Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Frelsið er ekki bara fyrir hina fjáðu Mikilvægt er að tryggja jafnvægi og verjast ásókn gróðaaflanna sem hugsa ekki lengra en fram að næsta tíkalli. Þetta kom fram í ræðu Ögmundar Jónassonar, formanns Bandalags starfsmanna ríkis og bæjar, á fyrsta maí hátíðarhöldunum á Akureyri í dag. Hann segir hlutverk verkalýðssamtaka sjaldan meira en nú. 1.5.2007 14:30
Heilbrigðiskerfið að brenna til kaldra kola Grunnstoðir heilbrigðiskerfisins eru að brenna til kaldra kola og ekki verður lengur við neitt ráðið. Þetta kom fram í ræðu Kristínar Á. Guðmundsdóttur, formanns Sjúkraliðafélags Íslands, á fyrsta maí hátíðahöldunum á Ingólfstorgi í Reykjavík í dag. Hún sagði heilbrigðiskerfið vera í molum. 1.5.2007 14:12
Vísa ummælum formanns Geðlæknafélagsins á bug Ummæli formanns Geðlæknafélags Íslands um að framlög ríkisins til geðfatlaðra hafi brunnið upp í verðbólgunni eru fjarri lagi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu. Þar segir ennfremur að rangar upplýsingar séu ekki til þess fallnar að greiða götu átaks í þágu geðfatlaðra. 1.5.2007 13:19
Blóðbankinn í nýtt húsnæði Blóðbankinn er að flytja starfsemi sína að Snorrabraut 60, byrjað verður að taka á móti blóðgjöfum í nýjum húsakynnu mánudaginn 7. maí. 1.5.2007 13:03
Sinueldar valda astmaveikum óþægindum Sýslumaðurinn á Akureyri telur að banna eigi bændum að brenna sinu. Astmaveikir urðu fyrir miklum óþægindum vegna reykjarkófs í Eyjafjarðarsveit um helgina. 1.5.2007 12:49
Baráttudegi verkalýðsins fagnað Fyrsta maí kröfuganga fer frá hlemmi í dag og leika Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur fyrir gönguna. Safnast verður saman við Hlemm klukkan eitt en gangan leggur af stað klukkan hálf tvö. 1.5.2007 12:45
Lokað fyrir innlagnir á Egilsstöðum Lokað verður fyrir innlagnir á Sjúkrahúsið á Egilsstöðum yfir sumartímann vegna manneklu. Ekki hefur tekist að manna stöður og vantar 18 stöðugildi til að halda uppi eðlilegri starfsemi. 1.5.2007 12:24
Aðrennslisgöngum lokað aftur vegna mengunar Aðrennslisgöng Kárahnjúka voru opnuð í gærkvöld eftir að þeim var lokað vegna slæmrar mengunar í síðustu viku. Loka þurfti göngunum aftur þar sem mengunin fór upp að viðmiðunarmörkum í gær. Leggja þurfti niður störf á tuttugu metra kafla í göngunum. 1.5.2007 12:20
Securitas tekur við öryggisleit á Reykjavíkurflugvelli Öryggisfyrirtækið Securitas mun taka við vopna- og öryggiseftirliti vegna millilandaflugs um Reykjavíkurflugvöll frá og með deginum í dag. Er þetta í fyrsta skipti sem einkafyrirtæki er falin umsjón með öryggismálum á Reykjavíkurflugvelli. 1.5.2007 11:49
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins óttast afskiptasemi forseta Íslands Full ástæða er til þess að hafa áhyggur af því að forseti Íslands muni skipta sér af stjórnarmyndun eftir komandi kosningar að mati Ástu Möller, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Þetta kemur fram á bloggsíðu þingmannsins. 1.5.2007 11:37
Kajakræðari fundinn eftir mikla leit Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út í kvöld til leitar að erlendum kajakræðara sem saknað var við austari Jökulsá. Síðast sást til hans á sjötta tímanum í dag en hann hugðist róa niður ánna. Þegar hann var ekki kominn niður ánna um kvöldmatarleytið var farið að grennslast fyrir um afdrif hans. Maðurinn kom í leitirnar klukkan 21:30 í kvöld, heill á húfi er hann gekk fram á björgunarsveit. 30.4.2007 22:12
Sinubruni í Fossvogsdalnum Sina brennur nú í Fossvogsdalnum. Slökkvilið er komið á staðinn og telur að það muni ná stjórn á eldinum innan fárra mínútna. Eldsupptök eru ókunn en slökkvilið telur líklegt að einhverjir krakkar hafi verið að leika sér og misst stjórn á eldinum. 30.4.2007 21:43
Arna Schram endurkjörin formaður Blaðamannafélags Íslands Arna Schram var endurkjörin sem formaður Blaðamannafélags Íslands. Hún hefur setið í embætti síðan Róbert Marshall lét af störfum. Hún bauð sig ein fram og var kjörin með dynjandi lófataki. 30.4.2007 21:17
Kjarvalshús til sölu Húsið sem byggt var af íslensku þjóðinni fyrir Jóhannes Kjarval myndlistarmann er nú til sölu. Ekki er vitað til þess að listamaðurinn hafi nokkurn tíman komið inn í húsið. Húsið stendur á sjávarlóð á Sæbraut á Seltjarnarnesi og þaðan er glæsilegt útsýni. Stofan var ætluð sem vinnustofa Kjarvals, en hún er hundrað og tíu fermetrar og skartar fimm metra lofthæð. 30.4.2007 19:34
Landlæknir segir aðeins tíu hafa veikst Landlæknir segir fjarri lagi að um 180 manns hafi veikst í aðrennslisgöngum Kárahnjúka, eins og talið var. Um hafi verið að ræða vinnulista sem læknirinn átti eftir að vinna úr. Líiklega hafi tíu veikst og þar af sjö alvarlega. 30.4.2007 19:20
Stjórnarandstaðan vill öll draga úr stóriðju Stjórnarandstöðuflokkarnir eru allir sammála um stóriðjuhlé, að minnsta kosti á suðvesturhorninu, til að draga úr þenslu en hvorugur stjórnarflokkanna er tilbúinn að forgangsraða stórframkvæmdum á næsta kjörtímabili. Þetta kemur fram í svörum flokkanna við spurningum fréttastofu um peningapólitík. 30.4.2007 19:06
Missti félagsíbúð því hún sparaði ekki nóg Mosfellsbær sagði einstæðri móður og þunglyndissjúklingi upp félagslegri íbúð vegna þess að hún hafði ekki, af bótum sínum, lagt nægilega fyrir, að mati bæjarins. Formaður fjölskyldunefndar Mosfellsbæjar segir reglurnar ekki settar af mannvonsku heldur til að hjálpa fólki. 30.4.2007 19:00
Hitaveita Suðurnesja 50 milljarða króna virði Hæsta tilboð í fimmtán prósenta hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja þýðir að fyrirtækið er talið ríflega þrefalt verðmætara en bókfært virði þess. Geysir Green Energy bauð 7,6 milljarða króna. Fjármálaráðherra hefur þegar ákveðið að taka tilboðinu, sem þýðir að einkaaðilar komast í fyrsta sinn til áhrifa í einu af stóru orkufyrirtækjum landsins. 30.4.2007 18:50
Bjarni Ármannsson hættir hjá Glitni Bjarni Ármannsson lét í dag af störfum sem forstjóri Glitnis í kjölfar valdatöku nýs meirihluta í bankanum. Við starfinu tekur Lárus Welding, sem kemur frá Landsbankanum í London. Bæði Bjarni og nýr stjórnarformaður bankans, Þorsteinn M. Jónsson, neita því að Bjarni hafi verið rekinn. 30.4.2007 18:46
Sakar Bjarna um lygar Sigurjón Þórðarson þingmaður frjálslyndra vænir félaga sína í allsherjarnefnd um ósannindi í umræðum um veitingu ríkisborgararéttar til tilvonandi tengdadóttur umhverfisráðherra. Formaður nefndarinnar segir fullyrðingar Sigurjóns rakalausar dylgjur. 30.4.2007 18:45
Ungir ökumenn á ofsahraða Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af 22 ára karlmanni sem keyrði bifhjól á 120 km hraða á Snorrabraut. Við frekari athugun kom í ljós að hjólið var stolið. Lögreglan tók 25 ökumenn fyrir hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina, þar á meðal nokkra ungir ökumenn fyrir ofsaakstur. 30.4.2007 16:58
Einmuna veðurblíða á Norður- og Austurlandi Einmuna veðurblíða ríkir á Norður- og Austurlandi þessa dagana. Hitamet hafa fallið eins og hráviði og er daglegt brauð sums staðar að hitinn fari í 20 stig. 30.4.2007 16:53
Erum bara að slökkva elda Alls vantar 18 starfsmenn á sjúkrahús Egilsstaða til að fullmanna allar vaktir að sögn fulltrúa framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Ákveðið hefur verið að loka á allar innlagnir á sjúkrahúsið frá og með 11. maí næstkomandi. Sjúklingar verða þess í stað fluttir til Akureyrar, Reykjavíkur eða Norðfjarðar. 30.4.2007 16:44
Sautján ára þarf að taka bílpróf aftur Sautján ára ökumaður var tekinn rétt eftir miðnætti í nótt á 141 km hraða á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ þar sem hámarkshraði er 60. Hann er fyrsti ökumaðurinn sem mun hlíta refsiákvæðum nýrra umferðarlaga sem tóku gildi á föstudag. Ætla má að samkvæmt þeim verði hann settur í akstursbann og þurfi að sæta hárri fjársekt. Þá mun hann einnig þurfa að taka bílpróf aftur. 30.4.2007 16:32
Bakkelsi lækkaði minna en virðisaukinn Verð í flestum bakaríum lækkaði minna en sem nemur lækkun virðisaukaskatts 1. mars síðastliðinn. Þetta eru niðurstöður verðmælinga verðlagseftirlits ASÍ í tuttugu og einu bakaríi á höfuðborgarsvæðinu. Nokkuð algengt var að verð lækkaði niður í næsta jafna tug í stað nákvæmrar lækkunar um rúm sex prósent til samræmis við lækkun virðisaukaskatts. Algengast var að verð lækkaði milli fjögur og sex prósent. 30.4.2007 15:43
Úthlutað úr Minningarsjóði Eðvarðs Sigurðssonar Katrín Ólafsdóttir hlýtur styrk úr Minningarsjóði Eðvarðs Sigurðssonar fyrir árið 2007 en úthlutað var úr sjóðnum í dag. Alls hlýtur Katrín 500 þúsund króna styrk fyrir rannsókn hennar sem ber heiti "Er íslenskur vinnumarkaður sveigjanlegur?" 30.4.2007 15:27
Tuttugu milljónum úthlutað úr Þróunarsjóði grunnskóla Úthlutað hefur verið úr Þróunarsjóði grunnskóla fyrir næsta skólaár en alls voru veittar tuttugu milljón króna úr sjóðnum. Hæsta styrkinn fékk Borgarbyggð, 1,5 milljón króna, fyrir verkefnið Borgarfjarðarbrúin. 30.4.2007 14:55
Hjálmlaus börn send gangandi heim Lögreglumenn á Vestfjörðum hafa undanfarið fylgst með hjálmanotkun barna á reiðhjólum. Í umferðarlögum er börnum yngri en 15 ára skylt að nota hjálma við hjólreiðar. Nokkur börn hafa verið send gangandi heim til að sækja hjálminn í fylgd með lögreglu, sem ræddi síðan við barnið og forráðamenn þess um hjálmaskylduna. 30.4.2007 14:55
Sjúkrahúsið á Egilsstöðum lokar fyrir innlagnir vegna manneklu Loka þarf fyrir allar innlagnir á sjúkrahúsið á Egilsstöðum vegna manneklu frá og með 11. maí næstkomandi. Enginn hefur fengist til að leysa af sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga í sumar. 30.4.2007 14:38
Verðmætasti hlutur einkaaðila í orkufyrirtæki Geysir Green Energy bauð hæst í eignarhlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja. Tilboðin voru opnuð á Hótel Sögu í dag. Geysir bauð rúmlega sjö og hálfan milljarð króna í hlutinn. Það er næstum tvöfalt hærra verð en næsthæsta tilboðið hljóðaði upp á. „Þetta er án efa verðmætasti hlutur einkaaðila í orkufyrirtæki hér á landi,“ segir Árni Magnússon forstöðumaður fjárfestinga hjá Glitni. 30.4.2007 14:23
Um 71 milljón varið til eflingar á þjónustu við geðfatlað fólk á Austurlandi Fjölga á búsetuúrræðum og efla dagþjónustu og dagvist fyrir geðfatlað fólk á Austurlandi samkvæmt samkomulagi félagsmálaráðherra og Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Austurlandi. Um 71 milljón verður varið í verkefnið á þessu ári en samkomulagið var undirritað í dag. 30.4.2007 13:57
Slasaður ökumaður fluttur með þyrlu á Landspítalann í Fossvogi Þyrla landhelgisgæslunnar, Steinríkur, lenti fyrir skömmu við Landspítalann í Fossvogi með ökumann sem slasaðist við bílveltu í Hrútafirði í morgun. Loka þurfti veginum við slysstað á meðan á björgunaraðgerðum stóð. 30.4.2007 13:48
Þjófnaðurinn náðist á öryggismyndavélar Tveir karlmenn á þrítugsaldri voru handteknir um helgina fyrir að hafa stolið tösku úr skóla í Grafarvogi. Þjófnaðurinn náðist allur á öryggismyndavélar. 30.4.2007 13:40
Karlmaður slasast illa í bílveltu Karlmaður slasaðist illa þegar vörubifreið sem hann ók valt á brúnni við Brú í Hrútafirði laust fyrir klukkan tólf í morgun. Maðurinn sat fastur inni í bifreiðinni áður en björgunarmönnum tókst að losa hann fyrir skemmstu. 30.4.2007 13:00
Fólk hvatt til að mæta á baráttufundi Fyrsti maí, alþjóðlegur baráttudagur verkamanna verður haldinn hátíðlegur með baráttufundum um allt land á morgun. Fólk er hvatt til að fjölmenna í kröfugöngur og á útifundi. 30.4.2007 12:34
Vörubíll valt á brú við Brú í Hrútafirði Búið er að kalla út þyrlu landhelgisgæslunnar vegna umferðaróhapps við Brú í Hrútafirðir. Vörubíll valt á brúnni og situr ökumaður fastur í bílnum. Þjóðvegur eitt er lokaður á svæðinu vegna slyssins. 30.4.2007 12:25
Yfirlæknir á Kárahnjúkum harðlega gagnrýndur Impregilo gagnrýnir yfirlækninn á Kárahnjúkum harkalega í yfirlýsingu sem fyrirtækið sendi frá sér nú rétt fyrir hádegi. Ásakanir hans eru sagðar ýktar, misvísandi og rangar. 30.4.2007 12:15
Umferðarslys við Brú í Hrútafirði Búið er að loka þjóðvegi eitt við Brú í Hrútafirði um óákveðinn tíma vegna umferðarslyss. 30.4.2007 12:14
Vænir félaga sína í allsherjarnefnd um ósannindi Sigurjón Þórðarson þingmaður Frjálslynda flokksins vænir félaga sína í allsherjarnefnd þingsins um ósannindi í pistli á heimasíðu sinni í dag. Veiting ríkisborgararéttar til tilvonandi tengdadóttur Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra er tilefni pistilsins, sem ber yfirskriftina "Bjarni Benediktsson segir ósatt". 30.4.2007 11:53
Dómari víkur ekki sæti Héraðasdómur Reykjavíkur hafnaði í nú rétt fyrir hádegi kröfu lögmanna olíufélanna að Sigrún Guðmundsdóttir, héraðsdómari, viki sæti í máli olíufélaganna gegn samkeppniseftirlitinu og íslenska ríkinu. 30.4.2007 11:50
Lokuðu fyrirvaralaust salernisaðstöðu bílstjóranna Bílstjórar hjá leigubílastöðinni BSH í Hafnarfirði segjast hafa verið beittir órétti eftir að eigendur stöðvarinnar brugðu á það ráð að loka fyrirvaralaust hvíldar- og salernisaðstöðu bílstjóranna síðastliðinn laugardag. Formaður bílstjórafélagsins Fylkir segir að með þessu séu eigendurnir að ná sér niðri á bílstjórunum en þeir hafa allir sagt upp hjá stöðinni. Einn eigandi leigubílastöðvarinnar BSH segir málið byggt á misskilningi. 30.4.2007 11:19
Grunnskólanemendur á Stöðvarfirði kanna mengun í þorpinu Stöðfirðingar aka að meðaltali 188 kílómetra innanbæjar og heila 1108 kílómetra utanbæjar. Bifreiðar bæjarbúa blása því um 370 tonnum af koltvísíringi á ár eða um 30,8 tonnum á mánuði. Þetta kemur fram í könnun sem nemendur í 9. og 10. bekk grunnskólans hafa unnið að í vetur. 30.4.2007 10:51
Brýnt að bæta búsetuúrræði fyrir fatlaða á Suðurlandi Búsetuúrræði fatlaðra á Suðurlandi hafa þróast til verri vegar á síðustu árum um leið of stöðug fjölgun íbúa hefur verið á svæðinu. Í ályktun frá stjórn Þroskahjálpar á Suðurlandi kemur fram að brýn þörf sé á því að auka þjónustu á svæðinu og að biðlistar hafi verið að lengjast jafnt og þétt á liðnum árum. 30.4.2007 10:00
Ákveðið í dag hvort dómari víki sæti í olíumálinu Kveðinn verður upp úrskurður í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir hádegi í dag hvort Sigrún Guðmundsdóttir, héraðsdómari, víki sæti í máli olíufélaganna gegn Samkeppniseftirlitinu. Lögmaður Olís telur Sigrúnu hafa gert sig vanhæfa eftir að hafa dæmt í öðrum skaðabótamálum gegn olíufélögunum. 30.4.2007 09:46
Iðrast barsmíðar á hesti Í þættinum Kompás sem sýndur var nú í kvöld á Stöð 2 var sýnt átakanlegt myndband af manni sem lemur hest sinn ítrekað og sparkar undir kvið hans og lemur hann margoft í hausinn. Maðurinn segist ekki eiga sér neinar málsbætur í þessu máli. Það sem komi fram á þessu myndbandi sé ekki fögur sjón og hann sjái mikið eftir þessu. Hesturinn sem um ræðir er 12 vetra barnahestur. "Ég var að ná úr honum kergjunni," segir hann. 29.4.2007 21:39