pantað tíma á heilsugæslustöðvum fyrir bólusetningu gegn H1N! inflúensu eða svokallaðri svínaflensu frá og með mánudeginum 16. nóvember. Viku síðar, mánudaginn 23. nóvember, verður byrjað að bólusetja þá sem fyrstir skráðu sig.

Segir Guðlaug brjóta trúnað

Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur braut trúnað þegar að hann dró fram upplýsingar um samningaviðræður við Norðurál sem ræddar voru á stjórnarfundi Orkuveitunnar á föstudag fyrir viku, segir Þorleifur Gunnlaugsson, fulltrúi VG, í stjórn Orkuveitunnar.

Dómsmálaráðherra hefur skipað sérstakt teymi um mansal

Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur skipað sérfræði- og samhæfingarteymi um mansal í samræmi við aðgerðaáætlun gegn mansali, sem samþykkt var á fundi ríkisstjórnar þann 17. mars síðastliðinn.

Tilfinningahiti í sölum Alþingis

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra, krafðist afsökunarbeiðni af Höskuldi Þórhallssyni, þingmanni Framsóknarflokksins, en hann hafi sagt í þingræðu í gær að í tíð sinni sem umhverfisráðherra hefði Þórunn fellt ólöglegan úrskurð um sameiginlegt umhverfismat á Bakka og vísað í álit Umboðsmanns Alþingis máli sínu til stuðnings.

Líðan fólksins eftir atvikum góð

Líðan fólksins sem slasaðist í bílveltu í Langadal í Húnavatnssýslu er eftir atvikum góð. Að sögn vakthafandi læknis slasaðist fólkið minna en óttast var í fyrstu en ökumaður bílsins missti stjórn á honum í fljúgandi hálku. Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar, sótti fólkið á slysstað og flutti á Landspítalann. Fólkið, karl og kona, liggja nú á almennri skurðdeild og verða þau undir eftirliti næsta sólarhringinn.

Sýknaður af ákæru um árás

Karlmaður var sýknaður í Héraðsdómi Norðurlands eystra í morgun af ákæru um að hafa slegið annan karlmann tvö högg í andlitið og brotið í honum tennur. Fyrir dómi kvaðst meintur árásarþoli ekki hafa neina vissu um það hvernig hann fékk áverka sína, en sagðist telja líklegast að ákærði hafi veitt sér þá. Sá sem var ákærður í málinu neitaði hins vegar eindregið sök og taldi dómari því að vafi væri í málinu sem bæri að skýra ákærða í hag.

Þúsundir minka dauðir í Skagafirði

Mikið tjón hefur orðið í minkabúinu á Skörðugili í Skagafirði en þar hafa á þriðja þúsund minka drepist eftir að hafa sýkst af lungnabólgu undanfarið. Frá þessu greinir skagfirski fréttamiðillinn Feykir og hefur eftir Einari Einarssyni, ráðunauti og bónda að Skörðugili að um bráðsmitandi pest sé að ræða sem orsakast af bakteríu sem algeng er í umhverfinu en verður hættuleg þegar vissar aðstæður skapast eins og mikill raki og stillt veður.

Innbrot í hestavöruverslun

Brotist var inn í hestavöruverslun í Kópavogi í nótt. Vegfarandi sem leið átti hjá kallaði til lögreglu þegar hann sá að búið var að brjóta rúðu í versluninni. Þjófurinn komst að minnsta kosti á brott með skiptimynt úr peningakassanum en óljóst er hvort fleira hafi verið tekið.

Stjórnlagaþing taki til starfa 17. júní

Kosið verður til stjórnlagaþings samhliða sveitarstjórnar­kosningum næsta vor, samkvæmt stjórnarfrumvarpi sem fjármálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi. Þingið á að koma saman í síðasta lagi 17. júní 2010, starfa í þremur lotum og ljúka störfum fyrir 17, febrúar. Á þinginu munu sitja 25-31 þjóðkjörinn fulltrúi, sem kjósa á persónukosningu.

Framkvæmdin gæti ógnað vatnsbólunum

Sú hætta er óhjákvæmileg að lagning Suðvestur­línu hafi neikvæð áhrif á vatnsverndar­svæði og um leið neysluvatn ef mengunar­slys verði. Þetta kemur fram í umhverfismati Skipulagsstofnunar um framkvæmdina. Er þar tekið undir áhyggjur heilbrigðisnefnda sveitarfélaga á höfuðborgar­svæðinu. Framkvæmdin er engu að síður talin svo þjóðhagslega mikilvæg að rétt sé að ráðast í hana.

Mest aukning í dönskum búum

Mjólkurframleiðsla hefur hvergi aukist jafnmikið að jafnaði og í dönskum kúabúum, hefur Landssamband kúabænda (LK)eftir nýútkominni skýrslu International Farm Comparison Network.

Gefur lyf fyrir 5,7 milljónir

Lyfjafyrirtækið Actavis gefur lyf að andvirði 60 þúsunda búlgarskra leva, eða sem nemur 5,7 milljónum króna, í mannúðar­aðstoð í Úkraínu. Þetta hefur upplýsingavefur Focus eftir tilkynningu félagsins í Búlgaríu.

Konur sitja fastar í ofbeldissambúðum

Þess eru dæmi að konur sitji fastar í ofbeldis­sambúðum, þar sem þær deila óseljan­legum eignum með makanum, bæði eru með mikla skuldabyrði og þær sjá ekki fram á að geta sett á stofn og rekið nýtt heimili.

Í kapphlaupi við tímann

Sóttvarnalæknir hvetur fólk með undirliggjandi sjúkdóma til að panta bólusetningu gegn svínaflensu sem fyrst.

Kemur í veg fyrir aðra óráðsíu

„Við ætlum ekki að breyta þeirri grundvallarhugmynd að einkahlutafélög eru með takmarkaðar ábyrgðir. Það er grundvöllur hlutafélagaformsins,“ segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra.

Embættismenn sem draga lappirnar hindra samstarf

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra vill láta skoða kosti og galla þess að ríkisstjórn Ísland verði fjölskipað stjórnvald, eins og til dæmis í Svíþjóð. Þá bæri ríkisstjórnin sameiginlega ábyrgð á málum, sem lögð eru fyrir Alþingi, og hefði sameiginleg yfirráð yfir stjórnsýslunni í stað þess að einn ráðherra beri ábyrgð á hverju máli eins og nú er.

Framkvæmt á vatnsverndarsvæði

Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur, umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkur, heilbrigðis­eftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis og Skipulagsstofnun telja allar að vatnsvernd verði ógnað með lagningu Suðvesturlínu.

Einu máli vísað til saksóknara

Slitastjórn Kaupþings hefur vísað einu máli til sérstaks saksóknara eftir athugun á bókhaldi félagsins. Slitastjórnin hefur unnið að rannsókn á ráðstöfunum bankans í aðdraganda hruns með liðsinni endurskoðunarfyrirtækis­ins PricewaterhouseCoopers frá því í ágúst.

Þjóðskrá færi sig milli húsa

Hagkvæmni þess að sameina starfsemi Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands er í skoðun að beiðni Rögnu Árnadóttur, dómsmála- og mannréttindaráðherra.

Fjölþrepa skattkerfi með láglaunaþrepi

Fjölþrepa skattkerfi með lágu þrepi fyrir láglaunafólk er ein þeirra leiða sem ríkisstjórnin hefur til athugunar við endurskoðun skattkerfisins. Þetta kom fram í svari Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra við fyrirspurn frá Höskuldi Þórhallssyni, þingmanni Framsóknarflokksins, á Alþingi í gær. Höskuldur spurði hvort láglaunafólk mætti eiga von á því að persónuafslátturinn yrði hækkaður um næstu áramót í takt við verðlagsbreytingar, eins og umsamið var árið 2006.

Hömlur settar á lausagöngu

Þingmenn úr þremur af stærstu flokkum Færeyja leggja til að hömlur verði settar á lausagöngu sauðfjár í landinu. Einnig á að afmarka rétt sauðfjáreigenda til að halda fé sitt í byggð, þar sem það éti úr görðum og ógni trjágróðri.

Ein lög fyrir allt heilbrigðisstarfsfólk

Fram er komið í þinginu, í þriðja sinn, frumvarp til laga um heilbrigðisstarfsmenn. Nær það til allra faggreina í heilbrigðisþjónustu en nú eru í gildi sérlög um fjölda greina og aðrar starfa eftir reglugerðum.

Enginn eyddi meira en 300 þúsund

Helmingur þeirra frambjóðenda til Alþingis, sem ekki höfðu skilað inn fjárhagsupplýsingum um framboð sitt til Ríkisendurskoðunar á miðvikudag, var úr VG, eða 18 af 36.

Dreifðist með kartöflusalsa

Noro-veiran sem herjað hefur á starfsfólk Kaupþings banka að undanförnu breiddist út með kartöflusalsa, auk þess að smitast á milli manna, að sögn Óskars Ísfeld Sigurðssonar, forstöðumanns Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Ekki er vitað hvort veiran barst inn í bankann með matvælum eða fólki. Óskar segir að rannsókninni sé ekki fulllokið en sennilega fáist aldrei úr því skorið hvernig veiran hafi komist í bankann. Noro-veiran stingi sér alltaf öðru hvoru niður í samfélaginu.

Líf flutti tvo á spítala

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst kl. 18:58 beiðni frá Neyðarlínunni um aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna alvarlegs bílslyss í Langadal í Húnavatnssýslu samkvæmt tilkynningu.

Sigrún Elsa: Ég er ekki að misskilja neitt

„Það er einfaldlega ekki rétt sem stjórnarformaðurinn heldur fram að rekja megi hluta kostnaðaraukans vegna tafa á álveri í Helguvík til aðgerða ríkistjórnarinnar,“ segir Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, en stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur sagði fyrr í dag að Sigrún Elsa væri að misskilja.

Laxveiðiferðir heita ráðgjafaþjónusta á bankamáli

Laxveiðiferðir bankamanna virðast síður en svo liðnar undir lok. Fullyrt er að sá háttur sé hafður á að reikningar fyrir veiðferðir séu skráðir sem sérfræðiráðgjöf í bókhaldi ríkisbankanna.

Könnun: ESB yrði kolfellt í kosningum

Íslendingar myndu kolfella tillögu um inngöngu að Evrópusambandinu yrði kosið um það nú. Innan við þriðjungur þjóðarinnar er hlynntur aðild.

Stjórnarformaður OR: Sigrún er að misskilja

Guðlaugur Sverrisson formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur telur að ákveðins misskilnings gæti hjá Sigrúnu Elsu Smáradóttur fulltrúa Samfylkingarinnar í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur.

Sjá næstu 50 fréttir