Fleiri fréttir

Eldur í bíl í Rockville - myndband

Eldur kom upp í bíl á Rockvillesvæðinu svokallaða í grennd við Sandgerði í gærkvöldi. Nokkur ungmenni léku sé að því að spóla þar á planinu að sögn fréttamiðilsins www.245.is. Leikur ungmennanna endaði með því að eitt dekkið sprakk og eigandi bílsins fór að huga að dekkinu, þá heyrðist smellur í vélinni og um leið kom upp eldur.

Fordæmir ríkisstjórnina fyrir að hitta ekki Dalai Lama

Birgitta Jónsdóttir þingmaður Borgarahreyfingarinnar fordæmir ríkisstjórnina fyrir að hitta ekki Dalai Lama trúarleiðtoga Tíbeta sem kom til landsins í gærkvöldi. Hún gagnrýnir einnig forgangsröðun forseta Íslands, sem hafi boðið Mörthu Stewart um landið en sé ekki viðstaddur þegar trúarleiðtogi útlægrar þjóðar Tíbeta heimsækir Ísland.

Mun óska frekari upplýsinga um viðskipti Gunnars

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins hyggst vafalítið óska eftir frekari upplýsingum um viðskipti verktakafyrirtækisins Klæðningar við Kópavogsbæ, á meðan það var í eigu þáverandi bæjarfulltrúa Sjálfstæðismanna, Gunnars Birgissonar bæjarstjóra.

Sjálfsvígum ekki fjölgað hér á landi

Undanfarin ár hafa sjálfsvíg verið um 30 talsins. Árið 2005 voru þau 24 talsins, 32 árið 2006, 37 árið 2007 og 28 árið 2008. Á síðustu 4 mánuðum eru aðeins skráð 5 tilvik, sem er talsvert minna en á sama tímabili á undanförnum árum. Samkvæmt óstaðfestum tölum frá slysadeild Landspítala ber ekki heldur á fjölgun sjáfsvígstilrauna síðustu mánuðina.

Húsráðandi kom að innbrotsþjófi

Rétt fyrir klukkan fimm í gærdag kom húsráðandi að óboðnum gesti í húsi sínu, sá hafði týnt saman hluti sem hann hugðist stela og sett í hrúgu, kom til smá ryskinga milli þeirra og tókst húsráðanda að komast yfir til nágranna og hringja þar á lögreglu.

Hollvinir Grensásdeildar gefa hitaborð

Hollvinir Grensásdeildar hafa fært henni að gjöf hitaborð til að nota við framreiðslu á heitum mat fyrir sjúklinga á legudeildum á Landspítala Grensási. Gunnar Finnsson, formaður samtakanna, afhenti gjöfina fyrir nokkru. Hitaborðin eru frá fyrirtækinu Fastus sem jafnframt lagði sitt af mörkum með því að veita verulegan afslátt af þeim.

Var að senda SMS, ók á ljósastaur og velti bílnum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um hóp drengja að skemma bifreiðar við Gullengi í nótt, höfðu þeir gert sér að leik að henda grjóti í bifreiðar, með þeim afleiðingum að framrúða var brotin, ljóskastarar og ökuljós tveggja bifreiða. Þá voru þær rispaðar og dældaðar. Þeir tóku á rás er lögregla kom en hún náði að hlaupa einn þeirra uppi. Hann reyndist vera einungis 14 ára gamall en samkvæmt lögum er ekki heimilt að vera úti einsamall á þessum tíma. Hann var færður á lögreglustöð og foreldrum gert að sækja drenginn.

Dalai Lama kominn til landsins - myndir

Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta, sem verið hefur í útlegð í hálfa öld kom til Íslands rétt fyrir klukkan 21:00 í gærkvöldi frá Kaupmannahöfn. Lama var hinn hressasti við komuna í Keflavík og heilsaði viðstöddum með virktum að því er segir frá á fréttavef Víkurfrétta.

Sóttu veika konu í portúgalskt farþegaskip í nótt

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF var kölluð út kl. 02:35 í nótt þegar portúgalska farþegaskipið FUNCHAL hafði samband við StjórnstöðLandhelgisgæslunnar og óskaði eftir að 67 ára gömul veik kona yrði sótt um borð í skipið. Að mati þyrlulæknis var talið nauðsynlegt að sækja konuna.

Dalai Lama kominn til Íslands

Dalai Lama kom til landsins nú undir kvöld og mun dvelja hér næstu daga. Hann mun meðal annars heimsækja Alþingi og funda með utanríkisnefnd og hitta Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis. Þá mun hann halda fyrirlestur í Háskóla Íslands og í Laugardalshöll.

Undrast að íslenskir ráðherrar ætli ekki að hitta Dalai Lama

„Sú spurning leitar á mann," segir Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, þegar hann er spurður að því hvort hræðsla við kínversk stjórnvöld valdi því að enginn úr ríkisstjórn Íslands ætlar að funda með Dalai Lama, andlegum leiðtoga Tíbeta, sem dvelur hér á Íslandi næstu daga.

Enginn ráðherra ætlar að funda með Dalai Lama

Fjármálaráðherra segir að engin samræmd stefna hafi verið mörkuð varðandi það hvort ráðherrar í ríkisstjórn Íslands fundi með Dalai Lama meðan á heimsókn hans á Íslandi standi. Hverjum ráðherra sé í sjálfsvald sett hvort hann vilji hitta hinn útlæg trúarleiðtoga Tíbeta. Enginn ráðherra hefur óskað eftir fundi með honum.

Olíufélögin gætu átt von á sektum vegna verðhækkana

Neytendastofa rannsakar verðhækkun olíufélaganna í liðinni viku. Félögin hækkuðu um leið og Alþingi samþykkti hækkun á bensínskatti, en sú hækkun átti ekki að leggjast á birgðir. Félögin hafa frest fram á föstudag til að skýra mál sitt.

Snæfellsneshringurinn malbikaður

Malbikaður hringvegur er nú kominn alla leið umhverfis Snæfellsnes eftir að síðasti malarkaflinn undir Jökli var lagður bundnu slitlagi.

Þrjár bruggverksmiðjur spruttu upp með stuttu millibili

Þrjár litlar dreifbýlis bruggverksmiðjur hafa á skömmum tíma sprottið upp hérlendis og sú nýjasta í Stykkishólmi kom með sinn bjór á markað í vikunni sem efnahagskerfið hrundi í haust. Eigendur segjast þó ekki trúa öðru en að fyrirtækið lifi.

Krónubréfaeigendum boðið að lána í Búðarhálsvirkjun

Landsvirkjun er að hefja skuldabréfaútboð, ætlað erlendum krónubréfaeigendum, til að koma framkvæmdum af stað við Búðarhálsvirkjun og styrkja eigin lausafjárstöðu. Reynist þessi leið fær gæti hún haft mikil áhrif á þróun efnahagsmála.

Innbrotsþjófar handteknir á Selfossi

Lögreglan á Selfossi handtók tvo menn um tvítugt um fimmleytið í morgun þegar þeir voru að reyna að brjótast inn í iðnaðarhúsnæði á Gagnheiði. Mennirnir báru hettur yfir höfðum og voru með kúbein meðferðis.

Dregur úr skjálftavirkni á Reykjanesskaga

Dregið hefur skjálftavirkninni á Reykjanesskaga í nótt og í morgun og telur Veðurstofan nú að hrinan sé að fjara út og minnkandi líkur séu á fleiri stórum skjálftum á svæðinu næstu daga.

Veiða síld ofan á olíulindum Drekasvæðisins

Átta síldveiðiskip eru nú að veiðum á Drekasvæðinu. Þrjú þeirra, Hákon, Börkur og Huginn, eru norðaustarlega í svæðinu á sömu slóðum og vænlegar olíulindir eru taldar vera undir hafsbotni.

Lamin með glasi í höfuðið á skemmtistað

Kona á þrítugsaldri var flutt á sjúkrahús eftir að maður hafði barið hana í höfuðið með glasi á veitingastað á Akureyri í nótt. Konan var talsvert skorin í andliti.

Stöðugur titringur á Reykjanesi

Jarðskjálftahrinan á Reykjanesskaga er enn í gangi og hefur verið samfelldur órói í nótt og í morgun, að sögn Veðurstofunnar. Fleiri stórir skjálftar hafa þó ekki mælst frá því síðdegis í gær.

Á 180 kílómetra hraða í Öxnadal

Ökumaður var mældur á 180 kílómetra hraða á klukkustund í Öxnadal á föstudagskvöldið. Mál þessa ökumanns var tekið fyrir strax daginn eftir og hann sviptur ökuréttindum til bráðabirgða en endanleg afgreiðsla fer fram síðar.

Már og Arnór hæfastir

Már Guðmundsson og Arnór Sighvatsson voru metnir hæfastir í stöðu Seðlabankastjóra, en sérstök matsnefnd sem skipuð var til að meta hæfi umsækjenda hefur lokið störfum, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Eldur hjá Norðlenska

Slökkviliðið á Akureyri kallað út að kjötvinnslu Norðlenska við Grímseyjargötu rétt fyrir klukkan sjö í kvöld. Eldboð barst stjórnstöð Öryggismiðstöðvar og þegar vaktmaður kom á staðinn var talsverður reykur í miðrými hússins.

Búast má við stærri skjálfta nær Reykjavík

Vísindamenn telja að búast megi við fleiri jarðskjálftum, allt upp í 5,5 stig, og nær Reykjavíkursvæðinu, eftir að öflug skjálftahrina hófst norðaustan Grindavíkur í gærkvöldi. Matargestir í veitingasal Bláa lónsins flúðu skelfdir út úr húsi og orkuverið í Svartsengi sló út.

Gjöldin höfðu ekki fylgt verðlagsþróun

Þessi gjöld höfðu ekki fylgt verðlagsþróun og þess vegna var horft til þeirra, segir Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og skattanefndar Alþingis. Alþingi samþykkti frumvarp um helgina sem kveður á um hækkun olíu- og

Hvar er Neró?

Nero, sem er svartur dobermanhundur týndist þegar að hann var í gæslu í Innri Njarðvík síðastliðinn miðvikudag og hefur hans verið sárt saknað.

Tveir hæfastir í stöðu seðlabankastjóra

Forsætisráðherra hefur sent bréf til þeirra sem sóttu um embætti seðlabankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra með umsögnum nefndar sem fékk það hlutverk að meta hæfi þeirra.

Þriðji skjálftinn sem nær 4 á Richter

Enn einn jarðskjálftinn varð á Reykjanesinu um fimm mínútum eftir klukkan fimm í dag. Hann á upptök sín á svipuðum slóðum og skjálftinn klukkan hálftvö í dag og var um 4 Richter, að sögn Gunnars Guðmundssonar jarðeðlisfræðings. Skjálftinn fannst greinilega á höfuðborgarsvæðinu.

Stúlkan komin úr öndunarvél

Fimmtán ára stúlka, sem varð fyrir bíl á Breiðholtsbraut nærri Öguirhvarfi síðdegis í fyrradag, er enn á gjörgæsludeild Landspítalans en komin úr öndunarvél.

Gunnar tjáir sig ekki um niðurstöðu biskups

Séra Gunnar Björnsson tjáir sig ekki um þá niðurstöðu biskups að framlengja leyfi hans til 1. ágúst næstomandi. „Blessaður vinur og gleðilega hátíð. Ég er ekki í aðstöðu til að tala," sagði Gunnar þegar fréttastofa reyndi að ná tali af honum í dag. Að því búnu rauf hann símtalið.

Kalla saman almannavarnarnefnd vegna skjálftanna

„Fólk heldur rónni," segir Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæjarstjóri í Grindavík. Jarðskjálfti upp á 4,5 á Richter með uppök undir Fagradalsfjalli varð um klukkan hálftvö í dag.

Annar jarðskjálfti yfir 4 á Richter

Annar jarðskjálfti varð um 5 kílómetrum austar en skjálftinn í gærkvöldi um 13:35. Fyrstu tölur benda til þess að hann hafi verið um 4,5 á Richter. Fréttastofa segir betur frá málinu á eftir.

Gunnar áfram í leyfi

Biskup Íslands hefur ákveðið að framlengja leyfi sr. Gunnars Björnssonar frá störfum sem sóknarprestur Selfossprestakalls til 1. ágúst næstkomandi, eða á meðan mál hans er til meðferðar hjá Úrskurðarnefnd Þjóðkirkjunnar.

Gróðurhúsin stóðu af sér skjálftann

„Ég var búinn að vera í sambandi við stöðvarstjórann. Þeir urðu mjög varir við skjálftann en húsið er mjög sterkt byggt," segir Björn Lárus Örvar. Hann rekur ORF líftækni sem opnaði lífrænt gróðurhús í Grindavík fyrir um það bil ári síðan. Björn segir að ekkert hafi skemmst í skjálftanum en rafmagnið hafi slegið út eins og annarsstaðar í Grindavík.

Virkjunin í Svartsengi sló út

Orkuverið í Svartsengi sló út að mestu í skjálftanum í gærkvöldi. Tveir gufuhverflar, sem framleiða samtals 60 megavött, slógu út, og var þá aðeins eftir fimmtán megavatta framleiðsla.

Rafmagnslaust í Grindavík

Rafmagnslaust er í Grindavík en rafmagnið fór af klukkan sex í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá HS-veitum er talið að strengur milli orkuversins í Svartsengi og Grindavíkur sé bilaður og er verið að leita að biluninni. Menn treysta sér ekki til að fullyrða hvort bilunin tengist skjálftanum en upptök hans voru á þessum slóðum.

Lögregla stöðvaði dauðadrukkna ófríska konu

Lögreglan hafði afskipti af konu í miðborginni í nótt sem gat vart gengið sökum ölvunar. Það vakti athygli lögreglumanna að hún var ólétt og kvaðst hún aðspurð vera komin um 7 mánuði á leið.

Margir smáskjálftar við Grindavík

Margir smáskjálftar hafa verið í nótt norðaustan við Grindavík þar sem jarðskjálfti, sem mældist 4,9 stig á Richter, varð um hálftíuleytið í gærkvöld. Flestir hafa skjálftarnir verið litlir, en þrír þeirra voru yfir 3 á Richter. Þar af mældist einn upp á 3,3 á Richter laust eftir klukkan tvö í nótt.

Hefur þurft að handtaka grunaða

Sérstakur saksóknari vegna bankahrunsins hefur þurft að handtaka menn sem grunaðir eru í rannsóknum tengdum bankahruninu. Ekki fæst uppgefið hverja þurfti að handtaka, eða hvers vegna. Hinum handteknu var sleppt að yfirheyrslu lokinni. Embættið er með yfir tuttugu mál til rannsóknar.

Sveitarfélögin kvíða nýju fasteignamati

Allir tekjustofnar sveitarfélaga eru að lækka. Nýtt fasteignamat um mánaða­mótin er talið boða lækkun fasteignaskatta og -gjalda. Líklegt er talið að sveitarfélögin hækki álagsprósentu til að halda tekjum sínum óbreyttum.

Sjá næstu 50 fréttir