Fleiri fréttir

Óútskýrður launamunur 10-12 prósent

Óútskýrður launamunur kynjanna er tíu til tólf prósent samkvæmt einhverri viðamestu launakönnun sem gerð hefur verið hér landi. Launamunurinn er minnstur hjá ungu fólki en vex með hækkandi aldri.

Þrjú á gjörgæslu eftir kappakstur

Tveir piltar og stúlka liggja alvarlega slösuð á gjörgæsludeild Landspítalans eftir kappakstur tveggja bíla á Geirsgötu sem endaði með árekstri við Hamborgarabúllu Tómasar. Ungmennin voru í bíl sem ekið var vestur Geirsgötu í kapp við annan bíl um tvöleytið í nótt.

Össur vill Hafrannsóknarstofnun úr sjávarútvegsráðuneytinu

Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra vill færa Hafrannsóknarstofnun undan sjávarútvegsráðuneytinu og láta annað ráðuneyti fara með yfirstjórn stofnunarinnar. Hann segir að sovéskt kerfi hafi orðið til í kringum Hafró þar sem þöggun hafi verið beitt með dæmalausum hætti.

Hugmynd Össurar ekki vel ígrunduð

Hugmynd Össurar Skarphéðinssonar um að færa Hafrannsóknarstofnun Íslands frá sjávarútvegsráðuneytinu og yfir í annað ráðuneyti er illa ígrunduð að mati Arnbjargar Sveinsdóttur, formanns sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar. Hún segir Hafró vera á réttum stað í stjórnkerfinu en hins vegar hvetur hún til eflingar rannsókna á sjónum og lífríki hans utan stofnunarinnar.

Rúmlega 9.200 lýst yfir stuðningi við Alfreð

Rúmlega 9.200 manns hafa nú skráð sig á undirskriftalista á Vísi þar sem Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari í handbolta, er hvattur til þess að halda áfram með landsliðið. Vefsíðan Áfram Alfreð var sett upp klukkan 19:00 á miðvikudagskvöldið var. Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, sagði í samtali við Vísi að þetta væri fyrst og fremst stuðningsyfirlýsing við Alfreð og starf hans með landsliðið.

Hvetja breskar matvælakeðjur til þess að hætta að kaupa íslenskar sjávarafurðir

Hvalaverndunarsamtökin Campaign Whale og Marine Connection hófu í dag herferð sem miðar að því að fá breskar verslunarkeðjur til að hætta að kaupa íslenskar sjávarafurðir. Þau biðla til Tesco og Sainsbury’s sem eru stærstu verslunarkeðjur bresks matvörumarkaðar til þess að mótmæla hvalveiðum Íslendinga með þessum hætti.

EES samningurinn tryggir ekki áhrif

Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, segir að EES- samningurinn tryggi ekki nægilega áhrif Íslands og Noregs i Evrópu. Hann segir að ríkin verði að taka upp nánara samstarf við Evrópusambandið til að koma að ákvarðanatöku sambandsins. Bryndis Holm tók Jonas Gahr tali.

Hraðaakstur við Hallormsstað

Ungur ökumaður var sviptur ökurétti til bráðabirgða eftir hraðaakstur um þéttbýlið við Hallormsstað í dag. Lögreglan á Egilsstöðum var við umferðaeftirlit þegar hún mældi piltinn á 106 km. hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 50 km/klst.

Kvennaslóðir.is

Næstum sex hundruð sérfræðingar af kvenkyni eru skráðir í gagnabankann Kvennaslóðir sem var enduropnaður með viðhöfn í dag. Forstöðumaður Rannsóknarstofu í kvenna- og kynjafræðum er sannfærður um að bankinn hjálpi til við að jafna kynjahallann í fjölmiðlum og stjórnum fyrirtækja.

Alcan velur nýjan stað fyrir álver fyrir áramót

Forstjóri Alcan segir fyrirtækið ætla að finna nýjan stað undir álver á Íslandi fyrir áramót og vonast til að fá svigrúm til að taka ákvörðun um framtíðarstarfsemi hérlendis. Hann segir að jafnframt verði reynt að tryggja að unnt verði að reka álverið í Straumsvík næstu tuttugu ár.

Dauðsfall á Landspítala

Rannsókn á vofveiflegu láti tuttugu og tveggja ára stúlku á Landspítala háskólasjúkrahúsi í Fossvogi um helgina er enn í gangi. Stúlkan fannst látin á herbergi sínu aðfararnótt sextánda júní, var endurlífguð en lést tveimur sólarhringum síðar. Í ljós hefur komið að engin sprautunál var í handlegg hennar eins og sagt var í fréttum okkar í gær. Ekki er vitað hvernig lyfin, sem talið er að hafi leitt stúlkuna til dauða, bárust í hana.

Laminn í Palestínu

Tvítugur Íslendingur lenti í táragasi, gúmmíkúlnaskothríð, var handtekinn og laminn vegna starfa sinna með alþjóðlegum mannréttindasamtökum í Palestínu. Hann er nýkominn heim og hvetur íslensk ungmenni til að taka þátt í mannréttindastarfi - þrátt fyrir lífsreynslu síðustu mánaða.

Bjó til tölvuleik fyrir tvíburasynina

Móðir heyrnarskertra tvíburadrengja dó ekki ráðalaus þegar hún stóð frammi fyrir því að finna nútímaafþreyingu fyrir syni sína. Hún bretti einfaldlega upp ermar og hannaði tölvuleikinn: Tumi og táknin.

Ljótasta ráðherrataska í heimi?

Skjalataska Iðnaðarráðherra er án efa ein ræfilslegasta ráðherrataska í heimi. Össur Skarphéðinsson segir að taskan sé fullgóð en ætti kannski frekar að vera í fjármálaráðuneytinu, aðspurður um hvort taskan væri tákn um sparnað í iðnaðarráðuneytinu.

Netþjónabú skapa fjölda þekkingastarfa

Netþjónabú geta skapað mikinn fjölda þekkingarstarfa á Íslandi. Ísland er kjörinn staður fyrir slíkan rekstur en hann veltur algerlega á nýjum sæstreng milli Íslands og Evrópu.

Einar Már fær lofsamlega dóma í Danmörku

Nýjasta ljóðabók Einars Más Guðmundssonar hefur fengið afar lofsamlega dóma í danskri þýðingu en bókin kom út fyrr í þessum mánuði. Einar er með ástarsögu í smíðum sem ratar án efa fyrir augu lesanda um næstu jól.

Upplýsingar um upptöku ökutækja

Ríkissaksóknari hefur sent frá sér upplýsinar um upptöku ökutækja vegna umferðalagabrota. Það er gert í tilefni af mjög alvarlegum umferðarlagabrotum, ofsaakstri, og vangaveltum um hvenær heimilt sé að gera ökutæki brotlegs ökumanns upptæk.

Lúðvík nefndi landfyllinguna fyrst á fundi í fyrradag

Michel Jacques, forstjóri Alcan segir að fyrirtækið hafi litið á ýmsa möguleika með það að markmiði að útvíkka starfsemina í Hafnafirði en enginn reyndist raunhæfur. Fyrirtækið ætlaði því að tilkynna bæjarstjóranum í Hafnarfirði að fyrirtækið sæi sér ekki fært að efla starfsemi álversins innan bæjarmarka Hafnarfjarðar, þegar hann nefndi möguleikann á landfyllingu.

Líklegast að Alcan verði á tveimur stöðum í framtíðinni

Michel Jaques, forstjóri Alcan Primary Metal Group, segir að fyrirtækið hafi engin áform um að leggja niður starfsemi hér á landi. Þeir leiti allra mögulegra leiða til að styrkja og efla starfsemina í Straumsvík. Líklegast er að fyrirtækið verði með starfssemi á tveimur stöðum á Íslandi í framtíðinni.

Skortur á háskólamenntuðu starfsfólki

Um 51% svarenda í könnun um stöðu og framtíðarhorfur stærstu fyrirtækja á Íslandi telja að skortur sé á starfsfólki. Um 40% svarenda töldu svo vera í febrúar. Fyrirtæki í fjármála- og tryggingastarfsemi og í ýmsri sérhæfðri þjónustu eru áberandi hvað þetta varðar.

Konum fjölgar í stjórnendastöðum hjá ríkinu

Konum í stjórnendastöðum hefur fjölgað frá árinu 1998. Þá voru konur 40% stjórnenda með mannaforráð ef frá eru taldir forstöðumenn stofnana. Nú eru konur tæpur helmingur stjórnenda með mannaforráð, eða 48%.

Nýr og betri sæstrengur tryggir samkeppnishæfni Íslands

Niðurstöður athugunar á samkeppnishæfni Íslands fyrir svokölluð netþjónabú voru kynntar í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Á fundinum kom fram að Ísland væri kjörinn staður fyrir starfssemi af þessu tagi. Eina fyrirstaðan fyrir því að Ísland geti talist tilvalinn staður fyrir þessa starfsemi væri tenging landsins við umheiminn en samgönguráðherra nýjan og betri streng fyrirhugaðan.

Efna til fjöldagöngu gegn umferðarslysum

Sumarið er tíminn - en ekki fyrir alla. Hjúkrunarfræðingar eru með kvíðahnút í maganum og ætla að efna til fjöldagöngu gegn umferðarslysum í næstu viku.

Nýr veruleiki í öryggis- og varnarmálum

Íslendingar standa frammi fyrir nýjum veruleika í öryggis- og varnarmálum og þurfa að fara í meiri stefnumótunarvinnu í málaflokknum, segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra. Hún boðar aukin útgjöld til varnarmála og segir þau fyrst og fremst snúast um að gæta hafsvæðisins í kringum Ísland.

Alcan greinir frá framtíðaráformum sínum í dag

Alcan ætlar síðar í dag að greina frá framtíðaráformum sínum í uppbyggingu áliðnaðar hérlendis. Forsvarsmenn Alcans funduðu í morgun með ráðamönnum í Þorlákshöfn sem þykir nú einn álitlegasti kosturinn fyrir nýtt álver.

Stórskipahöfn við Keilisnes?

Borgarafundur í Vogum á Vatnsleysuströnd samþykkti í gærkvöld með miklum meirihluta að veita bæjarstjórn sveitarfélagins umboð til þess að ræða við Alcan um uppbyggingu álvers á Keilisnesi. Fjölmargar hugmyndir komu fram á fundinum um aðra atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu, þar á meðal stórskipahöfn fyrir allt höfuðborgarsvæðið við Keilisnes.

Faraldur alvarlegra mótorhjólaslysa

Mótorhjólaeign landsmanna hefur tvöfaldast á tveimur og hálfu ári. Jóhannes Gunnarsson, lækningaforstjóri Landspítala háskólasjúkrahúss segir að faraldur alvarlegra mótorhjólaslysa hafi verið að undanförnu og skapi enn meira álag á sjúkrahúsinu.

Útsendingar Digital Íslands í Árnessýslu hafnar

Digital Ísland hefur nú hafið útsendingar í uppsveitum Árnessýslu og því nást nú á svæðinu útsendingar Stöðvar 2, RÚV, Sýnar, Sýnar Extra 1, Stöðvar 2 bíó, Sirkuss, og Skjás eins. Auk hefðbundinna áskriftarleiða Digital Íslands geta orlofshúsaeigendur á svæðinu nýtt sér sérstakar orlofshúsaáskriftir.

Áttatíu ökumenn krafðir um endurgreiðslu vegna ölvunaraksturs

Á árinu 2006 kröfðu tryggingafélögin 80 ökumenn um endurgreiðslu vegna umferðartjóna sem urðu þegar ökumaður var undir áhrifum áfengis. Aðrar ástæður voru lyfjaakstur, ökuréttindaleysi, beinn ásetningur og vítavert aksturslag eða glæfraakstur.

Vetnisknúnir bílaleigubílar

Íslensk NýOrka áformar að markaðssetja vetnisknúna Toyota Prius bílaleigubíla í samvinnu við Hertz bílaleiguna. Áætlað er að bílarnir verða fáanlegir í apríl á næsta ári í tengslum við nýja markaðsáætlun, sem fer í gang í næsta mánuði.

Fimm þúsund vilja Alfreð áfram

Um fimm þúsund manns hafa nú skrifað undir áskorun til Alfreðs Gíslasons um að halda áfram þjálfun íslenska karlalandsliðsins í handknattleik.

Tæplega 3000 manns búnir að skora á Alfreð

Tæplega 3000 manns voru búnir að skrá sig á áskorunarlista til Alfreðs Gíslasonar klukkan hálfellefu í kvöld. Vísir.is setti áskorunina af stað klukkan sjö í kvöld og er markmiðið að hvetja Alfreð til að halda áfram að þjálfa íslenska karlalandsliðið í Handbolta.

Enn tapar KR

KR-ingar sitja enn fastir á botni Landsbankadeildar karla eftir að liðið tapaði 2-0 fyrir nýliðum HK í Kópavogi í kvöld. Keflvíkingar unnu góðan 2-1 útisigur á Víkingi þar sem Guðmundur Steinarsson skoraði sigurmark Keflvíkinga úr vítaspyrnu þegar rúmar 2 mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.

Rúmlega 2000 manns búnir að skrifa undir áskorun til Alfreðs

Nú tveimur tímum eftir að Visir.is setti af stað áskorunarlista til Alfreðs Gíslasonar um að halda áfram sem þjálfari karlalandsliðsins í handknattleik, eru rúmlega 2000 manns búnir að skrifa undir. Einungis hálftíma eftir að listinn var settur af stað voru ellefuhundruð manns búnir að skrifa undir.

451 flóttamaður komið til Íslands

Rauði kross Íslands og Mannréttindaskrifstofa Íslands hvetja íslensk stjórnvöld til að fullgilda alþjóðasamninga um ríkisfangslausa. Á fimmta hundrað flóttamanna hafa komið til Íslands á vegum stjórnvalda.

Alcan biður um framlengingu

Bæjarstjórinn í Hafnarfirði segir að bærinn muni ekki beita sér fyrir annarri kosningu um stækkun álversins í Straumsvík á kjörtímabilinu, en bendir á að íbúarnir geti knúið fram slíka atkvæðagreiðslu. Talsmenn Landsvirkjunar segja að Alcan verði að leggja fram eitthvað nýtt og raunhæft ef framlengja eigi viljayfirlýsingu um orkusölu til stækkaðs álvers Alcans.

Íslandpóstur í átak

Íslandspóstur hefur ráðist í átak til að vekja almenning, húsbyggjendur og verktaka til umhugsunar um byggingareglugerð er varðar póstlúgur og póstkassasamstæður. Á undanförnum árum hefur orðið töluverður misbrestur á að farið sé að settum reglum þegar kemur að staðsetningu bréfalúga og póstkassa.

Sjá næstu 50 fréttir