Fleiri fréttir

Hraðbáti stolið um hábjartan dag - myndir

Lýst er eftir bandarískum hraðbáti sem stolið var á mánudagsmorgun. Báturinn lá við smábátahöfn Snarfara í Elliðavogi þegar hann var tekinn um klukkan hálftíu. Báturinn er tæplega sex metra langur; hvítur með blárri rönd og grænum botni.

Valnefndin vill Jónu Kristínu

Valnefnd Kolfreyjustaðarprestakalls ákvað á fundi sínum fimmtudaginn 27. ágúst að leggja til að sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir verði skipaður sóknarprestur í Kolfreyjustaðarprestakalli. Embættið veitist frá 1. september næstkomandi.

Áframhaldandi gæsluvarðhalds krafist yfir pólska þjófagenginu

Farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir pólska þjófagenginu sem handtekið var um miðjan ágúst en núverandi gæsluvarðhald rennur út í dag. Gengið er grunað um að hafa um að hafa staðið á bak við hundruð innbrota undanfarna mánuði. Eftir handtöku fólksins snarfækkaði innbrotum á höfuðborgarsvæðinu.

Pabbi fyrrverandi FME forstjóra sækir um hjá sérstökum saksóknara

Í hópi umsækjenda um stöður þriggja sjálfstæðra saksóknara við embætti sérstaks saksóknara er Jón Magnússon fyrrverandi þingmaður. Jón er faðir Jónasar Fr fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins sem Björgvin G. Sigurðsson, þáverandi viðskiptaráðherra, leysti frá störfum skömmu áður en hann sagði sjálfur af sér í lok janúar.

Þingmenn komnir í langþráð frí

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra frestaði þinghaldi í dag klukkan 11:51 að loknum umræðum og atkvæðagreiðslu um Icesave og önnur mál.

150 sóttu um tíu störf í utanríkisráðuneytinu

150 umsóknir bárust í tíu störf í þýðingarmiðstöð utanríkisráðuneytsins. Fram hefur komið í fréttum að ráðuneytið hafi auglýst eftir tíu þýðendum vegna þess að þýðingarmiðstöð ráðuneytisins hafi ekki annað verkefnum sínum í tengslum við þýðingar vegna EES samningsins. Fjölga þarf þýðendum til að vinna upp uppsafnaðan hala en ekki hafa verið gerðar ráðstafanir vegna aðildarviðræðna. Ekki er útilokað að þýðingarmiðstöðin bæti tíu þýðendum við til viðbótar innan tíðar og þá væntanlega vegna aðildarviðræðnanna.

Ríkið miklu nískara á auðlindagjald

Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar fullyrðir að ríkið greiði minna fyrir afnotagjald af auðlindum, en Reykjanesbær fái fyrir auðlindir á Reykjanesi.

Svona kusu þau í Icesave málinu

Ríkisábyrgð á Icesave samningana var samþykkt á Alþingi í dag. 34 þingmenn greiddu frumvarpinu atkvæði sitt, 14 sögðu nei og 14 sátu hjá. Einn þingmaður var fjarverandi.

Ríkisábyrgð á Icesave samþykkt

Icesave frumvarp ríkisstjórnarinnar var rétt í þessu samþykkt með 34 atkvæðum gegn fjórtán. Fjórtán greiddu ekki atkvæði um málið, en einn var fjarverandi.

Megum ekki gefast upp

Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar, gagnrýndi að Íslendingar tækju á sig einkaskuld sem skert gætu lífsgæði þjóðarinnar. Hún talaði um fólkið sem nú færi úr landi með þekkingu sína og reynslu, meðal annars vegna samninganna.

Fellum samningana og gerum nýja

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokks, gagnrýndi ríkisstjórnina fyrir framgöngu sína í Icesave málinu við upphaf þingfundar í morgun. Hann lagði til að frumvarpið um ríkisábyrgð yrði fellt og nýr samningur gerður.

Fyrirvararnir styrkja samningana

Fyrirvarar Alþingis við Icesave samningana við bresk og hollensk stjórnvöld styrkja samningana, að mati Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra. Í umræðum á Alþingi í morgun sagði hann að í umræðunni um samningana undanfarin misseri hafi verið reynt að færa sökina frá þeim sem orsökuðu vandamálið yfir á þá sem bera ábyrgð á því að leysa málið. Hann sagðist ekki telja að sú söguskýring muni halda í framtíðinni. „Það gat aldrei komið lítill og sætur samningur til að leysa úr svona stóru máli."

Fórnarlamb ofbeldisfulla sambýlismannsins stígur fram

Kona sem varð fyrir heimilisofbeldi af hálfu Bjarka Más Magnússonar, stígur fram í viðtali við DV í dag. Bjarki var fyrr í sumar dæmdur í átta ára fangelsi fyrir ítrekaðar árásir og fimmtán kynferðisbrot gegn konunni.

Ríkisstjórnin treystir á minnihlutann

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir það vera hættumerki að ríkisstjórnin vilji keyra Icesave málið í gegnum Alþingi þrátt fyrir litla samstöðu í þinginu. Ríkisstjórnin stefni í fen því hún verði aldrei neitt annað en valdabandalag Samfylkingar og Vinstri grænna sem treysti á stjórnarandstöðuna að leysa úr erfiðustu vandamálum sínum. Íslenska þjóðin eigi mun betra skilið.

Breið samstaða ákaflega dýrmæt

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir breiða samstöðu í Icesave málinu ákaflega dýrmæta fyrir framhaldið. Hún segir næsta verkefni ráðamanna vera að sannfæra Breta og Hollendinga um að íslenska þjóðin sé ekki að hlaupast undan ábyrgð heldur þvert á móti að axla ábyrgð.

Slasaðist í hjólreiðaleiðangri

Sextán ára stúlka, sem var í hjólreiðaleiðangri ásamt fleiri ungmennum á hálendinu, slasaðist þegar hún datt á hjólinu síðdegis í gær.

Vélarbilun í fiskibáti

Vél bilaði í litlum fiskibáti þegar hann var staddur skammt út af Grindavík í gærkvöldi og tók bátinn að reka.

Eldur í Vélageymslu í Vatnsdal

Eldur kviknaði í nótt í vélageymslu í Vatnsdal í Húnavatnssýslu og var hún alelda þegar slökkviliðið á Blönduósi kom á vettvang.

BBC myndar pysjubjörgun

Breska ríkissjónvarpið BBC ætlar á næstu dögum að mynda björgunaraðgerðir ungmenna í Vestmannaeyjum þegar lundapysjan, eða ungar lundans, glepjast af ljósunum í bænum og lenda þar á götum og í húsagörðum, en þá eru þær bjargarlausar.

Styttist í Icesave-atkvæði

Þriðja og síðasta umræða um Icesave-málið hefst á Alþingi klukkan tíu og verða atkvæði greidd um málið í dag.

Sá yðar sem syndlaus er...

Þrír ungir menn gerðu sig líklega til að grýta Digraneskirkju og brjóta þar rúður laust upp úr miðnætti. Svo vildi til að presturinn var í kirkjunni og varð þeirra var þegar þeir voru að safna steinum til verksins.

Ákærð fyrir að ljúga til um nauðgun

Ríkissaksóknari hefur ákært átján ára stúlku fyrir að hafa logið upp á fjóra menn að þeir hefðu nauðgað henni. Mennirnir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli ásakananna. Þung refsing getur legið við röngum sakargiftum af þessu tagi.

Fimmtungur borgar ekki eða í vanskilum

Tuttugu prósent húsnæðislána hjá viðskiptabönkunum þremur eru í vanskilum eða ekkert er greitt af þeim. Stjórnvöld hyggjast skoða fjárhagsvanda heimilanna vegna greiðslubyrði og skuldsetningar heildstætt. Þar verður því ekki einungis horft til húsnæðislána, heldur einnig bílalána.

Össur ætlar ekki úr landi

Stjórn Össurar hf. óskaði í gær eftir að hlutabréf félagsins yrðu skráð í Kauphöll Danmerkur. Gert er ráð fyrir að skráningin verði samþykkt í næstu viku. Í dönsku kauphöllinni eru 180 fyrirtæki og verður Össur 36. stærsta fyrirtækið þar.

Engin svör um meint gjaldeyrishaftasvindl

„Almennt er það vegna þess að upplýsingar eru viðkvæmar, þær geta verið ónákvæmar og svo gæti birting þeirra skaðað rannsóknarhagsmuni eða valdið öðrum skaða,“ segir Stefán Jóhann Stefánsson, ritstjóri hjá Seðlabankanum, spurður hvers vegna bankinn svarar ekki spurningum Fréttablaðsins um meint brot á gjaldeyrishöftum.

Má ekki segja

Vegna laga njóta viðskiptalegar upplýsingar um bankana verndar. Þar af leiðir að fjármálaráðherra telur sér ekki unnt að svara fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur Framsóknarflokki um verðtryggingar- og gjaldeyrisjöfnuð bankanna.

Rök gegn því að lækka stýrivexti

Nefndarmenn peningastefnunefndar Seðlabankans voru sammála um að veigamikil rök hnigju gegn lækkun stýrivaxta meðan gengi krónunnar var jafnlágt og raun bar vitni. Þetta kemur fram í fundargerð Seðlabankans frá því um miðjan ágúst.

Ljómandi Europol-fundur

Fundur sérstaks saksóknara og yfirmanns efnahagsbrotadeildar Europol, ásamt fulltrúa Íslands hjá Europol, gekk ljómandi vel, að sögn saksóknarans, Ólafs Þórs Haukssonar.

Verðtrygging eða upptaka evru

Verðtryggingin er afsprengi óstöðugs hagkerfis, þar sem stjórnmálamenn leiðrétta mistök sín með því að fella gengi krónu. Hún er skásti valkostur lántakenda, sem annars þyrftu að taka gengistryggð lán, eða hafa breytilega vexti á lánum.

Laun forstjóra Stoða lækkuð í 1,5 milljónir

Laun Jóns Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Stoða, lækka um 70 prósent samkvæmt nýjum samningi sem Eiríkur Elís Þorláksson, stjórnarformaður félagins, sagði frá í gær.

Íslenskir námsmenn fá styrki

menntamál Menntamálaráðherrar og samstarfsráðherrar Norðurlandanna veittu um 135 milljónir króna á árinu til að styrkja íslenska námsmenn á Norðurlöndum sem eiga í fjárhagserfiðleikum vegna efnahagskreppunnar. Uppfylltu 292 námsmenn skilyrði til að fá styrkinn.

Öll skráð í aðra skóla samhliða

Þau 40 börn sem eru skráð í Menntaskólann fyrir haustönnina eru öll skráð í einhverja aðra skóla, að sögn Eddu Huldar Sigurðardóttur, skólastjóra Menntaskólans. Börn sem ekki hafa hafið nám í haust eru í fríi með foreldrum, að sögn Eddu.

Stakk táning í Bankastræti

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, en honum er gefið að sök að hafa í nóvember í fyrra stungið táning með hnífi í síðuna.

Atkvæði um Icesave greidd í dag

alþingi Þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna létu ríkisstjórnina – og þá sér í lagi Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra – heyra það í þriðju umræðu um Icesave-frumvarpið sem stóð á Alþingi í allan gærdag og fram á kvöld. Töldu þeir stjórnvöld hafa haldið illa á málinu og í raun klúðrað því. Ætlan þeirra hafi verið að keyra málið óbreytt í gegnum þingið en til allrar lukku hafi það breyst mjög til betri vegar.

Fíkniefnaákæra þingfest í dag

Ákæra á hendur Gunnari Viðari Árnasyni fyrir innflutning á ríflega sex kílóum af amfetamíni til landsins verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í dag.

Afmæli fyrir hunda og menn

dýrahald Hundaræktarfélag Íslands á fjörutíu ára afmæli um þessar mundir og var blásið til afmælisveislu fyrir dýr og menn í tilefni af því í gær. Veislan var haldin í reiðhöll Fáks í Víðidal og var höllin full af hundum af öllum stærðum og gerðum.

Sjá næstu 50 fréttir