Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dæmdur fyrir ólöglegt samræði við fjórtán ára stúlku Rúmlega tvítugur piltur var dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa haft þrisvar samræði við fjórtán ára stúlku. Að auki er hann dæmdur fyrir að hafa látið hana hafa haft munnmök við sig. Brotin áttu sér stað í bifreið piltsins. 26.3.2009 15:09
Hitað upp fyrir formannsslaginn í Sjálfstæðisflokknum Bjarni Benediktsson og Kristján Þór Júlíusson eru í framboði til formanns Sjálfstæðisflokksins en kosið verður á landsfundi um helgina. Bjarni lýsti yfir framboði fyrir þónokkru síðan en Kristján hefur verið í framboði í þrjá daga. Vísir sló á þráðinn og heyrði í þeim félögum. 26.3.2009 15:07
Ráðherrar gera grein fyrir fjárhagslegum hagsmunum sínum Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa nú allir gert grein fyrir fjárhagslegum hagsmunum sínum og trúnaðarstörfum sem þeir gegna. Ríkisstjórnin ákvað þann 17. mars síðastliðinn að gera grein fyrir þessum upplýsingum og nú hafa allir ráðherrarnir skilað þeim inn. Skemmst er frá því að segja að ráðherrar núverandi ríkisstjórnar eiga lítilla eða engra fjárhagslegra hagsmuna að gæta og gegna fáir þeirra einhversskonar trúnaðarstörfum fyrir utan flokka þeirra. 26.3.2009 14:38
Bjarni stendur betur að vígi en Kristján Þór Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ, segir Sjálfstæðisflokkinn standa á tímamótum en landsfundur flokksins hefst í dag. Baldur telur Bjarna Benediktsson standa betur að vígi en Kristján Þór Júlíusson en báðir sækjast eftir því að verða næsti formaður flokksins. Baldur segir mikilvægt fyrir formannsframbjóðendurna að mæta vel undirbúna leiks. 26.3.2009 14:20
Dæmdur tvisvar fyrir að lemja unnustu sína Flugmaðurinn Jens R. Kane var dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að leggja hendur konu sína, Veronicu Rincon frá Venesúela. Málið vakti talsverða athygli þegar fyrst var réttað í því en þá hélt Veronica því fram að Jens, sem þá starfaði sem flugmaður, hefði smyglað henni ólöglega til landsins í skjóli starfs síns. 26.3.2009 14:09
Á írsku menningarrölti í miðjum niðurskurði „Við fórum á sunnudaginn til Írlands og ræddum við þarlend yfirvöld um menningarhátíðina en við getum haldið hana með minna umfangi en áður," segir Gunnar Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs sem fékk heldur eitraðan pistil í morgunsárið þar sem Flosi Eiríkisson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, gagnrýndi hann harðlega fyrir að fara til útlanda vegna menningarhátíðar á meðan bæjarstarfsmenn þurfa að þola mikinn niðurskurð. Gunnar kom aftur heim í gær en með honum í för var framkvæmdarstjóri menningarmála í bænum. 26.3.2009 13:31
Uppræting kannabisverksmiðja heldur áfram Lögreglan hefur upprætt enn eina kannabisræktunina, nú í bakhúsi á Vesturgötunni í miðbæ Reykjavíkur. Samkvæmt heimildum var um að ræða 190 kannabisplöntur og þar af voru um 60 í miklum blóma. Hinar voru á mismundandi stigum ræktunar. Einn maður hefur verið yfirheyrður vegna málsins en hann var ekki handtekinn. 26.3.2009 13:15
Tjónið í Sandgerði hleypur á tugum milljóna Tjónið, sem varð í bruna í plastverksmiðju Sólplasts í Sandgerði í gærkvöldi, hleypur á mörgum tugum milljóna. Eldurinn virðist hafa komið upp í stórum plastfiskibáti, sem var verið að gera við eftir bruna í honum í febrúar. 26.3.2009 12:26
Landsfundur sjálfstæðismanna hefst í dag Landsfundur Sjálfstæðisflokksins verður settur í dag og hefst fundurinn klukkan hálf sex með ræðu Geirs H. Haarde, fráfarandi formanns flokksins. Evrópumálin verða fyrirferðamikil á fundinum en í fyrramálið verða kynntar tillögur evrópunefndar flokksins. 26.3.2009 12:11
Þrír handteknir í tengslum við kannabisrækt í Þykkvabæ Lögreglan á Hvolsvelli handtók í gær þrjá menn á þrítugsaldri í tengslum við stóra kannabisverksmiðju í Þykkvabæ. Mennirnir hafa allir komið við sögu lögreglu áður. 26.3.2009 12:00
Framsókn toppaði of snemma Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur, telur að Framsóknarflokkurinn hafi toppað of snemma þegar flokkurinn var á miklu flugi í skoðanakönnum í kjölfar landsfundar í janúar. Frá þeim tíma hafi margt breyst og ný ríkisstjórn verið mynduð fyrir tilstilli flokksins. 26.3.2009 11:16
Ógnaði afgreiðslumanni 10-11 með hnífi Um kvöldmatarleytið í gærkvöldi kom drengur inn í verslun 10-11 við Engihjalla í Kópavogi, ógnaði þar afgreiðslumanni með hnífi og heimtaði peninga. Afgreiðslumaðurinn lét hann hafa peninga en hann var síðan handsamaður fyrir utan verslunina. Að sögn lögreglu er drengurinn andlega vanheill og var lögregla að leita hans áður en ránið var framið. 26.3.2009 10:31
Sendiráðinu í Managua lokað í sumar Samuel Santos utanríkisráðherra Níkaragva og Sighvatur Björgvinsson framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands áttu fund í Managua á þriðjudag vegna þeirrar ákvörðunar íslenskra stjórnvalda að loka sendiráði Íslands í landinu sem jafnframt er umdæmisskrifstofa Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. 26.3.2009 10:26
Rafmagn komið á í Garðabæ Rafmagn er komið á í Garðabæ en fyrir stundu varð háspennubilun í bænum sem gerði það að verkum að hluti bæjarins varð rafmagnslaus um tíma. 26.3.2009 09:36
Dólgapópúlismi Ögmundar Yfirlýsing Ögmundar Jónassonar um að hann afþakki ráðherralaun markar nýjar lægðir í ódýrri yfirboðs- og yfirborðspólitík mánuði fyrir kosningar, segir á vefritinu Herðubreið sem tengist Samfylkingunni. 26.3.2009 09:21
Ríkisstjórnarflokkarnir fengju traustan meirihluta Ríkisstjórnarflokkarnir tveir fengju traustan meirihluta á þingi, ef kosið yrði nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar tvö, en fylgið hrynur af Framsóknarflokknum. 26.3.2009 08:21
Sunnlenskir þríburar fengu ökuréttindi samtímis Sunnlenskir þríburar, tvær stúlkur og einn piltur, fengu ökuréttindi samtímis í vikunni. Þau höfðu lokið ökunámi og tekið prófið áður en þau náðu 17 ára aldrinum en á miðnætti, aðfaranótt afmælisdagsins, mættu þau á lögreglustöðina á Selfossi og sóttu skírteinin. 26.3.2009 08:10
Ökumenn í vandræðum fyrir norðan Lögreglan á Akureyri braust upp í Víkurskarð laust fyrir miðnætti til að aðstoða mann sem sat þar fastur í bíl sínum. Ekkert amaði að manninum. Þar var hvasst og ófærð og snjóaði talsvert á þessum slóðum í nótt. Undir morgun lenti annar ökumaður í vandræðum á Öxnadalsheiði, en snjóruðningsmenn komu honum til hjálpar. 26.3.2009 07:11
Norskur sjómaður slasaðist á Akureyri Norskur sjómaður slasaðist þegar hann féll fjóra metra niður á þilfar olíuskips, sem var í Akureyrarhöfn í gærkvöldi. Hann var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri og reyndist höfuðkúpubrotinn og mikið meiddur á hné. Hann er þó ekki í lífshættu, en mun dvelja eitthvað áfram á sjúkrahúsinu. Slysið varð þegar maðurinn var að tengja barka til dælingar. 26.3.2009 07:09
Bruni í plastverksmiðju í Sandgerði Töluvert tjón varð þegar eldur kviknaði í plastverksmiðju í Sandgerði um klukkan ellefu í gærkvöldi. Starfsmenn voru nýhættir vinnu og var húsið mannlaust. Mikinn reykjarmökk lagði um tíma upp af húsinu og var um tíma óttast að það brynni til grunna. Slökkvilið braut sér leið inn í það með vinnuvél og dró þaðan út brennandi ellefu tonna hraðfiskibát, sem var þar til viðgerðar. 26.3.2009 07:04
Bjarni leiðir listann - Bryndís hvergi sjáanleg Listi Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir Alþingiskosningar sem fram fara 25. apríl næstkomandi var samþykktur á fundi kjördæmaráðs í kvöld. Bjarni Benediktsson alþingismaður leiðir listann og í öðru sæti er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir alþingismaður. 25.3.2009 23:42
Vill að borgarráð verði upplýst um hættu af hesthúsabyggð Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi óskar eftir því að fagaðilar frá veiðimálastofnun og umhverfis- og samgönguráði borgarinnar upplýsi borgarráð um þá hættu sem gæti stafað af hesthúsabyggð í Elliðaárdal fyrir vatnsbúskap og lífríki Elliiðaánna. 25.3.2009 22:20
Þrotabú Baugs krefst riftunar á greiðslu til dótturfélags SPRON Þrotabú Baugs hefur krafist riftunar á yfir 100 milljóna króna greiðslu til dótturfélags SPRON.Talið er að kröfuhöfum hafi verið mismunað með greiðslunni. 25.3.2009 19:12
Sýknaður af ákæru um kynferðisbrot gegn fatlaðri stjúpdóttur Héraðsdómur Reykjaness sýknaði á mánudaginn karlmann af ákæru fyrir kynferðislegt ofbeldi gegn fatlaðri stjúpdóttur sinni. Karlmaðurinn var sakaður um að hafa sett fingur í leggöng og/eða nuddað kynfæri hennar innanklæða. 25.3.2009 19:56
Vigdís fékk ekki launalaust leyfi frá ASÍ Vigdís Hauksdóttir sem situr í fyrsta sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður segist hafa óskað eftir launalausu leyfi frá störfum hjá Alþýðusambandi Íslands vegna framboðs síns til Alþingis en Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, hafi þá tjáð henni að litið væri á framboðið sem uppsögn af hennar hálfu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Vigdísi. 25.3.2009 18:53
Stuðningsmenn Guðlaugs styðja Kristján Þór Nánir samstarfsmenn þingmannsins Guðlaugs Þórs Þórðarsonar hafa fylkt sér að baki Kristjáns Þórs Júlíussonar í formannsslag Sjálfstæðisflokksins. 25.3.2009 18:30
Hátt í 900 fóstureyðingar árið 2007 Alls voru 877 fóstureyðingar skráðar hjá konum með lögheimili á Íslandi árið 2007, sem er svipað og árin 2004 og 2005, eftir því sem fram kemur í Talnabrunni Landlæknis. Tölur um fóstureyðingar á hverjar 1.000 konur sýna að fóstureyðingum hefur farið heldur fækkandi undanfarinn áratug, en fækkun sést ennfremur sé litið til fjölda fóstureyðinga miðað við hverjar 1.000 fæðingar. 25.3.2009 18:30
Starfskjör skert á Kragasjúkrahúsum Niðurskurður í heilbrigðiskerfinu kemur beint eða óbeint niður á heildarlaunum starfsmanna á svokölluðum Kragasjúkrahúsum vegna hagræðingar. Með Kragasjúkrahúsunum er átt við St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og heilbrigðisstofnanirnar á Suðurlandi og á Suðurnesjum. 25.3.2009 16:26
Segir Vigdísi hafa óskað eftir starfslokum Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segir að Vigdís Hauksdóttir hafi óskað eftir starfslokum hjá sambandinu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Gylfa en þar segir einnig að Alþýðusamband Íslands hafni því alfarið að Vigdís hafi verið látin gjalda stjórnmálaskoðana sinna. 25.3.2009 16:18
1700 skráðir á landsfund Samfylkingarinnar Um 1700 manns hafa skráð sig til þátttöku á landsfund Samfylkingarinnar sem fer fram um helgina í Smáranum, Kópavogi. Á fundinum verður kjörin ný forysta en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður flokksins, og Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður, sækjast ekki eftir endurkjöri. 25.3.2009 16:16
Suðurlandsvegur verður að mestu 2+2 vegur Kristján Möller, samgönguráðherra, og Hreinn Haraldsson, vegamálastjóri, kynntu í dag tillögur um tvöföldun Suðurlandsvegar. Meginhluti leiðarinnar á milli Reykjavíkur og Selfoss verður 2+2 vegur en kaflinn milli Litlu kaffistofunnar og Kambabrúnar verður 2+1 vegur með aðskildum akstursstefnum. Heildarkostnaður verkefnisins er rúmlega 16 milljarðar króna. Einum milljarði verður ráðstafað á þessu ári en fyrsti hluti verkefnisins verður boðinn út síðar á árinu. 25.3.2009 15:43
Malbikunarmaður sló vinnufélaga með skóflu Rúmlega fertugur malbikunarmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa slegið samstarfsmann sinn með skóflu í andlitið með þeim afleiðingum að hann hlaut heilahristing. Fórnarlambið fer fram á tæpa milljón í skaðabætur. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í dag. 25.3.2009 15:34
Ráðherrar ræddu um makrílveiðar Íslendinga Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Helgu Pedersen, sjávarútvegsráðherra Noregs, ræddu saman í síma í dag um yfirlýsingar hennar í norskum fjölmiðlum um markílveiðar Íslendinga. Hún hefur hvatt til þess að íslenskt mjöl sem unnið er úr makríl verði ekki notað sem fóður í laxeldi í Noregi. 25.3.2009 15:26
Framsókn gagnrýnir Gylfa Arnbjörnsson Framsóknarflokkurinn gagnrýnir harðlega uppsögn Vigdísar Hauksdóttur lögfræðings hjá ASÍ en henni var gert að hætta hjá sambandinu í kjölfar þess að hún náði fyrsta sæti á lista flokksins í Reykjavík. Í tilkynningu frá flokknum segir að lýðræðið í landinu byggist fyrst og fremst á því að fyrirheitið sem felst í nafninu lýðræði sé virt og efnt með almennri þátttöku landsmanna í starfi stjórnmálaflokka, stefnumótun þeirra og framboðum. 25.3.2009 15:20
Framboðsræða Snorra í Valhöll - myndband Listamaðurinn Snorri Ásmundsson er í framboði til formanns Sjálfstæðisflokksins, en nýr formaður verður kjörinn á landsþingi flokksins um komandi helgi. Á fundi í Valhöll hélt Snorri ræðu ásamt þeim Kristjáni Þór Júlíussyni og Bjarna Benediktssyni sem einnig eru í framboði. Í máli Snorra kom fram að hann væri krónískur óþekktarangi sem sennilega hefði getað farið þann veg sem venjulegir formenn fara ef hann hefði verið settur á Rítalín. Snorri segir stjórnmálin krabbameinsvaldandi og því sé þetta ekki öfundsvert starf. 25.3.2009 15:05
Enn ein kannabisframleiðslan stöðvuð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í íbúðahúsi í Hafnarfirði í gær og í miðborginni á sunnudag. Samtals var lagt hald á 650 kannabisplöntur. 25.3.2009 15:01
Ljósmæður ánægðar með Ögmund Stjórn Ljósmæðrafélags Íslands fagnar ákvörðun Ögmundar Jónassonar, heilbrigðisráðherra, að halda fæðingaþjónustu óskertri á Suðurlandi og Suðurnesjum, enda vafasamt að skerðing þeirrar þjónustu hefði haft í för með sér raunverulegan sparnað. 25.3.2009 14:56
Svanasöngur Geirs á þingi Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, bað um orðið í upphafi þingfundar á Alþingi í dag. Hann tilkynnti að þetta væri síðasti starfsdagur hans á þingi og að hann yrði fjarverandi í næstu viku af persónulegum ástæðum. Í framhaldinu fundaði Geir með fréttamönnum ásamt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, varaformanni flokksins. 25.3.2009 14:20
Vilja jarðgöng undir Fjarðarheiði Fjórir þingmenn í Norðausturkjördæmi vilja að Alþingi feli samgönguráðherra nú þegar undirbúning að gerð jarðganga undir Fjarðarheiði. Fram kemur í þingsályktunartillögu þingmannanna að þeir vilja að rannsóknum og undirbúningi verði lokið í tæka tíð til að hægt verði að hefja framkvæmdir í beinu framhaldi af Norðfjarðargöngum eða ekki síðar en sumarið 2011. 25.3.2009 14:00
Kynna lista yfir mál sem þarf að ljúka fyrir þinglok Listi yfir 22 mál sem stjórnarflokkarnir telja að brýnt sé að ljúka fyrir þinglok hefur verið kynntur fyrir formönnum stjórnmálaflokkanna og verður kynntur þingmönnum síðar í dag. Þetta kom fram í máli Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra við fyrirspurn Birgis Ármannssonar þingmanns sem vildi vita hvaða mál ætti að leggja áherslu á fyrir þinglok. 25.3.2009 13:48
Meint nauðgun í Eyjum rannsökuð Lögreglan í Vestmanneyjum hefur til rannsóknar kæru vegna meintrar nauðgunar sem sögð er að átt hafi sér stað aðfaranótt 22. mars. Fram kemur á fréttavefnum Eyjar.net að málsatvik liggi ekki ljós fyrir en skýrsla hefur verið tekin af meintum þolanda, sem er kona um fertugt, og meintum geranda, sem er karlmaður um þrítugt. 25.3.2009 13:48
Pólitískar nornaveiðar innan ASÍ Siv Friðleifsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins spurði félagsmálaráðherra út í mál Vigdísar Hauksdóttur samflokkssystur sinnar á Alþingi í dag. Vígdísi var ekki veitt launalaust leyfi sem hún sótti um þegar hún tók þátt í prófkjöri fyrir Framsóknarflokkinn. Siv benti á að Magnús Norðdal lögfræðingur hjá ASÍ hefði hinsvegar fengið launalaust leyfi þegar hann tók þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar. Siv sagði þetta lykta af pólitískum nornaveiðum og kallaði eftir upplýsingum frá félagsmálaráðherra um málið. 25.3.2009 13:47
Bikiníbomba stal sundbol Bikiníbomban Anna Nicole Grayson var ákærð fyrir fíkniefnamisferli, þjófnað og skemmdarvek í tuttugu og fjórum ákæruliðum á dögunum. Nú hafa þrír ákæruliðir bæst við. Meðal annars er Anna ákærð fyrir að hafa stolið vörum úr Bónus og sundbol úr versluninni Sportveri við Glerártorg á Akureyri. Hún er einnig ákærð fyrir fjársvik með því að hafa stolið þremur greiðslukortum úr fataskáp við Djassballetskóla Báru. Í framhaldi af því sveik ún út veitingar á veitingastaðnum Ruby Tuesday með umræddum greiðslukortum. 25.3.2009 13:42
Ókeypis tannlækningar á Facebook: Þúsundir hafa skráð sig Ríflega 8300 manns hafa nú skráð sig á Facebook síðu þar sem skorað er á stjórnvöld að gera tannlækningar barna undir 18 ára aldri ókeypis. Á síðunni er bent á að tannlæknakosntaður sé mörgum barnafjölskyldum þung byrði. Einnig er bent á að á hinum Norðurlöndunum sé tannlæknaþjónusta ókeypis fyrir þennan aldursflokk. 25.3.2009 13:07
Greint frá áformum um breikkun Suðurlandsvegar Kristján Möller, samgönguráðherra, og Hreinn Haraldsson, vegamálastjóri, greina í dag frá áætlun og tilhögun breikkunar Suðurlandsvegar á næstu misserum. 25.3.2009 12:59