Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hæðarslá féll á bíla Umferðarslys varð á Miklubraut í dag þegar að bíll með krana rakst á hæðarslá yfir götunni. Hún féll við það á tvo bíla og skemmdust þeir töluvert. Engin slys urðu á fólki. Loka þurfti öllum akreinum í vestur á meðan verið var að fjarlægja slánna af götunni. 3.5.2007 12:11
Jón Ásgeir og Tryggvi fá skilorðsbundna dóma Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir aðild sína að Baugsmálinu. Þá var Tryggvi Jónsson, fyrrverandi forstjóri félagsins, dæmdur í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir aðild sína að málinu. 3.5.2007 12:02
Niðurrif Pravda stöðvað að kröfu lögmanns Niðurrif á rústunum af skemmtistaðnum Pravda í Austurstræti sem hófst á laugardag, var stöðvað seinnipartinn í gær að kröfu lögmanns. Rekstraraðilar í húsinu telja að nú þegar hafi verið unnið ómetanlegt tjón á því sem þeir telja að hafi verið heill hluti af húsinu. Þeir eru óhressir með að borgin hyggist taka af þeim reksturinn án þess að tala við þá. 3.5.2007 12:00
Rafræn kjörskrá opnuð á vefnum Opnað hefur verið fyrir rafrænan aðgang að kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur fyrir komandi alþingiskosningar. Þar geta kjósendur aflað sér upplýsinga um hvar þeiri eigi að kjósa og í hvaða kjördeild. 3.5.2007 11:28
Bein útsending - Dómur í Baugsmálinu Bein útsending verður í hádegisfréttatíma Stöðvar 2 og á Vísir.is frá Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan tólf en þá verður dómur kveðinn upp í Baugsmálinu. Um er að ræða 18 ákæruliði í endurákæru sem Sigurður Tómas Magnússon gaf út eftir að 32 ákæruliðum í Baugsmálinu hinu fyrra var vísað frá dómi. 3.5.2007 11:01
Nýskráðum bílum fækkar um 35 prósent Samdráttur upp á tæplega 35 prósent varð í nýskráningum bíla á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Alls voru tæplega 5.800 nýir bílar skráðir á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs samkvæmt Hagstofu Íslands 3.5.2007 10:45
Samið um tvö ný fiskiverkefni í Mósambík Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur samið við sjávarútvegsráðuneyti Mósambík um tvö ný verkefni á sviði fiskimála. Jóhann Pálsson, umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar, skrifaði undir samningana fyrir hönd Íslands í dag. 3.5.2007 10:08
Ekki byrjað að mæla skyggni á Hólmsheiði Röskum átján mánuðum eftir að flugvöllur á Hólmsheiði þótti álitlegur kostur - hafa enn engin tæki verið keypt til að mæla skyggni og skýjahæð á heiðinni. Samgönguráðuneytið hefur enn ekki farið fram á það við Flugstoðir ohf. að hefja mælingar sem nauðsynlegar eru til að taka afstöðu til flugvallar á heiðinni. Haraldur Ólafsson veðurfræðingur segir að hægt hefði verið að ná nægilegum upplýsingum á einu til tveimur árum. 2.5.2007 18:57
Ágreiningur um kostnað vegna viðgerða Ágreiningur er milli Vegagerðarinnar og Vélsmiðju Orms og Víglundar um viðgerðarkostnað á Grímseyjarferjunni, sem lengi hefur verið í slipp. Hægt hefur verið á viðgerðum vegna ágreiningsins. Viðgerðarkostnaður hefur farið langt fram úr áætlunum vegna lélégs ástands ferjunnar. 2.5.2007 18:47
Metfjöldi á fundi í Grímsey Fjölmennasti fundur sem sögur fara af í Grímsey var haldinn þar í gær. Þótt íbúarnir séu aðeins eitthundrað talsins mættu samt 140 manns á fundinn, sem sjálfstæðismenn í Norðausturkjördæmi stóðu fyrir. Þar voru forystumenn flokksins gagnrýndir fyrir að vilja ekki ræða Evrópusambandsaðild. Reykjavíkurflugvöllur virtist brenna einna heitast á fundarmönnum. 2.5.2007 18:45
Flestir tilgreina persónulegar ástæður þegar sótt er um ríkisborgararétt Þeir sem fengið hafa ríkisborgararétt hér á landi að undangenginni afgreiðslu allsherjarnefndar Alþingis hafa flestir búið hér á landi í tvö ár eða lengur, eru eldri en 18 ára og uppfylla ekki búsetuskilyrði. Í langflestum tilvikum tilgreina þeir persónulegar ástæður eða ástæður fjölskyldulegs eðlis fyrir því að sótt er um undanþágu. 2.5.2007 18:05
Óvissan slæm fyrir skjólstæðinga SÁÁ Æskilegra hefði verið að nýundirritaður þjónustusamningur SÁÁ við ríkið næði til lengri tíma en næstu áramóta að sögn framkvæmdastjóra hjá SÁÁ. Hann segir óvissuna mjög slæma fyrir skjólstæðinga samtakanna. Samtökin undirrituðu í dag samkomulag við annars vegar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og hins vegar fjármálaráðuneytið um framlengingu þjónustusamnings við ríkið fram að næstu áramótum. Upphaflegur þjónustusamningur var frá ársbyrjun 2002 til árloka 2005. 2.5.2007 17:10
Fimm sóttu um embætti ríkissaksóknara Fimm umsækjendur sóttu um starf ríkissaksóknara, en umsóknarfrestur rann út síðastliðinn föstudag. Umsækjendur eru hæstaréttarlögmennirnir Brynjar Níelsson og Jóhannes Rúnar Jóhannsson, saksóknararnir Egill Stephensen og Sigríður Friðjónsdóttir og Jón H.B. Snorrason aðstoðarlögreglustjóri og saksóknari. 2.5.2007 16:47
Hræðileg vonbrigði Arndís Björnsdóttir, talsmaður Baráttusamtaka eldri borgara og öryrkja, segir oddvita listans í Norðausturkjördæmi ekki hafa haft samráð við sig áður en hætt var við framboð í kjördæminu. Arndís segir þetta vera hræðileg vonbrigði. 2.5.2007 16:22
Hlutur ríkisins mun renna til Suðurnesja Suðurnesin munu með einhverjum hætti njóta sölu ríkisins á hlut þess í Hitaveitu Suðurnesja. Þetta sagði Árni Mathiesen fjármálaráðherra í samtali við Vísi í dag. Grétar Mar Jónsson frambjóðandi frjálslyndra í Suðurkjördæmi hefur lagt til að fjármagnið verði látið renna til atvinnuuppbyggingar á Suðurnesjum. 2.5.2007 16:18
Jón Ásgeir í lúxuspallborði Financial Times Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs verður í pallborði á ráðstefnu um munaðarvörur, þjónustu- og lúxus í júní. Það er dagblaðið Financial Times sem á veg og vanda að ráðstefnunni. Hún verður haldin í Feneyjum 3-5 júní næstkomandi. Yfirskrift hennar er Hefðbundinn munaður á nýjum mörkuðum; Nýr munaðir í gamla heiminum, eða „Old Luxury in New Markets; New Luxury in the Old World.“ 2.5.2007 15:59
Kosningaloforð svikin með háu lóðarverði Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir sjálfstæðismenn hafa laðað kjósendur til sín á óheiðarlegan hátt með loforðum um ódýrar lóðir. Borgarstjóri bíti síðan höfuðið af skömminni í grein um lóðarverð í Morgunblaðinu í gær. 2.5.2007 15:41
Sólmyrkvi í Reykjavík -ekki þó alveg strax Almyrkvi á sólu verður í Reykjavík þann 12. ágúst árið 2026, - eða eftir 19 ár. Um þetta má lesa á heimasíðu Halldórs Björnssonar veðurfræðings sem nú er í rannsóknarleyfi í Montreal í Kanada. Halldór segir að þetta verði góður sólmyrkvi. Hann hefst klukkan korter í fimm eftir hádegi og lýkur um tveim tímum síðar. 2.5.2007 15:31
Styrkja sjúklinga með næringarefnum og sérfræði Ríkið mun styrkja sjúklinga til kaupa á næringarefnum og sérfræði samkvæmt nýrri reglugerð sem undirrituð var í dag. Í henni segir að sjúklingar sem eigi við tilgreinda sjúkdóma að stríða og þurfi lífsnauðsynlega á slíkum efnum að halda fái styrk vegna kaupa á næringarefnum og sérfræði. 2.5.2007 14:55
Íslenskir neytendur áhugalausir um mannréttindi og umhverfissjónarmið Íslendingar telja það síður mikilvægt að upplýsingar um siðferðislega afstöðu matvælaframleiðanda séu sérstaklega tilgreindar á matvælapakkningum miðað við neytendur á hinum Norðurlöndunum. Þetta kemur fram í nýútkominni könnun um merkingu matvæla sem Norræna ráðherranefndin fjármagnaði. 2.5.2007 14:50
Baráttusamtökin hætt við að bjóða fram Baráttusamtök aldraðra og öryrkja eru hætt við að bjóða fram í komandi alþingiskosningum. María Óskarsdóttir, efsti maður á lista framboðsins í Norðausturkjördæmi, staðfesti þetta fyrir nokkrum mínútum. 2.5.2007 14:05
Haturglæpir gegn samkynhneigðum fara vaxandi Hatursglæpir gegn samkynhneigðum einstaklingum fara vaxandi og þá sérstaklega gagnvart samkynhneigðum karlmönnum. Þetta kemur fram í máli formanns Samtakanna 78, í samtali við Vísi. Hann segist vita um mun fleiri tilfelli hatursglæpa á síðasta ári en árin þar á undan. 2.5.2007 13:48
Refasetur á Súðavík Refasetur bætist innan tíðar við fjölbreyta flóru setra, sem kennd við drauga, vesturfara, galdra og fleira. Súðvíkingar eru að endurbyggja rúmlega aldar gamalt refahús við Eyrarlandsbæinn, í grennd við byggðina og njóta til þess fjárveitinga frá Alþingi. 2.5.2007 12:41
Mikið af þorski við Þorlákshöfn Netabáturinn Hvanney frá Hornafirði er búinn að fá yfir 300 tonn af stórum þorski á aðeins sex dögum rétt utan við höfnina i Þorlákshöfn. Það þykir afburða góður afli. Til samanburðar jafngildir þessi afli fullfermi tveggja til þriggja meðal stórra ísfisktogara. 2.5.2007 12:27
Áhyggjur af hlutdrægni spyrla RUV Margrét Sverrisdóttir frambjóðandi Íslandshreyfingarinnar til Alþingis hefur áhyggjur af því sem hún kallar einsleitan hóp spyrla á Ríkissjónvarpinu. Hún segir þá flesta eiga sér fortíð í samtökum hægrimanna sem tengjast Sjálfstæðisflokknum. 2.5.2007 12:20
Dregið úr reykingum um helming síðustu 12 ár Hlutfall nemenda í 10. bekk sem reykja daglega hér á landi hefur lækkað um nær helming á 12 árum. Þá hefur dregið verulega úr drykkju þeirra á sama tímabili. Þetta eru niðurstöður úr nýrri ESPAD rannsókn sem kynntar voru í dag. 2.5.2007 12:02
Viðskiptamöguleikar við Sameinuðu þjóðirnar Viðskiptamöguleikar íslenskra fyrirtækja við Sameinuðu þjóðirnar er efni fræðslufundar á vegum Útflutningsráðs og viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins. Fundurinn verður haldinn í fyrramálið á Hótel sögu. Niels Ramm sérfræðingur í upplýsingaöflun á vegum Sameinuðu þjóðanna er einn fyrirlesara. 2.5.2007 11:58
Dómur verður kveðinn upp í Baugsmálinu á morgun Dómur verður kveðinn upp í Baugsmálinu klukkan tólf á morgun. Þá kemur í ljós hvort sakborningarnir þrír, þeir Jón Ásgeir Jóhannesson, Tryggvi Jónsson og Jón Gerald Sullenberger, verða sakfelldir fyrir einhvern þeirra nítján ákæruliða sem nú eru teknir fyrir. 2.5.2007 11:55
Bjarni sakar Sigurjón um ósannindi Bjarni Benediktsson, formaður allsherjarnefndar Alþingis, sakar Sigurjón Þórðarson, þingmann Frjálslynda flokksins, um að fara með ósannindi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Bjarni sendi frá sér í morgun. Hann segir ummæli Sigurjóns um að hann hafi neitað að afhenda gögn vegna umsóknar um ríkisborgararétt hreinan uppspuna. Sigurjón vísar þessu á bug. Von er gögnum vegna þeirra erinda sem allsherjarnefnd hefur afgreitt á kjörtímabilinu síðar í dag. 2.5.2007 11:26
Gunnlaugur skipaður aðstoðaryfirlögregluþjónn Gunnlaugur K. Jónsson hefur verið skipaður aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Frá áramótum hefur hann verið annar tveggja starfsmanna innri endurskoðunar embættisins. Gunnlaugur hóf störf hjá lögreglunni í Reykjavík árið 1977. Hann útskrifaðist úr Lögregluskólanum árið 1979 og starfaði í almennri deild og umferðardeild. 2.5.2007 11:06
Þrír 13 ára gripnir við innbrot Þrír 13 ára piltar voru staðnir að verki við að gera tilraun til innbrots í áhaldageymslu Hitaveitu Suðurnesja í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Lögreglunni barst tilkynning um málið rétt fyrir klukkan tíu og fór þegar á staðinn. Drengirnir voru færðir á lögreglustöðina við Hringbraut. Foreldrar piltanna sóttu þá þangað eftir yfirheyrslu. 2.5.2007 10:58
Óvenjumikið af sílamávi við tjörnina Óvenjumikið er af sílamávi við tjörnina um þessar mundir. Þetta segir meindýraeyðir í samtali við fréttastofu Vísis. Hann segir hundruðir sílamáva á tjörninni. Það sé meira en verið hefur. Flestir borgarbúar vilja að borgin stemmi stigu við ágangi sílamáva á útivistarsvæðum. 2.5.2007 10:24
Breyttur útivistartími barna og unglinga Útivistartími barna og unglinga tók breytingum í gær og framvegis mega 12 ára börn og yngri ekki vera úti lengur en til klukkan tíu á kvöldin. Unglingar á aldrinum 13 til 16 ára mega vera úti til klukkan tólf á miðnætti 2.5.2007 10:20
Flugfreyjur vilja ræða þjónustubreytingar við stjórn Icelandair Flugfreyjufélag Íslands hefur óskað eftir viðræðum við stjórn Icelandair eftir félagið ákvað að fækka flugfreyjum um borð í vélum á leið til Bandaríkjanna úr fimm í fjórar. Formaður Flugfreyjufélagsins segir viðbúið að draga muni úr óskilgreindri þjónustu um borð. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir að farþegar muni ekki finna fyrir breytingunum. 2.5.2007 10:07
Styttri kjarasamningar vegna óvissu og ójafnvægis í efnhagslífinu Þensla og ójafnvægi í efnhagslífinu mun væntanlega valda því að samið verði til færri ára í komandi kjarasamningum en hingað til hefur þekkst. Þetta kom fram í máli Sigurðar Bessasonar, formanns Eflingar stéttarfélags, í hádegisviðtali á Stöð 2 í dag. Hann segir skuldir heimilanna hafa margfaldast á undanförnum árum vegna rangra ákvarðanna stjórnvalda. Rúmlegur þriðjungur félagsmanna í Eflingu stéttarfélags í dag er af erlendu bergi brotinn og hefur þeim fjölgað gríðarlega frá aldamótum. 1.5.2007 19:54
Algengt að um 200 starfsmenn leiti til heilsugæslu Kárahnjúka Trúnaðarmaður verkalýðsfélaga á Kárahnjúkum segir ekki óalgengt að um tvö hundruð starfsmenn leiti til heilsugæslu í hverjum mánuði vegna allskyns kvilla. Hann segir fjölda þeirra sem veikjast ekki hafa aukist sérstaklega á milli mánuða. 1.5.2007 19:11
Vonast til að auglýsing eftir staðgöngumóður verði til hagsbóta Konan sem auglýsti eftir staðgöngumóður, segist gera það í kjölfar læknamistaka. Hún vonast til að umræðan um hennar mál leiði til lagabreytinga, öðrum til hagsbóta. 1.5.2007 19:09
Treystum velferðina og útrýmum fátækt , kjörorð dagsins Treystum velferðina og útrýmum fátækt voru kjörorð dagsins í tilefni af fyrsta maí. Forseti ASÍ segir ólíðandi að fimm þúsund börn séu undir fátækramörkum hér á landi og segir nauðsynlegt að leiðrétta kjör eldri borgara. Fjölmargir tóku þátt í kröfugöngu í tilefni dagsins. 1.5.2007 19:06
Hjólhýsi losnaði frá bíl í miðjum akstri Hjólhýsi skemmdist illa þegar það losnaði frá bíl í miðjum akstri á Vesturlandsvegi við Kjalarnes í dag. Engan sakaði í óhappinu. 1.5.2007 18:04
Vinnuslys við Kárahnjúka Karlmaður slasaðist við Kárahnjúka í nótt þegar vörubifreið sem hann var að vinna á valt. Maðurinn var fluttur á sjúkrahúsið á Neskaupstað. 1.5.2007 15:48
Hátíðahöldin gengið vel fyrir sig Mörg þúsund manns tóku þátt í fyrsta maí göngunni í Reykjavík og hefur þátttakan ekki verið meiri í mörg ár að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Allt hefur gengið slysalaust fyrir sig og samkvæmt áætlun. 1.5.2007 15:24
Standa þarf vörð um velferðina Samfélög sem hafa velferðarhugsjón verkalýðshreyfingarinnar að leiðarljósi eru þau samfélög sem farnast best. Þetta kom fram í ávarpi Grétars Þorsteinssonar, forseta Alþýðusambands Íslands, á útifundi á Ingólfstorgi í dag í tilefni af baráttudegi verkalýðsins. Hann krefst þess að nafn Íslands verði tekið af lista þeirra þjóða sem studdu innrásina í Írak. 1.5.2007 15:06
Frelsið er ekki bara fyrir hina fjáðu Mikilvægt er að tryggja jafnvægi og verjast ásókn gróðaaflanna sem hugsa ekki lengra en fram að næsta tíkalli. Þetta kom fram í ræðu Ögmundar Jónassonar, formanns Bandalags starfsmanna ríkis og bæjar, á fyrsta maí hátíðarhöldunum á Akureyri í dag. Hann segir hlutverk verkalýðssamtaka sjaldan meira en nú. 1.5.2007 14:30
Heilbrigðiskerfið að brenna til kaldra kola Grunnstoðir heilbrigðiskerfisins eru að brenna til kaldra kola og ekki verður lengur við neitt ráðið. Þetta kom fram í ræðu Kristínar Á. Guðmundsdóttur, formanns Sjúkraliðafélags Íslands, á fyrsta maí hátíðahöldunum á Ingólfstorgi í Reykjavík í dag. Hún sagði heilbrigðiskerfið vera í molum. 1.5.2007 14:12
Vísa ummælum formanns Geðlæknafélagsins á bug Ummæli formanns Geðlæknafélags Íslands um að framlög ríkisins til geðfatlaðra hafi brunnið upp í verðbólgunni eru fjarri lagi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu. Þar segir ennfremur að rangar upplýsingar séu ekki til þess fallnar að greiða götu átaks í þágu geðfatlaðra. 1.5.2007 13:19