Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
ESB segir ómögulegt að taka upp evru á grundvelli EES samningsins Percy Westerlund, yfirmaður fastanefndar framkvæmdastjórnar ESB gagnvart Íslandi, telur það ómögulegt að Íslendingar geti tekið upp evru á grundvelli EES samningsins. 14.7.2008 14:47
Segir hugmyndir Björns fjarlægan möguleika Geir H. Haarde forsætisráðherra boðaði til blaðamannafundar í Stjórnarráðinu nú fyrir stundu. Tilefnið voru ummæli Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra um að taka ætti upp evru á grundvelli EES samningsins án þess að ganga inn í Evrópusambandið. Geir sagði þetta fjarlægan möguleika og taldi ráðamenn í Brussel hafa lítið álit á þessum hugmyndum. 14.7.2008 14:46
Sautján aðildarfélög BHM hafa samþykkt kjarasamning Félagsmenn 17 aðildarfélaga BHM af þeim 20 sem undirrituðu kjarasamning við fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs þann 28. júní síðastliðinn hafa nú samþykkt samninginn í atkvæðagreiðslu á vegum félaganna. 14.7.2008 14:38
Lögðu nótt við nýtan dag til aðstoðar viðskiptavinum Starfsmenn Iceland Express þurftu sumir hverjir að vaka í allt að sextíu klukkutíma til þess að hjálpa farþegum vegna bilunar sem kom upp í vél um helgina og olli seinkunum hjá flugfélaginu. 14.7.2008 13:49
Flugmálastarfsmenn semja við Flugstoðir Félag flugmálastarfsmanna ríkisins gekk frá kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins og Flugstoðir ohf. nú upp úr hádegi. 14.7.2008 13:17
Vélarbilun orsakaði rúmlega sólarhringsseinkun Bilun varð í einni flugvél Icelandair á leið frá Bergen um helgina. Bilunin orsakaði rúmlegar sólarhringsseinkun á komu flugvélarinnar til landsins. 14.7.2008 12:25
Leigubílstjóra ógnað með hnífi - fann árásarmennina sjálfur Leigubílstjórinn, Þorsteinn Héðinsson, sem varð fyrir fólskulegri árás í Garðabæ aðfaranótt föstudags fann árásarmennina sjálfur. Daginn eftir stóð hann fyrir fyrir utan lögreglustöðina á Hverfisgötu og reykti sígarettu. Skyndilega byrjuðu fjórir piltar að æpa ókvæðisorð að Þorsteini sem áttaði sig á að þarna voru árásarmennirnir. Lögreglan handtók þá stuttu síðar og voru þeir vopnaðir hnífum. 14.7.2008 12:18
Evrópunefnd Björns sagði hugmyndir um upptöku evru án ESB aðildar óraunhæfar Evra verður ekki tekin upp hér án aðildar að Evrópusambandinu. Þetta sagði Björn Bjarnason á heimasíðu sinni í fyrra en hefur nú skipt um skoðun. Hugmyndir hans um upptöku evru í gegnum EES eru óraunhæfar að mati Evrópunefndarinnar. 14.7.2008 12:08
Tilgangslaus ferð til London vegna seinkunar Iceland Express Eiríkur Bergmann Einarsson, dósent og forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst, röltir nú um London í tilgangsleysi. Eiríkur missti af fundi í London vegna seinkunar á flugi hjá Iceland Express. Eiríkur segist ekki æfur af bræði en það sé pirrandi að hafa misst af fundinum. Eiríkur ætlar að kanna hvort hann geti krafið flugfélagið um skaðabætur, enda hefur hann orðið fyrir fjárhagslegu tjóni. 14.7.2008 11:02
Ekið á vespu - Tvær konur slasaðar Tvær ungar konur voru fluttar á slysadeild rétt fyrir klukkan 11 í dag eftir að ekið var utan í vespu sem þær sátu. Við það féllu konurnar í jörðina á horni Miklubrautar og Stakkahlíðar. 14.7.2008 10:58
Deila OR og Guðmundar snýst um 7 milljóna króna Land Cruiser Bifreiðin sem Orkuveita Reykjavíkur lét Guðmundi Þóroddssyni, þáverandi forstjóra fyrirtækisins, í té er 2006 árgerð af Toyota Land Cruiser 100. Slík bifreið kostar á bilinu 6,5 - 7 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum á vef Bílgreinasambandsins. 14.7.2008 09:47
Níutíu prósent Íslendinga nota tölvu og internet Rúmlega 90% landsmanna á aldrinum 16-74 ára nota tölvu og internet, samkvæmt könnun Hagstofunnar sem var gerð fyrr á þessu ári. Niðurstöður könnunarinnar sýna að tölvur eru á 90% heimila og 88% heimila gátu tengst interneti. 14.7.2008 09:08
Varað við gæsum á Akureyri Lögreglan á Akureyri varar ökumenn við gæsum á Drottningarbrautinni þessa dagana. 14.7.2008 07:30
Síldveiðiskipin aftur komin í íslensku lögsöguna Íslensku síldveiðiskipin eru aftur komin inn í íslensku lögsöguna, en um helgina reyndu þau fyrir sér í færeysku lögsögunni. 14.7.2008 07:27
Unglingur slasaðist á torfæruhjóli Fimmtán ára piltur fótbrotnaði á báðum fótum þegar hann féll á torfæruhjóli sínu á æfingasvæðinu við Glerá í gærkvöldi. 14.7.2008 07:25
Guðmundur skilaði gögnunum til OR í dag Guðmundur Þóroddsson, fyrrverandi forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, hefur skilað hinum umdeildu gögnum til Orkuveitunnar. Þetta gerðist í dag. „Ég skilaði þeim öllum og reikna með að málinu sé lokið,“ sagði Guðmundur í samtali við Vísi fyrir skömmu. 13.7.2008 19:10
Kjartan Magnússon býst við að gagnahluta OR-málsins sé lokið Kjartan Magnússon, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, segist ekki búast við öðru en að gagnamáli Guðmundar Þóroddsonar og Orkuveitunnar sé lokið. 13.7.2008 20:56
Íslensku safnaverðlaunin 2008 til Byggðasafns Vestfjarða Byggðasafn Vestfjarða hlaut Íslensku safnaverðlaunin 2008 sem Ólafur Ragnar Grímsson afhenti á Bessastöðum í dag. Félag íslenskra safna og safnmanna og Íslandsdeild ICOM – alþjóðaráðs safna, standa saman að verðlaununum og hafa þau verið veitt frá árinu 2000. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá byggðasafninu. 13.7.2008 17:14
Eistnaflug á Neskaupstað til fyrirmyndar að sögn íbúa „Ég bý tíu metra frá tjaldstæðinu og ég hef ekki heyrt í þessum krökkum,“ segir Sigríður Margrét Guðjónsdóttir, ánægður íbúi á Neskaupstað þar sem rokkhátíðinni Eistnaflugi er um það bil að ljúka. 13.7.2008 16:12
Vantar íslenskar varnaðarmerkingar á 30% efnavara Viðskiptavinur í byggingavöruverslun getur gert ráð fyrir að í tæplega 30% tilvika vanti alfarið íslenskar varnaðarmerkingar á efnavörur. Þetta sýnir könnun sem framkvæmd var á flestöllum heilbrigðiseftirlitssvæðum 13.7.2008 15:25
Pallbifreið brann við Höfðabakkabrú Eldur kom upp í pallbifreið á ferð nálægt Höfðabakkabrú í hádeginu. Ökumaðurinn slapp ómeiddur en bifreiðin gjöreyðilagðist. Slökkvilið var um 10 mínútur að ráða niðurlögum eldsins. 13.7.2008 14:26
Egill Jónsson alþingismaður - andlátsfregn Egill Jónsson fyrrum alþingismaður og bóndi á Seljavöllum er látinn, 77 ára að aldri. Egill fæddist að Hoffelli í Nesjahreppi 14. desember 1930. Hann lauk búfræðiprófi frá Bændaskólanum á Hvanneyri árið 1950 og búfræðikandidatsprófi frá sama skóla 1953. Árið 1955 stofnaði Egill, ásamt eftirlifandi eiginkonu sinni, Halldóru Hjaltadóttur, nýbýlið Seljavelli í Nesjum og hófu þau þar búskap. 13.7.2008 13:14
TM styrkir uppbyggingu Þjóðhátíðar eftir eldsvoða Tryggingamiðstöðin hefur ákveðið að styrkja aðstandendur Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum til uppbyggingar á þeim mannvirkjum sem skemmdust eða eyðilögðust í eldsvoða í lok maí. Um er að ræða umgjörð Þjóðhátíðar sem haldin er árlega um verslunarmannahelgina í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum. 13.7.2008 10:43
Allur akstur bannaður á Dyngjuleið Vegna framkvæmda verða tafir á umferð á Þingvallavegi frá þjónustumiðstöð að Vinaskógi næstu daga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Vegna aurbleytu og hættu á skemmdum er allur akstur enn bannaður á Dyngjuleið, milli Sprengisands og Öskju, og að hluta til á Stórasandi. 13.7.2008 09:39
Nokkuð um ölvunarakstur í nótt Tilkynnt var um eina líkamsárás í Reykjanesbæ í nótt en enginn var handtekinn í tengslum við málið. Lögregla í Borgarnesi stöðvaði tvo ökumenn 13.7.2008 09:25
Fyllti kerru af útrunnum matvælum í Nóatúni Viðskiptavinur Nóatúnsverslunarinnar í Smáralind hafði samband við Vísi og sagðist hafa fyllt innkaupakerru í versluninni af gosi, safa og þurrvörum sem allt reyndist útrunnið. Það sem rann út fyrir lengstu hafði 1. febrúar á þessu ári sem síðasta neysludag. 12.7.2008 19:40
Ekki vitað um seinkun fyrr en í morgun að sögn Iceland Express „Þarna eru ákveðnar rangfærslur á ferð. Fyrir það fyrsta var það ekki vitað fyrr en klukkan fimm í morgun að þessi seinkun yrði,“ sagði Lára Ómarsdóttir, upplýsingafulltrúi Iceland Express, um hópinn sem beið í Leifsstöð í 10 klukkustundir og greint var frá á Vísi fyrr í dag. 12.7.2008 19:01
Sennilegt að víralás hafi losnað í tæki í Adrenalíngarðinum „Við erum að fara yfir þetta hjá okkur og teljum að víralás hafi losnað og runnið til. Við það slaknar á bandinu þannig að hann kemur hraðar niður en á að vera,“ sagði Óskar Helgi Guðjónsson, framkvæmdastjóri 12.7.2008 20:09
Harður árekstur í Grímsnesi Tvær jeppabifreiðar rákust harkalega saman nálægt Kerinu í Grímsnesi laust fyrir klukkan 15:30 í dag. 12.7.2008 17:47
Tveir ferfættir týndir í Borgarfirðinum Þröstur Júlíusson frá Hofsstöðum í Borgarfirði hafði samband við ritstjórn Vísis og lét vita af því að hann hefði týnt tveimur fullvöxnum hundum, þeim Kolla og Bjarma, nálægt Stafholtstungum í Borgarfirði í gær. 12.7.2008 18:31
Fótboltakrakkar fastir í Leifsstöð í tíu tíma Sextíu og fimm manna hópur frá íþróttafélaginu Leikni hefur verið fastur í Leifsstöð í rúmar tíu klukkustundir. Hópurinn er á leið á Gothia Cup fótboltamótið í Svíþjóð en stelpur og strákar á aldrinum 12 - 16 ára munu keppa á því móti fyrir hönd Leiknis. 12.7.2008 17:24
Ríkisstjórnin styður menningu á landsbyggðinni í minningu Einars Odds Bautasteinn til minningar um Einar Odd Kristjánsson alþingismann var afhjúpaður á Flateyri við athöfn í dag en á mánudag er eitt ár síðan Einar Oddur lést. Steininum var valinn staður á Sólbakka þar sem hann bjó. 12.7.2008 16:32
Fjórðu aðgerðabúðir Saving iceland á Hellisheiði Fjórðu aðgerðabúðir Saving Iceland eru nú hafnar í fallegum á Hellisheiði og hafa samtökin sent Vísi fréttatilkynningu um aðgerðirnar sem hér fer á eftir. 12.7.2008 15:43
Þríbrotinn með marið lunga eftir fall úr leiktæki „Okkur var sagt þarna að við værum öruggari í garðinum en í rútunni á leiðinni heim en það var nú ekki alveg rétt,“ segir Hafsteinn G. Hauksson sem nef-, handleggs- og rifbeinsbrotnaði þegar hann féll úr leiktæki í Adrenalíngarðinum á Nesjavöllum í gærkvöldi. 12.7.2008 14:57
Framkvæmdir við Reykjanesbraut ganga vel Framkvæmdir við Reykjanesbraut ganga vel að sögn Vegagerðarinnar. Umferð var hleypt á mislæg gatnamót við Vogaafleggjara í síðustu viku og við það lengdist tvöfaldi kafli brautarinnar um tvo og hálfan kílómetra. 12.7.2008 14:25
Segir Hvalfjarðargöngin hafa bætt búsetuskilyrði Hvalfjarðargöngin hafa breytt byggðarmynstri og búsetuskilyrðum á suðvesturhorni landsins til hins betra að mati Gísla Gíslasonar stjórnarformanns Spalar. Hann segir að búið verði að greiða upp göngin eftir sex til sjö ár. Í gær voru nákvæmlega tíu ár liðin frá því Hvalfjarðargöngin voru opnuð - árið 1998. 12.7.2008 14:21
FÍS lýsir yfir áhyggjum af efnahagsástandi Félag íslenskra stórkaupmanna birtir í dag heilsíðuauglýsingu í Morgunblaðinu þar sem félagið lýsir yfir verulegum áhyggjum af efnahagsástandinu í landinu. Um hundrað og sjötíu fyrirtæki eru í Félagi íslenskra stórkaupmanna en þeirra á meðal eru heildverslanir, lyfjafyrirtæki og útflutningsfyrirtæki. 12.7.2008 14:05
Meintir lottósvikahrappar í Flórída svara fyrir sig Meintir svikahrappar hjá fyrirtækinu ASTAR í Flórída segja það alrangt að þeir stundi þá starfsemi að svíkja fé út úr grandlausu fólki með því að komast yfir kreditkortaupplýsingar þeirra í skjóli þess að korthafarnir hafi fengið lottóvinning. 12.7.2008 12:32
Menn sem réðust á leigubílstjóra í Garðabæ handteknir Lögregla hefur haft hendur í hári tveggja ungra manna sem réðust á leigubílstjóra í Garðabæ í fyrrinótt og ógnuðu honum meðal annars með hnífi. Í verslun 10 11 í miðbæ Reykjavíkur skallaði maður lögreglumann með þeim afleiðingum að hann marðist á kinn og var fluttur á slysadeild. 12.7.2008 09:41
Persónuvernd vill vernda fólk gegn nafnlausum smáskilaboðum Persónuvernd vill gera fólki kleyft að loka fyrir móttöku smáskilaboða sem send eru með númeraleynd - til dæmis af netinu. Jafnframt vill Persónuvernd að fólk geti lokað fyrir símtöl úr hvaða númeri sem er - líkt og fólk geti blokkað ruslpóst á netinu. 11.7.2008 21:13
Frændi Paul Ramses segir hann ljúga Fullyrðingar Paul Ramses um að líf hans sé hættu verði honum gert að snúa aftur til Kenía eru ekki sannar að sögn ættingja Pauls sem búsettir eru á Íslandi. Þeir vilja engu að síður að hann fái hæli á Íslandi til að fjölskyldan geti sameinast. 11.7.2008 18:43
Ætlaði að stinga lögguna af Ungur mótorhjólagarpur sem mældist á 212 kílómetra hraða við Vogaafleggjara sagðist við yfirheyrslur hafa ætlað að stinga lögguna af. Hann náðist við Kaffi Tár í Njarðvík. 11.7.2008 22:03
Ætlar að skila gögnunum um helgina Guðmundur Þóroddsson, fyrrverandi forstjóri Orkuveitunnar, segist reikna með að skila hinum umdeildu gögnum um helgina eða strax eftir helgi. Hann segir ýmsar verðmætar upplýsingar í gögnunum. 11.7.2008 19:49
Fósturfaðir grunaður um kynferðisbrot Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu rannsakar mál þar sem karlmaður er grunaður um kynferðisbrot gegn stúlku sem var hjá honum í fóstri. 11.7.2008 18:36
Hæstiréttur framlengdi farbannsúrskurð Hæstiréttur hefur staðfest framlengingu á farbannsúrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Viggó Þóri Þórissyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra Verðbréfastofu Sparisjóðanna, til 9. september næstkomandi. 11.7.2008 17:12