Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þingfundur hafinn að nýju Þingfundur hófst rétt í þessu á nýjan leik en Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, frestaði fundinum á þriðja tímanum. Í framhaldinu funduðu formenn þingflokkanna með Sturlu og stendur sá fundur ennþá. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, varaforseti, stýrir þingfundinum í fjarveru Sturlu. 20.1.2009 15:22
Hlé gert á fundi Alþingis - formenn funda með Sturlu Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, ákvað rétt í þessu að gera hlé á fundi Alþingis sem hafði staðið í rúma klukkustund. Fundi verður framhaldið klukkan 15:13. 20.1.2009 14:54
Pattstaða í Alþingisgarðinum Fólki hefur fjölgað á ný fyrir aftan Alþingishúsið og er lögregla að reyna að tæma garðinn. Um tíu manns sem hafa verið handteknir eru í einu horni garðsins og virðist sem lögregla sé að reyna að tæma garðinn til þess að koma þeim handteknu á brott. Að sögn fréttamanns sem er á staðnum er allt á suðupunkti í garðinum og hefur piparýða verið beitt nokkrum sinnum. 20.1.2009 14:41
Óttast mótmæli við landsfund Sjálfstæðisflokksins Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, telur líklegt að mótmælendur muni reyna að trufla landsfund flokksins sem haldinn verður í lok mánaðarins. Hún biður fólk um að beita ekki ofbeldi. Þetta sagði Þorgerður í viðtali við Rás 2 fyrir stundu sem sent var beint úr Alþingishúsinu. 20.1.2009 14:31
Engar skýringar frá Bretum á beitingu hryðjuverkalaga Geir Haarde forsætisráðherra segir að engar skýringar hafi fengist á því afhverju bresk stjórnvöld beitu hryðjuverkalöggjöf sinni gegn íslensku bönkunum í Bretlandi í kjölfar bankahrunsins hér á landi. 20.1.2009 13:59
Piparúða beitt á mótmælendur - tíu í handjárnum Lögreglan hefur hafist handa við að rýma Alþingisgarðinn þar sem hópur mótmælenda hafði komið sér fyrir. Að sögn fréttamanns á staðnum hefur táragasi verið beitt til þess að koma fólkinu í burtu. Þingfundur stendur enn yfir í Alþingishúsinu þrátt fyrir að lúðraþytur og köll heyrist gjörla í sjónvarpsútsendingu frá fundinum. 20.1.2009 13:59
Vilja almannaheillanefndir líkt og á Akureyri Borgarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri græna vilja að verði á laggirnar almannaheillanefndir stofnana og frjálsra félagasamtaka í hverfum borgarinnar. Mælt verður fyrir tillögunni á fundi borgarstjórnar sem hefst klukkan 14. Fyrirmyndin er fengin frá Akureyri. 20.1.2009 13:52
„Snautleg byrjun á þinghaldinu" Þingmenn stjórnarandstöðu lýstu yfir óánægju með störf þingsins við upphaf Alþingis í dag. Þingmennirnir sögðust undrast mjög að ástandið í þjóðfélaginu skyldi ekki rætt við upphaf fundar og farið væri yfir stöðu mála og framtíðarhorfur. 20.1.2009 13:48
Sérsveitarmenn við þinghúsið Lögreglan er með mikinn viðbúnað fyrir framan Alþingishúsið og hefur fjöldi sérsveitarmanna með hjálma, skyldi og kylfur verið kallaðir til. Mótmælendur framkalla mikinn hávaða, berja glugga þinghússin að utan, snjóboltum hefur verið kastað í þinghúsið og þá heyrast vörubíla þeyta flautur í útsendingu frá þingfundi sem hófst núna klukkan hálf tvö. 20.1.2009 13:34
Matarúthlutun Fjölskylduhjálparinnar hefst á morgun Matarúthlutun hefst að nýju hjá Fjölskylduhjálp Íslands á morgun miðvikudag og stendur hún frá klukkan 15 til 17. ,,Við tökum á móti gjöfum, matvælum og fatnaði alla miðvikudaga frá þrjú til fimm á sama stað," segir Ásgerður Jóna Flosadóttir hjá Fjölskylduhjálp Íslands í tilkynningu. 20.1.2009 13:15
Fjármálaeftirlitið auglýsir eftir starfsfólki Fjármálaeftirlitið auglýsir eftir starfsfólki í tímabundin störf. Samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu er um að ræða um það bil fimm störf. Fjöldi starfa fer þó eftir eftir umsóknum. Nú þegar hefur fjöldi umsókna borist. 20.1.2009 13:08
Kröftug mótmæli við Alþingishúsið Rúmlega þúsund manns eru nú á Austurvelli þar sem boðað hefur verið til mótmæla þegar þingfundur hefst á ný eftir jólafrí. Lögregla strengdi borða fyrir framan húsið og upphófust stimpingar á milli lögreglu og mótmælenda sem vildu fara inn fyrir borðann. Hópur fólks hefur einnig komið sér fyrir í Alþingisgarðinum. 20.1.2009 12:58
Endurreisn Gaza kostar 400 milljarða króna Það mun kosta jafnvirði nærri fjögur hundruð milljarða króna að endurreisa Gaza að mati helsta ráðgjafa Hamas-stjórnarinnar á svæðinu. Í viðtali við fréttastofu segir hann að tryggja þurfi eðlilega vöruflutninga til og frá svæðinu eigi það ekki að leggjast í eyði. 20.1.2009 12:52
Ekki hætta á að ESB tvístrist í kreppunni Það verður að horfa til heimilanna, fyrirtækjanna og hins alþjóðlega fjármálamarkaðar þegar kostir og gallar evru eru metnir, segir Aðalsteinn Leifsson, lektor í viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Hann telur ekki hættu á að efnahagsástandið muni tvístra evrópusambandinu, þrátt fyrir óánægjuraddir meðal annars á Írlandi. 20.1.2009 12:49
Hávær krafa um kosningar í Samfylkingunni Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar, segir mikilla efasemda um núverandi ríkisstjórnarsamstarf gæta í flokknum og margir vilji að boðað verði til kosninga. Sjálfur segist Mörður vera á þessari skoðun þar sem ríkisstjórnin hafi ekki umboð þjóðarinnar. Samfylkingin í Reykjavík hefur boðað til fundar annað kvöld þar sem þessi mál verða rædd. 20.1.2009 12:13
Dómsmálaráðherra setur ofan í við sýslumann Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, setur ofan í við Ólaf Helga Kjartansson, sýslumann á Selfossi vegna ákvörðunar um að gefa lögreglu fyrirmæli um að handtaka 370 einstaklinga í Árnessýslu sem höfðu hefðu ekki skilað sér í fjárnám hjá embætti hans. 20.1.2009 12:07
Aðalbjörg leiðir lista Vöku Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, hefur kynnt framboðslista sína til Stúdentaráðs og Háskóþings Háskóla Íslands 2009, en kosningar innan Háskóla Íslands fara fram dagana 4. og 5. febrúar næst komandi. 20.1.2009 11:43
Skattsvikamáli Jóns Ólafssonar vísað frá Hæstarétti Hæstiréttur vísaði í dag frá dómi kæru Ríkislögreglustjóra í máli Jóns Ólafssonar, Hreggviðs Jónssonar og Ragnars Birgissonar. Héraðsdómur vísaði málinu frá dómi þann 17. desember en þeir félagar voru ákærðir fyrir skattsvik í tengslum við rekstur Norðurljósa og annara tengdra félaga. 20.1.2009 11:30
Skjálftavirkni í Krýsuvík All nokkur skjálftavirkni hefur verið við nágrenni Kleifarvatns, Krýsuvíkur og Sveifluháls undanfarnar tvær vikur. Tæplega tíu skjálftar hafa mælst þar í morgun flestir litlir. Í gær varð hinsvegar skjálfti á þessum slóðum upp á 2,1 að stærð 3,4 km norðvestur af Krýsuvík. 20.1.2009 10:57
Vilja jafnt kynjahlutfall í stjórnum fyrirtækja Frumvarp fjögurra þingmanna Samfylkingarinnar um jafnt hlut kynjanna í stjórnunar- og áhrifastöðum fjármálafyrirtækja verður tekið til fyrstu umræðu í dag þegar Alþingi kemur saman að nýju eftir jólaleyfi. Frumvarpið sem var lagt fyrir í lok október á seinasta ári felur í sér að við stjórnarkjör skal tryggt að í stjórnum skuli sitji sem næst jafnmargar konur og karlar. 20.1.2009 10:57
Áfram í gæsluvarðhaldi vegna íkveikju á Tryggvagötu Karlmaður um fimmtugt hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 16. febrúar að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna. Maðurinn var handtekinn síðast liðinn miðvikudag en hann hefur játað að hafa kveikt í húsi við Tryggvagötu í Reykja þann sama dag. Maðurinn og kona sem búsett er í húsinu, sem skemmdist mikið, höfðu átt í erjum. 20.1.2009 10:32
Alþingi kemur saman á eftir Alþingi kemur saman í dag eftir jólaleyfi og hefst þingfundur klukkan 13:30 á óundirbúnum fyrirspurnartíma. Fimm ráðherrar verða viðstaddir óundirbúinn fyrirspurnartíma. 20.1.2009 10:24
Komst áfram í keppni um framtíð flugiðnaðarins Íslenskt lið frá Háskóla Íslands komst í aðra umferð í Fly Your Ideas keppninni sem Airbus efndi til 14. október síðastliðinn. Keppnin snýst um að efla vistvirkni flugvélaiðnaðarins og fá sigurvegararnir 30.000 evrur í verðlaun. Tvö lið frá Norðurlöndunum komust í aðra umferð, en lið frá 130 háskólum í 82 löndum luku fyrstu umferð keppninnar. 20.1.2009 10:11
Brotist inn í hesthús í Mosfellsbæ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um innbrot í hesthús í Mosfellsbæ nú í morgun. Skemmdir voru unnar á hurð auk þess sem sex hnökkum var stolið. 20.1.2009 10:11
Vegagerðin varar við hálku Vegagerðin varar við flughálku víða á Vestfjörðum, í Svínadal á Vesturlandi og á Norðaustur- og Austurlandi. Ófært er á Fjarðarheiði og á Vatnskarði eystra vegna óveðurs. 20.1.2009 09:57
Innflytjendur á Íslandi í fyrra 25 þúsund Innflytjendum og einstaklingum með erlendan bakgrunn hefur fjölgað ört hér á landi undanfarin ár. Hinn 1. janúar 2008 voru innflytjendur á Íslandi 25.265, eða 8,1% mannfjöldans. Það er mikil aukning frá árinu 1996 þegar innflytjendur voru einungis 2% landsmanna, alls 5.357. Þetta kemur fram í mannfjöldatölum Hagstofu Íslands yfir innflytjendur og einstaklinga með erlendan bakgrunn. 20.1.2009 09:12
Forystuskipti eru forsenda trúverðugleika Höfundur svartrar skýrslu um íslenska bankakerfið sem samin var síðastliðið vor en ekki birt, talaði í gær tæpitungulaust um ástæður hrunsins og hvað hann teldi nauðsynlegt að Íslendingar gerðu til að koma efnahagslífinu aftur á réttan kjöl. 20.1.2009 08:00
Aflífa þurfti hreindýr eftir að ekið var á það Aflífa þurfti hreindýr, eftir að bíl var ekið á það í Jökulsárdal á Austurlandi í gærkvöldi. Bíllinn stórskemmdist en ökumaður slapp ómeiddur. Slys af þessu tagi færast í vöxt og drapst 31 hreindýr á þjóðvegunum eystra í fyrra í svona slysum. Það var hið mesta á einu ári til þess tíma. 20.1.2009 07:21
Hraðinn hóflegur í göngunum Ökumenn eru óvenjulöghlýðnir hvað hraða varðar, þegar þeir aka um Hvalfjarðargöngin. Aðeins 89 ökumenn fóru yfir 70 kílómetra hámarkshraðann þar í mælingum sem stóðu frá fimmtudegi og þar til í gær, en 8.590 bílar fóru um göngin á þeim tíma. 20.1.2009 07:19
Reimt í Nauthólsvík? Lögreglan gerði talsverða leit í Nauthólsvík og þar í grennd í nótt, eftir að tilkynnt hafði verið um að óp eða öskur hefðu heyrst þaðan. Enginn fannst þar og einskis er saknað og telur lögregla líklegast að viðkomandi hafi verið farinn þegar hún kom á vettvang. 20.1.2009 07:16
Þrír teknir með þýfi í bílnum Þrír ungir menn, þar af einn undir lögaldri, voru handteknir í nótt eftir að tilkynnt hafði verið um grunsamlegar mannaferðir á Bæjarhálsi í Reykjavík. Töluvert þýfi fannst í bíl þeirra og hafa þeir þegar játað á sig einhver innbrot, en þeir verða yfirheyrðir nánar í dag. 20.1.2009 07:15
Ók undir áhrifum fíkniefna á Akureyri Lögreglan á Akureyri stöðvaði í nótt ökumann, grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna. Í framhaldi af því var gerð húsleit heima hjá honum og fundust þar 110 grömm af marijuana. Málið telst upplýst og verður sent ákæruvaldinu. 20.1.2009 07:14
Alþingi kemur saman í dag að loknu jólaleyfi Alþingi kemur saman í dag að loknu jólaleyfi sem staðið hefur síðan 22. desember. Þingfundur hefst klukkan hálftvö með óundirbúnum fyrirspurnum sem fimm ráðherrar verða viðstaddir. Meðal þingmála í dag verður frumvarp um breytingu á ýmsum lagaákvæðum varðandi sölu áfengis og tóbaks. 20.1.2009 07:13
Segja skjaldborg Geirs ekki vera um fjölskyldur heldur glæpamenn Sú ákvörðun sýslumannsins í Árnessýslu að gefa út handtökuskipun á 370 manns, fyrir að hafa ekki mætt hjá embættinu vegna fjárnáms, hefur vakið hörð viðbrögð í bloggheimum. Lesa má athugasemdir eins og að stjórnvöld skipuleggi nú aftökur almúgans á meðan spillingaröflin sleppa. 20.1.2009 07:08
Skýrslan fór ekki til bankamálaráðherra Landsbanki sendi dökka skýrslu eftir Buiter og Silbert áfram til Seðlabanka og forsætisráðuneytis í apríl, en einn seðlabankastjóra vissi ekki af því. Hún fór ekki til bankamálaráðherra. Í júlí var efni hennar orðið óþægilega kunnuglegt. 20.1.2009 07:00
Verslun Jóns Geralds opnar eftir nokkra mánuði Jón Gerald Sullenberger segir að unnið sé hörðum höndum við undirbúning að stofnun nýrrar lágvöruverðsverslunar. Erfitt sé að segja fyrir um tímasetningu, en nokkrir mánuðir geti verið í að verslunin opni. 20.1.2009 06:45
Mótmælt á Austurvelli í dag Raddir fólksins boða til friðsamlegrar mótmælastöðu á Austurvelli í dag klukkan 13 þegar Alþingi kemur saman að nýju eftir jólaleyfi. 20.1.2009 06:45
Leiga Félagsbústaða orðin sambærileg leigumarkaði Formaður velferðarsviðs segir fylgst með þróuninni á leigumarkaði. Aukin aðstoð verði metin í hverju tilfelli fyrir sig. Borgarfulltrúi Vinstri grænna vill endurskoða forsendur leiguverðs hjá Félagsbústöðum. 20.1.2009 06:30
Sækir fólk heim og í vinnu Sýslumannsembættið á Suðurlandi ætlar að gefa út handtökuskipun á 370 einstaklinga í Árnessýslu sem ekki hafa komið í fjárnám hjá sýslumannsembættinu á Selfossi. Komi fólkið ekki af sjálfsdáðum verður það handtekið á heimilum sínum eða vinnustöðum og fært fyrir sýslumann eða fulltrúa hans. „Þegar menn sinna ekki ítrekuðum kvaðningum um að mæta í fjárnám þá er ekki nein leið önnur en að láta lögreglu sækja menn og það erum við að gera. Við getum ekki látið málin safnast endalaust upp hjá okkur,“ segir Ólafur Helgi. 20.1.2009 06:30
Kvótalausir sjómenn í mál hafni ríkið kröfum „Við erum að undirbúa okkar kröfur um bætur sem við ætlum að senda sjávarútvegsráðherra og forsætisráðherra líklegast í þessum mánuði,“ segir Örn Snævar Sveinsson sem fór með mál sitt fyrir mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna sem ályktaði honum og Erlingi Sveini Haraldssyni í vil gegn ríkinu 24. október 2007. 20.1.2009 06:00
Gæslan bjargaði sextíu og átta í fyrra Sextíu og átta var bjargað í 150 útköllum sem bárust Flugdeild Landhelgisgæslunnar árið 2008. 20.1.2009 06:00
Viðvörunarbjöllur hringdu „Ekkert annað land komst upp með að byggja upp „öfugan píramída“ af þessari stærðargráðu,“ segir hollensk-breski hagfræðingurinn Willem H. Buiter um hinn hraða vöxt íslensku bankanna; viðvörunarbjöllur hafi því vafalaust víða verið farnar að hringja, þótt hann geti ekki fullyrt um að lánalínubeiðnum Seðlabanka Íslands á síðasta ári skyldi hafa verið hafnað þess vegna. 20.1.2009 05:45
Segja fáránlegt að skera niður sjúkraflutninga Frá áramótum er aðeins einn sjúkraflutningamaður á vakt í Langanesbyggð þótt tvo menn þurfi á hvern sjúkrabíl. Oddviti sveitarfélagsins segir fáránlegt að þurfa að treysta á að einhver hæfur geti komist með í útköll. 20.1.2009 05:00
Umsvifamiklir í ESB og Afríku Samherji hf. kemur að útgerð í þremur Evrópusambandsríkjum og tveimur löndum í Afríku. Dóttur- og hlutdeildarfélög fyrirtækisins reka á annan tug skipa, fiskvinnslur, pökkunarverksmiðju og söluskrifstofu. Þetta kemur fram í fjórða hluta fréttaskýringar um ESB og sjávarútvegsmál. 20.1.2009 05:00
Ekið yfir sífellt fleiri hreindýr Aldrei hefur verið ekið yfir jafn mörg hreindýr hér á landi á einu ári og síðastliðið ár en þau voru alls 31 talsins. „Árið þar áður voru þau reyndar 30 en það skekkir myndina nokkuð að þá fóru 13 dýr í einu tilteknu slysi," segir Skarphéðinn G. Þórisson, sérfræðingur hjá Náttúrustofu Austurlands. 20.1.2009 05:00