Karlmaður í lífshættu eftir misþyrmingar 5. júní 2009 06:00
Tæplega þrítugur litháískur karlmaður slasaðist lífshættulega um miðjan dag í gær þegar til átaka kom í húsi við Grettisgötu í Reykjavík. Sex manns voru handteknir í kjölfarið, fjórir karlmenn og tvær konur. Fólkið er allt af erlendu bergi brotið en hefur verið búsett hér á landi um hríð. Eftir því sem næst verður komist brutust átökin út fyrri hluta dags í gær. Um eittleytið var lögreglan kvödd á staðinn og reyndist einn þeirra sem var á staðnum illa særður eftir átökin. Ekki er ljóst hvort áverkarnir voru eftir högg og spörk einungis eða eggvopn og barefli einnig. Íbúi í húsinu sem Fréttablaðið ræddi við í gær sagði að þar byggi nú hópur fólks, einkum frá Austur-Evrópu, sem hefði misst vinnuna en lifði á atvinnuleysisbótum. Mikið væri um áfengisneyslu á staðnum jafnt daga sem nætur. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins var fólkið sem handtekið var frá Litháen og Póllandi. Hinn yngsti hinna handteknu er á þrítugsaldri en sá elsti á fimmtugsaldri. Flest er fólkið búsett í umræddu húsi. Í dag verður tekin ákvörðun um hvort farið verður fram á gæsluvarðhald yfir einhverjum þeirra sem inni sitja eða þeim sleppt að loknum yfirheyrslum. Maðurinn sem særðist fór beint í aðgerð á Landspítalanum í gær, þar sem gert var að sárum hans. Tvísýnt var um líf hans í gærkvöld þegar blaðið fór í prentun.
Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Sjá meira