Fleiri fréttir

Hetjudáð eða hermdarverk?

Hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands hefur aftur göngu sína í dag eftir hlé yfir hátíðarnar. Yfirskrift fyrirlestraraðarinnar eftir áramót er „Hvað er andóf?" Munu fræðimenn á sviði sagnfræði, lögfræði og heimspeki velta þessari spurningu fyrir sér fram á vor. Kjartan Ólafsson, fyrrverandi ritstjóri Þjóðviljans, ríður á vaðið í dag með fyrirlestri sem nefnist „Hetjudáð eða hermdarverk?" Fyrirlesturinn hefst klukkan 12.05 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.- bs

Fækkar enn í Þjóðkirkjunni

Enn fækkar hlutfallslega safnaðarmeðlimum í Þjóðkirkjunni, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Í fyrra var 79,1 prósent þjóðarinnar skráð í hana, en voru 89,4 prósent fyrir áratug.

Enn ríkir óvissa um tónlistarhúsið

Enn er óljóst hver afdrif tónlistarhússins við Reykjavíkurhöfn verða. Framkvæmdir við húsið voru stöðvaðar um áramótin. Í á þriðja mánuð hafa samningaviðræður átt sér stað milli Gamla og Nýja Landsbankans, Austurhafnar, félags ríkis og borgar, ÍAV, stærsta verktakans, og annarra sem að verkinu koma.

Sigmundur vill tvö ný álver

Ljúka ætti byggingu álvera á Bakka og í Helguvík. Þetta sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins í viðtali í Kastljósinu í kvöld. Sigmundur sagði þjóðina ekki hafa efni á öðru í núverandi árferði. Hún þyrfti nauðsynlega á allri atvinnuuppbyggingu að halda.

Flytja út lifandi kúfskel frá Langanesi

Sælkerum í Frakklandi og á Spáni býðst brátt að sporðrenna lifandi kúfskel úr Þistilfirði. Ísfélag Vestmannaeyja og Matís þróa nú aðferðir við að koma skelfisknum lifandi frá Langanesi og alla leið á borð evrópskra veitingahúsa.

Fésbókin getur verið varasöm fyrir börn

Samskiptasíðan Facebook getur verið vettvangur fyrir nettælingar og er auðveldur aðgangur kynferðisafbrotamanna að börnum er áhyggjuefni. Lokað hefur verið fyrir aðgang dæmdra kynferðisafbrotamanna að síðunni.

Bruggari ósáttur við lögreglu

Bruggari sem handtekinn var í gær er afar ósáttur við að lögregla hafi brotist inn til hans og gert tæki hans og tól til til bruggunar upptæk. Hann vill frekar brugga sitt eigið vín en að eyða stórfé í áfengis og tóbakverslun ríkisins.

Aldraður þjóðverji í fimm ára fangelsi fyrir fíkniefnasmygl

Dieter Samson tæplega sjötugur þjóðverji var á föstudag dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að hafa smyglað um tuttugu kílóum af hassi og rúmlega 1,7 kílói af amfetamíni til landsins. Samson var handtekinn þegar hann kom til landsins með Norrænu á Seyðisfirði í byrjun september.

BBC misskildi Ólaf Ragnar

Misskilningur varð til þess að fullyrt var í frétt á vef breska ríkisútvarpsins að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, íhugaði málsókn á hendur Bretum vegna þess að þeir beittu hryðjuverkalögum gegn íslenskum bönkunum.

Mótmælt þegar þing kemur saman á morgun

Raddir fólksins boða til friðsamlegrar mótmælastöðu við Austurvöll á morgun þegar Alþingi kemur að nýju saman eftir jólaleyfi. Hörður Torfason, einn af forsvarsmönnum samtakanna, segir að fjölmargir hafi þrýst á að boðað yrði til aðgerða á morgun.

Háskólasjóður rýrnaði um þriðjung

Háskólasjóður Eimskipafélags Íslands rýrnaði um þriðjung í bankahruninu. Sjóðurinn var stofnaður árið 1964 og er honum ætlað stuðla að velgengni Háskóla íslands og styrkja efnilega stúdenta til náms. Í honum voru rétt rúmir þrír milljarðar í september síðastliðnum en nú eru í honum rúmir tveir milljarðar.

Sigmundur sparar Alþingi rúmlega 600 þúsund á mánuði

Þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sigraði Höskuld Þórhallsson í baráttunni um formannsstól Framsóknarflokksins sparaði það Alþingi 624 þúsund krónur á mánuði. Fráfarandi formaður, Valgerður Sverrisdóttir, er þingmaður og reglur segja til um að formenn stjórnmálaflokka á Alþingi fái 50 prósent álag ofan á þingfararkaup sitt.

Jarðvegsþjappa í óskilum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði nýlega hald á verkfæri. Mörgum þeirra hefur þegar verið komið til skila, en eftir stendur þessi jarðvegsþjappa, sem ekki er vitað hver á.

Upplýsingum um bólusetningar safnað í gagnagrunn

Bólusetningargrunnur sóttvarnalæknis er nú tengdur öllum heilsugæslustöðvum á Íslandi nema heilsugæslustöðinni í Ólafsvík. Haraldur Briem, sóttvarnalæknir, segir að hingað til hafi reynst erfitt að fá upplýsingar um fyrri bólusetningar fólks, það er að segja hvar og hvenær þær voru gerðar.

Með amfetamín í Herjólfi

Átján ára piltur var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir vörslu amfetamíns sem hann var tekinn með um borð í Herjólfi við komuna til Vestmannaeyja í nóvember á síðasta ári. Pilturinn sem varði sig sjálfur játaði brot sitt fyrir dómi. Honum var einnig gert að greiða sakarkostnað upp á rúmlega 75 þúsund krónur.

Metaðsókn hjá Keili

Hátt á fjórða hundrað umsóknir hafa borist um nám á vormisseri hjá Keili sem eru þrefalt fleiri en í fyrra. Umsóknarfrestur rennur út á morgun, 20. janúar. Við skólann er boðið upp á nám á framhalds- og háskólastigi, bæði í staðnámi og fjarnámi.

Sigurður Kári leiðir Röskvu

Sigurður Kári Árnason, 22 ára laganemi, leiðir framboðslista Röskvu, samtaka félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, til stúdentaráðs í ár. Kosningar til stúdentaráðs og Háskólaþings fara fram 4. og 5. febrúar næstkomandi. Röskva hefur leitt stúdentaráð undanfarin tvö ár.

Símasvindl: Varað við óþekktum erlendum símanúmerum

Símasvindlarar hafa herjað á íslendinga upp á síðkastið. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum bárust 1400 svokölluð uppköll frá 15.janúar en svipað svindl kom upp fyrir nokkrum mánuðum. Upplýsingafulltrúar Símans og Vodafone hvetja fólk til þess að vera á varðbergi gagnvart hringingum úr óþekktum númerum.

Ný forysta framsóknar gæti trekkt að

Líklegt er að ný forysta Framsóknarflokksins geti orðið til þess að kjósendur gefi flokknum frekar tækifæri. Þetta segir Einar Mar Þórðararson stjórnmálafræðingur og að forystuskiptin í Framsóknarflokknum geti aukið þrýsting á hina flokkana að skipta um forystu.

Skila ársreikningum fyrir 2007 síðar í mánuðinum

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa enn ekki skilað ársreikningum sínum fyrir árið 2007 til Ríkisendurskoðunar. Sjálfstæðisflokkurinn hyggst ganga frá sínum reikningum síðar í mánuðinum og senda til ríkisendurskoðanda.

Mótmæla tvöföldu siðgæði í boðari lokun St. Jósefsspítala

Sjúkraliðar á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði skora á Guðlaug Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, og ríkisstjórnina að falla frá fyrirhugaðri lokun spítalans. Sjúkraliðarnir, hittust á fjölsóttum fundi nýverið, mótmæla jafnframt því tvöfalda siðgæði sem felist í boðari lokun sökum þess hve húsnæði og búnaður þess sé lélegur en þrátt fyrir það sé húsnæðið talið fullgott til að hýsa heilsulaus gamalmenni.

Fær sér hund eins og Obama

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins, þarf að standa við loforð sem hann gaf eiginkonu sinn og kaupa hund nú þegar hann er orðinn formaður flokksins. Barack Obama verðandi forseti Bandaríkjanna hyggst einnig kaupa hund á næstunni. ,,Hvað þetta varðar eru allavega líkindi með okkur," sagði Sigmundur í þættinum Í bítið í morgun.

Hald lagt á 300 lítrar af gambra

Í gær fóru lögreglumenn í húsleit í uppsveitum Árnessýslu vegna gruns um að þar færi fram landaframleiðsla. Leitin bar þann árangur að í húsinu fundust suðutæki, 300 lítrar af gambra og 20 lítrar af fullunnum landa sem hald var lagt á. Karlmaður hefur gengist við framleiðslunni.

Hlutfallslega hafa aldrei verið færri í Þjóðkirkjunni

Í fyrsta sinn í sögunni eru sóknarbörn Þjóðkirkjunnar færri en áttatíu prósent allra landsmanna. Hagstofa Íslands hefur tekið saman upplýsingar um mannfjölda eftir trúfélögum og sóknum miðað við 1. desember 2008 og þar kemur fram að sóknarbörn í Þjóðkirkjunni eru 195.576 talsins.

Ísraelar afboða Íslandsheimsókn

Ekkert verður af boðaðri komu ísraelska menntamálaráðherrans hingað til lands. Össur Skarphéðinsson hafði sem starfandi utanríkisráðherra frábeðið sér heimsókn ráðherrana og nú hafa ísraelsk stjórnvöld ritað utanríkisráðherra og tjáð honum að ekkert verði af heimsókninni.

Forseti Íslands íhugar málsókn gegn Bretum

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands segir í samtali við BBC að hann sé enn að íhuga málsókn gegn Bretum vegna setningar hryðjuverkalaga þeirra gegn íslensku bönkunum.

Höfnin í Vestmannaeyjum er morandi í síld

Höfnin í Vestmannaeyjum er nú morandi í síld og segir sjónarvottur að um mun meira síldarskot sé að ræða en um áramótin er höfnin fylltist einnig af síld.

Tveir bílþjófar handteknir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo bílþjófa í nótt á stolnum bílum. Annar var tekinn í miðborginni og reyndi sá að komast undan lögreglunni á hlaupum en laut í lægra haldi.

Innbrot í verslun á Álftanesi

Brotist var inn í verslun á Álftanesi um klukkan hálfþrjú í nótt en þjófurinn tók til fótanna þegar hann sá lögregluna nálgast og hvarf út í myrkrið. Lögreglumenn sáu hins vegar spor hans í snjónum og röktu þau þó nokkurn spöl að heimili hans, þar sem hann var handtekinn.

Bíll valt út í læk í Heiðmörk

Þrír ungir menn sluppu ómeiddir þegar bíll þeirra valt út í læk í Heiðmörk um miðnætti. Þeir komust sjálfir út úr bílnum og hringdu eftir aðstoð.

Íslensku kolmunnaskipin lögð í haf á ný

Íslensku kolmunnaskipin, sem legið hafa í höfn í Færeyjum síðan fyrir helgi vegna brælu á miðunum suður af Færeyjum, eru lögð af stað á ný og eru um það bil að komast á miðin.

Seðlabankastjóri sá skýrsluna ekki í apríl

Ingimundur Friðriksson seðlabankastjóri segir ekki rétt að hann hafi séð dökka skýrslu um ástand efnahagsmála eftir hagfræðingana Willem Buiter og Anne Sibert í apríl í fyrra, heldur um sumarið, í júlí.

Síðustu forvöð að gefa peysu

Söfnun á íslenskum ullarfatnaði, lopapeysum, lopasokkum, lopavettlingum, húfum og lopateppum til þurfandi eldri borgara í Bretlandi fer senn að ljúka. Tekið verður við ullarflíkum hjá Samskipum og á Bylgjunni í dag og á morgun. Vonir standa til að hægt verði að afhenda heilan gám af hlýjum og góðum íslenskum ullarfatnaði í Bretlandi í næstu viku.

Börn í Árnesi missa íþróttaaðstöðu sína

Landsvirkjun ætlar að leigja 250 fermetra af íþróttaaðstöðu og mötuneyti í félagsheimilinu Árnesi undir upplýsingamiðstöð um virkjanirnar í Þjórsá til tíu ára. Hreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps kannar möguleikana á að byggja í staðinn nýtt íþróttahús við félagsheimilið þó að aðeins fimmtíu nemendur séu í Þjórsárskóla og þeim fari fækkandi.

Krafa um endurnýjun

„Ég tel að landsbyggðarsjónarmið hafi ráðið nokkru um þetta og það er sjónarmið sem ég er fullkomlega sátt við," sagði Siv Friðleifsdóttir sem varð undir í kjöri um varaformann Framsóknarflokkinn.

Verulegur samdráttur hjá leigubílstjórum

Leigubílstjórar finna fyrir verulegum samdrætti í kreppunni og hefur ferðum fækkað um allt að fjórðung milli ára. Kristinn Snæland hefur verið leigubílsstjóri í 24 ár. Á þessum tíma segist hann hafa fundið fyrir breytingum en alls ekki samdrætti fyrr en núna. Nú sé virkilegur

Formaður kjörstjórnar segir af sér

Haukur Ingibergsson hefur sagt af sér sem formaður kjörstjórnar á flokksþingi Framsóknarflokksins. Þetta gerir hann vegna mistaka sem voru gerð þegar að Höskuldur Þórhallsson var ranglega kynntur sem

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan vélsleðamann

TF-EIR, þyrla Landhelgisgæslunnar, sótti slasaðan vélsleðamann á Lyngdalsheiði á þriðja tímanum í dag. Stjórnstöð Gæslunnar fékk beiðni um aðstoð frá Neyðarlínunni koter yfir tvö og var tveimur af björgunarsveitum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar einnig gert viðvart.

Þjóðarsamstaða gegn fjöldamorðum

Þjóðarsamstaða gegn fjöldamorðunum á Gaza er yfirskrift mótmælafundar sem hófst í Háskólabíói klukkan þrjú. Fjölmörg félagasamtök, stjórnmálahreyfingar og fjöldasamtök gangast fyrir fundinn.

Valgerður hlaut jafnréttisverðlaun Framsóknarflokksins

Valgerður Sverrisdóttir hlaut jafnréttisverðlaun Framsóknarflokksins á flokksþinginu nú í hádeginu. Inga Guðrún Kristjánsdóttir, jafnréttisfulltrúi flokksins, afhenti verðlaunin. Valgerður varð fyrst kvenna varaformaður og formaður Framsóknarflokksins og settist einnig fyrst kvenna í stól iðnaðar- og viðskiptaráðherra og utanríkisráðherra.

Kosið aftur milli Sigmundar og Höskuldar - Páll dottinn út

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson varð efstur í fyrri umferð í kjöri til formanns Framsóknarflokksins. Kjósa þarf aftur á milli hans og Höskuldar Þórhallssonar. Sigmundur Davíð hlaut 40,9% atkvæða, Höskuldur hlaut 37,9%, en Páll Magnússon hlaut 18,9%.

Bruggverksmiðju lokað á Frakkastíg

Bruggverksmiðju var lokað í kjallara húss á Frakkastíg rétt fyrir hádegi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var um minniháttar framleiðslu að ræða og er talið að tveir karlmenn hafi staðið fyrir henni. Lögreglan haldlagði tæki til bruggframleiðslu sem voru í húsinu.

Gott skíðafæri víða á landinu

Í dag er fyrsti opnunardagur í Bláfjöllum á þessu ári. Þar er ágætis veður, þriggja stiga hiti og frábært skyggni. Opið verður til klukkan fimm.Í Hlíðarfjalli á Akureyri verður opið í dag til klukkan fjögur. Skíðafærið er troðinn þurr snjór, með besta móti.

Sjá næstu 50 fréttir