Fleiri fréttir

Fréttaskýring: Af sótölvuðum ráðherra og fullum þingmönnum

Áfengisdrykkja Sigmundar Ernis Rúnarssonar hefur vakið verðskuldaða athygli hér á landi en þingmaður Samfylkingarinnar hefur beðist afsökunar á því að hafa drukkið tvö léttvínsglös áður en hann fór í púlt og hélt mikla eldmessu yfir þingheimi.

ASÍ: Stjórnvöld vanrækja skuldug heimili

Miðstjórn ASÍ sendi frá sér ályktun síðdegis í dag þar sem hart er deilt á stjórnvöld vegna skulda heimilanna. Í ályktunni segir að þau úrræði sem þegar hafa litið dagsins ljós séu ónæg. Úrræði séu í raun ómarkviss og hafi skilað mjög takmörkuðum árangri.

Forsetinn fundaði með Magma

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, átti fund með Ross Beaty, forstjóra Magma Energy, fyrr í mánuðinum. Þeir ræddu umsvif Magma, sem hyggst hasla sér völl í íslenskum orkuiðnaði.

Subway styrkti fjölskylduhjálp

Skyndibitastaðurinn Subway gaf Fjölskylduhjálp Íslands 1,3 milljón króna í formi gjafakorta að sögn Ásgerðar Jónu Flosadóttur, formanns fjölskylduhjálpar.

Sonurinn ók kenndum Sigmundi í þingsal

Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, viðurkenndi í dag að hafa drukkið áfengi áður en hann tók þátt í umræðum á Alþingi. Forseti Alþingis segir þingmenn bera ábyrgð á sjálfum sér.

Vilja vegarspotta strax vegna klúðurs

Vegagerðin og sveitarfélög á Norðausturlandi þrýsta nú á að stuttur vegarspotti við Kópasker sleppi við umhverfismat svo ekki tefjist um meira en ár að opna nær tilbúinn þrjátíu kílómetra veg yfir Melrakkasléttu til Þórshafnar og Raufarhafnar.

Býður sig fram í formann Heimdallar

Árni Helgason, sem lét nýverið af störfum sem framkvæmdarstjóri þingflokks Sjálfstæðismanna, gefur kost á sér sem formaður Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík.

FÍS sýknað af kröfum Andrésar Magnússonar

Félag íslenskra stórkaupmanna var í dag sýknað af launakröfum Andrésar Magnússonar, fyrrum framkvæmdastjóra félagsins. Andrés taldi sig eiga inni laun vegna starfslokasamnings síns við fyrirtækið.

Samnýttir bílar njóti forgangs

Gerð verður tilraun til að stýra umferð á morgnanna á virkum dögum á Hlíðarfæti við Öskjuhlíð með því móti að leyfa aðeins umferð þeirra sem fara samferða í bíl, að fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

„Fólk á ekki að vera drukkið í vinnunni“

Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir sama gildi um þingmenn og aðra, þeir verði að halda sig við þær siðareglur sem gilda í samfélaginu. Hún segir það ekki vera sitt að taka afstöðu til þess hvort að Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, eigi að segja af sér þingmennsku.

Geysir Green bauð kínverskum samstarfsmanni í Grímsá

Forsvarsmenn Geysis Green Energy buðu kínverskum samstarfsmanni í veiði í Grímsá í Borgarfirði fyrir tveimur vikum. Íslandsbanki, sem er í eigu ríkisins, er stór eignaraðili að Geysi Green. Forstjóri fyrirtækisins segir veiðina hafa verið ákveðna að vel athuguðu máli.

Sigmundur Ernir: Drakk en kenndi ekki áhrifa

Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingar, viðurkennir að hafa fengið sér léttvín með mat að loknu golfmóti sem hann tók þátt í á fimmtudaginn síðastliðinn. Síðar sama kvöld tók hann þátt í umræðum um Icesave samkomulagið.

Grunnskóli í Heilsuverndarstöðinni fær leyfi

Menntaráð Reykjavíkur samþykkti umsókn um starfsleyfi fyrir grunnskóla í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á fundi sínum í dag. Í skólanum verður lögð áhersla á skapandi skólastarf sem verður verulega frábrugðið hefðbundnu skólastarfi.

Vaxandi skilningur á stöðu Íslands við setningu neyðarlaga

„Mér fannst heildarniðurstaðan vera sú að menn telja að það hafi vaknað meiri skilningur á þeirri stöðu sem Ísland var í þegar neyðarlögin voru sett en var í upphafi árs," segir Álfheiður Ingadóttir, formaður viðskiptanefndar.

Ráða her lögmanna til að leiðrétta milljarða mistök

Lífeyrissjóðurinn Stapi hyggst ráða hóp innlendra og erlendra lögmanna til að vinna að því að leiðrétta mistök sem gerð voru hjá Lögmannsstofunni á Akureyri, en hún gleymdi að lýsa fjögurra milljarða króna kröfu sjóðsins í bú Straums-Burðaráss. Sjóðurinn hefur um mánuð til að greiða úr málinu og verður einskis látið ófreistað til að ná fram leiðréttingu.

Bloggarar standa fyrir hávaðamótmælum á morgun

„Hugmyndin er sú að sá sem mætir þarna og öskrar getur unnið sér inn eina til tvær milljónir," segir Frosti Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Dohop flugleitarvélarinnar og bloggari.

Orkan á Hengilssvæðinu umfangsmeiri en talið hefur verið

Nú rannsóknarborhola á Hellisheiði gefur sterka vísbendingu um að orkan á Hengilssvæðinu sé mun umfangsmeiri auðlind en talið hefur verið. Holan er svo öflug að hún gæti séð sautján þúsund manna byggð fyrir rafmagni.

Fullbyggður vegur ónothæfur sökum klúðurs

Samgönguyfirvöld standa nú frammi fyrir einhverju mesta klúðri í sögu íslenskra vegamála. Ekki er hægt að opna nær fullbyggðan veg í stað Öxarfjarðarheiðar þar sem Vegagerðin hafði ekki tryggt sér leyfi til að leggja síðustu tvo kílómetrana. Sveitarstjórnir á Norðausturlandi er ævareiðar.

Segir svínarí með milligjafir á undanhaldi

Síðastliðið haust fór að bera á auglýsingum þar sem bílar voru boðnir til sölu gegn yfirtöku á láni og peningum í kaupbæti. Upp frá því spruttu upp sögur um fólk sem vissi að það væri hvert eð var á leið í þrot og nýtti sér því slík kjör. Hirti peninginn og lét sig hverfa.

Fjöldi kennsludaga í framhaldsskólum óbreyttur

Samanlagður fjöldi kennsludaga og prófadaga nemenda í framhaldsskólum skólaárið 2008-2009 var á bilinu 164 til 185 eftir skólum, en að meðaltali 174,7. Það er svo til óbreyttur fjöldi daga frá fyrra skólaári, að því er fram kemur á heimasíðu Hagstofunnar.

Þukl og gröfufimi á landbúnaðarsýningunni Glætu

Landbúnaðarsýningin Glæta fer fram í reiðhöllinni í Borgarnesi nú um helgina og hefst klukkan 15 á föstudaginn. Unnið hefur verið að undirbúningi sýningarinnar um tveggja mánaða skeið.

Sagður hafa hellt í sig víni

Gestir í kvöldverðarboði MP banka í síðustu viku segjast hafa orðið vitni að töluverðri áfengisneyslu Sigmundar Ernis Rúnarssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, sem síðar um kvöldið flutti framsögu og tók þátt í umræðum á Alþingi um Icesave málið. Þetta kemur fram í DV í dag.

Framhaldsnefndarálitum vegna Icesave dreift í dag

Nýjum þingskjölum verður dreift á þingi á útbýtingarfundi klukkan 16 í dag. Icesave frumvarpið var afgreitt úr fjárlaganefnd á fjórða tímanum í gær með stuðningi allra nefndarmanna nema Höskuldar Þórhallssonar, þingmanns Framsóknarflokksins.

Fjármálaráðherra boðar til fundar

Fjármálaráðherra hefur boðið fulltrúum af hundrað manna fundi, sem haldinn var í Grindavík í gærkvöldi vegna málefna HS Orku, að koma á sinn fund í dag og skýra afstöðu sína nánar.

370 farþegar jumbóþotu strandaglópar á Íslandi

Farþegar og áhöfn ísraelskrar Boeing 747 Jumbóþotu, samtals 370 manns, biðu um borð í vélinni á Keflavíkurflugvelli í röskar fimm klukkustundir fram á kvöld í gær, áður en fólk fékk loks að yfirgefa vélina.

Stálu flatskjám og gerfihnattamóttakara

Brotist var inn í fyrirtæki við Skútuvog í Reykjavík laust fyrir klukkan eitt í nótt og þaðan stolið þremur stórum flatskjám og gerfihnattamóttakara. Þjófarnir hafa verið eldsnöggir á vettvangi, því þjófavarnakerfi fór í gang og þegar öryggisvörður kom á vettvang nokkrum mínútum síðar voru þeir á bak og burt og eru ófundnir.

Ríkið vill skaðabætur frá útrásarvíkingum

Ríkisstjórnin samþykkti í gær að hefja undirbúning að höfðun skaðabótamála gegn einstaklingum, félögum og fyrir-tækjum sem sýna má fram á að hafi valdið ríkinu og íslenskum almenningi fjárhagslegu tjóni með athöfnum í aðdraganda bankahrunsins.

Ræða um mögulegt samstarf við Europol

Fulltrúar Evrópulögreglunnar Europol munu í dag funda með sérstökum saksóknara um það hvort og þá hvernig unnt er að nýta sérþekkingu stofnunarinnar við rannsóknina á bankahruninu.

Ráðherra vill frekar íslenska einokun en danska

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir það afdráttar-lausa skoðun sína að íslenskt iðnaðarfyrirtæki, í þessu tilfelli Sementsverksmiðjan á Akranesi, eigi meiri tilverurétt í íslensku atvinnulífi en samkeppnisaðilinn sem flytur inn danskt sement. Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) gagnrýna harðlega boðskap á þessum nótum.

Léku 33.300 holur í sumar

Skráningar á mótaröð unglinga hafa aldrei verið betri en í ár. Um helgina fór fram sjötta og síðasta stigamót á Garðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur.

Peningaþvættið enn á borði saksóknara

Ríkissaksóknari hefur ákært Gunnar Viðar Árnason fyrir innflutning á um sex kílóum af amfetamíni til landsins í hraðsendingu í vor. Rannsókn málsins leiddi til þess að tveir menn til viðbótar, Sigurður Hilmar Ólason og Ársæll Snorrason, voru einnig handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Þeir eru hins vegar ekki ákærðir fyrir smyglið.

Miklu betur búið en í upphafi

Fjármálaráðuneytinu verður falið að kynna Bretum og Hollendingum fyrirvara Alþingis við ríkisábyrgð Icesave-lánanna og fá frá þeim formlega staðfestingu á að þeir fallist á þá.

Útskrifast af íslenskunámskeiði

Útskrifaðir voru 105 nemendur af íslenskunámskeiði hjá Háskólasetri Vestfjarða á mánudag. Allir nemendurnir náðu lágmarkseinkunn.

Starfshópurinn hefur ekki hist

Starfshópur sjávarútvegsráðherra um endurskoðun fyrirkomulags fiskveiðistjórnunar hefur enn ekki hist. Hópurinn var skipaður í byrjun júlí og er ætlað að skila álitsgerð til ráðherra fyrir 1. nóvember.

Tugmilljóna skemmdir á fráveitunni

„Slæm umgengni notenda fráveitu hefur valdið tugmilljóna tjóni,“ segir heilbrigðis-fulltrúi Suðurlands í bréfi til skipulags- og byggingarnefndar Ölfuss.

Laxeldisstöð sögð hættuleg

Eiganda aflóga laxeldisstöðvar að Læk er hótað tíu þúsund króna dagsektum lagfæri hann ekki hættu sem skipulags- og byggingarnefnd Ölfus telur stafa af stöðinni.

Launavísitala hækkar lítillega

Launavísitala hækkaði um 0,4 prósent frá júní til júlí samkvæmt Hagstofu Íslands. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 2,6 prósent

Hengilssvæði stærra en áður

Jarðhitasvæðið í grennd við Hengilinn gæti verið mun stærra en áður hefur verið talið. Ný rannsóknarborhola við Hverahlíð hefur gefið sterkar vísbendingar um að það nái lengra til suðurs.

Hvar fæst ódýrasta skóladótið?

Eflaust spyrja sig margir þessa dagana hvar ódýrasta skóladótið sé að finna. Við þessu virðist ekki vera eitt einhlítt svar.

Sjá næstu 50 fréttir