Fleiri fréttir

Grettisgötufórnalamb úr öndunarvél

Maðurinn sem lenti í lífshættulegri líkamsárás á Grettisgötunni í gær er kominn úr öndunarvél. Að auki hefur hann verið færður af gjörgæslu yfir á almenna deild.

Framtíðaráætlun lögð fram á sunnudaginn

„Varðandi ríkisfjármálin þá er búið að ákveða að á sunnudaginn klukkan eitt þá kynnir ríkisstjórnin og setur fram til umræðu, útlínur af því hvernig allur þessi pakki sem snýr að því að ná fjárlagahallanum niður geti litið út," segir Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins en fundað var um stöðugleikasáttmálann í dag.

Blaðamannafundur vegna Icesave á morgun

Blaðamannafundur vegna Icesave deilunnar verður haldin á morgun samkvæmt aðstoðarmanni Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Viðræður vegna Icesave deilunnar hafa staðið yfir að undanförnu að hans sögn og verður þeim viðræðum áfram haldið í kvöld.

Flýðu þegar Vinnumálastofnun mætti

Tveir menn lögðu á flótta þegar vinnueftirlitsmenn á vegum stéttarfélaganna og Vinnumálastofnunar mættu á staðinn í gær. Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar.

Icesave lánið er til 15 ára

Skuldin sem ríkissjóður þarf að gangast í ábyrgð fyrir vegna Icesave reikninganna á að vera fullgreidd að fimmtán árum liðnum. Lánið nemur samkvæmt heimildum fréttastofu 640 milljörðum króna en byrjað verður að greiða af því eftir sjö ár. Lánskjörin er 5,5% vextir.

Maðurinn sem gekk berserksgang lést í fangaklefa í morgun

Maður sem gekk berserksgang í vesturbæ Reykjavíkur í gærkvöldi lést í fangaklefa á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í morgun. Þetta staðfestir Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn í samtali við fréttastofu.

Tveir karlar og tvær konur í gæsluvarðhald vegna líkamsárásar

Tveir karlar og tvær konur voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðuð í gæsluvarðhald til 15. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Er það í tengslum við fólskulega líkamsárás á Grettisgötu í gærdag. Um er að ræða tvo karlmenn og tvær konur. Þrjú þeirra hafa kært niðurstöðuna til Hæstaréttar en fólkið er á þrítugs- og fimmtugsaldri.

Byrjum að borga eftir sjö ár

Í þeim samningum sem nú eru í sjónmáli í Icesave deilunni felst að vextirnir á lánum vegna skuldbindinga Íslands verða 5,5 prósent á ári. Ekki þarf að byrja að borga af láninu fyrr en eftir sjö ár en vextir reiknast af því á meðan. Skuldbindingarnar nema 650 milljörðum í heildina, samkvæmt heimildum fréttastofu. Ekki er ljóst til hve langs tíma lánið er.

Ekkert innihald fyrir ítrekuðum yfirlýsingum um gríðarmikinn árangur

Í morgun var þingflokki Sjálfstæðisflokks og utanríkismálanefnd gerð grein fyrir meginatriðum þess samkomulags sem er í burðarliðnum vegna Icesave deilunnar. Á engan hátt var um að ræða heildstæða kynningu á málinu, réttara væri að tala um reifun á helstu þáttum samkomulagsins.

Krefjast þess að leynd verði aflétt af Icesave málinu

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins krafðist þess í upphafi þingfundar í dag, að Icesave málið yrði þegar tekið fyrir á dagskrá Alþingis og leynd yfir málinu verði aflétt. En trúnaður ríkir um þau mál sem tekin eru fyrir í utanríkismálanefnd þar sem Sigmundur Davíð á sæti. Sigmundur sagði að Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hafi sagt ósatt í síðustu viku, þegar hann sagði að samningaviðræður um Icesave væru að hefjast, en nú kæmi í ljós að samningsniðurstaða lægi fyrir.

Flugdólgur trylltist á leið til Tenerife - yfirbugaður af farþegum

Svanur Kristinsson lögregluþjónn á Selfossi var á leið í vikufrí til Tenerife á miðvikudaginn í síðustu viku. Áður en hann fór upp í flugvélina veitti hann manni athygli sem virtist vera í annarlegu ástandi. Skömmu eftir flugtak missti maðurinn síðan gjörsamlega stjórn á sér og áhöfnin óskaði eftir aðstoð farþega. Svanur og Bjarni nokkur fyrrverandi slökkviliðsmaður frá Selfossi skiptust síðan á að sitja yfir manninum næstu þrjá tímana. Við komuna til Tenerife var dólgurinn síðan leiddur út í járnum og beit spænskan lögregluþjón. Matthías Imsland framkvæmdarstjóri Iceland Express segir að maðurinn fari ekki aftur upp í vél frá félaginu, nema þá í lögreglufylgd.

Skýrsla Hafró: Ýsuafli lækki um tæp 40%

Hafrannsóknarstofnun leggur til að leyfilegur þorskafli á næsta fiskveiðiári verði 150 þúsund tonn, sem er 10 þúsund tonnum minna en veiða má á yfirstandandi fiskveiðiári. Þá leggur stofnunin til að leyfilegur ýsuafli verði 57 þúsund tonn. Tillaga Hafró á síðasta ári var 83 þúsund tonn en aflamarkið var 93 þúsund tonn á yfirstandandi fiskveiðiári. Slík lækkun nemur um 40%.

Lögreglan minnir knattspyrnuáhugamenn á að leggja löglega

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim góðfúslegu tilmælum til ökumanna sem eiga leið um Laugardalinn að nýta þau bílastæði sem þar eru í stað þess að leggja ólöglega á eða við götur á svæðinu. Lögreglan vekur athygli á málinu núna vegna landsleiks Íslendinga og Hollendinga sem fram fer á Laugardalsvellinum annað kvöld.

Leyfilegur þorskafli á næsta fiskveiðiári 150 þúsund tonn

Hafrannsóknarstofnun leggur til að leyfilegur þorskafli á næsta fiskveiðiári verði 150 þúsund tonn, sem er 10 þúsund tonnum minna en veiða má á yfirstandandi fiskveiðiári. Sjávarútvegsráðherra hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann fylgir loforði forvera síns og auki þorskkvótann í 160 þúsund tonn. Framkvæmdastjóri LÍÚ segir tillögu Hafró vonbrigði en fagnar því að þorskstofninn virðist vera stækka.

Nýr mengunarvarnarbúnaður kynntur

Norska varðskipið Harstad er nú hér á landi í boði Landhelgisgæslunnar. Skipið er nánast systurskip íslenska varðskipsins Þórs sem er í smíðum í Chile. Í morgun hefur farið fram kynning á nýjum mengunarvarnarbúnaði sem er svipaður þeim sem verið er að setja í Þór. Mengunarvarnarbúnaðurinn er sannkölluð bylting þegar kemur að því að dæla olíu úr sjó.

Líklega farið fram á gæsluvarðhald yfir Grettisgötuhrottum

Friðrik Smári Björgvinsson hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að yfirheyrslur yfir sex Litháum sem grunaðir eru um að hafa veitt samlanda sínum lífshættulega áverka hafi farið fram í gær og í morgun og að þeim verði framhaldið í dag.

Lést ekki af völdum áverka heldur ofkælingu

Niðurstöður úr krufningu á líki Sirreyar Maríu Axelsdóttur sem fannst látin í dúfnakofa í Hafnarfirði í byrjun febrúar liggja nú fyrir. Að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirmanns rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eru dánarorsökin ofkæling.

Formaður VR með 800 þúsund á mánuði

Kristinn Örn Jóhannesson er með átta hundruð þúsund krónur á mánuði sem formaður VR samkvæmt tilkynningu sem birt er á vefsvæði félagsins í dag. Þar kemur fram að heildarkjör hans er 35% lægri en forvera hans Gunnars Páls Pálssonar.

Jóhönnu var ekki kunnugt um umdeilda Möltuferð Össurar

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra ræddi við fréttamenn að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Þar ræddi hann meðal annars um frækna för sína til Möltu sem hefur verið nokkuð umdeild en Össur kom heim seint í gærkvöldi. Hann sagðist ekki hafa farið í ferðina með samráði ráðherra Vinstri grænna en gerði ráð fyrir því að þeir hefðu vitað af ferðinni. Í máli Jóhönnu Sigurðardóttur nú fyrir stundu á Alþingi sagðist henni ekki hafa verið kunnugt um ferð Össurar sem kom til baka í mjög góðu skapi.

Viðræður halda áfram

Forsvarsmenn Samtaka Atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands sem funda í Karphúsinu ásamt Ríkissáttasemjara ætla að halda áfram viðræðum um að koma á stöðugleikasáttmála í þjóðfélaginu. Báðir aðilar hafa lýst miklum vonbrigðum með vaxtalækkun Seðlabankans frá því í gær og eru sammála um að hún hafi verið allt of lítil.

Laun hækka á fyrsta ársfjórðungi

Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 0,8% hærri á fyrsta ársfjórðungi 2009 en í ársfjórðungnum á undan. Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 0,3% að meðaltali en laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 1,8%. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 6,2%, þar af um 4,1% á almennum vinnumarkaði og um 11,3% hjá opinberum starfsmönnum.

Haldið sofandi í öndunarvél

Karlmanni á þrítugsaldri er haldið sofandi í öndunarvél á Landspítalanum í Fossvogi eftir að hafa orðið fyrir árás í húsi á Grettisgötu í Reykjavík um miðjan dag í gær. Svæfingalæknir á spítalanum segir að stefnt sé að því að vekja hann síðar í dag. Sex manns eru í haldi lögreglu grunaðir um aðild að árásinni.

Ók á girðingu eftir glæfraakstur

Betur fór en á horfðist þegar ökumaður bíls sem ók á ofsahraða vestur Miklubraut við brúna yfir Bústaðaveginn missti stjórn á bílnum og lenti á girðingu sem skilur akbrautirnar að.

Flugslys: Brak sem fannst er ekki úr þotunni

Brak sem talið hafði verið að væri úr Air France þotunni sem fórst á dögunum með 228 manns innanborðs, er ekki úr þotunni og því hefur enn hvorki tangur né tetur fundist af vélinni.

Gekk berserksgang í vesturbænum

Lögregla var í nótt kölluð að húsi í vesturbæ þar sem tilkynnt hafði verið um mikil læti. Þar hafði maður gengið berserksgang að sögn vitna en hafði forðað sér áður en lögregla kom á staðinn. Skömmu síðar fær lögreglan aftur hringingu og nú hafði maðurinn snúið aftur og var sagður vopnaður. Þegar lögreglumenn komu vettvang tók maðurinn á móti þeim vopnaður barefli sem hann hótaði að nota. Lögreglumennirnir beittu þá piparúða á ofbeldissegginn og yfirbuguðu. Hann gistir nú fangageymslur.

Karlmaður í lífshættu eftir misþyrmingar

Tæplega þrítugur litháískur karlmaður slasaðist lífshættulega um miðjan dag í gær þegar til átaka kom í húsi við Grettisgötu í Reykjavík. Sex manns voru handteknir í kjölfarið, fjórir karlmenn og tvær konur.

Ríkið þarf að eyða óvissu

Stærri skref verða ekki tekin í lækkun stýrivaxta meðan ekki liggur fyrir áætlun um tilhögun ríkisfjármála. Þetta kom fram á vaxtaákvörðunarfundi Seðlabanka Íslands í gær. Kynnt var eins prósentustigs lækkun stýrivaxta, sem nú standa í tólf prósentum.

Björgvin G. skilur vaxtaákvörðunina

Þverpólitísk vonbrigði yfir lítilli stýrivaxtalækkun komu fram á Alþingi í gær. Þingmenn allra flokka – utan Borgarahreyfingar­innar – lýstu sárum vonbrigðum með að vextirnir hefðu aðeins lækkað í tólf prósent. Stjórnarandstæðingar stóðu klárir á ástæðunni: ríkisstjórnin hefði ekki tekið á ríkisfjármálunum.

Áfangi í Icesave-deilu kynntur í ríkisstjórn

Möguleg lausn á Icesave-deilunni verður kynnt í ríkisstjórn í dag. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins verður tekin afstaða til þess hvort sú leið sé fær eða ekki. Það þarf þó ekki að þýða að lausn finnist á deilunni því ef íslensk stjórnvöld hafna þessari leið eru samningar enn þá opnir.

Fyrning nær til alls

„Miðað við það hvernig verið er að meðhöndla íslenskt atvinnulíf í vaxtamálum, haftamálum og varðandi fyrningarleið í sjávarútvegi þá sé ég ekki betur en fyrningarleið sé hugsuð fyrir allt íslenskt atvinnulíf“, sagði Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins, á málþingi í Vestmannaeyjum í gær.

Ekki tekið tillit til áætlana stjórnvalda

„Ég hafði vonast eftir meiri lækkun og það olli mér vonbrigðum að hún varð ekki meiri en þetta,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra um ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um lækkun stýrivaxta um eitt prósentustig.

Fyrning þýðir gjaldþrot

Formaður sjávarútvegsnefndar segir ekki koma til greina að fara fyrningarleið í sjávarútvegi ef það sannast að hún hafi neikvæð áhrif á byggðirnar í landinu. Hann segir að sátt verði að ríkja um málið svo það fái framgang.

Halda sig vel innan línunnar

Búið er að veiða sjö hrefnur frá því að veiðar hófust 26. maí. Fjórar veiddi áhöfn Jóhönnu ÁR á miðvikudaginn.

Mönnum bjargað fyrir utan Sandgerði

„Auðvitað verður manni brugðið. Maður væri ekki heilbrigður annars. Ég hef verið á sjó síðan ég var krakki og veit hvað sjórinn getur gert. Hann gefur og tekur,“ segir Karl Einar Óskarsson, annar hafnsögumannanna sem voru hætt komnir þegar bát þeirra hvolfdi í innsiglingunni í Sandgerði í gær.

Háð því að lán fáist á sæmandi kjörum

„Það er alveg ljóst að þetta háir stýrivextir eru alveg óviðráðanlegir bæði fyrir heimili og fyrirtæki í landinu,“ segir Sigurður Jóhannesson, framkvæmdastjóri SAH afurða ehf. á Blönduósi.

Ríkið ber ekki kostnað

Þingmenn Framsóknarflokksins reyndu á Alþingi í gær að sannfæra stjórnarliða um ágæti tillögunnar um afskriftir hluta lána heimila og fyrirtækja. En allt kom fyrir ekki; stjórnarliðar sátu við sinn keip.

Niðurlægir milljarðamæring fyrir pólitískan stöðugleika

Vladimar Pútin náði nýjum hæðum í andstöðu sinin gagnvart olígörkum þegar hann skipaði milljarðamæringnum Oleg Derpaska til þess að fylgja sér til bæjarins Pikalevo Þar var verskmiðjuí eigu Oleg var lokað í síðustu viku með þeim afleiðingum að verkamennirnir fengu ekki greidd launin sín.

VR fundur hófstilltur - skuggastjórnin hélt sig til hlés

„Þetta var hófstilltur fundur," segir Kristinn Örn Jóhannesson, formaður VR en félagsfundur var haldin í kvöld að beiðni félagsmanna. Að sögn Kristins var aðallega um upplýsingafund að ræða og var hvergi hvikað frá fundardagskrá.

Kona slösuð á Esjunni

Kallað var eftir aðstoð lögreglu vegna konu sem slasaðist í Esjunni nú fyrir stundu. Konan er ekki illa slösuð og gat gengið eitthvað niður hlíðarnar. Hún náði þó ekki að klára þann spöl.

Eiginkonan fylgdist með lífsháska mannsins

Eiginkona annars mannsins sem var hætt kominn er hann var um borð í lóðsbátnum Aðunni sem hvolfdi við björgunarstörf í dag, varð vitni af því þegar bátnum hvolfdi. Hún var á landi og fylgdist með björgunaraðgerðunum eins og svo margir þegar Auðunn togaðist með togaranum Sóley-Sigurjóns og hvolfdi í kjölfarið.

Sektaði jólasveina á aðfangadag

Sýslumaður Snæfellinga sektaði yfir sextán þúsund ökumenn fyrir hraðakstur í fyrra og aflaði hann mestra tekna fyrir ríkið á þessu sviði á árinu. Meira að segja jólasveinar voru sektaðir á aðfangadag.

Landeyjahöfn nálgast Vestmannaeyjar hratt

Varnargarðar nýju Landeyjahafnar nálgast nú Vestmannaeyjar hratt og er verktakinn á tveimur vikum búinn með þrjúhundruð metra af sjöhundruð. Þetta stærsta jarðvinnuverk sem nú er unnið að hérlendis mun valda byltingu í samskiptum Eyjamanna við aðra landsmenn.

Tveir hafnsögumenn hætt komnir

Tveir menn voru mjög hætt komnir í Sandgerði síðdegis þegar dráttarbát hvolfdi um leið og strönduðum togara var komið á flot. Annar mannanna sat fastur í stýrishúsinu fullu af sjó í á þriðju mínútu.

Sjá næstu 50 fréttir