Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Atvinnuleysi var 1,1% í júní Skráð atvinnuleysi í júní 2008 var 1,1% eða að meðaltali 1.842 manns, sem eru 103 fleiri en í maí síðastliðnum eða um 6% aukning. Atvinnuleysi var 1% á sama tíma í fyrra. 11.7.2008 16:35
Fékk skilorð fyrir líkamsárás Karlmaður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Norðurlands Eystri í dag dæmdur í 40 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. 11.7.2008 16:25
156 náðaðir frá 1980 Frá 1980 hefur 156 einstaklingum verið veitt náðun hér á landi. Á seinustu fimm árum hafa tíu verið náðaðir og þar af einn á þessu ári. 11.7.2008 16:13
Fjöldi kaupsamninga eykst á milli vikna Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 4. júlí til og með 10. júlí var 82 og fjölgar um 18 frá vikunni þar áður. Þar af voru 64 samningar um eignir í fjölbýli, 14 samningar um eignir í sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. 11.7.2008 15:21
Tíminn stendur í stað á Lækjartorgi Keyrt var á klukkuna á Lækjartorgi í gærkvöldi samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg. Ökumaður virðist hafa ekið á klukkuna rétt fyrir klukkan níu í gær því hún hefur verið stopp síðan þá. 11.7.2008 14:54
Flóttatilraun fanga mistókst Gæsluvarðhaldsfangi, sem verið var að flytja af Litla-Hrauni í Hegningarhúsið við Skólavörðustíg, reyndi að flýja þegar hann fór út úr bifreið sem flutti hann á milli staða. Maðurinn var handsamaður um mínútu eftir að hann flúði, að sögn Páls Winkels, fangelsismálastjóra. 11.7.2008 13:19
Víkingar fá stærri lóð við Stjörnugróf Knattspyrnufélagið Víkingur hefur fengið fyrirheit um stækkun athafnasvæðis félagsins við Stjörnugróf eftir að núgildandi leigusamningur við gróðrastöðina Mörk rennur út, árið 2016. 11.7.2008 13:11
Bréfið til Guðmundar ekki rætt í stjórn OR Fulltrúi Samfylkingarinnar í stjórn Orkuveitunnar segir að ákvörun um að senda Guðmundi Þóroddssyni, fyrrverandi forstjóra Orkuveitunnar, bréf þar sem hann er krafinn um að skila gögnum hafi ekki verið rædd í stjórn fyrirtækisins. 11.7.2008 13:04
Lögreglan leitar enn árásarmanna Lögregla leitar enn tveggja ungra karlmanna sem réðust á leigubílstjóra í Garðabæ í nótt, börðu hann og hótuðu honum með hnífi. 11.7.2008 12:12
Þórunn ekki lengur andófsmaður Umhverfisráðherra sagðist í október vera andófsmaður innan ríkisstjórnarinnar. Í fréttum Stöðvar 2 í gær sagðist hún alls ekki á leiðinni að verða undir innan ríkisstjórnarinnar. 11.7.2008 11:52
Hundrað og áttatíu milljónir til menntaverkefna á landsbyggðinni Menntamálaráðherra hefur ákveðið að veita allt að 180 milljónum króna til menntaverkefna á landsbyggðinni sem eru þáttur í mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna tímabundins aflasamdráttar. Veittir verða styrkir til 59 verkefna að þessu sinni. 11.7.2008 11:50
Vonar að mál Ramses verði afgreitt sem fyrst Katrín Theódórsdóttir, lögfræðingur Paul Ramses hefur ekkert heyrt frá dómsmálaráðuneytinu eftir að hafa lagt inn kæru á miðvikudaginn. Hún vonar að mál Ramses verði afgreitt sem fyrst vegna sérstaka aðstæðna í því. Hún segist ekki þekkja nein fordæmi fyrir því að semja við Útlendingastofnun eins og Atli Gíslason, þingmaður Vinstri hreyfingarinnar- Græns framboðs, stakk upp á. 11.7.2008 11:43
Bæjarfulltrúi segir ráðningarsamning bæjarstjóra fráleitan ,,Þetta er fráleitur samningur. Við gerðum miklar athugasemdir og greiddum atkvæði gegn samningnum," segir Petrína Baldursdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins og tilvonandi formaður bæjarstjórnar Grindavíkur. 11.7.2008 11:10
Kjartan fékk lögfræðing í mál Guðmundar Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, leitaði til Kjartans Magnússonar, stjórnarformanns Orkuveitunnar, eftir að hafa ítrekað beðið Guðmund Þóroddsson, fyrrverandi forstjóra fyrirtækisins, um að skila gögnum af stjórnarfundum. 11.7.2008 11:02
Hæstu æfingagjöldin í Borgarnesi Kostnaður sem fylgir íþrótta- og tómstundaiðkun barna og unglinga getur vegið þungt í heimilisbókhaldi hjá barnafjölskyldum. Fótboltinn er með vinsælli íþróttum og er stundaður um allt land. Neytendasamtökin ákváðu að kanna árgjald fyrir börn í 4. flokki og skoða hvaða áhrif íþróttastyrkur sveitarfélaga hefur á æfingagjöldin. 11.7.2008 10:42
Hvalfjarðagöngin 10 ára í dag Í dag eru tíu ár frá því að Hvalfjarðargöngin voru opnuð. Á vefsíðu Hvalfjarðarsveitar segir að um sé að ræða mestu samgöngubót sögunnar. Á þessum tíu árum hafi um 14 milljónir ökutækja farið um göngin. 11.7.2008 10:07
Þorsteinn neitar öllu við yfirheyrslur Samkvæmt heimildum Vísis neitar Þorsteinn Kragh öllum ásökunum við yfirheyrslu hjá lögreglu. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan í síðustu viku eftir að hafa verið handtekinn í tengslum viði innflutningi á um 190 kílóum af hassi sem Hollendingur var tekinn með á Seyðisfirði í byrjun júní. 11.7.2008 08:54
Texture í hópi 10 bestu veitingahúsa í London Fréttaveitan Bloomberg segir í dag að veitingastaður Agnars Sverrissonar, Texture, sé í hópi 10 bestu veitingastaða í London þegar verð og gæði eru borin saman. 11.7.2008 08:01
Þrjú tekin dópuð undir stýri Lögreglan í Árnessýslu tók tvær konur og einn karlmann úr umferð á bílum þeirra með skömmu millibili í uppsveitum sýslunnar, á sjöunda tímanum í gærkvöldi, öll grunuð um fíkniefnaneyslu. 11.7.2008 07:51
Hlaupið úr Grænalóni í rénun Hlaupið úr Grænalóni sunnan undir Vatnajökli, virðist nú í rénun og ljóst að það muni ekki skapa neina hættu. 11.7.2008 07:21
Börðu og rændu leigubílstjóra og ógnuðu með hnífi Tveir karlmenn réðust á leigubílstjóra í Garðabæ í nótt, börðu hann og hótuðu honum men hnífi. 11.7.2008 06:50
Tjáir sig ekki um hugsanlega lögsókn Guðmundar Páll Magnússon, útvarpsstjóri, treysti sér ekki til þess að tjá sig um hugsanlega lögsókn Guðmundur Þóroddsson, fyrrverandi forstjóra Orkuveitunnar, á hendur Rúv. Hann segist ekki hafa séð fréttina þar sem Guðmundur var sakaður um að hafa tekið trúnaðargögn ófrjálsri hendi þegar hann hætti sem forstjóri og neitað að skila þeim. 10.7.2008 20:03
Guðni ræður sér aðstoðarmann Agnar Bragi Bragason, Reykvíkingur og Valsari, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Guðna Ágústssonar þingmanns Framsóknarflokksins. Agnar segist hlakka til að takast á við starfið. 10.7.2008 21:45
Sjóliðar lagfærðu minnismerki Sjóliðar úr breskum tundurspilli sem liggur við Reykjavíkurhöfn gerðu endurbætur á minnismerki í Fossvogskirkjugarði í dag. Liðsforingi um borð segir það fremur sjaldgæft að sjóliðar um borð bjóði sig fram til slíkra verka. 10.7.2008 18:45
Fjölgun á komu hælisleitanda Þeir hælisleitendur sem lengst hafa beðið eftir úrlausn sinna mála hjá Útlendingastofnun komu hingað til lands árið 2005. Flestir hælisleitendur koma hingað til lands frá Schengen svæðinu. 10.7.2008 18:39
Kannað hvað orsakaði bilun Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Flugleiða, segir að bilun hafi komið upp hreyfli Boeing 757-200 vélar sem var á leið frá Amsterdam til Keflavíkur í dag. 10.7.2008 15:59
Sagður hafa látist af eðlilegum orsökum Blaðafulltrúi skemmtiferðaskipsins Aurora, Michelle Angel, segir við Vísi að farþegi hafi látist um borð í skipinu í nótt af náttúrulegum orsökum. Enginn grunur sé um að morð hafi verið framið. 10.7.2008 15:12
Þórunn flýr undan sjónvarpsvélum Samfylkingin er í úlfakreppu vegna klofnings í afstöðunni til stóriðjuuppbyggingar. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra flýr ítrekað undan sjónvarpsvélum þegar reynt er að spyrja hana hversvegna hún kallaði eftir aukafundi þingflokksins um málið. 10.7.2008 18:31
Sagður hafa yfirtekið Lækjartorg með skætingi Steinþór Árnason, sem rekur kaffihúsið Segafredo við Lækjartorg, segist gáttaður á framkomu lögreglumanna sem heimsóttu hann um tvöleytið í dag. 10.7.2008 16:30
VG: Hreinusnarátak farið úr böndunum Vinstri grænir í Reykjavík telja brýnt að borgaryfirvöld gæti meðalhófs í hreinsunaraðgerðum sínum í miðborginni. Fulltrúi flokksins lagði fram bókun á fundi borgarráðs í morgun þar sem segir að svo virðist sem að hreinsunarátak borgarinnar hafi farið úr böndunum og málning þekji nú áratugagömul listaverk. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sóleyju Tómasdóttur, varaborgarfulltrúa VG. 10.7.2008 16:05
181 farþegi heill á húfi eftir rautt útkall í Keflavík Allt tiltækt lið slökkviliðs og lögreglu var kallað út að Keflavíkurflugvelli fyrir stundu en þar lenti Boeing 757-200 vél Icelandair með einkennisstafina TF-FIZ. Vélin var með dautt á vinstri hreyfli en lendingin gekk vel. 10.7.2008 15:34
„Fólkið á Íslandi hefur virkilega snert hjarta mitt" „Ég er svo þakklátur fyrir allan þann stuðning sem fólkið á Íslandi hefur sýnt mér“ segir Paul Ramses sem dvelur nú á gistiheimili fyrir hælisleitendur í Róm. „Það sýnir okkur að Íslendingar eru friðelskandi þjóð og umhugað um mannréttindi sem er gott að vita og gott fyrir fólkið.“ 10.7.2008 13:54
Hvaðan komu auður og völd Vatnsfirðinga til forna? Alþjóðlegur hópur fornleifafræðinga rannsakar hvers vegna Vatnsfjörður í Ísafjarðardjúpi varð eitt ríkasta og valdamesta höfðingjasetur landsins á miðöldum. Samhliða er þar rekinn fornleifaháskóli fyrir nemendur víðs vegar að úr heiminum. 10.7.2008 18:54
Björgólfur vann meiðyrðamál Ummæli Kristjáns S. Guðmundssonar um Björgólf Guðmundsson, stjórnarformann Landsbankans, sem birtust í grein hans í Morgunblaðinu í október 2007 undir yfirskriftinni „Eimskip, óskabarn þjóðarinnar" voru dæmd ómerk í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 10.7.2008 16:31
Óprúttnir aðilar svíkja og pretta í nafni MS-félagsins Árvökulir borgarar létu MS-félagið vita af því í dag að fólk væri að ganga í hús í Breiðholtinu í dag og biðja um lausafé í söfnunarbauk til styrktar félaginu. Berglind Ólafsdóttir hjá MS-félaginu segir að þarna hafi ekki verið um fólk á þeirra vegum að ræða. Félagið stundi ekki að ganga í hús og biðja um fé til styrktar félaginu. 10.7.2008 15:48
Íhugar málsókn gegn RÚV Guðmundur Þóroddsson íhugar málsókn gegn fréttastofu Ríkissjónvarpsins í kjölfar fréttar þar sem gefið var í skyn að hann hafi tekið skjöl Orkuveitunnar ófrjálsri hendi. Guðmundur lýsir furðu á einhliða fréttaflutningi fréttastofunnar þar sem engin tilraun hafi verið gerð til að bera efni fréttarinnar undir sig. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Guðmundi. 10.7.2008 15:01
Lögregla rannsakar mannslát í skemmtiferðaskipi Nú á eftir mun hópur lögreglumanna auk varðstjóra fara um borð í skemmtiferðaskipið Aurora sem liggur fyrir utan Reykjavíkurhöfn. Maður lést um borð í skipinu í nótt. Beiðni um aðstoð frá lögreglu barst frá skipstjóra skipsins vegna gruns um að maðurinn sem lést hafi verið myrtur. 10.7.2008 14:41
Fráfarandi bæjarstjóri á launum til 2010 Ólafur Örn Ólafsson fráfarandi bæjarstjóri í Grindavík sem lætur af störfum þegar nýr meirihluti tekur við á auka bæjarstjórnarfundi eftir helgi hefur rétt á biðlaunum fram í nóvember 2010. 10.7.2008 14:35
Borgarráð samþykkti ráðningu Önnu Kristinsdóttur Borgarráð samþykkti einróma á fundi sínum í morgun ráðningu Önnu Kristinsdóttur, stjórnmálafræðings og fyrrverandi borgarfulltrúa, í starf mannréttindastjóra Reykjavíkurborgar. Alls sóttu 23 einstaklingar um embættið. 10.7.2008 13:40
Fimm hundruð milljóna króna kostnaður vegna Laugavegar 4-6 Minnihlutinn í borgarráði Reykjavíkur segir að heildarfjárútlát Reykjavíkurborgar af kaupum og uppbyggingu á húsum við Laugaveg 4 og 6 geti orðið meira en milljarður króna og fórnarkostnaðurinn sem falla muni á borgarsjóð verði ekki undir hálfum milljarði en ekki um 200 milljónir eins og formaður skipulagsráð hafi haldið fram í fréttum. 10.7.2008 13:25
Rannsóknarstofnun í hjúkrunarfræði fær veglegan styrk Á dögunum færði Ingibjörg R. Magnúsdóttir Háskóla Íslands afar rausnarlega gjöf er hún bætti 1.750.000 krónum í sjóð sem starfar í hennar nafni við Rannsóknarstofnun í hjúkrunarfræði. 10.7.2008 13:04
Vegfarendur um Óshlíðarveg vari sig Lögreglan á Vestfjörðum biður vegfarendur um að vara sig þegar þeir aka um Óshlíðarveg. Svo virðist vera sem hreyfing sé í hlíðinni, en skriða féll þar í morgun. 10.7.2008 12:56
Enn mótmælt við dómsmálaráðuneytið Mótmælendur söfnuðust saman fyrir framan dómsmálaráðuneytið í hádeginu í dag til að knýja á um lausn í máli Pauls Ramses. 10.7.2008 12:51
Gert ráð fyrir tengibyggingu úr gleri Tengibygging úr gleri á milli gömlu húsanna númer fjögur og sex við Laugaveginn og þakgarður á bakhýsi, eru meðal annars að finna í tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir svæðið. 10.7.2008 12:22
Ferðalangi blöskrar ofsaakstur forsetabifreiðar Ingibjörg Bragadóttir var á leiðinni til Reykjavíkur úr Borgarnesi. Undir Akrafjalli var bíll við bíl á um 100 km hraða. Skyndilega fær Ingibjörg bíl alveg upp að afturenda bifreiðar sinnar. Henni blöskraði aksturslag bílsins og brá enn frekar í brún þegar hún sá að þarna var forsetabílinn. Hún segir að um ofsaakstur hafi verið að ræða en forsetaembættið vísar þeim ásökunum á bug. 10.7.2008 12:07