Fleiri fréttir

Mælir fyrir sínu fyrsta máli

Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, mælir á eftir fyrir sínu fyrsta frumvarpi á Alþingi sem ráðherra en það snýr að breytingum á lögum um gjaldþrotaskipti og greiðsluaðlögun. Strax á eftir verður fjallað um annað frumvarp um gjaldþrotaskipti þegar Björn Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, talar fyrir frumvarpi sínu. Í kjölfar hefst umræða á frumvarpi Sivjar Friðleifsdóttur, þingflokksformanns Framsóknarflokksins, um greiðsluaðlögun.

Úrskurðaður í síbrotagæslu

Tæplega þrítugur karlmaður var í gær úrskurðaður í síbrotagæslu til fjórða mars, að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna fjölda afbrota á skömmum tíma.

Íhuga að draga úr sjósókn

Stóru útgerðarfélögin í landinu íhuga nú að draga úr sjósókn vegna mikillar birgðasöfnunar á sjávarafurðum, lækkandi verðs á heimsmarkaði og hríðlækkandi verðs á innlendum fiskmörkuðum.

Slökkti eld í mannlausum bíl

Snarráður borgari sá undir morgun hvar eldur hafði kviknað í mannlausum bíl í Breiðholti í Reykjavík, hringdi í slökkviliðið og náði svo að slökkva eldinn sjálfur, áður en það kom á vettvang skömmu síðar. Vegna þessa skemmdist bíllinn lítið. Eldsupptök eru ókunn.

Lögregla elti ölvaðan ökumann

Ölvaður ökumaður á þrítugsaldri sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu, eftir að hann hafði mælst á 110 kílómetra hraða á Sæbraut í Reykjavík rétt upp úr miðnætti, heldur ók greitt vestur á bóginn.

Leita að neyðarsendi í Reykjavík

Stjórnstöð og þyrla Landhelgisgæslunnar hafa frá í morgun reynt að staðsetja neyðarsendi sem hóf að senda merki upp úr klukkan ellefu í morgun en flugvélar í yfirflugi tilkynntu merkin til Flugstjórnarmiðstöðvarinnar í Reykjavík.

Júlíus Vífill íhugar þingframboð

Júlíus Vífill Ingvarsson borgarfulltrúi íhugar framboð til Alþingis. Samkvæmt heimildum fréttastofu mun Júlíus ætla að bjóða sig fram í Reykjavík, en Júlíus var kjörinn borgarfulltrúi árið 2006. Hann var jafnframt borgarfulltrúi á árunum 1998-2002. Júlíus er menntaður lögfræðingur og óperusöngvari.

Grunnur að endurreisn liggur í samstarfi við AGS

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi, að mikilvægt væri að samhent ríkisstjórn starfi á þeim erfiðu tímum sem nú séu uppi. Hún óskaði því nýrri ríkisstjórn velfarnaðar í störfum sínum. Hún vonaði að ríkisstjórnin myndi halda vel á spöðunum þjóðinni til heilla.

Vonar að upplausnin í samfélaginu sé á enda

„Það er von mín að sú upplausn sem verið hefur í samfélaginu sé nú að baki og við séum nú á sáttarleið," sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í stefnuræðu sinni.

Þarf að auka atvinnu með öllum tiltækum ráðum

Frjálslyndi flokkurinn vill að ráðning hæstaréttardómara verði samþykkt á Alþingi með auknum meirihluta, sagði Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins við umræður um

Það verður að skapa störf

Það var öllum orðið ljóst að fyrri ríkisstjórn var orðin óstarfhæf, sagði Birkir J. Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi í kvöld.

Össur vill selja útlendingum virkjanir

Iðnaðarráðherra freistar þess nú að fá erlend fyrirtæki og sjóði til að fjárfesta í íslenskum virkjunum. Hann hefur meðal annars rætt við Alcan um að koma að Búðarhálsvirkjun en framkvæmdir þar gætu orðið þær umfangsmestu í landinu ef þær kæmust í gang á árinu.

Nýjar brýr yfir Hvítá og Þjórsá boðnar út

Tvær nýjar brýr yfir stórfljót Suðurlands, Hvítá og Þjórsá, umbylta samgöngum um helsta landbúnaðarhérað landsins og um þéttbýlustu sumarhúsasvæðin. Báðar brýrnar eiga að vera tilbúnar á næsta ári.

Hætta að senda börnum reikninga

„Þessari framkvæmd verður breytt þannig að það verður farið í handvirka leit að forráðamönnum barna yngri en átján ára og þeim sendir reikningarnir," segir Magnús Skúlason, framkvæmdarstjóri Heilbrigðistofnunnar Suðurlands.

Vikið verði frá stóriðjustefnu fyrri stjórna

Ung vinstri græn krefjast þess að ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar beiti sér af fullum þunga fyrir því að horfið verði frá stóriðjustefnu fyrri ríkisstjórna tafarlaust. Að þeirra mati hefur sú stefna nú þegar valdið íslenskri náttúru miklum skaða sem og efnahag þjóðarinnar.

Stjórn LÍN vikið frá störfum

Katrín Jakobsdóttir, nýr menntamálaráðherra, lét það verða á meðal sinna fyrstu verka að víkja stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna frá störfum. Í frétt Ríkisútvarpsins um málið er haft eftir Katrínu að hún hyggist skipa í nýja stjórn í vikunni. Nýrri stjórn verður falið að fara yfir úthlutunarreglur sjóðsins og leggja til skammtímaaðgerðir.

Fæðing á plani: Kom í heiminn á þremur mínútum

„Þetta er eins og maður sér í bíómynd," lýsir endurskoðandinn Davíð Arnar Einarsson, sem eignaðist litla dóttur á plani bensínstöðvar Orkunnar snemma í morgun. Svo virðist sem bensínstöðin sé barnvæn í meira lagi því dóttir Davíðs er annað stúlkubarnið sem fæðist á plani stöðvarinnar á hálfu ári.

Tjón vegna Suðurlandsskjálfta á fimmta milljarð

Viðlagatrygging Íslands hefur greitt 4,7 milljarð króna vegna Suðurlandsskjálfta í maí í fyrra. Áætlanir gera ráð fyrir að heildarupphæðin gæti orðið 6,2 milljarðar króna. Að auki hafa tjónþolar borið sjálfsábyrgð vegna tjóna. Þetta kemur fram í svari viðskiptaráðherra við fyrirspurn Kristins H. Gunnarsson, þingmanns Frjálslynda flokksins, um tjón af skjálftanum.

Fjárframlög til stjórnmálaflokka lækki um 10 prósent

Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp sem felur í sér að fjárframlög til stjórnmálaflokka lækki á yfirstandandi ári um 10% og taki þannig sambærilegum breytingum og framlög til Alþingis.

FME: Svarar ekki hvort það hafi vitað af Icesave tilboði Breta

Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra hefur svarað fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur þingkonu Framsóknarflokksins sem hún lagði fram á Alþingi fyrir jólin um stöðu bankamála og Icesave- ábyrgðir. Spurningar Sivjar voru í sjö liðum. Í svörum Björgvins kemur meðal annars fram að hann hafi ekki haft vitneskju um tilboð breska fjármálaráðuneytisins (FSA) á sínum tíma um að gegn 200 milljóna punda fyrirgreiðslu væri FSA tilbúið að færa reikninga Icesave yfir í breska lögsögu. Fjármálaeftirlitið á Íslandi vill hins vegar ekki gefa upp hvort stofnunin hafi vitað af tilboðinu.

Guðbjartur kjörinn nýr forseti Alþingis

Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, var kjörinn nýr forseti Alþingis í dag. Hart var deilt í aðdraganda forsetakjörsins og bornar voru fram tvær tillögur. Önnur um Guðbjart og hin Sturlu Böðvarsson, fyrrverandi forseta.

Sturlu komið frá í boði Framsóknar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir að Sturla Böðvarsson, sem lætur af störfum sem forseti Alþingis í dag, hafi styrkt og aukið vægi þingsins. Til stendur að Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, verði kjörinn forseti í hans stað.

Stjórnarskrá breytt fyrir ESB-aðild

Áttatíu daga stjórnin hyggst breyta stjórnarskrá á þann veg að Ísland getur á næsta kjörtímabili gengið í Evrópusambandið að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Mikilvæg breyting, segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar. Varaformaðurinn segir stjórnina vera að tryggja að Evrópumálin læsist ekki inni á næsta kjörtímabili.

Áform um loftrýmiseftirlit hugsanlega endurskoðuð

Nýr utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, segir að áform um loftrýmiseftirlit NATO-ríkja yfir Íslandi á árinu kunni að verða endurskoðuð. Betra kunni að vera að verja peningunum frekar til velferðarmála og atvinnuuppbyggingar.

Stef-úrskurði sennilega áfrýjað

„Ég áætla að úrskurðinn verður kærður," segir Svavar Lúthersson, forsvarsmaður Istorrent, sem tapaði dómsmáli gegn Stef nú í morgun. Að sögn Svavars er dómurinn fyrst og fremst áfall fyrir deilisskráar-samfélagið en fjölmargir nýta sér hverskyns niðurhal.

Gagnrýnir Olli Rehn fyrir ummæli um Ísland

Hans-Gert Pöttering, forseti Evrópuþingsins, gagnrýnir stækkunarstjóra sambandsins Olli Rehn fyrir ummæli sem hann lét falla um Ísland í breska blaðinu Guardian. Þar sagði Rehn að Íslendingar gætu ferst aðilar að Evrópusambandinu árið 2011, á sama tíma og Króatar ganga inn.

Bankastjórarnir hafa ekki svarað Jóhönnu

Seðlabankastjórarnir þrír hafa enn ekki svarað bréfi sem forsætisráðherra sendi þeim á mánudag, þar sem þess er farið á leit að þeir láti af embætti og geri starfslokasamning við ríkið. Frestur sem gefinn var til að svara bréfinu rennur út á morgun.

Sævar vill 1. sætið í Suðurkjördæmi

Sævar Ciesielski, sem fékk þyngsta dóminn í Geirfinnsmálinu svokallaða, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. Flokkurinn fékk tvo þingmenn kjörna í kjördæminu fyrir tveimur árum.

Þriggja ára barn í innheimtu

Þriggja ára gamall drengur búsettur á Eyrabakka hefur fengið senda til sín fimm greiðsluseðla frá heilbrigðisstofnun Suðurlands og þar á meðal innheimtukröfu upp á þrjú hundruð krónur.

Þrír vilja fyrsta sætið hjá Framsókn

Þrír sækjast eftir fyrsta sætinu á framboðslista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi í næstu þingkosningum. Friðrik Jónsson, sérfræðingur í alþjóðasamskiptum og formaður Framsóknarfélagsins á Akranesi, sækist eftir því að leiða listann. Áður höfðu Guðmundur Steingrímsson og Gunnar Bargi Sveinsson, sveitarstjórnarmaður í Skagafirði, líst því yfir að þeir stefna á fyrsta sætið. Magnús Stefánsson, eini þingmaður flokksins í kjördæminu, tilkynnti nýverið að hann hyggst ekki sækjast eftir endurkjöri.

Hvað eru norðurljós?

Hvaða fyrirbæri er þetta sem stundum sést og stundum ekki - fyrirbæri sem þrátt fyrir nafn sitt Norðurljós sést ekki á norðurpólnum en sést yfir Íslandi?

Allir flokkar fái nefndarformann

Undanfarna daga hefur verið rætt um að allir flokkar á Alþingi skipti með sér formennsku í fastanefndum þingsins. Fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna eru meðal þeirra sem talað hafa fyrir tillögunni. Framsóknarflokkurinn hyggst ekki taka að sér nefndarformennsku nema aðrir flokkar geri slíkt hið sama.

Kallað eftir umsögnum ólíkra aðila

Í samræmi við verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar mun nefnd um þróun Evrópumála á næstu dögum óska eftir upplýsingum um sértæka hagsmuni fjölda umsagnaraðila hvað varðar hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Í því skyni hefur bréf verið sent til samtaka, stofnana og fyrirtækja og óskað eftir svörum fyrir 20. febrúar. Gert er ráð fyrir að nefndin skili skýrslu til ríkisstjórnarinnar fyrir 15. apríl.

Stef sigraði Svavar

„Meginniðurstaðan er sú að að lögbannið gegn Istorrent er algjörlega staðfest og svo var bótaskyldan viðurkennd," segir Snæbjörn Steingrímsson, framkvæmdarstjóri Smáís, en Stef sigraði dómsmál varðandi höfundarvarið efni sem þeir höfðuðu gegn Svavari Lútherssyni sem hélt úti síðunni Istorrent, nú í morgun.

Þing kemur saman

Alþingi kemur saman eftir hádegi í fyrsta skipti eftir að ný ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur var mynduð. Umtalverðar breytingar verða gerðar á nefndarskipan og nýir formenn fastanefnda kjörnir. Þá er ráðgert að þingmenn kjósi nýjan forseta í stað Sturlu Böðvarsson. Þingfundur hefst klukkan hálf tvö.

Sterkefnaðir undir stýri

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði tvo ökumenn undir morgun, grunaða um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar var líka ökuréttindalaus, eftir að hafa verið sviptur þeim, og á farþega í öðrum bílnum fundust þrjú grömm af amfetamíni og eitt gramm af hassi.

Lögregla upprætti umfangsmikla kannabisræktun

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu upprætti stórfellda kannabisræktun í iðnaðarhúsi í Hafnarfirði í gærkvöldi. Lögreglumenn réðust þar inn og fundu um það bil hundrað kannabisplöntur sem allar voru komnar á lokastig ræktunar.

Afsagnir voru forsenda trausts

„Ekki er deilt um það í þinginu að þessar afsagnir voru eins og mál voru komin algerlega nauðsynleg forsenda þess að skapa mætti traust og frið um bankann á nýjan leik.“

Davíð hefur ekki gefið Jóhönnu svar

Frumvarp um breytingar á Seðlabankanum verður lagt fram á þingi í vikunni. "Að sjálfsögðu styður maður góð mál,“ segir Pétur Blöndal alþingismaður. Forsætisráðherra telur ásættanlegt að semja um tólf mánaða starfslok bankastjóra.

Deilt um hvalveiðar í nýja meirihlutanum

Siv Friðleifsdóttir, formaður þingflokks framsóknarmanna, er ósátt við hugmyndir Steingríms J. Sigfússonar sjávarútvegsráðherra um að breyta ákvörðun fyrrverandi ráðherra um að heimila hvalveiðar

Eygló vill leiða Framsókn í Suðurkjördæmi

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur ákveðið að sækjast eftir fyrsta sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi í komandi þingkosningum. Þetta tilkynnir hún á heimasíðu sinni í kvöld.

Sjá næstu 50 fréttir