Fleiri fréttir

Sex milljarðar dollara í aðstoð

Fréttastofa Reuters hefur það eftir heimildarmönnum sem tengjast viðræðum Íslendinga við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn að Íslendingar fái samtals lánsloforð að upphæð 6 milljörðum dollara, rúmlega 720 milljarða íslenskra. Milljarður dollara er frá IMF en afgangurinn frá öðrum þjóðum, þar á meðal Norðurlandaþjóðunum.

Siðareglur borgarfulltrúa að verða til

Vinnu starfshóps sem skipaður var til að ljúka við gerð siðareglna borgarfulltrúa gengur vel, að sögn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra.

Rauði krossinn opnar skrifstofu í Malaví

Rauði kross Íslands hefur opnað skrifstofu í Lilongwe höfuðborg Malaví. Þar mun Hólmfríður Garðarsdóttir starfa sem heilbrigðisráðgjafi Rauða krossins og fylgist með heilbrigðisverkefnum sem Rauði krossinn rekur í landinu.

Eitt dýrasta námskeið sögunnar

Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að undanfarið hafi Íslendingar undanfarið sótt eitt dýra námskeið sögunnar.

IMF boðar til blaðamannafundar í Karphúsinu

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur boðað til blaðamannafundar í Karphúsinu, Borgartúni 21, klukkan 15:00 í dag. Fundurinn er haldinn í kjölfarið á blaðamannafundi sem Ríkisstjórnin hefur boðað til í Ráðherrabústaðnum klukkan 14:15.

Vel gengur að manna frístundaheimili borgarinnar

Undanfarna daga og vikur hefur gengið vel að manna frístundaheimili Reykjavíkurborgar. ,,Fyrir tveimur vikum vantaði um 44 starfsmenn og er sú tala nú komin niður í 27," er haft eftir Soffíu Pálsdóttur, skrifstofustjóra hjá ÍTR, á heimasíðu borgarinnar.

Líkt og meirihlutinn hafi eitthvað að fela

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borgarstjórn er neikvæður og tregur til að veita skýr svör þegar kemur að ýmsum útgjöldum borgarsjóðs, að mati Ólafs F. Magnúsonar borgarfulltrúa.

42 þúsund hafa skrifað undir ávarp til Breta

Fjöldi þeirra sem skráð hefur nafn sitt við þjóðarávarp til Breta á netsíðunni indefence.is er kominn upp í rúm fjörutíu og tvö þúsund. Síðunni var hleypt af stokkunum í fyrradag og hafa viðbrögðin því verið snögg og mikil.

Nýjum forstjóra færð viðurkenning

Kvenréttindafélag Íslands afhenti Huldu Gunnlaugsdóttur, nýjum forstjóra Landspítalans, viðurkenningu nýverið. Félagið hefur haft þann háttinn á undanfarin ár að vekja athygli landsmanna á því sérstaklega þegar kona velst til starfa á sviðum þar sem karlar hafa eingöngu gegnt forystu áður.

Icelandair: Reynt að koma í veg fyrir frekari uppsagnir

Icelandair hefur óskað eftir því við flugfreyjur og flugliða félagsins að þeir minnki við sig starfshlutfall eða fari í launalaust leyfi vegna samdráttar í flugi. Menn eru að reyna að koma í veg fyrir uppsagnir, segir Rannveig Eir Einarsdóttir forstöðumaður farþegaþjónustu. Flugfreyjur og flugliðar fengu tölvupóst með þessum óskum í gærkvöldi.

Bein útsending frá blaðamannafundinum á Vísi

Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 14:15 í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Fundurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni.

Gylfi nýr forseti ASÍ

Gylfi Arnbjörnsson hefur verið kjörinn forseti Alþýðusambands Íslands, ASÍ. Gylfi fékk 166 atkvæða og 60 prósent atkvæða í kosningunum sem fram fóru í dag á ársfundi sambandsins. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir hlaut 114 atkvæði og um 40 prósent atkvæða.

VG vilja ekki að Bretarnir komi

Þingmenn Vinstri grænna vilja ekki að breski herinn komi til landsins í desember og annist loftrýmiseftirlit og ætla þingmennirnir að leggja til í þingsályktunartillögu að fyrirhugað þeirra verði fellt niður.

Stjórnarandstaðan boðuð á fund í Ráðherrabústaðnum

Núna klukkan 11:00 voru forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna boðaðir á fund í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Nokkur fjöldi fréttamanna er staddur fyrir utan Ráðherrabústaðnum og eftir því sem þeir komast næst hefur verið fundað þar síðan um 8:00 í morgun. Ríkisstjórnarfundi var frestað í morgun.

Seldu fimm og hálft tonn af kjöti á einum degi

Bændadagar hófust í Skagfirðingabúð og er óhætt að fullyrða að Skagfirðingar hafi tekið vel við sér en alls seldist um fimm og hálft tonn af kjöti í gær. Búið að að fylla á alla kæla á nýjan leik og búast menn við öðru eins í dag.

Starfsmenn Kaupþings fá laun á uppsagnarfresti

Þeir starfsmenn Kaupþings sem ekki verður boðið starf hjá Nýja Kaupþingi fá laun sín greidd á uppsagnafresti í samræmi við kjarasamninga. Þetta kemur fram í tölvupósti sem starfsmönnum hefur verið sendur.

FT segir símtalið veikja málstað Breta

Breska dagblaðið Financial Times fjallar í dag um afrit af samtali Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, og Árna Mathiesen, fjármálaráðherra, 7. október.

Viðbúnaði aflétt á Vestfjörðum

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum, að höfðu samráði við Veðurstofu Íslands, hefur ákveðið að aflétta viðbúnaði á norðanverðum Vestfjörðum vegna snjóflóðahættu í þéttbýli.

Almenningur á ekki að borga skuldir bankanna

,,Þegar viðskiptabankarnir voru einkavæddir hætti ríkið að eiga þá," segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, í pistli á heimasíðu sinni og bætir við að þá hafi ríkið hætt að bera ábyrgð á skuldum bankanna, skuldbindingum og öðrum ákvörðunum.

Hellisheiði lokuð - Súðavíkurhlíð enn lokuð

Hellisheiði er lokuð og verður það eitthvað fram eftir morgni. Í tilkynningu frá Vegagerðinni eru þeir sem eiga yfirgefna bíla á Hellisheiðinni eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á Selfossi.

Mikil röskun á millilandaflugi vegna veðurs

Mikil röskun vað á millilandaflugi í gærkvöldi eftir að ófært varð á Keflavíkurflugvelli vegna ofviðris. Tveimur vélum , sem voru að koma frá meginlandi Evrópu var beint til Akureyrar og öðrum þremur til Egilsstaða, þar sem þær eru enn.

Fjöldi útkalla vegna fárviðris í nótt

Hátt í 200 björgunarsveitarmenn allt frá norðanverðum Vestfjörðum og suður á Reykjanes sinntu fjölda útkalla vegna fárviðris, frá því snemma í gærkvöldi og fram undir klukkan fimm í morgun.

Darling: Orðspor Íslands mun bíða hræðilega hnekki - Samtalið við Árna

,,Þú verður að gera þér ljóst að orðspor þjóðar þinnar bíður hræðilega hnekki," sagði Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, í samtali við Árna Mathiesen, fjármálaráðherra, í síma 7. október. Kastljós birti í kvöld samtal þeirra en lesið var upp af afrit af símtali ráðherranna sem hafði verið þýtt yfir á íslensku.

Sóley ósátt við Jóhönnu

Sóley Tómasdóttir, varaborgarfulltrúi Vinstri grænna, hefur ritað Jóhönnu Sigurðardóttur, félagsmálaráðherra, opið bréf vegna ákvörðunar félagsmálaráðuneytisins að fresta jafnréttisþingi fram í janúar á næsta ári.

,,Auðvitað á ríkið að fara í mál"

Jón Daníelsson, prófessor í fjármálum við London School of Economics, segir að íslensk stjórnvöld eigi að fara í mál við breska ríkið.

Tveir á slysadeild eftir bílslys

Tveir voru fluttir slysadeild eftir bílslys sem varð á Reykjanesbraut við verslun Garðheima við norðanverða Breiðholtsbraut fyrr í kvöld. Tvær biðreiðar skullu saman. Reykjanesbraut er enn lokuð til norðurs.

Löggan með viðbragðsáætlun vegna kreppunnar

Lögreglan hefur tilbúna viðbragðsáætlun komi til múgæsings eða annars ófriðar vegna efnahagsástandsins. Reiði í samfélaginu hefur orðið til þess að öryggisgæsla í kringum ráðamenn og einstaka menn í viðskipta- og bankaheiminum hefur verið efld.

Reykjanesbraut lokuð norðan við Breiðholtsbraut

Umferðarslys varð á Reykjanesbraut við Garðheima fyrir stundu. Lögreglan, sjúkrabifreiðar og tækjabíll slökkviliðsins eru komin á vettvang og er Reykjanesbraut norðan af Breiðholtsbraut lokuð.

Bogi rannsakar fall bankanna

Bogi Nilsson fyrrverandi ríkissaksóknari hefur verið ráðinn til að sinna undirbúningsrannsókn á falli bankanna. Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari, gerði allsherjarnefnd Alþingis grein fyrir rannsókninni í dag.

Bretar lýstu yfir stríði

Bretar lýstu yfir stríði við Ísland þegar þeir frystu eignir íslenskra fyrirtækja úti. Þetta segir formaður Pétur H. Blöndal, efnahags- og skattanefndar Alþingis. Hann segir ekki hægt að skilja orð fulltrúa viðskiptalífsins á nýlegum nefndarfundi öðruvísi en að Bretar neyti aflsmunar til að fá bankakerfi erlendra ríkja til að mismuna Íslandi.

Viðræðum við Breta ólokið

Viðræðum sendinefndar breskra stjórnvalda og nefndar íslenskra stjórnvalda er ekki lokið og er gert ráð fyrir að þeim verði haldið áfram á næstunni. Nefndirnar reyna að leiða deiluna um innlán breskra ríkisborgara í íslenskum bönkum til lykta.

Rafmagnslaust á norðanverðum Vestfjörðum

Talið er að rafmagnslaust sé á öllum norðanverðum Vestfjörðum. Samkvæmt upplýsingum Vísis er rafmagnslaust á Ísafirði og í Bolungarvík. Samkvæmt upplýsingum frá Orkubúi Vestfjarða fór rafmagnið af vegna óveðurs.

Varað við slæmu veðri víða um land

Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra býst áfram við slæmu veðri næsta sólarhringinn víða um land og er Veðurstofan enn með viðvörun vegna norðan og norðvestan 20 til 25 metrar á sekúndu yfir Vestfjörðum fram á nótt, suðvestanlands undir kvöld og norðanlands á morgun.

Ríkinu gert að greiða Tryggingarmiðstöðinni 130 milljónir

Hæstiréttur dæmdi í dag íslenska ríkið til að greiða Tryggingamiðstöðinni tæpar 130 milljónir með vöxtum frá árinu 2005 auk 3 milljóna í málskostnað. Málinu var áfrýjað til Hæstaréttar í kjölfar dóms Héraðsdóms Reykjavíkur 2. október 2007.

Hæstiréttur staðfestir dóm vegna áfengisauglýsinga

Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Karli Garðarssyni, fyrrum ritstjóra Blaðsins. Karl var sakfelldur fyrir að hafa sem ritstjóri Blaðsins á árinu 2005 birt fjórar auglýsingar á áfengi og með því brotið gegn áfengislögum.

Fíkniefni fundust í Hafnarfirði og Breiðholti

Lögreglan fann fíkniefni við húsleit í Hafnarfirði í morgun. Um var að ræða bæði amfetamín og kókaín, samtals um 200 grömm, 25 e-töflur og neysluskammta af hassi. Húsráðandi, sem er karlmaður á sjötugsaldri, hefur ítrekað komið við sögu lögreglu vegna sölu og dreifingar fíkniefna.

Ráðherrar funda með Icesave samninganefndinni

Ráðherrar í ríkisstjórninni munu, klukkan fjögur í dag, funda með fulltrúum íslensku embættismannanefndarinnar, sem rætt hefur við breska embættismenn um skuldbindingar vegna Icesave reikninga Landsbankans í Bretlandi. Lítil tíðindi hafa borist af gangi viðræðnanna við Breta og ekki er ljóst hvort að Bretarnir haldi heim í dag.

Sjá næstu 50 fréttir