Innlent

Leggja skólabörnum lið í upphafi nýs skólaárs

Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Ritfanga- og bókasöfnun Skólastoðarinnar í samvinnu við Fjölskylduhjálp Íslands hefst í dag í Kringlunni. Leitað er eftir skólavörum eða frjálsum fjárframlögum til styrktar fjölskyldum sem ekki hafa tök á að búa börn sín undir skólastarf vetrarins.

Skólastoðin hefur það markmið að leggja skólabörnum lið nú í upphafi nýs skólaárs. Margrét Á. Sigurðardóttir, einn sjálfboðaliða hjá Skólastoðinni segir að tekið verði á móti framlögum á annarri hæð í Kringlunni í dag milli fjögur síðdegis og til níu í kvöld og síðan á morgun milli klukkan eitt og sjö.

Margrét segir að einnig sé tekið á móti frjálsum fjárframlögum á bankareikning átaksins, en því fé verði komið til þeirra sem á þurfi að halda í gegnum Fjölskylduhjálpina.

Tekið er á móti frjálsum fjárframlögum inn á reikning nr. 512-14-400999 kt. 070183-3909.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×