Fleiri fréttir

Ísland einn af vinsælustu ferðamannastöðunum 2009

Ísland verður einn af vinsælustu ferðamannastöðum næsta árs að mati breska blaðsins Times. Mikill áhugi sé á landinu eftir að kreppan skall á. Á Google hafi leit að ferðum til Íslands til dæmis aukist um sextíu prósent á síðustu tveimur mánuðum, og megnið af umferðinni sé komin frá Bretlandi.

Neysluútgjöld hækkuðu um 7,7%

Neysluútgjöld á heimili árin 2005-2007 hafa hækkað um 7,7% frá tímabilinu 2004-2006 og voru tæpar 396 þúsund krónur á mánuði, eða 165 þúsund krónur á mann.

Vísbendingar um íkveikju á Reyðarfirði

Lögregla telur sterkar vísbendingar um að kveikt hafi verið í parhúsi á Reyðarfirði aðfararnótt mánudags. Þar svaf einn maður en nágrannar vöknuðu upp , kölluðu á slökkvilið og vöktu manninn.

Björgvin vissi af úttekt á gömlu bönkunum

Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, vissi að verið væri að vinna úttekt á ákveðnum atriðum í aðdraganda bankahrunsins, að sögn Jóns Þórs Sturlusonar aðstoðarmanns Björgvins. Aftur á móti hafði hann ekki vitneskju um hvaða endurskoðunarfyrirtæki var að vinna fyrir hvaða banka.

Ánægður með viðbrögð lögreglu við Ráðherrabústaðinn

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, var ánægður með viðbrögð lögreglu við Ráðherrabústaðinn í morgun þegar á þriðja tug mótmælenda komu saman og reyndu að varna því að ráðherrar kæmust inn á ríkisstjórnarfund.

Dregið úr umsvifum RÚV á auglýsingamarkaði

Ríkisútvarpið mun fá tæplega þrjá komma sjö milljarða króna á ári með innheimtu nefskatts samkvæmt frumvarpi menntamálaráðherra. Tekjur Ríkisútvarpsins aukast við þetta um rúmar 600 milljónir króna á ári. Á móti verður dregið úr umsvifum Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði.

Vegagerðin varar við hálku

Talsverð hálka er er í öllum landshlutum og getur hún verið afar varasöm þar sem hiti er yfir frostmarki.

Eftirlaunafrumvarp VG tekið til umræðu

Frumvarp þingflokks Vinstri grænna um að afnema sérréttindi æðstu embættismanna sem kveðið er á um í hinum umdeildu eftirlaunalögum verður tekið til umræðu á Alþingi í kvöld.

Forsvarsmenn Samherja útiloka ekki ESB-aðild

Forsvarsmenn Samherja útiloka ekki lengur aðild að Evrópusambandinu. Þeir segja gengisflöktið erfitt nú um stundir og ætla að skila áliti um bandalagið í næsta mánuði.

Vissi ekki um úttekt KPMG fyrr en í gær

Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, vissi ekki fyrr en í gær að ráðgjafafyrirtækið KPMG hefði verið fengið til þess að sinna verkefnum fyrir skilanefnd gamla Glitnis í kjölfar bankahrunsins. Þetta var fullyrt í fréttaskýringu í Kastljósi fyrr í kvöld.

Sýking í síld meiri en talið hafði verið

Útbreiðsla ichtiophonus-sýkingar í íslensku síldinni er meiri en talið hafði verið. Ástand síldarstofnsins við Suðvesturland er afar slæmt en sníkillinn hefur lagst á um 70% stofnsins þar. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Líkt og hús sé keypt án vitneskju um kostnað og stærð

Formaður efnahags- og skattanefndar Alþingis treysti sér ekki til að samþykkja þingsályktunartillögu stjórnarflokkanna sem gefur stjórnvöldum víðtæka heimild til að semja um innistæðureikninga í íslensku bönkunum erlendis.

Rúmlega 3000 lóðir óseldar

Vel á þriðja þúsund lóðir standa tilbúnar fyrir gröfurnar á höfuðborgarsvæðinu en seljast ekki. Reykvískur læknir leggur til að sveitarfélögin snúi vörn í sókn og leigi lóðirnar út til matjurtaræktunar.

Óttast að missa völd samhliða aðildarviðræðum

Hagsmunasamtök útgerðarmanna virðast hrædd við að missa valdastöðu verði gengið til viðræðna um aðild að Evrópusambandinu og loka augunum fyrir tækifærunum, segir sérfræðingur í sjávarútvegsmálum sambandsins. Við höldum áfram að skoða ýmsar hliðar á Evrópusambandsmálum.

Mun afla gagna með tiltækum ráðum

Skattrannsóknarstjóri hyggst leita annara leiða til að afa gagna um félag sem stofnað var í Lúxemborg en er í eigu Íslendinga. Bryndís Kristjánsdóttir, skattrannsóknarstjóri, skrifaði skilanefndum gömlu bankanna bréf þar sem hún óskaði eftir aðgangi að gögnunum. Tvær skilanefndir höfnuðu beiðninni og ein svaraði henni ekki.

Laun borgarfulltrúa lækka

Laun borgarfulltrúa munu lækka, samkvæmt samþykktum forsætisnefndar borgarstjórnar, nái frumvarp um launalækkun æðstu embættismanna ríkisins fram að ganga. Hið sama gildir um aðra sem sitja í nefndum og ráðum Reykjavíkurborgar. Þetta segir Ólafur Hjörleifsson, skrifstofustjóri borgarstjórnar.

Fíkniefni fundust á Álftanesi

Fíkniefni fundust við húsleit á Álftanesi í gærkvöld. Um var að ræða bæði amfetamín og marijúana. Á sama stað var einnig lagt hald á þýfi. Karl á fertugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknar málsins, eftir því sem segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Eldur í Listasafni Íslands

Eldur kom upp í Listasafni Íslands á fimmta tímanum. Allt tiltækt slökkvilið var sent á staðinn enda væri tjón af völdum mikils elds á safninu gríðarlegt.

Geir: Eðlilegt að greiða fyrir störfum skattrannsóknarstjóra

Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, spurði forsætisráðherra að því í óundirbúnum fyrirspurnatíma hvort stjórnvöld ætli að láta það gerast að lykilgögn um stöðu íslensku bankanna sem er að finna á útibúum og dótturfyrirtækjum þeirra í Lúxemborg gangi yfirvöldum úr höndum verði fyrirtækin seld. Steingrímur vísaði meðal annars til hádegisfrétta Ríkisútvarpsins þar sem greint var frá því að skilanefndir bankanna hafi neitað skattrannsóknarstjóra um gögn frá Lúxemborg. Geir segir eðlilegt að greiða fyrir því að skattrannsóknarstjóri vinni sín störf.

Óeirðir við Ráðherrabústaðinn (myndskeið)

Tveir mótmælendur voru handteknir við Ráðherrabústaðinn í morgun líkt og áður hefur verið greint frá. Ráðherrar gengu inn í bústaðinn í lögreglufylgd og bústaðurinn var girtur af. Myndatökumenn Fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis voru að sjálfsögðu á staðnum og náðu myndum af því sem fram fór.

Helgi Hjörvar: Forseti og forsætisráðherra séu launahæstir

Helgi Hjörvar þingmaður Samfylkingarinnar spurði Árna Mathiesen fjármálaráðherra út í laun forstjóra ríkisstofnana og fyrirtækja í meirihlutaeigu ríkisins á Alþingi í dag. Helgi fagnaði frumkvæði ríkisstjórnar um að lækka laun þeirra sem heyra undir kjararáð en hann vakti athygli á því að ríkisforstjórar séu oft og tíðum með hærri laun en forsætisráðherra, sem að mati Helga á að vera hæst launaðasti ríkisstarfsmaðurinn, að forseta Íslands undanskildum.

Á tali með Olli Rehn

Íslendingum gefst einstakt tækifæri til að hlusta á og ræða milliliðalaust við Olli Rehn, stækkunarstjóra Evrópusambandsins, í Háskólanum í Reykjavík á morgun. Fyrirlestri, sem hann heldur erlendis, verður varpað beint til Íslands og verður unnt að beina til hans spurningum í lokin.

Sprenging í járnblendinu á Grundartanga

Engin slasaðist þegar sprenging varð í járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga rétt fyrir klukkan sjö í gærkvöldi, þar sem snarráður verkstjóri hafði rýmt verksmiðjuna í skyndi rétt áður en sprengingin varð.

Lögreglumennirnir sem slösuðust eru mættir aftur til vinnu

Lögreglumennirnir sem leituðu á slysadeild eftir átökin í Alþingi í gær voru bitnir, segir Stefán Eiríksson lögreglustjóri. Annar var bitinn í höndina og hinn í öxlina. Stefán segir að þeir hafi það ágætt eftir atvikum og fari strax aftur til vinnu.

Þingpallar opnir almenningi þrátt fyrir átökin í gær

Þingpallar verða opnir almenningi í dag eins og endranær þrátt fyrir atökin sem brutust út við upphaf þingfundar í gær. Þingfundur hefst klukkan 13:30 og er fyrsta mál á dagskrá óundirbúnar fyrirspurnir. Siv Friðleifsdóttir, þingkona framsóknar, var einmitt að bera upp óundirbúna fyrirspurn til Árna Mathiesen fjármálaráðherra varðandi Icesave málið í gær þegar upp úr sauð þannig að hún fær annað tækifæri til að knýja Árna svara í dag.

Harður árekstur við Kringlumýrarbraut

Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur smárútu og fólksbíls á gatnamótum Kringlumýrarbrautar, Suðurlandsbrautar og Laugavegar á ellefta tímanum í morgun. Klippa þurfti einn farþegann út úr fólksbílnum, en ekki er vitað hversu alvarlega slasað fólkið er.

Mótmælum lokið - tveir handteknir

Mótmælendur eru farnir frá Ráðherrabústaðnum. Um 20 manna hópur safnaðist þar saman fyrir ríkisstjórnarfund og hugðist koma í veg fyrir að ráðherrar kæmust til reglulegs fundar þar. Tveir mótmælendur voru handteknir þegar þeir sinntu ekki fyrirmælum lögreglunnar.

Neytendasamtökin minna á skilaréttinn

Nú þegar jólin nálgast vilja Neytendasamtökin minna á rétt neytenda til þess að skila vörum því þrátt fyrir bestu viðleitni þarf fólk stundum að skila eða skipta gjöfum sem gefnar eru á aðfangadag. Samtökin hafa því á heimasíðu sinni birt frétt þar sem farið er yfir helstu atriði í þessu sambandi.

Mótmælt við Ráðherrabústaðinn - einn handtekinn

Hópur fólks mótmælir fyrir utan Ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu og reynir að varna því að ráðherrar komist á ríkisstjórnarfund. Lögreglan hefur þegar handtekið einn mótmælanda úr hópnum, sem var snúinn niður af þremur lögreglumönnum, en lögreglan vill ekki tjá sig um ástæður handtökunnar.

Nýr jólasveinn?

Hluti af fiskmetinu, sem stolið var úr Litlu fiskbúðinni í Breiðvangi í Hafnarfirði í fyrrinótt, komst óvænt til skila í gær. Lögreglumenn voru að gera húsleit vegna rannsóknar á fíkniefnamáli, þegar þeir fundu óvenjumikið af fiskmeti á vettvangi.

Telja allsherjarverkfall vænlegt

Réttast væri að verkalýðshreyfingin efndi til allsherjarverkfalls til að knýja ríkisstjórnina frá völdum, var ein hugmyndin sem viðruð var á fjölmennum borgarafundi í Háskólabíói í gærkvöldi og tóku margir fundarmanna vel í hugmyndina.

Öryggiseftirlit hert á Alþingi

Von er á því að öryggisreglur verði hertar og eftirlit aukið í alþingishúsinu vegna atburða dagsins, segir Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis.

Sóley eykur breiddina í borgarstjórnarflokknum

Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstri grænna, segir að það sé starfsregla að báðir borgarfulltrúar flokksins og 1. varaborgarfulltrúi séu viðstaddir fundi borgarstjórnar flokksins. Með því sé verið að auka breiddina í borgarstjórnarflokknum.

Vilja óskerta fjölmiðlaumfjöllum um íþróttir

Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands skorar á stjórn RÚV að sjá til þess að umfjöllun og fréttaflutningur af íþróttum skerðist ekki. Þetta kemur fram í ályktun sem framkvæmdastjórnin samþykkti á dögunum. Þar er bent á að umfjöllun um íþróttir sé lögbundin skylda RÚV.

Allir mótmælendur lausir úr haldi

Allir mótmælendurnir sem voru handteknir í Alþingishúsinu í dag eru nú lausir úr haldi lögreglu. Sjö voru færðir til skýrslutöku en fólkið, sex karlar og ein kona, er flest á þrítugsaldri. Ekki fóru allir mótmælendurnir út úr Alþingishúsinu með góðu en einn þeirra hafði sig sýnu mest í frammi og beit tvo lögreglumenn og sparkaði í þann þriðja.

Ríkið kaupir hugsanlega fasteign RÚV

Hugmyndir eru uppi um að ríkissjóður kaupi fasteign Ríkisútvarpsins við Efstaleiti og að söluandvirðinu verði ráðstafað til þess að létta á lífeyrisskuldbindingum fyrirtækisins. Þetta er fullyrt á fréttavefnum AMX.

Færeyingar skoða Landspítalann

Sendinefnd skipuð helstu stjórnendum færeyska Landssjúkrahússins kom til Íslands í dag. Tilgangurinn með heimsókninni er að skoða aðstæður á Landspítala háskólasjúkrahúsi með það fyrir augum að auka til muna samstarf milli færeyska Landssjúkrahússins og Landspítala. Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, tók á móti sendinefndinni í dag.

Sjá næstu 50 fréttir