Fleiri fréttir

Bílslys við Lögbergsbrekku

Bílslys varð við Lögbergsbrekku á Suðurlandsvegi fyrir stundu. Svo virðist vera sem tveir bílar hafi rekist saman. Fjölmennt lið frá sjúkraliðinu er á leiðinni á staðinn en ekki er vitað nákvæmlega um tildrög slyssins eða hvort einhver er alvarlega slasaður.

Missti framan af manndómnum á Landspítalanum

Tæplega fimmtugur norskur karlmaður sem er búsettur á Íslandi krefst bóta eftir að hafa misst framan af manndómi sínum vegna læknamistaka á Landspítalanum. Þetta kemur fram í vefútgáfu norska blaðsins Verdens Gang í dag.

Lögreglan stöðvaði unglingasamkvæmi

Lögreglan á Suðurnesjum hafið afskipti af unglingum sem höfðu safnast saman í íbúð í Sandgerði um klukkan hálfellefu gærkvöldi. Foreldrar sem voru áttu leið um gerðu lögreglunni viðvart. Þegar lögreglan kom á staðinn voru um 20 unglingar á aldrinum 15-16 ára í samkvæminu. Lagði lögreglan hald á landa og bjór.

Laugarásvideo eyðilagðist í eldi

Húsnæði Laugarásvideos brann til kaldra kola í nótt. Slökkviliðið fékk tilkynningu um eldinn um klukkan 25 mínútur í fjögur. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er videoleigan mikið skemmd eða ónýt. Óttast er að reykskemmdir hafi orðið á húsnæði þeirra fyrirtækja sem eru næst videoleigunni. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var slökkvistarfi lokið upp úr klukkan fimm.

Þrefaldur lottóvinningur næst

Hvorki 1. vinningur né bónusvinningurinn gengu út í íslenska lottóinu að þessu sinni og verður því þrefaldur 1. vinningur og tvöfaldur bónuspottur í næstu viku. Hins vegar voru 5 heppnir með 4 réttar tölur - í réttri röð - í Jókernum í kvöld og hljóta þeir 100 þúsund krónur í verðlaun hver.

Keyrði út af við Skorradal

Jepplingur skemmdist mikið þegar að hún fór út af veginum í nágrenni við Skorradal um sexleytið í kvöld. Lögreglan í Borgarnesi segir að óhappið hafi orðið með þeim hætti að ökumaðurinn keyrði út í vegkant þegar að hann var að mæta öðrum bíl. Kanturinn gaf sig með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af en valt ekki. Bíllinn er óökufær eftir óhappið en sem betur fer slasaðist enginn að sögn lögreglu.

Steingrímur: Orð Bjarna um stjórnarslit skipta engu

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir yfirlýsingar formanns Sjálfstæðisflokksins um að ríkisstjórnin eigi að fara frá fallist Bretar og Hollendingar ekki á Icesave fyrirvarana, hafa litla pólitíska þýðingu og séu ekki til annars en heimabrúks innan Sjálfstæðisflokksins.

Vilja ekki leysa lausarfjárvandann með sölu á auðlindum

Vinstri hreyfingin - grænt framboð leggst eindregið gegn því að lausafjárvandi samfélagsins verði leystur með sölu eða langtímaframsali á auðlindum og orkufyrirtækjum. Þetta kemur fram í ályktun flokksráðsfundar VG sem fer fram á Hvolsvelli um helgina.

Þúsundir hvetja forsetann til að beita málskotsréttinum

Um sex þúsund manns hafa skráð nafn sitt á vefsíðuna kjosa.is og um 16 þúsund manns hafa skráð sig á facebook síðu í því skyni að hvetja Ólaf Ragnar Grímsson forseta Íslands til þess að staðfesta ekki lög um ríkisábyrgð vegna Icesave.

Eðlilegt að það taki tíma að læra þingsköp

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir forseti Alþingis segir eðlilegt að það taki tíma fyrir nýja þingmenn að læra þingsköp og því hafi oft tekið á við fundarstjórn á því annasama átakaþingi sem lauk í gær. Hún segir brýnt að þingmenn undirbúi sig vel fyrir erfitt þing í vetur þar sem mörg stór verkefni bíði.

Ók upp Bankastræti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um klukkan hálffjögur í nótt að bifreið hefði verið ekið á umferðarskilti í Lækjargötu og að bensín læki úr henni.

Hátt í fimmtíu milljónir söfnuðust fyrir krabbameinssjúk börn

Rúmar 43 milljónir söfnuðust í söfnuninni Á allra vörum sem fram fór fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna á Skjá einum í gær. Óskar Örn Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Styrktarfélagsins, segir að upphæðin verði notuð til þess að byggja hvíldarheimili fyrir krabbameinssjúk börn og fjölskyldur þeirra.

Alvarlegt slys - maður féll af baki

Maður slasaðist alvarlega þegar hann féll af hesti í Stafholtstungum í Borgarfirði um níuleitið í kvöld samkvæmt fréttavef Skessuhorns.

Hvolsvallarræðan: Það er enginn fólksflótti

Um 100 manns voru mættir á flokkráðsfund Vinstri grænna á Hvolsvelli síðdegis í dag. Fjármálaráðherrann Steingrímur J. Sigfússon, flutti ræður rétt fyrir kvöldmat þar sem hann sagði framtíðina og uppbyggingu Íslands mikilvægasta. Þá gerði hann sérstaklega að umtalsefni fregnir fjölmiðla af óorðnum fólksflótta á sama tíma og barneignir hafa aldrei verið fleiri hér á landi.

Alvarlegt umferðaslys við Hafnarfjörð - götur lokaðar

Umferðarslys átti sér stað í Engidalnum í Hafnarfirði nærri afleggjaranum að Álftanesi klukkan rúmlega sjö í kvöld. Lögreglan er búinn að loka veginum inn í Hafnarfjörð og því er vegfarendum bent á að fara Vífilstaðarveginn vilji þeir komast klakklaust til síns heima.

Eva Joly: Einkamál gegn auðmönnum pólitísk friðþæging

Ríkisstjórnin ákvað í vikunni að stofna starfshóp með fulltrúum fjögurra ráðuneyta til að kanna möguleika ríkisins á að reka skaðabótamál á hendur einstaklingum sem kunna að hafa valdið almenningi fjárhagstjóni með athöfnum sínum eða athafnaleysi í aðdraganda bankahrunsins. Meðal annars stjórnarmönnum í Landsbankanum og ráðamönnum. Eva Joly furðar sig á að fjármálaráðherra velji þessa leið í stað þess að nýta þær stofnanir sem fyrir eru.

Hvetja alla til að smíða töfrahjól

Tveir námsmenn við Háskólann í Reykjavík hafa hannað og smíðað íslenskt jafnvægishjól. Þeir hvetja aðra einnig til að smíða sér svona töfragrip og ætla að birta uppskriftina.

Sigurjón Þ. Árnason: Engin ríkisábyrgð á Icesave

Sigurjón Árnason, fyrrverandi forstjóri Landsbankans, telur að ekki hafi verið ríkisábyrgð á Icesave reikningum Landsbankans með þeim hætti sem nú hefur verið samþykkt. Sigríður Mogensen ræddi við Sigurjón í dag.

Amfetamín í Árborg

Lögreglan á Selfossi gerði húsleit á hemili manns á þrítugsaldri. Á heimilinu fundust 14. grömm af amfetamíni. Lögregluna grunar að efnin séu ætluð til sölu í Árborg.

Verðandi prestur bæjarstjóri næstu mánuði

Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, sem er nýráðinn sóknarprestur við Kolfreyjuprestakall í Austfjarðarprófastsdæmir, mun sinna störfum sem bæjarstjóri Grindavíkur næstu tvo til þrjá mánuði. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá meirihluta bæjarstjórnar Grindavíkur.

Alþjóðasamningur gegn sjóræningjaveiðum

Samkomulag tókst í dag í Róm um nýjan alþjóðasamning um aðgerðir hafnríkja gegn ólöglegum fiskveiðum. Samningurinn felur í sér að aðildarríki hans verða skuldbundin til að loka höfnum sínum fyrir erlendum skipum sem orðið hafa uppvís að því að stunda ólöglegar fiskveiðar. Gerð samningsins er því mikilvægur áfangi í baráttunni gegn ólöglegum fiskveiðum samkvæmt tilkynningu sem utanríkisráðuneytið gaf frá sér.

Barist um Heimdall

Davíð Þorláksson gefur kost á sér til formennsku í Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík og Vilhjálmur Þ. Á. Vilhjálmsson til varaformennsku við hlið hans.

Fjögurra bíla árekstur á Miklubraut

Fjögurra bíla árekstur varð á Miklubraut fyrir skemmstu. Svo virðist sem keyrt hafi verið á einn bíl og dómínóáhrifin svo sagt til sín, ef svo má að orði komast.

Varað við sendibréfum frá Marie

Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra varar við sendibréfum sem Íslendingum hefur borist að undanförnu þar sem þeim er lofað háum fjármunum.

Krónan styrkist um rúmlega 1%

Krónan hefur styrkst um 1,2% nú þegar 3 mínútur eru í lokun gjaldeyrismarkaðar. Gengisvísitalan stendur í 232,3 stigum.

Ráðherra hækkar hlutfall makríls í 20%

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra gaf í dag út nýja reglugerð, sem heimilar að hlutfall makríls sem meðafla megi vera allt að 20% af heildarafla hvers skips úr norsk-íslenska síldarstofninum fyrir tímabilið 9. júlí til 30. september. Heimilt er að flytja meðaflaheimild á milli skipa.

Ótrúleg handvömm íslenskra stjórnvalda

„Við í InDefence erum afar óánægð með vinnubrögð Alþingis varðandi þá fyrirvara sem liggja Icesave samningnum til grundvallar. Við höfum heimildir fyrir því að þrátt fyrir gagnrýni InDefence hópsins um að fyrirvararnir muni ekki halda fyrir breskum dómstólum voru ekki kallaðir til sérfræðingar í breskri lögsögu til að fara yfir þá fyrirvara sem samþykktir voru á Alþingi í dag,“ segir Ólafur Elíasson, meðlimur InDefence hópsins í samtali við Vísi.

Hraðbáti stolið um hábjartan dag - myndir

Lýst er eftir bandarískum hraðbáti sem stolið var á mánudagsmorgun. Báturinn lá við smábátahöfn Snarfara í Elliðavogi þegar hann var tekinn um klukkan hálftíu. Báturinn er tæplega sex metra langur; hvítur með blárri rönd og grænum botni.

Valnefndin vill Jónu Kristínu

Valnefnd Kolfreyjustaðarprestakalls ákvað á fundi sínum fimmtudaginn 27. ágúst að leggja til að sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir verði skipaður sóknarprestur í Kolfreyjustaðarprestakalli. Embættið veitist frá 1. september næstkomandi.

Áframhaldandi gæsluvarðhalds krafist yfir pólska þjófagenginu

Farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir pólska þjófagenginu sem handtekið var um miðjan ágúst en núverandi gæsluvarðhald rennur út í dag. Gengið er grunað um að hafa um að hafa staðið á bak við hundruð innbrota undanfarna mánuði. Eftir handtöku fólksins snarfækkaði innbrotum á höfuðborgarsvæðinu.

Pabbi fyrrverandi FME forstjóra sækir um hjá sérstökum saksóknara

Í hópi umsækjenda um stöður þriggja sjálfstæðra saksóknara við embætti sérstaks saksóknara er Jón Magnússon fyrrverandi þingmaður. Jón er faðir Jónasar Fr fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins sem Björgvin G. Sigurðsson, þáverandi viðskiptaráðherra, leysti frá störfum skömmu áður en hann sagði sjálfur af sér í lok janúar.

Þingmenn komnir í langþráð frí

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra frestaði þinghaldi í dag klukkan 11:51 að loknum umræðum og atkvæðagreiðslu um Icesave og önnur mál.

150 sóttu um tíu störf í utanríkisráðuneytinu

150 umsóknir bárust í tíu störf í þýðingarmiðstöð utanríkisráðuneytsins. Fram hefur komið í fréttum að ráðuneytið hafi auglýst eftir tíu þýðendum vegna þess að þýðingarmiðstöð ráðuneytisins hafi ekki annað verkefnum sínum í tengslum við þýðingar vegna EES samningsins. Fjölga þarf þýðendum til að vinna upp uppsafnaðan hala en ekki hafa verið gerðar ráðstafanir vegna aðildarviðræðna. Ekki er útilokað að þýðingarmiðstöðin bæti tíu þýðendum við til viðbótar innan tíðar og þá væntanlega vegna aðildarviðræðnanna.

Ríkið miklu nískara á auðlindagjald

Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar fullyrðir að ríkið greiði minna fyrir afnotagjald af auðlindum, en Reykjanesbær fái fyrir auðlindir á Reykjanesi.

Sjá næstu 50 fréttir