Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hátt hlutfall kvikasilfurs í stórurriða í Þingvallavatni Umhverfisstofnun tók nýlega þátt í norrænu verkefni þar sem mælt var magn kvikasilfurs í urriða til að kanna áhrif umhverfis á upptöku þess í fiski. Sýni voru tekin af urriða í Elliðavatni, Mývatni, Stóra-Fossvatni og Þingvallavatni. Magn kvikasilfurs var yfirleitt lágt ef undan er skilinn stórurriði í Þingvallavatni. 5.10.2007 15:22
Milljarðamæringar fá að rífa hús á Nesinu Útgerðarmaðurinn Guðmundur Kristjánsson, sem er aðaleigandi Brims, og Jón Sigurðsson, aðstoðarforstjóri FL Group, hafa báðir fengið leyfi til að rífa einbýlishús sem þeir keyptu á Setljarnarnesi og byggja risastórar glæsivillur í þeirra stað. 5.10.2007 14:56
Samsuða á borð við REI gengur ekki upp Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir ekkert hæft í því að sjálfstæðismenn í borginni hyggist í dag ákveða hvernig bregðast skuli við ákvörðun Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar og Björns Inga Hrafnssonar varðandi samruna REI og Geysir Green Energy. Fréttavefurinn dv.is greinir frá þessu í dag. „Það er bara tóm vitleysa,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi. Hann er hins vegar efins um að borgin eigi að taka þátt í verfefnum á borð við REI. 5.10.2007 14:42
Goldfinger með skemmtanaleyfi þrátt fyrir lögbrot Lögreglan hefur ekki gripið til sérstakra aðgerða vegna súlustaðarins Goldfingers í Kópavogi þrátt fyrir að starfsmenn staðarins hafi orðið uppvísir að lögbrotum. Hjá sýslumannsembættinu í Kópavogi og lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fengust þær upplýsingar ekki væri búið að afturkalla skemmtanaleyfi staðarins. 5.10.2007 14:29
Björgunarskólinn þrítugur Björgunarskóli Slysavarnafélagsins Landsbjargar var stofnaður þann 30. september árið 1977 og varð því þrítugur sl. sunnudag. Til að fagna þessum áfanga hefur formönnum eininga félagsins og öðrum velunnurum skólans verið boðið til veislu í höfðuðstöðvum félagsins í Skógarhlíð 14 í dag og hefst hún kl. 17.00. 5.10.2007 14:18
Einfalda reglur stjórnsýslunnar á næstu tveimur árum Ráðuneytin hyggjast á næstu tveimur árum einfalda reglur sem þau starfa eftir með það fyrir augum að auðvelda almenningi og fyrirtækjum samskipti við hið opinbera. 5.10.2007 14:15
Stálu hundruðum áfengisflaskna sem átti að farga Þrír karlar og ein kona voru Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmd í skilorðsbundið fangelsi fyrir umfangsmikinn áfengisþjófnað sem stóð á árunum 2002-2005. Tollvörður sem einnig var ákærður í málinu var hins vegar sýknaður fyrir aðild að því. 5.10.2007 13:46
Íslandsmet í blóðgjöfum Í gær, fimmtudaginn 4. október 2007, komu alls 194 blóðgjafar í Blóðbankann á Snorrabraut 60. Blóðbankabíllinn við Fjarðarkaup í Hafnarfirði fékk 43 blóðgjafa í heimsókn og á starfsstöð okkar á Akureyri komu 19 blóðgjafar. Samtals eru þetta 256 blóðgjafar og í gær var því sett nýtt Íslandsmet í blóðsöfnun á einum degi. 5.10.2007 12:52
Vill markvisst átak fyrir lesblind börn Oddný Sturludóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í menntaráði Reykjavíkurborgar, vill að að fræðsluyfirvöld í Reykjavík fari í markvisst átak til að mæta þörfum lesblindra barna í grunnskólum. 5.10.2007 12:48
„Við hengjum ykkur bæði“ Aðalmeðferð í máli lögreglustjórans á höfuðborgarsv æðinu gegn Steingrími Njálssyni fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Steingrími er gefið að sök að hafa hótað Illuga Jökulssyni, fyrrverandi ritstjóra DV lífláti þegar hann talaði inn á talhólf í síma hans. Steingrímur neitar sök í málinu og segist ekki vera maðurinn á upptökunum. „Ég ætla að slátra ykkur,“ og „Við hengjum ykkur bæði,“ var á meðal þess sem hótað var. 5.10.2007 12:48
Varð fyrir steini í fjalli við Ólafsvík Þyrla Landhelgisgæslunnar er nú að sækja alvarlega slasaðan mann sem varð fyrir grjóti í fjalli við Ólafsvík á Snæfellsnesi í morgun. 5.10.2007 12:47
Úrhelli víða við það að slá met Úrhellisrigning suðvestanlands er víða nærri því að slá met og í Bláfjöllum jafngildir úrkoman níu sentímetra djúpu vatni yfir allt. 5.10.2007 12:45
Vatnsendalóðir með fyrirvara að falla á tíma Í frétt frá Kópavogsbæ um athugasemdir Skipulagsstofnunnar um úthlutanir á byggingarrétti í Vatnsendahlíð segir að eftirfarandi setning sé í öllum auglýsingum: "Byggingarétti á lóðum verður úthlutað með fyrirvara um samþykkt deiliskipulags." Jafnframt er vakin athygli á að athugasemd Skipulagsstofnunnar komi fáeinum klukkustundum áður en umsóknarfrestur um úthlutun rennur út. 5.10.2007 12:41
Auka útgjöld vegna vettvangsferða Auka þarf útgjöld til vettvangsferða í skólum Reykjavíkur um tugi milljóna króna svo ferðirnar leggist ekki af. Menntaráð Reykjavíkur hefur falið fræðslustjóra að gera ráð fyrir þessari aukningu í næstu fjárhagsáætlun. 5.10.2007 12:30
Atlantshafsbandalagið fundar í Reykjavík Ársfundur þing Atlantshafsbandalagsins hefst í dag en fundurinn er nú haldinn í fyrsta sinn á Íslandi. Alls eru þátttakendur um sjö hundruð. 5.10.2007 12:29
Sterkar vísbendingar um minnkandi fiskneyslu Fiskneysla landsmanna er minni en æskilegt væri, samkvæmt könnun Matís, og sterkar vísbendingar eru um að hún muni fara enn minkandi. 5.10.2007 12:17
Engin eftirmál af fundi með Tamíl tígrum Utanríkisráðherra segir engin eftirmál verða af fundi íslensks sendifulltrúa á yfirráðasvæði Tamíl tígranna á Sri Lanka. 5.10.2007 12:15
Byggðakvóti félagsleg aðstoð við forríkt fólk Kristinn Pétursson, fyrrverandi fiskverkandi á Bakkafirði, segir að byggðakvótinn þar hafi verið afhentur þeim sem áttu mikinn kvóta fyrir og þannig verið félagsleg aðstoð við forríkt fólk. Úthlutun byggðakvótans hafi splundrað samfélaginu þar í frumeindir. 5.10.2007 12:13
Lögmæti stjórnarfundar OR orkar tvímælis Lögmæti hins afdrifaríka stjórnarfundar í Orkuveitu Reykjavíkur á miðvikudaginn orkar tvímælis segir Lára V. Júlíusdóttir, hæstaréttarlögmaður. Á fundinum var samruni orkuútrásarfyrirtækjanna samþykktur. Svandís Svavarsdóttir, fulltrúi Vinstri grænna í stjórninni, íhugar að kæra fundinn og fá niðurstöðu hans hnekkt. 5.10.2007 12:03
Mótmæla veru Íslands í NATO Ungliðahreyfing Vinstri - grænna hyggst standa fyrir friðsömum mótmælum við Laugardalshöllina í fyrramálið en þar fer nú fram ársfundur NATO-þingsins. 5.10.2007 11:39
Fimmtándi Litháinn í haldi lögreglu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær fimmtánda Litháann sem talinn er tengjast umfangsmiklum þjófnaði í verslunum hér á landi. Sá var handtekinn eftir húsleit lögreglu í austurbænum en þar lagði lögregla hald á enn meira þýfi. 5.10.2007 11:19
Ákærður fyrir rán með kveikjarabyssu Þrjátíu og átta ára gamall karlmaður hefur verið ákærður fyrir að ræna 10/11 verslun. Maðurinn fór inn í verslunina sem staðsett er við Barónstíg í Reykjavík vopnaður kveikjarabyssu, sem leit út fyrir að vera skotvopn. 5.10.2007 10:58
Byggingarréttur á röngum forsendum Með hagsmuni almennings að leiðarljósi vill Skipulagsstofnun vekja athygli á að auglýsing á vegum Kópavogsbæjar og Símans, sem birst hefur að undanförnu í fjölmiðlum um úthlutun á byggingarrétti fyrir íbúðarhús í Vatnsendahlíð í Kópavogi, byggir á röngum forsendum. Í auglýsingunni og á vefsíðunni kopavogurlodir.is, lítur út sem svæðið sé skipulagt fyrir íbúðarbyggð. Svo er ekki þar sem svæðið er skipulagt sem vatnsverndarsvæði. 5.10.2007 10:44
Ákærður fyrir að aka of hægt Lögreglan á Suðurnesjum hafði í gærkvöld afskipti af ökumanni á Hafnargötunni í Reykjanesbæ sem ók svo hægt að lögregla mat það svo að hann væri að tefja umferð vísvitandi. 5.10.2007 10:39
Íslendingum meinað að koma inn í Bandaríkin vegna gamalla dóma Sakaskrá margra Íslendinga virðist með einhverjum hætti hafa ratað í hendur bandarískra stjórnvalda að sögn Álfheiðar Ingadóttur, þingmanns Vinstri grænna. Dæmi eru um að íslenskum ríkisborgurum sé meinað að koma inn í Bandaríkin vegna áratuga gamalla dóma að hennar sögn. 5.10.2007 10:35
Segir álver ekki munu hafa óafturkræf umhverfisáhrif Skipulagsstofnun telur að fyrirhugað álver Norðuráls í Helguvík, með fyrirvara um umhverfisáhrif tengdra framkvæmda, muni ekki valda verulega neikvæðum og óafturkræfum áhrifum á umhverfi eða samfélag. 5.10.2007 10:22
Þinglýstum kaupsamningum fjölgar um 90% milli ára Þinglýstum kaupsamningum um fasteignir fjölgaði um 90 prósent hjá sýslumannsembættunum á höfuðborgarsvæðinu í september í ár miðað við sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram á vef Fasteignamats ríkisins. 5.10.2007 10:09
Vorum bestu vinir þangað til hann byrjaði í neyslu Guðjón Guðmundsson lést í fangelsi í Kaupmannahöfn í síðasta mánuði. Hann var einungis 32 ára gamall. Bróðir hans, Brynjar Karl Guðmundsson, hefur sett upp svokallaða MySpace síðu til að minnast hans. 5.10.2007 09:08
Kærir boðun eigendafundar í Orkuveitunni Svandís Svavarsdóttir, borgarulltrúi Vinstri grænna og stjórnarmaður í Orkuveitu Reykjavíkur hefur ákveðið að kæra boðun eigendafundar í Orkuveitunni í fyrradag. 5.10.2007 08:04
Heimdellingar vilja selja hlut Orkuveitunnar Nýkjörin stjórn Heimdallar hvetur fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn til að vinna að því að hlutur Orkuveitunnar í Reykjavík Energy Invest, sem er rúm 35 prósent, verði seldur. 5.10.2007 07:18
Grjóthrun í Súðarvíkurhlíð Grjót hrundi á veginn í Súðavíkurhlíð á milli Ísafjarðar og Súðavíkur í nótt. Þetta gerðist á nokkuð löngum kafla og er rakið til rigninga. 5.10.2007 07:15
Lettunum var þrælað út Lettarnir þrettán, sem nú eru undir verndarvæng Starfsgreinasambandsins á meðan lögregla rannsakar meint brot GT verktaka á þeim, fengu aðeins 135 þúsund krónur í mánaðarlaun fyrir tólf stunda vinnudag og sex daga vinnuviku, samkvæmt upplýsingum Starfsgreinsambandsins. Í ályktun þings Sambandsins segir að í ljós hafi komið að yfirlýsingar og loforð sem vinnuveitendur mannanna gáfu Vinnumálastofnun nýverið, séu einskis virði.- 5.10.2007 06:58
Vilja að ríkið greiði hærri húsaleigubætur Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga vill taka upp viðræður við ríkisvaldið um hækkun húsleigubóta. 5.10.2007 06:39
Hefur ekkert breyst í Orkuveitunni? Björn Bjarnason dómsmálaráðherra veltir fyrir sér raunum minnihlutans í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur á bloggsíðu sinni í kvöld. Björn spyr hvort minnihlutinn eigi nú, líkt og hann átti þegar hann var í minnhluta sömu stjórnar, erfitt með að fá upplýsingar um það sem sé að gerast hjá fyrirtækinu. 4.10.2007 23:49
Ólafur Ragnar sat í heiðursstúku við hlið forseta Kína á Special Olympics Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú fylgdust í dag með keppni íslensku þátttakendanna á Special Olympics í Shanghai og heimsóttu keppnisstaði. Í kvöld tóku þau þátt í sérstakri fjölskylduhátíð sem haldin var til heiðurs íslensku keppendunum, fjölskyldum þeirra, þjálfurum og fararstjórum Íþróttasambands fatlaðra. 4.10.2007 20:18
Stærsta fyrirtæki Bakkafjarðar selt á nauðungaruppboði Örlög Bakkafjarðar eru í höndum Byggðastofnunar eftir að stærsta fiskvinnsla byggðarlagsins, sem veitt hafði meirihluta íbúanna atvinnu, var slegin stofnuninni á nauðungaruppboði. Kristinn Pétursson, fyrrverandi alþingismaður, og eiginkona hans, sem byggðu upp fyrirtækið, sitja eftir eignalaus. 4.10.2007 18:47
Íhugar einkarekin fangelsi Björn Bjarnason dómsmálaráðherra vill kanna þann möguleika að einkaaðilar byggi og reki nýtt fangelsi. 4.10.2007 18:45
Litlir möguleikar á sæti í öryggisráði SÞ Íslendingar eiga litla möguleika á sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Þetta segir fyrrverandi upplýsingafulltrúi Kofis Annans, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Hann telur Tyrki og Austurríkismenn verða fyrir valinu. 4.10.2007 18:30
Milljarðaáhætta Orkuveitunnar Orkuveita Reykjavíkur leggur milljarða króna að veði í gegnum Reykjavík energy invest. Bæjarfulltrúi A-lista í Reykjanesbæ sakar borgarfulltrúa Reykjavíkur um að fórna Hitaveitu Suðurnesja í útrásinni og vill að Reykjanesbær kaupi hið nýsameinaða orkuútrásarfélag út úr Hitaveitunni. 4.10.2007 18:30
Erlend glæpagengi ræna verslanir hér á landi Erlend glæpagengi ræna íslenskar verslanir með skipulögðum hætti segir formaður Samtaka verslunar og þjónustu. Útlendir þjófar eru stórtækari en Íslendingar, sem stela hins vegar mun oftar en útlendingar. Öryggisfræðingur náði að stela fyrir hundrað þúsund krónur úr fimm búðum á hálftíma. 4.10.2007 18:13
Gjaldkeri ÍA grunaður um fjárdrátt Gjaldkeri ÍA hefur látið af störfum eftir að upp komst um fjármálamisferli af hans hálfu. Grunur leikur á að hann hafi dregið sér milljónir úr sjóðum félagsins um nokkurra ára skeið. 4.10.2007 18:01
Heimsókn Önnu Jóhannsdóttur af allt öðrum toga Gréta Gunnarsdóttir, alþjóðaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, segir regin mun vera á heimsóknum Bjarna Vestmann og Önnu Jóhannsdóttir til Sri Lanka. Vefmiðillinn Eyjan sagði frá því fyrr í dag að Anna, sem er yfirmaður íslensku friðargæslunnar hafi farið í samskonar ferð og Bjarni fyrir réttu ári síðan. 4.10.2007 17:51
Jónína Benediktsdóttir fær 500 þúsund í skaðabætur Hæstiréttur Íslands dæmdi í dag Jónas Kristjánsson og Mikael Torfason, fyrrum ritstjóra DV, til að greiða Jónínu Benediktsdóttur hálfa milljón króna í miskabætur. Að auki var ritstjórunum gert að greiða hvor um sig 150 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs. 4.10.2007 16:47
Tilefni til lögreglurannsóknar Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi segir að tilefni sé til lögreglurannsóknar reynist það rétt að enn sé boðið upp á einkadans á Goldfinger í Kópavogi. Eins og Vísir greindi frá fyrr í dag er enn hægt að kaupa sér einkadans á staðnum þrátt fyrir að það sé klárt lögbrot. 4.10.2007 16:39
Kennt að flá og elda kött í Bónus Í verslunum Bónus er nú hægt að kaupa tímaritið INN sem sagt er vera fyrir húseigendur. Það hefur hinsvegar vakið athygli þeirra sem keypt hafa INN að í því er kennt að flá, brytja niður og elda ketti. 4.10.2007 16:20