Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
2312 skráðar skammbyssur í umferð á Íslandi Um áramótin voru skráð 52.123 skotvopn í landskrá skotvopna. Þar af eru 2312 skammbyssur. Vika er síðan að lögregla handtók 16 ára gamlan pilt sem gekk um Smáíbúðahverfið vopnaður skammbyssu. Henni hafði hann stolið úr ólæstri hirslu föður síns sem er fyrrverandi lögreglumaður. Drengurinn hleypti af byssunni við leikskólann Jöfra. 9.1.2009 16:02
Fundu ekki nægilega mikið af loðnu til að leyfa veiðar Í nótt lauk mælingu á loðnustofninum þar sem þrjú veiðiskip voru notuð til mælinga. Ekki fannst nægilegt magn af loðnu til að hægt væri að leyfa veiðar á henni að svo stöddu. 9.1.2009 14:57
Þorgerður og Geir skipta á starfsmönnum Líkt og Vísir greindi frá fyrir stundu var boðað til fundar í menntamálaráðneytinu með skömmum fyrirvara nú í morgun. Þar voru breytingar á ráðuneytinu kynntar sem m.a. lúta að því að Guðmundur Árnason ráðuneytisstjóri færir sig um set yfir í forsætisráðuneytið. Þar hefur hann verið ráðinn sem verkefnastjóri. Þetta staðfesti Kristján Kristjánsson upplýsingafulltrúi ráðuneytisins í samtali við Vísi. 9.1.2009 14:47
Lögfræðiálitið: Erfitt að fá ákvörðun breskra stjórnvalda hnekkt Breska lögmannsstofan Lovells LLP hefur veitt ríkisstjórn Íslands ráðgjöf varðandi hugsanlega málsókn á hendur breska ríkinu, í þeim tilgangi að hnekkja kyrrsetningu fjármuna sem tengjast Landsbankanum sem breska ríkið greip til 8. október 2008. Sú kyrrsetning varðar m.a. fjármuni tengda Landsbankanum í eigu eða vörslu íslenskra stjórnvalda. 9.1.2009 14:39
Rannsóknarnefndin tekin til starfa Rannsóknarnefnd Alþingis sem ætlað er að rannsaka aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna og tengda atburði hefur tekið til starfa. Á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu sem nefndin hélt í dag kom fram að nefndin hefur þegar fundað með fulltrúum í fjármálalífinu á borð við skilanefndir bankanna, forsvarsmenn Kauphallar, Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka. 9.1.2009 14:33
Fundað í menntamálaráðuneytinu Starfsmannafundi í menntamálaráðuneytinu er nýlokið. Boðað var til fundarins með skömmum fyrirvara. Starfsfólk ráðuneytisins vildi ekki tjá sig um málið en sagði að von væri á tilkynningu innan skamms. 9.1.2009 14:27
Innköllun á pólskri kæfu - obwieszczenie Verslunin Mini Market hefur innkallað pólska kjúklingakæfu með tómötum, Wielkopolski poultry pate with tomatoes með best fyrir dagsetningu 25.11.2010. Varan inniheldur afurðir úr írsku svínakjöti sem staðfest hefur verið að er mengað af díoxíni. 9.1.2009 13:37
Björn ekki ráðherra út kjörtímabilið Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, verður ekki ráðherra út kjörtímabilið. Björn sagði í aðdraganda prófkjörs sjálfstæðismanna fyrir þingkosningarnar 2007 að yfirstandandi kjörtímabil yrði líklega hans síðasta. Framtíð Björns sem ráðherra hefur verið óljós en nú hefur hann tekið af öll tvímæli hvað hana varðar. 9.1.2009 13:22
Íbúum fjölgar en afbrotum fækkar Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur gefið út skýrslu um afbrot á höfuðborgarsvæðinu árið 2007 þar sem meðal annars kemur fram að skráðum afbrotum á svæðinu hefur fækkað á sama tíma og íbúum hefur fjölgað. Stefán Eiríksson lögreglustjóri segir að ofbeldisbrotum hafi hinsvegar fjölgað nokkuð sem sé áhyggjuefni. Flest ofbeldisbrota eru framin í tengslum við skemmtanalíf í miðborg Reykjavíkur um helgar. 9.1.2009 13:16
Voðaskot í Rússlandi: Beðið eftir viðbrögðum Ekki er búið að taka skýrslu af 17 ára íslenskri stúlku sem varð tvítugum pilti að bana í borginni Astrakahn í Rússlandi í október. Guðrún Sesselja Arnardóttir, lögfræðingur stúlkunnar, segir að beðið sé eftir viðbrögðum rússneskra yfirvalda sem hefur verið gert ljóst að stúlkan sé reiðbúin að svara spurningum varðandi málið. 9.1.2009 12:31
Evrópuráðsþingið ætlar að skoða aðgerðir Breta Í dag samþykkti framkvæmdastjórn Evrópuráðsþingsins beiðni Íslands um að sú aðgerð breskra stjórnvalda að beita hryðjuverkalögum til að frysta eigur Landsbankans í Bretlandi 8. október síðastliðinn yrði tekin til meðferðar bæði í laga- og mannréttindanefnd og efnahagsnefnd Evrópuráðsþingsins. Steingrímur J. Sigfússon á sæti í framkvæmdastjórninni og sótti fundinn sem fór fram í Barcelona. 9.1.2009 12:27
Vill að Árni segi af sér Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, hefur ítrekað gerst sekur um umdeild vinnubrögð auk þess sem margir hafa efast um getu hans og þekkingu til að stýra efnahagslífi landsins í skjóli menntunar í dýralækningum, að mati Þórðar Heiðars Þórarinssonar aðstoðarritstjóra Deiglunnar. Hann segir að réttast væri að Geir H. Haarde, forsætisráðherra, krefðist afsagnar Árna en þar sem ekki virðist ætla að leiða til þess þurfi Árni að taka af skarið sjálfur og segja af sér. 9.1.2009 11:42
Guðlaugur sýnir hugrekki ,,Nú hefur ungur ráðherra, Guðlaugur Þór, látið vinna greiningu og stefnu um breytta verkskiptingu í íslenska heilbrigðiskerfinu. Til þess þarf hugrekki í ljósi afdrifa fyrri til rauna," segir Margrét Björnsdóttir en hún situr í nefnd heilbrigðisráðherra um framtíðarhlutverk og skipulag Landspítlans. Margrét er náin samstarfskona Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar. 9.1.2009 10:17
Breytingar í heilbrigðiskerfinu: Ánægja í Ólafsvík Breytingar í heilbrigðiskerfinu sem kynntar voru af Guðlaugi Þór Þórðarsyni í fyrradag hafa vakið mikið umtal og nokkuð hörð viðbrögð hjá starfsfólki í heilbrigðisgeiranum. Þó eru ekki allir á móti hugmyndunum því á heimasíðu heilbrigðisráðuneytisins er greint frá mikilli ánægju í Ólafsvík með þær breytingar sem snúa að Vesturlandi. 9.1.2009 10:12
Borgarafundur á Sauðárkróki: Heilbrigðisráðherra mótmælt Borgarafundur verður haldinn á sal Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki klukkan fjögur í dag. Á fréttamiðlinum Feyki er greint frá þessu en aðstandendur fundarins er hópur fólks sem vill mótmæla „þeim vinnubrögðum og áformum heilbrigðisráðherra að Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki renni undir stjórn Heilbrigðisstofnunar Norðurlands sem stýrt verði frá Akureyri,“ eins og segir í fréttinni. 9.1.2009 09:51
Samfylkingarfólk gagnrýnir Guðlaug Stjórn Samfylkingarfélagsins í Hafnarfirði mótmælir harðlega tillögum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, um niðurlagningu St. Jósefsspítala og flutning á starfsemi hans, sem stjórnin segir að hafi verið lagðar fram án samráðs við hluteigandi starfsfólk og bæjaryfirvöld. Breytingin falli vel að hugmyndum ráðherrans um einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. 9.1.2009 09:23
Hreppaflutningum mótmælt á Akureyri Á morgun laugardag verður farið í mótmælagöngu frá Samkomuhúsinu á Akureyri niður að Ráðhústorginu. ,,Við mótmælum hreppaflutningum á eldri kynslóðinni, lokun geðdeilda, uppsögnum ljósmæðra og skerðingu á þjónustu á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri," segir í tilkynningu áhugahóps. 9.1.2009 09:22
Fimm fluttir á slysadeild eftir árekstur Fimm manns voru fluttir með sjúkrabílum á slysadeild Landsspítalans eftir harðann árekstur þriggja bíla á Vesturlandsvegi á móts við Grundarhverfi á Kjalarnesi laust fyrir klukkan átta í morgun. 9.1.2009 09:03
Brutust inn í mannlaust hús á Vallarheiði Lögreglan á Suðurnesjum handtók í gærkvöldi tvo fjórtán ára pilta, sem höfðu brotist inn í mannlaust fjölbýlishús á Vallarheiði við Keflavíkurflugvöll og valdið þar töluverðum skemmdum. 9.1.2009 07:31
200.000 SMS úr kerfi Vodafone á nýársnótt Tvö hundruð þúsund SMS-skeyti voru send úr farsímakerfi Vodafone á nýársnótt, þar af 100 þúsund á fyrstu klukkustundinni eftir áramótin. Þá eru ótalin SMS-skeyti í hinum farsímakerfunum. 9.1.2009 07:28
ASÍ lýsir áhyggjum af gjaldskrárhækkunum hins opinbera Miðstjórn ASÍ lýsir áhyggjum af þeim áhrifum, sem hækkanir á opinberum gjaldskrám hafa á útgjöld heimilanna og valda um leið hækkandi verðbólgu, sem áfram veldur svo hækkun á verðtryggðum skuldum. 9.1.2009 07:27
Gera það gott í síld og kolmunna Á meðan sjómenn og útvegsmenn bíða í ofvæni eftir að Hafrannsóknarstofnun gefi út kvóta til loðnuveiða, eru nokkur skip að gera það gott á síldveiðum í Breiðafirði og á kolmunnaveiðum suður af Færeyjum. 9.1.2009 07:24
Þrír á slysadeild eftir harðan árekstur Þrír voru fluttir á slysadeild Landspítalans í gærkvöldi eftir harðan árekstur tveggja bíla rétt við húsvegg slysadeildarinnar, á mótum Bústaðavegar og Háaleitisbrautar. 9.1.2009 07:20
Bifreið stolið af móður fatlaðs drengs Grárri Mazda CX9 bifreið var stolið fyrir utan Hverfisgötu 4-6 á milli klukkan 19 og 22 í kvöld. Um er að ræða gráan jeppling. Sigríður Kristjánsdóttir eigandi bílsins segir að fáir slíkir bílar séu á götunni vegna þess að þeir séu innfluttir af eigendum. Þessi bíll er sérhannaður fyrir fatlaðan son minn og þess vegna mikils virði fyrir mig," segir Sigríður. Hún biður þá sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000. 8.1.2009 22:29
Kemur til greina að kjósa um aðildarviðræður að ESB Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra segist hafa efasemdir um það að Íslendingar eigi að ganga í Evrópusambandið en finnst koma til greina að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort fara eigi í aðildarviðræður. Þetta sagði Guðlaugur í Markaðnum á Stöð 2 í kvöld. Guðlaugur segist ekki telja að á landsfundi sjálfstæðismanna sem haldinn verður í lok mánaðarins verði tekin afstaða um hvort ganga eigi í ESB eða ekki. 8.1.2009 19:25
Nauðsynlegt að flytja vistfólk af Seli á Kristnesspítala Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands segir að nauðsynlegt hafi verið að flytja vistfólk úr einbýli á Dvalarheimilinu Seli á Akureyri í tvíbýli á Kristnesspítala. Heilbrigðisráðherra segir það stefnu stjórnvalda að sem flestir vistmenn elli- og hjúkrunarheimila búi í einbýli. 8.1.2009 21:57
Heilbrigðisráðherra þarf að skera niður um 6,7 milljarða Heilbrigðisráðherra þarf að spara, hagræða og skera niður fyrir 6,7 milljarða á þessu ári. Mikil ólga er hjá íbúum og bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði með framgöngu heilbrigðisráðherra varðandi Sankti Jósefsspítala og í Vestmannaeyjum vilja bæjaryfirvöld taka yfir rekstur sjúkrahús bæjarins. 8.1.2009 21:52
Eldur í rusli við Ingunnarskóla Slökkviliðinu barst tilkynning um eld við Ingunnarskóla í Grafarholti nú fyrir stundu. Eldur logaði í þremur ruslatunnum þar og er um minniháttar eld að ræða samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðnu. 8.1.2009 20:31
Framsóknarmenn mótmæla niðurskurði á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar Framsóknarfélögin í Siglufirði mótmæla harðlega þeim niðurskurði sem boðaður er hjá Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar. Þá eru vinnubrögðin við niðurskurðinn einnig hörmuð í ályktun sem send var fjölmiðlum nú undir kvöld. 8.1.2009 19:06
Góðkunningjar lögreglunnar dæmdir fyrir ítrekuð brot Tveir karlmenn á þrítugsaldri voru dæmdir fyrir ofbeldisbrot, vopnalagabrot og brot gegn valdstjórninni í Héraðsdómi Austurlands í dag. 8.1.2009 17:28
Reykjavíkurborg hækkar fjárhagsaðstoð við nauðstadda Samkvæmt nýsamþykktri fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2009 er gert ráð fyrir að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar við þá íbúa borgarinnar sem eiga rétt á aðstoð verði hækkuð um 16,35% og fjármagn til fjárhagsaðstoðar verði aukið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni. 8.1.2009 17:15
Guðlaugur sýnir starfsfólki lítilsvirðingu Starfsfólk Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki átelur ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, um að leggja niður stofnunina í núverandi mynd og sameina reksturinn Sjúkrahúsinu á Akureyri. Í ályktun sem samþykkt var á starfsmannafundi fyrr í dag segir að ekkert samráð hefur verið haft við heimamenn um þessi mál. Starfsmenn stofnunnar telja að öryggi sjúklinga sé stefnt í voða. 8.1.2009 16:42
Hálfs árs fangelsi fyrir að lemja Bödda í Dalton Karlmaður sem sló Böðvar Rafn Reynisson söngvara hljómsveitarinnar Dalton í höfuðið með flösku eða glasi á balli á Höfn í Hornafirði í mars á síðasta ári var dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Austurlands í dag. Honum var einnig gert að greiða Böðvari 300.000 krónur í skaðabætur. 8.1.2009 16:40
Fasteignasalar losaðir undan siðareglum Grétar Jónasson framkvæmdastjóra Félags fasteignasala segir að í frumvarpi sem liggur fyrir Alþingi um sölu fasteigna sé gert ráð fyrir að fasteignasalar séu ekki lengur bundnir af því að fylgja siðareglum í störfum sínum. 8.1.2009 16:39
Guðrún skipuð framkvæmdastjóri LÍN Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, hefur skipað Guðrúnu Ragnarsdóttur í stöðu framkvæmdastjóra Lánasjóðs íslenskra námsmanna að fenginni umsögn stjórnar sjóðsins. Guðrún tekur við 1. febrúar næst komandi en skipunartími hennar er fimm ár. 8.1.2009 16:07
Brotist inn í sex bíla í gær Nokkuð hefur verið um innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu en sex slíkar tilkynningar bárust lögreglunni í gær. Fjórir bílanna voru í Reykjavík en tveir í Kópavogi. 8.1.2009 15:52
Fær ekki milljónina frá Háskólanum Jafnréttisstofa tapaði í dag máli sem stofnunin höfðaði fyrir hönd Önnu Ingólfsdóttur, prófessors í tölvunarfræði við Hákólann í Reykjavík, gegn Háskóla Íslands. Þess var krafist að viðurkennt yrði að gengið hafi verið fram hjá Önnu við ráðningu dósents í tölvunarfræði við verkfræðideild og að henni yrði dæmd ein milljón króna í skaðabætur. Því hafnaði Héraðsdómur Reykjavíkur. 8.1.2009 15:44
Tjónið vegna Kryddsíldarmótmæla rúmar þrjár milljónir Kostnaður vegna skemmda sem unnar voru á tækjabúnaði þegar mótmælendur rufu útsendingu á Kryddsíldinni á gamlársdag hefur verið tekinn saman auk þess fjárhagstjóns sem Stöð 2 varð fyrir þegar útsending var rofin. Ari Edwald, forstjóri 365, segir að tjónið nemi alls um 3,3 milljónum króna. Áfallið sem starfsmenn sem lentu í átökunum hafi orðið fyrir sé hinsvegar mun alvarlegra mál. Starfsfólkið ræddi málið á fundi í fyrrakvöld með sálfræðingi. 8.1.2009 15:27
Björn skipar nefnd Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað nefnd til að fara yfir reglur barnalaga um forsjá barna, búsetu og umgengni. Nefndinni ber meðal annars að skoða hvort ástæða sé til að breyta íslenskri löggjöf og veita dómurum heimild til að ákveða að foreldrar skuli fara sameiginlega með forsjá barns þrátt fyrir að annað foreldri sé því andvígt. 8.1.2009 15:10
Kókaínsmyglari laus úr haldi - rannsókn lokið Gæsluvarðhald yfir manni sem handtekinn var í Leifsstöð með um 1,5 kg af kókaíni rann út í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er rannsókn málsins lokið og fer nú sína leið í dómskerfinu. Maðurinn er því laus úr haldi en samferðamaður hans var einnig handtekinn á sínum tíma Hann losnaði úr varðhaldi á Þorláksmessu. 8.1.2009 15:05
Fundar með starfsfólki St. Jósefsspítala Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, mun funda með starfsfólki St. Jósefsspítala í kvöld klukkan 21. Ráðherrann tilkynnti á blaðamannafundi á Hótel Hilton í gær að spítalinn verður öldrunarstofnun og núverandi starfsemi flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og Landspítalann. 8.1.2009 14:53
Gaza: Börn héldu dauðahaldi í látnar mæður sínar Rauði krossinn ásakar Ísraelsmenn um að standa ekki við skuldbindingar sínar um að koma óbreyttum borgurum til hjálpar á Gaza svæðinu. Ásakanirnar koma í kjölfar þess að starfsmenn Rauða krossins á Gaza fundu fjögur veikburða og hrædd börn sem héldu dauðahaldi í látnar mæður sínar eftir loftárásir í bænum Zeitun. 8.1.2009 14:51
Borgarafundur um St. Jósefsspítala Áhugamannahópur um framtíð St. Jósefsspítala hefur ákveðið að boða til borgarafundar í Íþróttahúsinu í Hafnarfirði á laugardaginn. Hópurinn væntir þess að Guðlaugur Þór Þórðarsson, heilbrigðisráðherra, sjái sér fært að mæta. 8.1.2009 14:07
Hafa ekki skilað ársreikningum fyrir 2007 Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur hafa enn ekki skilað ársreikningum sínum fyrir árið 2007 til Ríkisendurskoðunar. 8.1.2009 13:59
Engin hamborgarabrauð á McDonalds Viðskiptavinum McDonalds í Kringlunni brá heldur betur í brún um kvöldmatarleytið í gær. Þá var ekki hægt að panta hinn hefðbundna ostborgara þar sem hamborgarabrauðin voru búin. Framkvæmdarstjórinn segir brauðskortinn ekki tengjast erfiðum efnahagsaðstæðum á nokkurn hátt og vill skrifa brauðleysið á jólafrí opinberra starfsmanna. 8.1.2009 13:52