Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ekkert til fyrirstöðu að Securitas reki fangelsi Securitas telur ekkert því til fyrirstöðu að fyrirtækið reki fangelsi hérlendis ef slíkt verður talið hagkvæmt í framtíðinni. "Við sérhæfum okkur í rekstri á ýmiskonar öryggisgæslu," segir Trausti Harðarson forstjóri Securitas en sem kunnugt er af fréttum hefur Björn Bjarnason dómsmálaráðherra lýst því yfir að ekki sé óeðlilegt að taka upp umræðu um hvort einkarekstur á fangelsum komi til greina hér á landi. 4.10.2007 14:33
Tveir Litháar til viðbótar í gæsluvarðhald Lögreglan hefur farið fram á að tveir af þeim sjö Litháum sem handteknir voru í gær fyrir stórfellda skipulagða þjófnaði víða um borgina verði úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Fjórir hafa verið dæmdir í farbann og einum hefur verið sleppt. 4.10.2007 13:34
Níu milljarða fjárhættuspil Reykjavíkurborgar Gangi áætlanir Reykjavík Energy Invest eftir mun Orkuveita Reykjavíkur hafa skuldbundið sig í um 9,5 milljarða króna fjárfestingu á Filippseyjum í lok nóvember. REI hefur skuldbundið sig til þess að taka þátt í hlutafjárútboði á 40% hlut í jarðvarmafyrirtækinu PNOC-EDC sem er í meirihlutaeigu ríkisrekna olíufyritækisins PNOC. 4.10.2007 13:28
Jafnréttisstofa efli hlut kvenna í sveitarstjórnum Þingmenn úr öllum flokkum á Alþingi hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um að félagsmálaráðherra feli Jafnréttisstofu að hrinda af stað aðgerðum til þess að efla hlut kvenna í sveitarstjórnum. 4.10.2007 13:15
Reykjanesbær vill meirihluta í Hitaveitu Suðurnesja Reykjanesbær stefnir að því að eignast meirihluta í Hitaveitu Suðurnesja hf. í kjölfar sameiningar Reykjavik energy invest og Geysir green energy. „Samhliða sameiningu stærstu útrásafyrirtækja landsins í jarðvarmanýtingu á erlendri grund, skapast tækifæri til að vinna í anda hugmynda um uppskiptingu á innlendum orkufyritækjum,“ segir í tilkynningu frá Reykjabesbæ. 4.10.2007 13:13
Ólöglegur einkadans enn í boði á Goldfinger Súlustaðurinn Goldfinger býður viðskiptavinum sínum enn upp á einkadans að tjaldabaki, þrátt fyrir að slíkt sé bannað með öllu. 4.10.2007 13:12
Segir sjálfstæðismenn hafa völd umfram kjörfylgi Völd sjálfstæðismanna í ríkisstjórninni eru langt umfram kjörfylgi að mati Bjarna Harðarssonar, þingmanns Framsóknarflokksins. Þetta kom fram í máli Bjarna á Alþingi í dag. 4.10.2007 12:49
Brjóta þjófavarnir af varningi og stela Svo virðist sem Litháarnir, sem eru í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um stórfelldan þjófnað í verslunum hér á landi, brjóti í einhverjum tilvikum þjófavörn af varningi og komi honum þannig út úr verslunum. 4.10.2007 12:45
Keflavíkurflugvöllur undir samgönguráðuneyti fyrir áramót Varnarmál Íslands eiga heima í utanríkisráðuneytinu að mati utanríkisráðherra sem kynnti verkefni ráðuneytisins í utanríkismálanefnd í gær. Keflavíkurflugvöllur verður færður undan utanríkisráðuneytinu til samgönguráðuneytisins fyrir áramót. 4.10.2007 12:30
HS að renna úr greipum Suðurnesjamanna Hitaveita Suðurnesja er að renna okkur úr greipum, segir Guðbrandur Einarsson bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ. Hið sameinaða félag Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy á nú tæpan helming í Hitaveitunni og fer með forræði yfir félaginu, segir Guðbrandur. 4.10.2007 12:15
Réðst á mann á Kaffi Viktor Karlmaður um fertugt hefur verið ákærður fyrir að ráðast á 38 ára gamlan mann í febrúar síðastliðnum á skemmtistaðnum Kaffi Viktor í Reykjavík.og brjóta á honum hendina. Árásarþolinn handleggsbrotnaði. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 4.10.2007 12:09
Brim segir aðstæður á Akureyri illþolanlegar "Aðstæðurnar sem okkur eru skapaðar á Akureyri í dag eru illþolanlegar fyrir þróttmikla starfsemi hvort sem hún tengist sjávarútvegi eða öðrum atvinnugreinum og veldur slagsíðu sem er óþörf með öllu og einungis til trafala," segir í niðurlagi yfirlýsingar sem Brim hefur sent frá sér vegna "endurtekinna hrópa" um starfsemi fyrirtækisins í bænum. 4.10.2007 12:06
Á þriðja áratug að borga upp þorskkvóta Verð á varanlegum þorskkvóta hefur hækkað um 160 prósent frá því í fyrrasumar. Það tekur kaupendur vel á þriðja áratug að láta slík kaup borga sig. 4.10.2007 12:00
Rýmka ráðningarreglur eldri borgara vegna manneklu Samþykkt var í borgarráði í dag tillaga borgarstjóra um að Reykjavíkurborg verði heimilt að ráða 70 ára og eldri til starfa í minnst þriðjungs starfshlutfall í eitt ár í senn. 4.10.2007 11:41
Bjarni verður ekki skipaður í eftirlitssveitina á Sri Lanka Bjarni Vestmann, sendifulltrúi hjá utanríkisráðuneytinu var staddur á Sri Lanka til þess að kynna sér starfssemi og vinnuaðstæður norrænu vopnaeftirlitssveitanna í landinu. Til stóð að tilnefna hann í stöðu hjá sveitunum en af því verður ekki vegna þess að hann hitti leiðtoga Tamíltígrana án heimildar frá ráðuneytinu. 4.10.2007 11:11
Landssöfnun til styrktar geðsjúkun hleypt af stokkunum Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra tók í morgun við fyrsta K-lyklinum um leið og landssöfnun Kiwanishreyfingarinnar til styrktar geðsjúkum og aðstandendum þeirra hófst. 4.10.2007 11:00
Ráðherra boðar afnám stimpilgjalda Stimpilgjöld á fasteignaviðskiptum verða afnumin á yfirstandandi kjörtímabili og persónuafsláttur hækkaður. Þetta kom fram í máli Árna M. Mathiesen, fjármálaráðherra, á Alþingi í morgun. Þá verða skattar á fyrirtæki einnig lækkaðir. 4.10.2007 10:56
Yfirvöld á Sri Lanka kvarta undan íslenskum sendifulltrúa Utanríkisráðherra Sri Lanka hefur krafist þess að Bjarni Vestmann, sendifulltrúi utanríkisráðuneytisins, verði sendur úr landi fyrir að hitta talsmenn Tamíltígranna sem berjast gegn stjórnvöldum á Sri Lanka. 4.10.2007 10:37
Blóðbankinn þarf meira blóð Enn er þörf á blóðgjöfum Blóðbankann meðal annars vegna aðgerða, slysa og sjúkdóma. Fram kemur í tilkynningu frá Blóðbankanum að um 200 manns hafi í gær sinnt ákalli bankans um blóðgjöf en vegna mikillar notkunar á blóðhlutum síðustu daga sé enn meiri þörf á blóði. 4.10.2007 10:36
Skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað í verslunum og fyrir að nyta matar á tveimur veitingastöðum án þess að greitt fyrir hann. 4.10.2007 10:19
Gæsluvarðahaldsfangar verða vistaðir á lögreglustöðvum Allir gæsluvarðhaldsklefar landsins eru uppteknir í kjölfar þess að sjö litháar voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær. Síðar í dag kemur í ljós hvort sjö félagar þeirra til viðbótar verði einnig settir í gæsluvarðhald. 4.10.2007 10:08
Nærri 750 þúsund farþegar á fyrstu níu mánuðum ársins Tæplega 750 þúsund farþegar komu til landsins um Keflavíkurflugvöll á fyrstu níu mánuðum ársins samkvæmt Hagvísum Hagstofunnar. Þetta er rúmlega níu prósentum fleiri farþegar en á sama tímabili í fyrra, en þá voru farþegarnir 686 þúsund. 4.10.2007 09:34
Skortur á flugmönnum gæti skapað vanda í flugi Tilfinnanlegur skortur er á flugmönnum og tæknimönnum í Asíu, Afríku, Austur-Evrópu og Rússlandi og ef ekki verður tekið á honum er ljóst að áhætta skapast í flugi. Þetta kom fram í máli Williams R. Voss, framkvæmdastjóra Flight Safety Foundation, á alþjóðlegri flugöryggisráðstefnu sem lýkur í dag. 4.10.2007 08:54
Tryggingar hækka langt umfram neysluverðsvísitölu Verð á tryggingum hefur hækkað langt umfram vísitölu neysluverðs á undanförnum tveimur árum, eða um tæp 30 prósnet, en vísitalan um tæp ellefu prósent. 4.10.2007 08:10
Litháar enn í gæsluvarðhaldi Sjö Litháar eru enn í gæslu lögreglunnar fyrir utan þá sjö landa þeirra, sem úrskurðaðir hafa verið í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á umsvifamiklu búðahnupli. Lögregla ákveður fyrir hádegi hvort krafist verður gæsluvarðhalds yfir þeim líka. Margskonr varningur fanst í fórum mannanna og leikur grunur á að þeir hafi ætlað að flytja þýfið úr landi.- 4.10.2007 07:20
Sameinað orkufélag á um helming í Hitaveitu Suðurnesja Við sameiningu Reykjavík Energy Invest og Geysis Green Energy í eitt félag í gær, er komin upp sú staða að nýja félagið á tæplega helming í Hitaveitu Suðurnesja. 4.10.2007 07:07
Ísland eitt besta rafmagnsbílaland í heimi Forstjóri eins stærsta orkufyrirtækis landsins telur að Ísland sé eitt besta rafmagnsbílaland í heimi. Olía sé þó ennþá ódýrari kostur. Við höfum sagt frá því að bíll á Akureyri, sem er einn af áttatíu og fjórum í heiminum, notast að mestu við heimilisrafmagn sem orkugjafa. 3.10.2007 19:16
Þurfa að hætta íþróttaæfingum vegna ársfundar NATO þingsins Á sjötta hundrað börn þurfa að hætta íþróttaæfingum í tíu daga vegna ársfundar NATO þingsins sem hefst á föstudaginn. 3.10.2007 19:04
Ríkið makað krókinn Ríkið hefur makað krókinn með skattheimtu síðustu 10 árin segir framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands. Hann segir loforð forsætisráðherra um frekari skattalækkanir verða að skila sér til allra. Starfsgreinasambandið vilji fremur sjá hækkaðar bætur. 3.10.2007 18:46
Reykingabann veldur ólátum Veitingamenn í miðborginni segja illa skipulagt reykingabann helstu orsök óláta í miðborginni að undanförnu. Sala á bjór og áfengi til veitingastaða hefur dregist saman um fimmtán prósent frá því bannið tók gildi. 3.10.2007 18:45
Hagstjórn í molum og spár út í hafsauga Formaður Vinstri grænna segir hagstjórnina í molum og efnahagsspár út í hafsauga. Formaður Framsóknarflokksins segir að of langt hafi verið gengið í niðurskurði þorskheimilda og mótvægisaðgerðir stjórnvalda séu ómarkvissar. 3.10.2007 18:45
Orkurisar sameinast Nýtt og öflugt félag í orkugeiranum varð til í dag þegar Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy voru sameinuð. Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur staðfesti samkomulagið nú síðdegis eftir átakafund. Fulltrúi minnihlutans gagnrýndi harðlega að þurfa að taka afstöðu til þessa stóra máls á þremur klukkustundum. 3.10.2007 18:34
Ætti að fjölga en ekki fækka í Írak Siv Friðleifsdóttir segir utanríkisráðherra hafa sent alröng skilaboð með heimkvaðningu friðargæsluliða í Írak og nær hefði verið að fjölga þar í liði Íslendinga. Um stefnubreytingu sé að ræða í íslenskum utanríkismálum, sem utanríkisráðherra kannast hins vegar ekki við. 3.10.2007 18:30
200 gáfu blóð í dag Alls svöruðu 200 manns kalli Blóðbankans í dag og gáfu blóð. Vegna sjúkdóma, bráðra veikinda, aðgerða og slysa á síðustu dögum og vikum var mikil þörf á blóðhlutum í bankanum og bað Blóðbankinn því í morgun blóðgjafa um að leggja sitt af mörkum. 3.10.2007 18:29
Alþjóðlegur landgræðsluskóli á Íslandi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, og Ágúst Sigurðsson, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, undirrituðu í dag þriggja ára verksamning um uppbyggingu alþjóðlegs landgræðsluskóla til þjálfunar fólks frá þróunarríkjum í landgræðslu og jarðvegsvernd. 3.10.2007 18:19
Áætlað virði sameinaðs félags 60-70 milljarðar Áætlað virði sameinaðs félags Reykjavik Energy Invest og Geysi Green Energy verður á bilinu 60- 70 milljarðar. Þetta kom fram á blaðamannafundi í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur í dag þar sem greint var frá sameiningu félaganna. 3.10.2007 17:26
Sjö Litháar í gæsluvarðhald vegna þjófnaðar Sjö af þeim fjórtán Litháum, sem handteknir hafa verið vegna umfangsmikils þjófnaðar á höfuðborgarsvæðinu, hafa verið úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur. Mennirnir voru gripnir í gærkvöld og hafa verið yfirheyrðir vegna málsins í dag. 3.10.2007 17:08
Svigrúm verði fyrir launahækkanir fyrir leikskólastarfsmenn Fulltrúar minnihlutans í leikskólaráði borgarinnar beina því til borgarráðs að í launaáætlun næsta árs verði gert ráð fyrir svigrúmi til að nýta ákvæði gildandi kjarasamninga við bæði leikskólakennara sem og annað starfsfólk leikskólanna. 3.10.2007 16:56
Vilja að ráðherra víki úr þingsæti Fjórir þingmenn hafa lagt fram frumvarp til stjórnarskipunarlaga á Alþingi þessa efnis að þingmaður sem skipaður er ráðherra skuli víkja úr þingsæti á meðan á ráðherradómi stendur. Skal varamaður taka sæti ráðherrans á Alþingi samkvæmt frumvarpinu. 3.10.2007 16:49
Sýknaður af ákæru um að hafa ekið á konu Héraðsdómur Suðurlands sýknaði í dag karlmann af ákæru um að hafa ekið bifreið án nægilegrar aðgæslu og of hratt miðað við aðstæður og fyrir að hafa vanvirt gangbrautarrétt og ekið á konu sem var á leið yfir gangbrautina þannig að hún lærbrotnaði. 3.10.2007 16:39
Þörf á samstilltum umbætum á hagstjórninni Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir þörf á samstilltum umbætum á hagstjórninnni til að tryggja stöðugleika í efnhagslífinu. Þetta kom fram í máli Ingibjargar í utandagskráumræðu á Alþingi í dag. Hún segir ójafnvægi hafa einkennt hagstjórnina. 3.10.2007 16:33
Tólf ríkisstofnanir fara gegn reglum fjármálaráðuneytisins Tólf ríkisstofnanir reyndust með samtals 221 milljónar króna yfirdrátt á banakareikningi í lok síðasta árs samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar um endurskoðun ríkisreiknings síðasta árs. 3.10.2007 16:27
Félag kráareigenda komið á koppinn Veitingamenn í miðborg Reykjavíkur hafa stofnað með sér samtök undir nafninu Félag kráareigenda. Markmið félagsins er að gera miðborgina skemmtilegri og öruggari. Kráareigendur telja að stofnun félagsins geti auðveldað allt samstarf við aðra hagsmunaðila á svæðinu, borgaryfirvöld, íbúa, fyrirtæki og lögreglu og gert það markvissara og skipulegra en nú er. 3.10.2007 16:05
Fjórtán Litháar í haldi vegna þjófnaða í borginni Fjórtán Litháar sem taldir eru tengjast umfangsmiklum þjófnaði úr verslunum á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu eru nú í haldi lögreglunnar. Sjö þeirra voru handteknir í gærkvöld og hefur lögregla farið fram á gæsluvarðhald yfir þeim öllum. Hinir sjö voru handteknir í morgun og á eftir að taka ákvörðun um það hvort krafist verður gæsluvarðhalds yfir þeim. 3.10.2007 15:51
Krónan er ekki böl Geir H. Haarde, forsætisráðherra, segir umræðuna um krónuna á villigötum og að krónan sé ekki sérstakt böl á íslenska hagkerfinu. Þetta kom fram í máli ráðherra í utandagskráumræðu á Alþingi í dag. 3.10.2007 15:40