Fleiri fréttir

Nýr stjórnstöðvarbíll björgunarsveita Árnessýslu

Svæðisstjórn björgunarsveita í Árnessýslu tekur formlega í notkun nýjan stjórnstöðvarbíl klukkan 16 í dag. Bíllinn, sem er af gerðinni Ford 450, er búinn fullkomnum tækjum til aðgerðastjórnunar af öllu tagi á vettvangi.

Geir og Ingibjörg ná kvöldmatnum

Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra eru nú stödd í Stafangri í Noregi. Þar millilenti einkaþotan sem flutti þau á leiðtogafund Nato í Búkarest til þess að taka eldsneyti fyrir stundu.

Dómurinn hefði verið slæm tíðindi fyrir tjáningafrelsið

„Ég er mjög ánægð með niðurstöðu dómsins enda hefði verið erfitt fyrir blaðamenn að vinna vinnu sína ef við hefðum verið fundnar sekar í þessu máli og það hefði verið slæm tíðindi fyrir tjáningarfrelsi í landinu," segir Elín Arnar, ritstjóri Vikunnar. Hún og Björk Eiðsdóttir blaðamaður Vikunnar voru í dag sýknaðar af meiðyrðamáli sem Ásgeir Davíðsson eigandi Goldfinger höfðaði gegn þeim, fyrir umfjöllun blaðsins um nektardansstaði.

Brot ökumanna í Garðabæ mynduð

Lögreglan myndaði brot 45 ökumanna á Bæjarbraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarbraut í austurátt, milli Hofsstaðabrautar og Karlabrautar.

Vonast til fá að vera áfram í HÍ

Hannes Hólmsteinn Gissurarson var í hádegisviðtali Markaðarins fyrir stundu. Þar ræddi hann efnahagsmál við Sindra Sindrason en kom einnig inn á stöðu sína í Háskólanum og nýfallinn dóm Hæstaréttar.

Funduðu með ráðherra vegna verðhækkana

Verslunarmenn mættu til fundar með viðskiptaráðherra nú skömmu fyrir hádegi en á fundinum verður meðal annars rætt um boðaðar verðhækkanir kaupmanna í kjölfar gengislækkunar krónunnar.

Sýknaðar af bótakröfu Geira á Goldfinger

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag Björk Eiðsdóttur og Elínu Arnar, blaðamann og ritstjóra Vikunnar, af skaðabótakröfu Ásgeirs Þórs Davíðssonar, betur þekkts sem Geira á Goldfinger, vegna umfjöllunar blaðsins um nektardans.

Jeppamenn enn í Örfirisey

Hátt í tuttugu jeppar hafa lokað fyrir aðgengi olíubíla að birgðastöð olíufélaganna í Örfirisey síðan snemma morgun og eru þeir þar enn.

Varað við nýjum Nígeríubréfum

Af gefnu tilefni vill Ríkislögreglustjórinn vara við enn einni útgáfu af tölvubréfum í anda Nígeríubréfa. Þarna er um að ræða svindl sem heitir FreeLotto þar sem reynt er að hafa fé af fólki. Ríkislögreglustjórinn varar fólk eindregið við að svara slíkum bréfum, eða smella á vefslóðir í þessum póstum.

Menn bíði með álversframkvæmdir í Helguvík

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra telur að menn eigi að bíða með álversframkvæmdir í Helguvík þar til fyrir liggur hvernig orkuöflun og flutningslínum verði háttað og þar til búið sé að úrskurða í kærumáli vegna framkvæmdaleyfis.

Þingflokkur VG harmar ákvörðun umhverfisráðherra

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs harmar þá ákvörðun umhverfisráðherra Þórunnar Sveinbjarnadóttur að greiða götu álversframkvæmda í Helguvík eins og það er orðað. Með því að staðfesta fyrri ákvörðun Skipulagsstofnunar um umhverfismat fyrir álver í Helguvík hunsi ráðherra náttúruvernd í landinu og svíki öll fyrri loforð um stóriðjuhlé.

Tollar á fóðurblöndum frá ríkjum EES felldir niður 1. maí

Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra greindi frá því á aðalfundi Landssambands kúabænda í dag að kjarnfóðurtollar verði felldir niður á öllum fóðurblöndum frá ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins frá og með 1. maí næstkomandi.

26 teknir á klukkutíma

Brot 26 ökumanna voru mynduð á Vífilsstaðavegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vífilsstaðaveg í norðurátt, við Sjálandsskóla.

Dæmdir fyrir árás með rafstuðbyssu

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt tvo menn til fangelsisvistar, sem er að mestu skilorðbundin, fyrir að hafa ráðist á þriðja mann og meðal annars veitt honum stuð með rafstuðbyssu.

Smyglskútudrengir segja sögu sína

Fáir fíkniefnafundir lögreglu hafa vakið jafn mikla athygli hér á landi og Pólstjörnumálið. Karen D. Kjartansdóttir ræddi við mennina fjóra sem fengu þyngstu dómana og segjast þeir ekki svekkja sig á neinu. Þá taki þó sárt að hafa blandað saklausum manni í Færeyjum í málið. Sá hefur setið í eingangrun í 170 daga en engin hefur setið lengur í eingangrunarvist þar í landi.

Eldur í tjaldvagni á Vatnsleysuströnd

Um kl. 02:30 í nótt var tilkynnt að eldur væri laus í tjaldvagni við Auðnar á Vatnsleysuströnd. Vagninn var lokaður og stóð á hlaði við húsið.

Húsvíkingar funda um álver á Bakka

Alcoa mun síðar í þessum mánuði leggja fram hjá Skipulagsstofnun tillögu að matsáætlun fyrir mat á umhverfisáhrifum vegna álvers á Bakka við Húsavík með um 250.000 tonna framleiðslugetu á ári. Þetta var meðal þess sem kom fram á fjölmennum borgarafundi sem sveitarfélagið Norðurþing stóð fyrir á Húsavík í kvöld, fimmtudaginn 3. apríl. Á fundinum kynntu fulltrúar Norðurþings, Landsnets, Landsvirkjunar, HRV og Alcoa undirbúning og stöðu mála varðandi fyrirhugað álver á Bakka við Húsavík.

Betancourt ekki látin laus

Kólombísku FARC skæruliðarnir ætla ekki að sleppa stjórnmálakonunni Ingrid Betancourt fyrr en samið hefur verið um lausn skæruliða félaga þeirra sem eru í kólombískum fangelsum. Þetta sagði formælandi þeirra í sjónvarpsávarpi í dag. Þetta er enn eitt bakslagið fyrir þá sem barist hafa fyrir lausn hennar undanfarin ár.

Lögfræðikostnaður Hannesar um 30 milljónir

Hannes Hólmsteinn Gissurarason rauf í kvöld þagnarbindindi sem hann hefur verið í síðan Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði brotið gegn höfundarrétti Halldórs Kiljan Laxness í fyrsta bindi ævisögu sem Hannes skrifaði um nóbelskáldið.

HÍ áminnir Hannes ekki fyrir ritstuld

Brot Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar gegn höfundarrétti Halldórs Kiljan Laxnes er áfall fyrir Háskóla Íslands að mati Kristínar Ingólfsdóttur rektors. Hún telur sig hins vegar ekki geta áminnt Hannes vegna þess.

Handalögmálin á Sæbraut áttu sér eðlilegar skýringar

Lögregla leitaði í dag að bifreið sem stöðvaði umferð á Sæbraut seinnipartinn í dag. Bifreiðin var á ferð á Sæbraut við gatnamót Snorrabrautar þegar hún staðnæmdist skyndilega og úr henni féll kona sem var farþegi í bifreiðinni. Að sögn vitna virtist hún vera í átökum við bílstjóra bifreiðarinnar.

SUS heiðrar Margréti Pálu og Viðskiptaráð

Samband ungra sjálfstæðismanna afhenti í dag Frelsisverðlaun SUS sem gefin eru til heiðurs Kjartani Gunnarssyni, fyrrum framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins. Að þessu sinni hlutu verðlaunin Margréta Pálu Ólafsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar, og Viðskiptaráð Íslands.

Segir Dag B. Eggertsson vera með útúrsnúninga

„Núverandi meirihluti er staðráðinn í að fara í þessi mál af fullum krafti í góðu samstarfi við íbúa og hagsmunaaðila á þessu svæði. Þetta er stórmál og við ætlum að standa vel að þessu og setja í þetta aukið fjármagn,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn.

Lélegur frágangur orsakar umferðaróhöpp

Tvö umferðaróhöpp urðu á Gullinbrú í gær en bæði má rekja til lélegs frágangs á farmi flutningabíla. Í því fyrra fauk timbur af palli vörubíls og hafnaði á fólksbíl sem skemmdist nokkuð.

Óvissan verst fyrir miðborgina segir Dagur

Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi segir enga efnislega afstöðu hafa verið tekna til tillagna íbúa, kaupmanna, veitingahúsaeigenda og fulltrúa ferðaþjónustunnar sem finna mætti í ítarlegri skýrslu um betri miðborg sem lögð var fram í borgarráði í dag.

Víkja sæti í nauðgunarmáli

Pétur Guðgeirsson héraðsdómari hefur úrskurðað að hann sjálfur, Ásgeir Magnússon og Sigriður Ólafsdóttir skuli víkja úr sæti dómara í máli hins opinbera gegn Pólverja sem ákærður var fyrir nauðgun á Hótel Sögu.

Staðfestir ákvörðun Skipulagsstofnunar um álver í Helguvík

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur staðfest úrskurð Skipulagsstofnunar vegna álvers Norðuráls í Helguvík og þannig hafnað í bili þeirri kröfu Landverndar að álverið og tengdar framkvæmdir fari í heildstætt mat.

Krefst skýringa á orðum borgarstjóra um Framsókn

Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, ítrekaði á borgarráðsfundi í dag spurningar sínar til Ólafs F. Magnússonar borgarstjóra varðandi ummæli borgarstjóra um Framsóknarflokkinn og meinta þjónkun hans við verktaka og auðmenn í borginni.

Handteknir eftir slagsmál á Vegamótum

Tveir karlmenn voru handteknir í gærkvöldi vegna slagsmála á veitingahúsinu Vegamótum við Vegamótastíg í Reykjavík. Mennirnir voru fluttur á lögreglustöð en sleppt hálftíma síðar.

Sjá næstu 50 fréttir