Fleiri fréttir

Viðvörunarskilti loks sett upp í Reynisfjöru

Í vikunni var nýtt upplýsinga- og viðvörunarskilti formlega afhjúpað í Reynisfjöru við Vík í Mýrdal en þar hafa ferðamenn oft verið hætt komin síðustu ár. Í ágúst á seinsta ári voru erlendir ferðamenn hætt komnir þegar þeir reyndu að koma hval til bjargar sem hafði rekið á land við Reynisfjöru.

Nauðgaði tólf ára dreng

Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í morgun karlmann til vistunar á viðeigandi stofnun fyrir að hafa nauðgað 12 ára gömlum dreng á sumarmánuðum árið 2003. Margrét K. Magnúsdóttir sálfræðingur bar vitni um það að brotaþoli væri afskaplega ráðvilltur eftir atburðinn og í dómnum kemur fram að hegðun drengsins og útlit breyttist verulega eftir atburðina.

Tillaga um frestun þinghalds samþykkt

Alþingi samþykkti í dag tillögu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra sem felur í sér að fundum þingsins verði frestað frá 16. apríl eða síðar ef nauðsyn krefur. Fjölmargir þingmenn kvöddu sér hljóðs í málinu en tillagan var að lokum samþykkt með 32 atkvæðum.

Fann 18 milljóna lottóvinning í veskinu

Vinningshafi sem var einn með allar tölurnar réttar í lottóinu laugardagskvöldið 31. apríl er fundinn. Tilviljun varð þess að vinningshafinn fann vinningsmiðann, en potturinn var þrefaldur og vann hann rúmlega 17,7 milljónir króna.

Ömurleg niðurstaða

Engar breytingar verða gerðar á stjórnarskránni á yfirstandandi Alþingi en frumvarp þessa efnis verður dregið til baka í dag. Ömurleg niðurstaða segir forsætisráðherra sem segir Sjálfstæðisflokkurinn hafi gefið lýðræðinu langt nef í stjórnarskrármálinu.

Skátarnir gefa 4500 börnum fánaveifur

Þessa dagana er verið að dreifa í öllum grunnskólum landsins fánaveifu til allra 7 ára barna ásamt bæklingi um meðferð íslenska fánans. Skátahreyfingin fór af stað með verkefnið Íslenska fánann í öndvegi á 50 ára lýðveldisafmæli Íslands 1994 og hefur framkvæmt það árlega síðan.

Samið um rannsóknarsetur í orkuvísindum

Í gær undirrituðu Háskóli Íslands, Keilir, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, HS Veitur og HS Orka hf. samstarfssamning um uppbyggingu rannsóknaseturs í orkuvísindum.

Rafræn kjörskrá í Reykjavík á netinu

Opnað hefur verið fyrir rafrænan aðgang að kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmunum vegna alþingiskosninga 2009. Í kjörskránni er hægt að slá inn kennitölu eða nafn og heimilisfang kjósanda og fá þannig upplýsingar um hvoru kjördæmi kjósandi tilheyrir, á hvaða kjörstað hann á að kjósa og í hvaða kjördeild.

Sakar heilbrigðisráðherra um rógburð

Framkvæmdastjóri Læknafélags Íslands sakar Ögmund Jónasson heilbrigðisráðherra um rógburð í garð íslenskra lækna. Gunnar Ármannsson, framkvæmdastjóri félagsins,

Tíðinda að vænta um jöklabréfin

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að hugsanlega megi vænta frétta af ráðstöfunum vegna jöklabréfa á ársfundi Seðlabanka Íslands sem fer fram í dag. Þetta kom fram í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Steingrímur sagði að unnið væri hörðum höndum að því að leysa vandamál sem jöklabréfin hafa skapað.

Mustang er 45 ára í dag

Í dag eru 45 ár síðan að glæsibifreiðin Ford Mustang leit fyrst dagsins ljós. Mustang klúbburinn á Íslandi ætlar að fagna þessum tímamótum í húsnæði Brimborgar að Bíldshöfða á morgun.

Mest atvinnuleysi meðal fólks á aldrinum 16-24 ára

Á fyrsta ársfjórðungi 2009 voru að meðaltali 12.700 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 7,1% vinnuaflsins. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16 til 24 ára, eða 12,6%. Atvinnuleysi mældist 9,2% hjá körlum og 4,8% hjá konum. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar um vinnumarkaðinn.

Færri umferðarslys árið 2008 en 2007

Út er komin skýrsla slysaskráningar Umferðarstofu fyrir árið 2008. Slysaskráning Umferðarstofu byggist á lögregluskýrslum úr gagnagrunni Ríkislögreglustjóra.

Frumvarp um stjórnarskrárbreytingar af dagskrá

Samkomulag náðist í gærkvöldi á Alþingi um að taka frumvarp um breytingar á stjórnarskránni af dagskrá þingsins og því verða engar breytingar gerðar á stjórnarskrá lýðveldisins að sinni. Samkomulag náðist í gærkvöldi um að taka málið út af dagskrá Alþingis.

Tveir stútar og eitt innbrot í Reykjavík

Nóttin var fremur róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og raunar um land allt. Þó voru tveir teknir fyrir ölvunarakstur í borginni og tilkynnt var um innbrot í iðnaðarhúsnæði í Höfðahverfi um fimmleytið í nótt. Enn er þó óljóst hvort einhverju hafi verið stolið.

Hægrahrunið hófst í júní á síðasta ári

Vinstriflokkarnir hafa aldrei mælst með meira fylgi en nú. Í könnunum Fréttablaðsins frá því í október hefur samanlagt fylgi vinstriflokkanna ekki farið undir fimmtíu prósent en að jafnaði verið nær sextíu prósentum. Í síðustu tveimur könnunum blaðsins, sem gerðar voru í apríl, mældist samanlagt fylgi vinstriflokkanna svo yfir sextíu prósentum.

Minnir á grísku byltinguna

„Það misbýður réttlætiskennd minni að sjá lögregluna handtaka fólkið sem hefur komið sér fyrir í þessu húsi,“ segir Stefania Kromydaki, grískur háskólanemi sem var við mótmælin á Vatnsstíg þegar lögreglan leiddi hústökufólkið burt í járnum.

Banna andlegar og líkamlegar refsingar

Óheimilt er að beita börn líkamlegum eða andlegum refsingum eftir að Alþingi samþykkti samhljóða breytingar á barnaverndarlögum í gær. Viðurlög eru sektir eða allt að þriggja ára fangelsisdómur.

Borgin hirðir ekki garðaúrgang

Reykjavíkurborg mun ekki losa borgarbúa við garðaúrgang í ár, eins og verið hefur mörg undanfarin ár. Borgarbúar verða því sjálfir að losa sig við garðaúrgang og greinar.

Sakaður um dylgjur og róg

Ummæli Ögmundar Jónas­sonar heilbrigðisráðherra um að læknar kynnu að misnota ávísanakerfi í heilbrigðisþjónustu vöktu hörð viðbrögð þriggja þingmanna á Alþingi í gær.

Sjá ekki framtíð í krónunni

Meirihluti, eða 61,9 prósent, segist ekki vilja að íslenska krónan verði framtíðargjaldmiðill hér á landi. 38,1 prósent vill halda í krónuna. Ekki er munur á afstöðu eftir kyni, en íbúar á landsbyggðinni eru heldur jákvæðari gagnvart krónunni en íbúar á höfuðborgarsvæðinu. 57,7 prósent íbúa á landsbyggðinni segjast ekki vilja að krónan verði framtíðargjaldmiðill, en 64,5 prósent íbúa á höfuðborgarsvæðinu eru sama sinnis.

Gætum hafið veiðarnar strax

Karl V. Matthíasson, oddviti Frjálslynda flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, segir sérkennilegt hjá sjávarútvegsráðherra að kynna áform fyrir næstu ríkisstjórn. Allsendis sé óvíst með aðkomu Steingríms J. Sigfússonar að þeirri stjórn.

Þjóðgarðurinn stækkaður

Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra undirritaði nýja reglugerð um stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs til norðurs í þjóðgarðinum í gær. Hún tók einnig fyrstu skóflu-stunguna að nýrri gestastofu þjóðgarðsins á Skriðuklaustri.

Þiggur laun bæjarfulltrúa til viðbótar þingfararkaupi

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna benti á það á opnum Borgarafundi á Akureyri í Sjónvarpinu í kvöld að Kristján Þór Júlíusson væri á launum sem bæjarfulltrúi og þægi laun fyrir það til viðbótar við þingfararkaupið. Á sama tíma væri verið að reyna að lækka laun hjá Akureyrirbæ um 5%. Kristján sagði þetta rétt en það væri ekki verið að ræða á sama tíma um að hækka skatta líkt og flokkur Steingríms gerði.

Rannsóknasetur í orkuvísindum stofnað

Í dag undirrituðu Háskóli Íslands, Keilir, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, HS Veitur og HS Orka hf. samstarfssamning um uppbyggingu rannsóknaseturs í orkuvísindum. Samstarfið felur í sér að byggja upp á Ásbrú aðstöðu til þess að stunda rannsóknir á sviði orkuvísinda, sérstaklega á sviði jarðvarma og annarrar endurnýjanlegrar orku og innlendrar orkuframleiðslu. Rannsóknarsetrið verður nýtt sem kennsluaðstaða í orkuvísindum við Keili, Háskóla Íslands og aðra innlenda skóla og kennslustofnanir. Jafnframt við rannsóknir á vegum stofnaðila sem og annarra aðila.

Segir Sjálfstæðisflokkinn traðka á lýðræðinu

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að Sjálfstæðisflokkurinn sé að traðka á lýðræðinu og hafi ekki þjóðarhagsmuni að leiðarljósi heldur sérhagsmuni í tengslum við stjórnarskrármálið. Hún segir flokkinn koma í veg fyrir að auðlindirnar verði í þjóðareign og að fólk fái sjálft að óska eftir þjóðaratkvæðagreiðslu. Bjarni Benediktsson formaður Sjálsfstæðisflokksins segir þetta alrangt. Óljóst er hvenær þinglok verða.

Flokkarnir vita ekki hversu mikið þeir skulda

Stjórnmálaflokkarnir hafa ekki hugmynd um hversu mikið þeir skulda. Skrifstofur flokkanna vita nokkurn veginn um eigin skuldir, en heildarskuldum flokka og flokksfélaga hefur í engu tilviki verið safnað saman.

Sterkur þorskárgangur

Jákvæðar fréttir bárust loks af þorskinum í dag, mikilvægasta nytjastofni Íslendinga, þegar Hafrannsóknstofnunin skýrði frá því að fyrsta mat á stærð þorskárgangsins árið 2008 benti til þess að hann væri sterkur. Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafró, segir þetta óvænt og góð tíðindi sem gefi vonir um að sterkur árgangur komi í veiðistofninn eftir fjögur ár.

Ástþór uppfyllir ekki skilyrði

Framboðslistar Lýðræðishreyfingar Ástþórs Magnússonar teljast ekki uppfylla skilyrði kosningalaga í tveimur af sex kjördæmum.

Stál í stál í þinginu

Átökin á milli stjórnarflokkanna og stjórnarandstöðu á Alþingi hafa harðnað, en samkomulag um hið umdeilda stjórnarskrármál náðist ekki í dag. Stál í stál, segir forseti Alþingis.

Enginn seðlabankastjóri á landinu um stund

Seðlabankastjóralaust var á landinu um tíma í dag þegar að Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri hélt af landi brott á fund við norræna seðlabankastjóra. Þá var Svein Harald Öygard seðlabankastjóri rétt ókominn að utan af fundi sem hann hafði átt með fulltrúum seðlabanka frá öðrum ríkum.

Óttast lokun skurðstofu í Vestmannaeyjum

Elliði Vignisson bæjarstjóri Vestmannaeyja hefur sent Ögmundi Jónassyni heilbrigðisráðherra bréf vegna meintrar ákvörðunar ráðherrans um að skurðstofu í bænum skuli lokað í einn og hálfan mánuð í sumar. Í bréfinu kemur fram að bæjarstjórn hafi fundað með fulltrúum Heilbrigðisstofnunar fyrir fáeinum vikum þar sem þeir hafi sýnt sjónarmiðum heimamanna fullan skilning og tekið yrði tillit til þeirra í sparnaðaraðgerðum.

Sjálfstæðisflokkur missir einn og VG bætir við sig

Samkvæmt skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Rúv og Morgunblaðið í Norðausturkjördæmi missir Sjálfstæðisflokkur einn þingmann og Vinstri grænir bæta við sig einum þingmanni. Vinstri grænir mælast með mest fylgi eða 28% en Framsóknarflokkurinn mælist með 25,6% fylgi í kjördæminu.

Senda ESB athugasemdir vegna bankahrunsins

Utanríkisráðuneytið, í samráði við forsætisráðuneyti, fjármálaráðuneyti, viðskiptaráðuneyti, Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið, hefur sent framkvæmdastjórn Evrópusambandsins athugasemdir af Íslands hálfu varðandi viðbrögð við fjármálahruninu og nauðsynlegar aðgerðir til að stemma stigu við afleiðingum þess.

Vilja 25 manna nefnd til að fjalla um heildarendurskoðun stjórnarskrár

Sjálfstæðismenn vilja að Alþingi kjósi hlutfallskosningu 25 manna nefnd til að undirbúa tillögur að heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar. Gert er ráð fyrir að tillögur þeirrar nefndar liggi fyrir innan tveggja ára. Sjálfstæðismenn kynntu hugmynd að þingsályktunartillögu þessa efnis á fundi

Segir strandveiðarnar vera ódýrt kosningaloforð

Grétar Mar þingmaður Frjálslynda flokksins segir að strandveiðar Steingríms J. Sigfússonar séu ekkert annað en ódýrt kosningaloforð. „Hann gæti eins lofað öllum kíló af gulli eftir kosningarnar,“ segir Grétar Mar.

LÍÚ telur strandveiðarnar ekki mikið gæfuspor

Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ segir að hann telji strandveiðarnar sem Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra boðaði í dag ekki vera mikið gæfuspor. Þarna sé verið að taka afla frá útgerðum/sjómönnum sem stunda atvinnuveiðar og flytja yfir í einhvern annan flokk.

Engin sátt í stjórnarskrárnefnd

Engin sátt náðist milli stjórnarflokkanna og stjórnarandstöðunnar á fundi í stjórnarskrárnefnd alþingis sem var að ljúka. Þinglok eru því enn í uppnámi og óljóst hvenær þinginu lýkur.

Ákærður fyrir morðtilraun

Hinn rúmlega tvítugi Frans Friðriksson hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps þegar hann á að hafa veist að manni og stungið hann með hnífi vinstra megin í brjósthol með þeim afleiðingum að hann hlaut lífshættulega áverka. Þá er Frans einnig ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás þegar hann á að hafa skorið félaga fórnalambsins þegar hann reyndi að forða honum frá atlögu Frans.

Tillögu Ólafs vísað til forsætisnefndar

Borgarráð vísaði í dag tillögu Ólafs F. Magnússonar borgarfulltrúa um að upplýsa um öll fjárframlög til sveitarfélaga og einstaklinga innan þeirra framboða sem fengu háa fjárstyrki frá fyrirtækjum og hagsmunatengdum aðilum fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar.

Frjálsar strandveiðar í boði Steingríms J. Sigfússonar

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, áformar að koma á nýjum flokki veiða, “strandveiðar”, þar sem heimilaðar verða frjálsar handfæraveiðar við ströndina. Ráðstafað verði 8.127 tonnum af óslægðum botnfiski til strandveiða á yfirstandandi fiskveiðiári. Nýja kerfið komi í stað byggðakvótans, en fyrirkomulag byggðakvóta er umdeilt og hefur valdið margvíslegum þrætumálum. Í tilkynningu um málið segir að strandveiðarnar munu þó í meginatriðum takmarkast annars vegar af þeim heildarafla sem ráðstafað er sérstaklega í þessu skyni og hins vegar af stærð báta. Gert er ráð fyrir að strandveiðum verði í fyrstu komið á til reynslu. Síðan verður metið hvernig til hafi tekist og framhald ákveðið. Markmiðið er nýting sjávarauðlindarinnar á nýjum grunni þar sem mönnum verði gert mögulegt að stunda frjálsar veiðar með ströndinni á sjálfbæran og ábyrgan hátt. Núverandi stjórn fiskveiða er gagnrýnd fyrir að erfitt sé fyrir nýja aðila að hefja veiðar í atvinnuskyni. Með strandveiðunum er opnað á takmarkaðar veiðar þeirra sem ekki þurfa að vera handhafar veiðiheimilda. Þannig er til að mynda ungu og áhugasömu fólki auðveldað að afla sér reynslu og þekkingar um leið og sveigjaleiki er aukinn. Til strandveiða verði ráðstafað þeim heimildum sem nú mynda byggðakvóta, þ.e.a.s. 6.127 tonn af óslægðum botnfiski auk 2.000 tonna viðbótar sem ráðherra ákveður. Þetta magn myndi stofn strandveiðanna, en fyrirmyndin er sótt í verklag við línuívilnun, sem nokkur reynsla er komin á og þykir hafa gengið vel. Öllum verður frjálst að stunda þessar veiðar sem uppfylla þau almennu skilyrði sem sett verða. Alls eru, í dag, skráðir um 720 haffærir bátar undir 15 brúttótonnum. Um 650 þessara báta hafa stundað fiskveiðar í atvinnuskyni á síðastliðnum árum. Varanlegar aflaheimildir eru bundnar við 350 þeirra en til viðbótar eru um 140 bátar með varanlegar aflaheimildir en eru ekki með gilt haffæri sem oftast er þá innlagt. Til viðbótar er einhver fjöldi báta sem varanlegar aflaheimildir eru ekki bundnar við og ekki hafa gilt haffæri.

Meira kannabis tekið á þremur mánuðum en þremur árum

Afbrotatölfræði fyrir marsmánuð hefur nú verið birt á vef ríkislögreglustjóra. Þar kemur m.a. fram að fyrstu þrjá mánuði ársins 2009 hefur lögreglan lagt hald á 6.001 kannabisplöntu sem er 23% meira en samanlagt magn kannabisplantna sem lögreglan haldlagði á árunum 2005-2008.

Þriðjungur þingmanna samþykkti listamannalaun

Einungis þriðjungur þingmanna á Alþingi Íslendinga greiddi atkvæði með fjölgun listamannalauna þegar frumvarpið var samþykkt á Alþingi í morgun. Alls greiddi 21 þingmaður frumvarpinu atkvæði sitt. Níu greiddu atkvæði gegn því en 29 voru fjarstaddir við atkvæðagreiðsluna. Alls sitja 63 þingmenn á Alþingi.

Sjá næstu 50 fréttir