Fleiri fréttir

Veit ekki hvort Glitnir sameinast Landsbankanum

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, segist ekki vita hvort að Glitnir sameinast Landsbankanum. ,,Ég veit það ekki. Ég veit að það er hugmynd sem hefur verið í gangi um nokkra hríð," sagði Geir í Kastljósi fyrr í kvöld. Fram kom í þættinum að Kastljós hefur heimildir fyrir því að bankarnir sameinist hugsanlega í vikunni. ,,Ég býst við því að ég myndi vita það," sagði Geir.

Kristinn íhugar stöðu sína

Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, íhugar stöðu sína innan flokksins í kjölfar ákvörðunar þingflokksins að gera Jón Magnússon að þingflokksformann í stað Kristins.

Ingibjörg gekkst undir aðgerð í New York

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, gekkst undir aðgerð í New York í dag vegna góðkynja meins í höfði sem hrjáð hefur hana um nokkra hríð.

Segir Davíð stjórna og Geir vera farþega

Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, segir Davíð Oddsson, seðlabankastjóra, vera við stýrið og að Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sé farþegi þegar kemur að atburðum dagsins. Þetta kemur fram í pistli á heimasíðu hennar.

Kaupþing biður ekki um aðstoð

Ljóst er að útlánatap í íslenska bankakerfinu og hjá íslenskum fjárfestum verður töluvert vegna kaupa ríkisins á stórum hlut í Glitni, að mati forstjóra Kaupþings. Of snemmt sé þó að segja til um hversu mikið útlánatapið verður.

Staða Jóns Ásgeirs veikist

Stoðir, sem áttu 30 prósenta hlut í Glitni, fengu í dag greiðslustöðvun, sem alla jafna er undanfari gjaldþrots. Eigendur Stoða horfa því fram á tugmilljarða tap af fjárfestingum sínum. Jón Ásgeir Jóhannesson fer þar fremstur í flokki.

Forsvarsmönnum Glitnis var stillt upp við vegg

Seðlabankinn stillti forsvarsmönnum bankans upp við vegg segir stjórnarformaður Glitnis. Seðlabankastjóri fullyrðir að Glitnir hefði orðið gjaldþrota ef ríkið hefði ekki komið til hjálpar, lagt til 84 milljarða af gjaldeyrissjóði landsmanna og eignast 75 prósenta hlut í bankanum. Hlut sem ríkið keypti á genginu fimm og varð til þess að markaðsvirði bankans rýrnaði um rúmlega 60 prósent.

Jón þingflokksformaður í stað Kristins

Þingflokkur Frjálslynda flokksins samþykkti síðdegis tillögu Guðjóns Arnars Kristjánssonar, formanns flokksins, að gera Jón Magnússon að þingflokksformanni í stað Kristins H. Gunnarssonar.

,,Maðurinn var í losti svo við urðum að draga hann út"

Snarræði tveggja vegfaranda kom veg fyrir að illa færi þegar fólksbíll brann til kaldra kola og annar skemmdist mikið við Reykjaveg í Laugardalnum síðdegis. Allt lítur út fyrir að kviknað hafi í bílnum út frá gaskút í farangsrými bílsins sem varð alelda á skammri stundu.

Burt með ofurlaunin

„Það er ekki svo langt síðan að bankastjórinn kom með 300 milljónir króna forgjöf fyrir það eitt að vilja líta við í bankanum og síðan var farið að semja um ofurkjörin eins og hefur tíðkast í íslensku fjármálastofununum síðustu misserin og árin," segir Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri grænna, um þjóðnýtingu Glitnis.

Hælisleitandi handtekinn á ný

Lögreglan á Suðurnesjum handtók í dag mann í húsnæði hælisleitenda að Fitjum. Að sögn lögreglu þurfti að taka mannin úr umferð þar sem hann var ekki í „jafnvægi", eins og það var orðað.

Bíll brann til kaldra kola

Fólksbíll brann til kaldra kola, og annar skemmdist mikið skammt frá Laugardalshöll síðdegis í dag. Svo virðist sem kviknaði hafi í út frá gaskútum í farangursrými bílsins. Bíllinn varð alelda á skammri stundu, og komst ökumaður bílsins út við illan leik. Hann var fluttur á slysadeild með brunasár en nánari upplýsingar um líðan hans fást ekki að svo stöddu.

Fíkniefni við girðinguna á Litla-Hrauni

Fíkniefnahundur fangelsisins á Litla-Hrauni fann í vikunni bakpoka utan girðingar fangelsisins. Í tilkynningu frá lögreglunni á Selfossi segir að í bakpokanum hafi fundist tveir litlir plastpokar með hvítu efni. „Við prófun kom í ljós að í öðrum pokanum hafi verið amfetamín en íblöndunarefni í hinum. Engin skýring er á tilurð bakpokans á þessum stað en grunur er um að hann hafi átt að berast inn fyrir girðingu með einhverjum hætti," segir einnig.

54 vilja í forstjórastól Landsvirkjunar

Fimmtíu og fjórir sækjast eftir því að verða næsti forstjóri Landsvirkjunar en umsóknarfrestur um stöðuna rann út á föstudag. Staðan var auglýst í byrjun september eftir að ljóst varð að Friðrik Sophusson hefði ákveðið að láta af störfum.

Lýsing í Einholt annað kvöld

Vonast er til þess að lýsing verði komin við Einholt í Reykjavík annað kvöld þar sem nú er unnið að bráðabirgðalausn. Þetta kemur fram í tilkynningu borgaryfirvalda.

Sendir skýr skilaboð til umheimsins

Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að þjóðnýta Glitni sendir skýr skilaboð til umheimsins og tíðindin eru söguleg, segir Ólafur Ísleifsson, lektor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík.

Geir segir ástæðulaust fyrir fólk að óttast um innistæður sínar

Geir Haarde forsætisráðherra segir ástæðulaust fyrir fólk að óttast um innistæður sínar í Glitni. Á fundi í Stjórnarráðinu í dag sagði Geir að Glitnir, sem ríkið hefur keypt 75 prósent í, væri vel rekinn banki sem hafði lent í vandræðum vegna alþjóðlegra markaðsaðstæðna. Hann sagði ekki við stjórn eða starfsfólk bankans að sakast.

„Svartur dagur í sögu Íslands“

„Þetta er svartur dagur í sögu Íslands," sagði Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins um nýjustu vendingar í bankamálum. Hann gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega fyrir aðgerðaleysi og bendir á að fjármálakreppan hafi verið hafin fyrir ári. Seðlabankinn hefði hins vegar ekki verið styrktur nægilega og vöxtum hans haldið í himinhæðum.

Margsaga þjófur handtekinn í Grafarvogi

Karl um þrítugt var handtekinn í Grafarvogi eftir hádegi á föstudag en mikið af þýfi fannst í tveimur bifreiðum sem hann hefur til umráða. Maðurinn var margsaga við yfirheyrslu á lögreglustöð en viðurkenndi þó að hafa stolið ýmsu af því sem fannst í bílunum hans.

Aðdragandinn að kaupunum stuttur

Aðdragandinn að kaupum ríkisins í Glitni er stuttur en bankinn óskaði fyrst eftir aðstoð Seðlabankans í síðustu viku.

Engar uppsagnir boðaðar á fundi með starfsmönnum Glitnis

Oddur Sigurðsson, varaformaður starfsmannafélags Glitnis, segir engar uppsagnir hafa verið boðaðar á starfsmannafundi sem haldinn var í morgun í framhaldi af fréttum af því að ríkið eignaðist 75 prósenta hlut í Glitni.

Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar

Forsætisráðherra hefur boðað til blaðamannafundar klukkan tvö í dag í Stjórnarráðshúsinu. Til umræðu verður hlutafjáraukning í Glitni, en ákveðið hefur verið að ríkissjóður leggi til 75% í hlutafjáraukningu.

Dæmdur fyrir fjárdrátt úr dánarbúi

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa dregið sér og nýtt í eigin þágu tvö hundruð þúsund krónur úr dánarbúi.

Starfsmenn Glitnis slegnir yfir tíðindunum

Fulltrúi starfsmanna Glitnis sem fréttastofa ræddi við í morgun sagði að þeir væru slegnir yfir tíðindunum líkt og þjóðfélagið allt. Góðu tíðindin væru þau að tilkynnt hefði verið í morgun að bankinn yrði rekinn áfram og nú yrði reynt að halda þessu á floti, eins og það var orðað.

Glitnir þjóðnýttur fyrir 84 milljarða króna

Ríkisstjórn Íslands mun eignast 75 prósenta hlut í Glitni samkvæmt samkomulagi milli ríkisstjórnar Íslands og eigenda Glitnis banka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum.

Leynd yfir efni Seðlabankafundar

Alger trúnaður og þar með leynd, hvíla yfir því sem fram fór á fundum í forsætisráðuneytinu í gær og í Seðlabankanum seint í gærkvöldi.

Ferfalt meira af loðnuseiðum en í fyrra

Sjómenn, fuglaáhugamenn og útgerðarmenn fagna nú í sameiningu þeim niðurstöðum úr rannsóknaleiðangri Hafrannsóknastofnunar, að fjórum sinnum meira hafi mælst af loðnuseiðum í sumar en í fyrra.

Ekið á kyrrstæðan og mannlausan bíl

Bíl var ekið framan á kyrrstæðan og mannlausan bíl á Selfossi í gærkvöldi og stakk ökumaðurinn af. Hann yfirgaf bíl sinn skammt frá og hvarf á braut, en vitni voru að ákeryslunni og vitað er hvaða fyrirtæki á bílinn, þannig að ökuníðingurinn finnst væntanlega í dag.

Einum af hverjum fimm löxum sleppt

Talið er að laxveiðimenn hafi sleppt rúmlega tíu þúsund veiddum löxum í sumar, eða um tuttugu prósentum aflans. Það þýðir að einum af hverjum fimm löxum hafi verið sleppt.

Innbrotsþjófar á Broadway

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók þrjá menn, sem brutust inn í skemmtistaðinn Broadway við Ármúla laust eftir miðnætti og höfðu borið talsvert af áfengi út í bíl sinn þegar lögreglu bar að.

Steingrímur J: Allt á trúnaðarstigi

Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, vildi ekkert tjá sig um fund formanna stjórnmálaflokkanna með Seðlabankastjórunum í Seðlabankanum í kvöld. "Þetta er allt á trúnaðarstiginu. Það er bara þannig," segir Steingrímur J. í samtali við Vísi.

Formenn allra flokka á fundi í Seðlabankanum

Formenn allra flokka voru kallaðir á skyndifund í Seðlabankanum nú um ellefu leytið í kvöld. Ekki er vitað hvert tilefnið er en gera má ráð fyrir því að umræðuefnið sé efnahagskrísan sem nú dynur yfir landið. Þetta kom fram á dv.is.

Sjá næstu 50 fréttir