Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nýr togari til heimahafnar í Reykjavík Nýsmíðaður togari, Helga RE, kom í fyrsta sinn til heimahafnar í Reykjavík í dag. Slíkt gerðist síðast í höfuðborginni um síðustu aldamót. Útgerðarmaðurinn, Ármann Ármannsson, var svo heppinn að tryggja sér gjaldeyri fyrir kaupunum þegar dollaragengið var helmingi lægra. 27.8.2009 18:18
Spyr Steingrím um kostnað ríkisins vegna launaálags formanna „Það voru miklar umræður um eftirlaunafrumvarpið á sínum tíma og ég tel eðlilegt að það sé dregið fram hverjir það eru sem fengið hafa greitt og hversu mikið,“ segir Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, en hann hefur lagt fram á Alþingis fyrirspurn þess efnis til Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra. 27.8.2009 16:41
Hundasýning á 40 ára afmæli HRFÍ Hundaræktarfélag Íslands heldur upp á 40 ára afmæli sitt um þessar mundir og í tilefni af því er blásið til glæsilegrar hátíðar í Reiðhöll Fáks í Víðidal í kvöld. Boðið verður upp á ýmsa fyrirlestra og fróðleik og stendur dagskáin frá klukkan 17:00 til 22:30. 27.8.2009 16:25
Þingi frestað fram í október Forsætisráðherra hefur fyrir hönd ríkisstjórnarinnar lagt fram þingsályktunartillögu um frestun þingfunda. Leggur hún til að alþingi álykti um að fundum þingsins verði frestað frá 27. ágúst, eða síðar ef nauðsyn krefur, til 1. október 2009. 27.8.2009 16:04
Salan á Landsvirkjunarhlutnum takmarkaði ábyrgðir borgarinnar Fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í borgarráði segja að þegar Reykjavíkurborg seldi hlut sinn í Landsvirkjun hafi ekki aðeins fengist gott verð fyrir hlutinn heldur hafi salan einnig takmarkað verulega ábyrgðir borgarinnar. Dagur B. Eggertsson segir að sú staðreynd að ábyrgðir borgarinnar vegna skulda Landsvirkjunar nemi 110 milljörðum sé „enn einn áfellisdómurinn yfir sölu Reykjavíkurborgar á hlut sínum.“ 27.8.2009 16:03
Vímuakstur í borginni Tveir voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær að sögn lögreglu. Um miðjan dag var tvítugur piltur stöðvaður fyrir þessar sakir á Sæbraut og í gærkvöld var tæplega þrítugur karl tekinn í Hafnarfirði af sömu ástæðu. 27.8.2009 14:57
Atkvæði greidd um Icesave klukkan tíu í fyrramálið Náðst hefur samkomulag um að ljúka atkvæðagreiðslu um Icesave samningana klukkan tíu í fyrramálið. Áður fær fulltrúi hvers þingflokks um tíu mínútur til að flytja ávarp, en þau hefjast um klukkutíma fyrr. 27.8.2009 14:50
Borgin í ábyrgð vegna 110 milljarða af skuldum Landsvirkjunar Reykjavíkurborg er í ábyrgðum vegna 110 milljarða af skuldum Landsvirkjunar að sögn Dags B. Eggertssonar oddvita Samfylkingarinnar í Reykjavík. Dagur vísar í svör fjármálaskrifstofu borgarinnar við fyrirspurn Samfylkingarinnar um málið. Að mati Dags þýðir þetta að fari Landsvirkjun í þrot geta lánveitendur gengið að Reykjavíkurborg og krafið hana um greiðslu á eftirstöðvum kröfu sinnar. 27.8.2009 14:37
Verklok á Hólmahálsi nálgast Lokasprettur við nýjan kafla á Norðfjarðarvegi um Hólmaháls á milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar stendur nú yfir en verklok eru samkvæmt áætlun í byrjun október. Nýi vegurinn verður 5,1 kílómetrar að lengd og liggur talsvert lægra í hálsinum en núverandi vegur, að fram kemur í frétt á vef samgönguráðuneytisins. 27.8.2009 14:35
Innritun í framhaldsskóla var talsvert óvenjuleg Innritun í framhaldsskóla fyrir haustönn 2009 er lokið. Fram kemur í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu að innritunin hafi að þessu sinni verið talsvert óvenjuleg af ýmsum sökum. 27.8.2009 13:57
Flaug frá Noregi til að hlaupa maraþon en mætti degi of seint Norski maraþonhlauparinn Stuart Hill flaug alla leið frá Noregi til að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu en mætti degi of seint. Hann er ósáttur við skipuleggjendur hlaupsins sem hann segir að hafi gefið sér rangar upplýsingar um dagssetningu þess í gegnum síma. 27.8.2009 13:44
Atli Gíslason fjarverandi í Icesave umræðum Þrír þingmenn eru á fjarvistaskrá Alþingis í dag þegar þriðja umræða um ríkisábyrgð á Icesave samningunum fer fram. Þeirra á meðal er Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna. 27.8.2009 13:39
Landeigendur óhressir með landbúnaðarráðherra Stjórn Landssamtaka landeigenda á Íslandi telur það ámælisvert að Jón Bjarnason landbúnaðarráðherra skipi vinnuhóp um endurskoðun jarða- og ábúðarlaga án aðildar samtakanna. Í tilkynningu frá stjórninni segir að það hljóti að skapa tortryggni um markmið boðaðrar endurskoðunar laganna að hagmunasamtök landeigenda séu þannig sniðgengin þegar skipaður er vinnuhópur vegna málsins og ekkert við þau talað um hvað vaki nákvæmlega fyrir stjórnvöldum. 27.8.2009 13:14
Leggja skólabörnum lið í upphafi nýs skólaárs Ritfanga- og bókasöfnun Skólastoðarinnar í samvinnu við Fjölskylduhjálp Íslands hefst í dag í Kringlunni. Leitað er eftir skólavörum eða frjálsum fjárframlögum til styrktar fjölskyldum sem ekki hafa tök á að búa börn sín undir skólastarf vetrarins. 27.8.2009 12:53
Þingmaður og Hannes Hólmsteinn á meðal mótmælenda Mikil hávaðamótmæli hafa staðið á Austurvelli í hádeginu. Þeim er ætlað að hvetja þingmenn til að fella Icesave samkomulagið. Í útsendingu frá þinghaldi heyrist greinilega í mótmælendum fyrir utan. 27.8.2009 12:46
Reyndu að brjótast inn í þinghúsið Hópur fólks klauf sig út úr hópi mótmælenda sem nú mótmæla fyrir utan Alþingishúsið og reyndi að brjóta sér leið inn í þinghúsið. Tveir lögreglumenn sem stóðu fyrir utan vörnuðu fólkinu inngöngu. Ekki kom til neinna átaka en bumbusláttur og flaut glumdi inni í þinghúsinu þegar fólkið reyndi að troða sér inn í anddyrið. 27.8.2009 12:18
Kristján Þór: Samningarnir alfarið á ábyrgð ríkisstjórnarinnar Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir fáheyrt að ríkisstjórn sjálfstæðs og fullvalda ríkis skuli afsala jafnmikilvægum og sjálfsögðum rétti líkt og ríkisstjórnin hafi gert með undirritun sinni við samkomulagi sínu við bresk og hollensk stjórnvöld. Hann segir samkomulagið alfarið á ábyrgð ríkisstjórnarinnar. Kristján mælti fyrir framhaldsnefndarálit fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd þegar þriðja og lokaumræða um Icesave hófst í dag. 27.8.2009 11:49
Rannsókn lögreglu á íkveikju gagnrýnd Hörð gagnrýni á störf rannsóknarlögreglu á íkveikju á Kleppsvegi kom fram fyrir héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Aðalmeðferð málsins var framhaldið í morgun en upphaflega stóð til að kveða upp dóm í málinu þann 11. ágúst. 27.8.2009 11:19
Mikið breytt eftir umfjöllun fjárlaganefndar Verulegar breytingar hafa verið gerðar á frumvarpi um ríkisábyrgð vegna Icesave í meðförum fjárlaganefndar. Þetta segir Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar. Hann mælti fyrir nefndaráliti meirihlutans þegar þriðja og lokaumræða frumvarpsins hófst í dag. Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi flokksins í fjárlaganefnd, sagði ríkisstjórnina hafa orðið afturreka með upphaflega samkomulagið við Breta og Hollendinga. 27.8.2009 11:05
Skólastoðin safnar ritföngum og bókum í Kringlunni Í dag og á morgun fer fram ritfanga- og bókasöfnun Skólastoðarinnar en hún hefur það að markmiði að leggja skólabörnum lið við upphaf skólans nú í september. Leitað er til almennings og fyrirtækja um framlög, hvort heldur er í formi skólavarnings eða frjálsra fjárframlaga að því er fram kemur í tilkynningu. 27.8.2009 10:56
Sigmundur baðst afsökunar við upphaf þingfundar „Vegna veru minnar í pontu síðastliðinn fimmtudag urðu mér á mistök sem ber að biðjast afsökunar á. Það er hér með góðfúslega gert," sagði Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar við upphaf þingfundar í dag. 27.8.2009 10:35
Icesave líklega samþykkt í dag Árni Þór Sigurðsson, fulltrúi VG í fjárlaganefnd, telur allt eins líklegt að frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave verði samþykkt á Alþingi í dag. 27.8.2009 09:55
Lögreglan varar við flugmiðasvikurum Lögreglan á Suðurnesjum hefur síðustu daga haft afskipti af 12 aðilum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar vegna þess að greitt hafði verið fyrir farmiða þeirra með stolnum greiðslukortum. Um svikamyllu virðist vera að ræða en lögregla segir að þeir sem keyptu miðana virðast ekkert tengjast innbyrðis og er frásögn þeirra af því hvernig þeir keyptu miðana öll á sömu lund. 27.8.2009 09:38
Innbrotalaust á höfuðborgarsvæðinu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafði ekki borist nein tilkynning um innbrot klukkan hálfsjö í morgun, sem ótvírætt telst til tíðinda eftir mikla innbrotahrynu síðustu vikurnar. 27.8.2009 07:13
Brotist inn í Lindina á Laugarvatni Brotist var inn í veitingastaðinn Lindina á Laugarvatni í nótt og þaðan stolið uppgjöri nokkurra daga úr sjóðsvélinni, eða peningakassanum. 27.8.2009 07:10
Segja aðgerðir stjórnvalda engan veginn duga Fyrir liggur að þær aðgerðir, sem þegar hefur verið gripið til af hálfu stjórnvalda og fjármálastofnana duga engan veginn til að mæta þeim vanda sem við blasir, segir í ályktun miðstjórnar ASÍ um greiðsluvanda heimilanna. 27.8.2009 07:05
Afskriftir húsnæðislána fari ekki fram í bönkum Það er „fáránlegt“ að láta bankana leita leiða til að aðstoða fólk við að standa í skilum af húnsæðislánum. Bankarnir hafa þá einu hagsmuni, í slíkri aðgerð, að tryggja hagsmuni bankans. 27.8.2009 06:00
Sér ekki hvernig kerfið gangi upp Innstæður í bönkum hafa aukist mikið frá því fyrir hrun og eru nú um tvö þúsund milljarðar króna. 27.8.2009 06:00
Skyggnst inn í framtíðina 36 tonna tæknitrukkur frá fyrirtækinu IBM er nú staddur hér á landi. Trukkurinn er búinn öllum nýjasta tæknibúnaði frá IBM. 27.8.2009 06:00
Bankarnir eru stútfullir af peningum Innstæður í bönkum landsmanna nema nú um 2.000 milljörðum króna. Í maí voru þær um 1.700 milljarðar en voru um 1.400 milljarðar fyrir hrun 27.8.2009 06:00
Gert að upplýsa um seljandann Hæstiréttur hefur fallist á kröfu manns um að formaður skilanefndar SPRON upplýsi hann um það fyrir dómi hver seldi honum stofnfjárbréf í SPRON árið 2005 fyrir 55,5 milljónir króna. 27.8.2009 06:00
Gátu sótt tekjur til lífskjaratryggingar Um síðustu áramót fengu sveitarfélög heimild til að hækka útsvar um 0,25 prósent. Hefði Reykjavíkurborg nýtt sér þetta hefðu tekjur borgarinnar aukist um 670 milljónir. 27.8.2009 05:30
Skólarnir starfa í 174 daga á ári Samanlagður fjöldi kennsludaga og prófadaga í framhaldsskólum landsins var að meðaltali 174,7 dagar á síðasta skólaári. Að meðaltali fóru 25 dagar í próf og námsmat. 27.8.2009 05:15
Fáheyrð afstaða ráðherra „Það er algjörlega fáheyrt að ráðherra hvetji til þess að menn sniðgangi lög,“ segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. 27.8.2009 05:00
Sameining Magma og GGE til skoðunar frá upphafi Möguleikinn á sameiningu Geysis Green Energy og kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy hefur verið til skoðunar frá því fyrirtækin ræddu fyrst samstarf innan HS Orku. Forsvarsmenn fyrirtækjanna segja sameiningu þó ekki í kortunum alveg á næstunni. 27.8.2009 04:45
Uppgrip hjá þýðendum Helsta þýðingarmiðstöð Evrópusambandsins þyrfti að ráða tugi íslenskra þýðenda í vinnu ef Ísland gengi í ESB. 27.8.2009 04:30
Ekki hlaupið að því að sanna tjónið Ekki kemur á óvart að stjórnvöld vilji skoða möguleikann á því að höfða skaðabótamál gegn gerendum í bankahruninu, en mörg ljón eru í veginum fyrir því að útrásarvíkingar verði dæmdir til að greiða himinháar bætur segir lagaprófessor. 27.8.2009 04:00
Ummæli óskiljanleg og sorgleg Málflutningur forsvarsmanna Samtaka iðnaðarins og Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um fyrirtæki í framleiðslu og innflutningi á sementi er dapurlegur, segir Bjarni Ó. Halldórsson, framkvæmdastjóri Aalborg Portland á Íslandi. 27.8.2009 03:30
Söfnun fyrir krabbameinssjúk börn Söfnunarþátturinn „Á allra vörum“, á vegum Krabbameinsfélagsins, verður á Skjá einum næstkomandi föstudagskvöld klukkan 21.00. Í fyrrasumar söfnuðust ríflega 50 milljónir sem voru notaðar til að kaupa ný tæki til að greina brjóstakrabbamein betur. 27.8.2009 03:30
Ofurlaun þrátt fyrir nauðasamning Stoða Jón Sigurðsson, fyrrum forstjóri Stoða sem áður hét FL Group, er enn á ofurlaunum hjá félaginu þótt það hafi komist í þrot fyrr á árinu og sé nú í meirihlutaeigu ríkisfyrirtækja. 27.8.2009 03:15
Ekki gott að Sigmundur neitaði Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðingur segist fastlega gera ráð fyrir að framkoma Sigmundar Ernis Rúnarssonar alþingismanns í ræðustól Alþingis hafi skaðað hann. Hefur Sigmundur Ernir viðurkennt að hafa smakkað vín áður en hann hélt ræðu um Icesave-málið síðastliðinn fimmtudag. Var hann að koma úr golfmóti MP-banka. 27.8.2009 03:00
Yrði mikilvæg samgönguúrbót Sveitarstjórnir á Norðausturlandi þrýsta nú á samgönguyfirvöld að klára að malbika vegarkaflann um Hófaskarðsleið. Verklok áttu að vera í september en mikið hefur gengið á og mun framkvæmdin líklega frestast um að minnsta kosti eitt ár. 27.8.2009 02:30
Vissi ekki um lán til Al-Thani Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Existu og fyrrum stjórnarmaður í Kaupþingi, segir að hann hafi ekki vitað um lán Kaupþings til Sjeiks Mohameds bin Khalifa Al-Thani. 27.8.2009 02:30
Kysstust í mótmælaskyni Rússneskt lesbíupar kysstist fyrir utan dómsal í Moskvu í mótmælaskyni eftir að fyrirtöku máls sem þær höfðuðu á hendur ríkinu var frestað. 27.8.2009 02:15
Ekki frítt fyrir háskólanema í strætó í vetur Strætókort fyrir framhalds- og háskólanema verða ekki ókeypis í vetur eins og síðustu tvo vetur. 27.8.2009 02:00