Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fyrrverandi þingmenn segjast eiga auðvelt með að finna vinnu Sautján miðaldra og eldri þingmenn hættu á alþingi síðastliðið vor. Enginn þeirra hefur átt í vandræðum með að fá vinnu - þótt ótryggar atvinnuhorfur eftir þingmennsku séu gjarnan taldar til röksemda fyrir betri eftirlaunakjörum lýðræðislegra fulltrúa okkar við Austurvöll. 26.5.2008 18:32
Þjófar stálu kaffi Nokkur innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina en í þremur þeirra höfðu þjófarnir verkfæri á brott með sér. Verkfærunum var stolið úr tveimur vinnuskúrum og einum bíl en svo virðist sem hina óprúttnu aðila hafi líka þyrst í kaffi. Nokkrar kaffipakkningar hurfu líka úr öðrum vinnuskúranna sem og mjólk sem var geymd í ísskáp á sama stað. 26.5.2008 18:26
Strætó óheimilt að velja lækni fyrir vagnstjóra Landlæknisembættið telur stjórnendur Strætó bs. ekki geta gert þá kröfu að starfsfólk tilkynni veikindi sín og veiti nánari upplýsingar um sjúkdóma sína til annars læknis en það kýs sjálft að leita til. Trúnaðarmenn Strætó óskuðu eftir úrskurði landlæknis vegna samskipta starfsmanna fyrirtækisins og Heilsuverndarstöðvarinnar Impro. 26.5.2008 17:30
Velta bílum að gamni sínu Á myndbandasíðunni Youtube.com er að finna íslensk myndbönd sem sýna hvernig fífldjarfir ungir menn velta fólksbílum í iðnaðarhverfi Grafarvogi. 26.5.2008 17:15
Vilja að þingmenn fresti framhaldsskólafrumvarpi til hausts Kennarafundur í Menntaskólanum við Hamrahlíð skorar á alþingismenn að fresta afgreiðslu frumvarps til laga um framhaldsskóla til hausts svo tóm gefist til að skoða ýmis atriði frumvarpsins betur. 26.5.2008 17:12
Karl V. Matthíasson nýr formaður Umferðarráðs Séra Karl V. Matthíasson, þingmaður Samfylkingarinnar, tekur við sem formaður Umferðarráðs um næstu mánaðamót samkvæmt ákvörðun Kristjáns L. Möller samgönguráðherra. 26.5.2008 17:05
Hæstiréttur fellir úr gildi framsalsúrskurð Hæstiréttur hefur fellt úr gildi þann úrskurð dóms- og kirkjumálaráðuneytisins að framselja pólskan karlmann til síns heima þar sem hann er grunaður um þjófnaðarbrot. Meirihluti dómsins gerir það þar sem maðurinn naut ekki aðstoðar lögmanns í málinu. 26.5.2008 16:49
Leggja fram frummatsskýrslu vegna kísilverksmiðju í Helguvík Tomahawk Development, félag í eigu íslenskra og danskra aðila, hefur lagt fram frummatsskýrslu um umhverfisáhrif fyrir fyrirhugaða kísilverksmiðju í Helguvík. Í tilkynningu frá Skipulagsstofnun segir að hægt sé að gera athugasemdir við skýrsluna til 8. júlí. 26.5.2008 16:04
Félagsmálaráðherra ætlar að beita sér í málum Fjölsmiðjunnar Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra segist munu gera það sem í hennar valdi stendur til þess að finna skjóta lausn á húsnæðismálum Fjölsmiðjunnar sem brátt verður húsnæðislaus. Þetta kom fram í svari hennar við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar, þingmanns Framsóknarflokksins. 26.5.2008 15:51
Tillögur VG í kvótamálinu lagðar fram Vinstrihreyfingin - grænt framboð hefur mótað tillögur að æskilegu svari til mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna í kjölfar þess að nefndin úrskurðaði íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið brotlegt við mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Í tillögum VG er meðal annars gert ráð fyrir að íslensk stjórnvöld hefji „vandaðan undirbúningað nauðsynlegum lagabreytingum í því skyni að gera það mögulegt að innkalla aflaheimildir frá núverandi handhöfum.“ 26.5.2008 15:46
Vill að svar til mannréttindanefndar SÞ verði kynnt þingi Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, deildi á ríkisstjórnina í dag fyrir að vilja ekki leyfa þinginu að ræða væntanlegt svar ríkisstjórnarinnar við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Forsætisráðherra sagði hins vegar ekkert sem mælti gegn því að málið yrði rætt á þingi. 26.5.2008 15:26
Segir Skipulagsstofnun hafa farið út fyrir hlutverk sitt Samorka, Samtök orku- og veitufyrirtækja, telur vandséð annað en að Skipulagsstofnun sé komin út fyrir lögbundið hlutverk sitt með áliti sínu um Bitruvirkjun. 26.5.2008 14:51
Þriggja bíla óhapp á Biskupstungnabraut Þriggja bíla umferðaróhapp varð á Biskupstungnabraut til móts við bæinn Alviðru um klukkan tíu í morgun 26.5.2008 13:54
Segir flugvallarkönnun blása fylgiskönnun út af borðinu Ólafur F. Magnússon borgarstjóri segist halda að könnun á stuðningi við flugvöll í Vatnsmýrinni blási af könnun á fylgi flokkanna í borgarstjórn. 26.5.2008 13:01
Rætt um orku- og auðlindafrumvarp á þingi Önnur umræða um breytingar á lögum á auðlinda- og orkusviði hófst á Alþingi í morgun. Hlé var gert á henni nú klukkan eitt. 26.5.2008 12:54
Tilfærsla yfir á hægri akrein sviðsett Í dag eru fjörutíu ár frá því skipt var yfir í hægri umferð á Íslandi. Að því tilefni verður tilfærslan af vinstri akrein yfir á þá hægri sviðsett klukkan eitt í dag, á sama stað og fyrir fjórum ártugum. 26.5.2008 12:32
Verður alltaf að vera til orka fyrir lítt mengandi fyrirtæki Það verður alltaf að vera til reiðu orka fyrir lítt mengandi hátæknifyrirtæki, sagði Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra fyrir sléttum þremur mánuðum. Deilur um háspennulínur, virkjanir í neðri hluta Þjórsár og við Bitru benda ekki til að iðnaðarráðherra verði að ósk sinni. 26.5.2008 12:28
Skoða möguleika á frekari málshöfðun á hendur Hringrás Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins skoðar nú möguleikann á frekari málshöfðun á hendur endurvinnslufyrirtækinu Hringrás vegna bruna á athafnasvæðis fyrirtækisins fyrir um fjórum árum. Þá vill slökkviliðið að brunavarnalögum verði breytt þannig að skýrt verði kveðið á um ábyrgð aðila í brunum sem þessum. 26.5.2008 12:20
Verslunarmannafélag Austurlands sameinast VR Aðalfundur Verslunarmannafélags Austurlands samþykkti í gær tillögu um að sameinast við VR og stofna sérstaka deild VR á Austurlandi. 26.5.2008 11:46
Borgarstjóri fagnar niðurstöðum skoðanakönnunarinnar Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri í Reykjavík, fagnar niðurstöðu skoðanakönnunar um staðsetningu Reykjavíkurflugvallar sem birtist í Fréttablaðinu í morgun. 26.5.2008 11:39
Hefði myrt Guðmund í Byrginu “Hefði þetta gerst fyrir 10 árum hefði ég framið morð á honum”, segir Ragnar Hauksson sem réðst á Guðmund Jónsson, fyrrverandi forstöðumann Byrgisins fyrir hálfum mánuði. 26.5.2008 11:30
Lýður leikstýrir dönskum stórleikara Vestfirskir kvikmyndagerðarmenn hefja í sumar tökur á leikinni sjónvarpsmynd sem verður að mestu leyti tekin upp á Jökulfjörðum en einnig á Ísafirði. 26.5.2008 11:28
Býst við minni verðbólgu „Ég tel að þetta sé síðasta háa talan sem við munum sjá og mánaðartölurnar fari lækkandi hér eftir,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. 26.5.2008 11:05
Draugur við stýrið í útafakstri? Héraðsdómur Suðurlands sýknaði í dag karlmann af ákæru um ölvunarakstur þar sem ekki var talið hafið yfir vafa af hann hefði verið undir stýri. 26.5.2008 10:42
Verðbólgan hækkar áfram og er nú 12,3 prósent Verðbólgan mælist 12,3 prósent í maí eftir að vísitalaneysluverðs hækkaði um 1,37 prósent milli apríl og maí. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar. 26.5.2008 09:04
Starfsgreinasambandið samdi í takt við BSRB Samningamenn Starfsgreinasambandsins og ríkisins undirrituðu í nótt samning við þá félagsmenn í Starfsgreinasambandinu, sem vinna hjá ríkinu. Hann er mjög í anda samningsins við BSRB og verður nú borinn undir atkvæði félagsmanna. 26.5.2008 08:10
Hátt í 60% vilja flugvöll áfram í Vatnsmýrinni Meirihluti Reykvíkinga, eða fimmtíu og átta og hálft prósent, vill að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni, en fjörutíu og eitt og hálft prósent vill að hann verði fluttur, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. 26.5.2008 07:58
Farþeginn enn á sjúkrahúsi Farþegi, sem kastaðist úr úr bíl sem valt út af þjóðveginum á Svalbarðsströnd í fyrrinótt, liggur enn á sjúkrahúsinu á Akureyri, en er ekki í lífshættu. Hann hlaut meðal annars höfuðáverka. Ökumaðurinn, sem var ölvaður, slapp minna meiddur. 26.5.2008 07:55
Mældist á 105 km hraða Lögreglan á Akureyri svipti ungan ökumann ökuréttindum til bráðabirgða eftir að hann mældist á 105 kílómetar innanbæjar á Akureyri þar sem hámrkshraðin er 50 kílómetrar á klukkustund. 26.5.2008 07:03
Samið um 20 þúsund króna hækkun frá 1. maí Gengið var frá samningi aðildarfélaga BSRB sem áttu lausa samninga við ríkið 1. maí síðastliðinn við samninganefnd ríkisins um miðnættið. Samið var til skamms tíma eða til loka mars á næsta ári. 26.5.2008 00:57
Bakslag í viðræður um Suðurnesjalínu Bakslag er komið í viðræður Landsnets og sveitarfélaga um nýja háspennulínu til Suðurnesja. Áform um álver í Helguvík og netþjónabú á Vallarsvæðinu eru í uppnámi, og talið brýnt að höggva á hnútinn mjög fljótlega, ef tímaáætlanir eiga að standa. 25.5.2008 19:16
Ögmundur vongóður um samninga Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, segist vongóður um að samningar náist með bandalaginu og samninganefnd ríkisins í kvöld. „Það eru ýmsir þættir óleystir enn en ég er vongóður um að við klárum þetta í kvöld,“ sagði hann þar sem hann var staddur á samningafundi í Karphúsinu. 25.5.2008 18:11
Hitnar í kolunum Óvenjumikil hlýindi í háloftunum yfir Íslandi valda hitabylgju á landinu í dag og fram eftir vikunni. Spáð er um eða yfir tuttugu stiga hita norðaustanlands í dag og síðar í vikunni einnig á vestanverðu landinu. 25.5.2008 15:36
Lyngdalsheiðarvegur í útboð Vegagerðin hefur boðið út gerð Lyngdalsheiðarvegar á milli Þingvalla og Laugarvatns og voru tilboð opnuð í vikunni. Lægsta boð átti Klæðning ehf., 500 milljónir króna, sem var 87 prósent af kostnaðaráætlun. 25.5.2008 15:18
Sínum augum lítur hver silfrið Formenn stjórnmálaflokkanna eru gestir Egils Helgasonar í Silfri Egils í dag sem nú stendur yfir og er þar margt af setningi slegið. Rætt var um stöðu Íbúðalánasjóðs, framtíðarhorfur hans og hvort skynsamlegt sé að reka hann í núverandi mynd eður ei. 25.5.2008 13:28
„Maður vill trúa“ - saga MND-sjúklings Guðjón Sigurðsson, formaður MND-félagsins, hafði samband við fréttastofuna og varaði við því að treysta um of á lækna af ýmsu tagi í Kína. Hann segir hér sögu sína. 25.5.2008 12:28
Dagur barnsins haldinn í fyrsta sinn Dagur barnsins á Íslandi er haldinn í fyrsta sinn í dag, 25. maí. Þetta er samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar en Sameinuðu þjóðirnar hafa í meira en hálfa öld tileinkað börnum sérstaklega einn dag á hverju ári. 25.5.2008 10:06
Sólbaðsveður víðast hvar Veðurstofa Íslands spáir allt að tuttugu stiga hita á norðaustanverðu landinu í dag en klukkan níu í morgun var hitastigið komið yfir tíu gráður í öllum byggðum. 25.5.2008 09:55
Grunaður um ölvun velti bifreið Einn var fluttur á slysadeild eftir að bifreið valt við bæinn Tröð rétt fyrir utan Akureyri um klukkan þrjú í nótt. Tveir voru í bifreiðinni, karlmenn á þrítugsaldri, en ökumaður slapp ómeiddur að sögn lögreglu. Bifreiðin er mikið skemmd en ökumaður er grunaður um ölvun við akstur. 25.5.2008 09:36
Tiltölulega rólegt hjá lögreglu á Suðurnesjum Lögreglan á Suðurnesjum átti nokkuð góðan dag að sögn vakthafandi varðstjóra. Höfð voru afskipti af þremur ökumönnum vegna of hraðs aksturs og einum vegna stöðvunarskyldubrots. Þá var lögregla kvödd í heimahús vegna heimilisofbeldis. 24.5.2008 20:40
Bifhjólaslys á Bústaðavegi Bifhjólaslys varð klukkan 20:13 á Bústaðavegi. Samkvæmt grunnupplýsingum frá lögreglu er einn aðili slasaður en ekki er vitað með hvaða hætti slysið varð né hvort þar rákust saman bifreið og hjól. 24.5.2008 20:31
Næstelsti Íslendingurinn er 104 ára í dag Torfhildur Torfadóttir, elsti núlifandi Vestfirðingurinn og næstelsti Íslendingurinn, er 104 ára í dag, 24. maí. Hún er fædd í Asparvík í Strandasýslu, yngst átta systkina, eftir því sem segir á vefnum langlifi.is. 24.5.2008 15:20
Rangt bankanúmer fylgdi frétt í dag Ragna Erlendsdóttir, móðir Ellu Dísar Laurens, sem stefnt er að því að fara með í stofnfrumumeðferð til Kína í sumar hafði samband og benti á að reikningsnúmer söfnunarreiknings sem gefið var upp í frétt um Ellu Dís í dag er ekki í gildi lengur. 24.5.2008 19:02
Virkjanaáform í uppnámi? Sveitarstjórn Ölfuss ætlar að ákveða á fimmtudag hvort aðalskipulag sveitarfélagsins verði endurskoðað. Slík endurskoðun myndi setja áform um Hverahlíðarvirkjun og stækkun Hellisheiðarvirkjunar í uppnám, því þá verður ekki hægt að virkja á svæðinu næstu tvö árin. 24.5.2008 18:57
Tafir á umferð frá flugvallarsvæðinu Verulegar umferðartafir eru á og við Flugvallarveg hjá Hlíðarenda og Öskjuhlíð er mörg hundruð ökumenn freista þess að yfirgefa flugvallarsvæðið eftir að hafa fylgst með sýningaratriðum í tilefni Flugdagsins. 24.5.2008 16:31