Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Biðlistum í heilbrigðisþjónustu verði útrýmt Biðlistar eftir heilbrigðisþjónustu barna og aldraðra eru svartur blettur á velferðarkerfi Íslendinga. Þeir eru birtingarmynd vanrækslu og skorts á samfélagslegri ábyrgð. Þetta sagði formaður þingflokks Samfylkingarinnar á blaðamannafundi í dag þar sem stefnumál flokksins í heilbrigðismálum voru kynnt. 29.4.2007 19:29
Varað við lyfi gegn magakveisu ungbarna Lyfið Minifom, sem fjölmörgum hvítvoðungum er gefið við magakveisu, inniheldur rotvarnarefni sem geta haft hormónatruflandi áhrif. Norska lyfjastofnunin hefur því varað við notkun þess. Málið er til athugunar hjá Lyfjastofnun Íslands. 29.4.2007 19:18
Foreldrar bannaðir í unglingahóp Foreldrar eru stranglega bannaðir í nýjum unglingahóp sem hefur verið stofnaður innan Einstakra barna. Félagsskapurinn hélt upp á tíu ára afmæli sitt í dag með mikilli hátíð í Gerplusalnum í Salahverfi Kópavogs. Á hátíðinni í dag voru hoppukastalar andlitsmálun, happdrætti og ýmislegt góðgæti í tilefni dagsins. 29.4.2007 18:59
Vill treysta tengsl Vestur-Íslendinga við Ísland nútímans Treysta þarf tengsl Vestur-Íslendinga við Ísland nútímans meðal annars með auknum viðskiptum. Þetta kom fram í ræðu Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, á ársþingi Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vesturheimi í Winnipeg í Kanada á föstudaginn. 29.4.2007 14:48
Líðan drengsins óbreytt Líðan fimmtán ára drengs sem fannst meðvitundarlaus á botni Sundlaugar Kópavogs í fyrradag er óbreytt. Honum er haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. 29.4.2007 14:44
Nýr alþjóðlegur skóli kenndur við Orkuveitu Reykjavíkur Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík og Orkuveita Reykjavíkur undirrituðu í dag samkomulag um að byggja upp sameiginlegt alþjóðlegt framhaldsnám í orkuvísindum. Settur verður á fót alþjóðlegur skóli sem kenndur verður við Orkuveitu Reykjavíkur, Reykjavik Energy Graduate School of Sustainable Systems. 29.4.2007 14:30
Risavaxinn verkefni blasa við í komandi kjarasamningum Íslendingar hafa dregist aftur úr öðrum þjóðum í menntun og ríkisstjórninni hefur mistekist að viðhalda stöðugleika í efnahagslífinu. Þetta kemur fram í ályktun þings Rafiðnaðarsambands Íslands sem haldið var um helgina. Risavaxin verkefni blasa við sambandinu í komandi kjarasamningum. 29.4.2007 14:11
Sérfræðistörfum fjölgað á Vestfjörðum Sérfræðistörfum á vegum Matís á Vestfjörðum verður fjölgað um helming á næstunni samkvæmt nýrri áætlun stofnunarinnar. Markmiðið er að stuðla að frekari verðmætasköpun í samvinnu við fyrirtæki á svæðinu. 29.4.2007 13:30
Hitamet féll í Stykkishólmi Sextíu og fimm ára gamalt hitamet féll í Stykkishólmi í gær þegar hitinn mældist 16,4 gráður. Aldrei hefur hærri hiti mælst í Hólminum í apríl fyrr. 29.4.2007 13:12
Sæluvika í Skagafirði Sæluvika Skagafjarðar er líkt og heiðlóan vorboði heimamanna. Þetta er lista- og menningarhátíð sem stendur í átta daga þar sem heimamenn bera á borð fyrir gesti myndlist, leiklist og tónlist 29.4.2007 13:08
Ríkisstjórnin heldur velli með 33 þingmen Þrír ráðherrar Framsóknarflokksins næðu ekki kjöri til Alþingis samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins. Ríkisstjórnin héldi þó velli með 33 þingmenn. 29.4.2007 13:05
Stakk sjálfan sig í magann Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í nótt til að leita að manni sem rauk út af heimili sínu í Kópavogi í kjölfar ósættis. Alls tóku fimmtán lögregluþjónar þátt í leitinni og nutu þeir aðstoðar sporhunds. Óttast var að maðurinn, sem er á fertugsaldri, myndi vinna sjálfum sér mein. 29.4.2007 13:00
Stofnað til þekkingarseturs á Egilsstöðum Samningar um stofnun þekkingarseturs voru undirritaðir á Egilsstöðum í gær. Setrið á að efla vísinda- og rannsóknastarfsemi á Austurlandi og þar á að byggja upp staðbundið háskólanám. 29.4.2007 12:56
Plata Garðars Thórs áfram í efsta sæti Plata Garðars Thórs Cortes er enn í fyrsta sæti á vinsældalista yfir klassískar plötur í Bretlandi aðra vikuna í röð. Garðar verður sérstakur gestur á Bresku tónlistarverðlaununum sem fara fram í Royal Albert Hall á fimmtudagskvöldið. 29.4.2007 11:32
Skíðasvæði á Akureyri og Siglufirði opin Hlíðarfjall á Akureyri er opið í dag til klukkan þrjú. Þar er sannkallað sumarveður og skíðafæri eftir því, blautt og þungt. Sérstaklega neðarlega í fjallinu. Fólki er bent á að taka með sér sólaráburð því sólin er sérstaklega sterk í snjónum. Forráðamenn fjallsins gera ráð fyrir því að þetta sé síðasta opnunarhelgi vetrarins. 29.4.2007 09:59
Samvinna og verkaskipting á flugslysaæfingu góð Flugslysaæfingin sem haldin var í dag á Sauðárkróki gekk í heildina mjög vel og samhæfing allra viðbragðsaðila á Sauðárkrókssvæðinu góð. Samvinna og verkaskipting var einstaklega góð segir í tilkynningu frá Flugstoðum. Sett var á svið flugslys þar sem 30 farþegar og tveir flugmenn slösuðust mismikið. 28.4.2007 19:45
Framsóknarflokkurinn hefur eytt tvöfalt á við Sjálfstæðisflokkinn Framsóknarflokkurinn hefur eytt tvöfalt meira en Sjálfstæðisflokkurinn í auglýsingar vegna komandi alþingiskosninga. Þegar auglýsingakostnaður flokkanna var tekinn saman í síðastliðinni viku hafði Framsóknarflokkurinn eytt rúmum fjórum milljónum króna í sjónvarpsauglýsingar. 28.4.2007 19:30
Ekkert bendir til átaka Lögreglan á Selfossi var með mikinn viðbúnað í Hveragerði í gær eftir að karlmaður á sextugsaldri fannst liggjandi í blóði sínu í heimahúsi. Frumrannsókn lögreglu bendir ekki til að átök hafi átt sér stað. 28.4.2007 19:04
Ólík sjónarmið um framtíð innanlandsflugvallar Formaður flugvallarnefndar vonast til að skýrsla um framtíð Reykjavíkurflugvallar verði kynnt í næstu viku. Ólík sjónarmið komu fram hjá forystumönnum stjórnmálaflokkanna í flugvallarmálinu á kosningafundi Stöðvar tvö í Reykjavíkurkjördæmi suður. 28.4.2007 19:02
Baráttusamtökin íhuga að kæra ákvarðanir yfirkjörstjórna Forsvarsmenn Baráttusamtaka eldri borgara og öryrkja íhuga að kæra ákvörðun þriggja yfirkjörstjórna að hafna framboðslistum flokksins fyrir komandi kosningar. Fordæmi er fyrir því að dómstóll hafi snúið við slíkri ákvörðun yfirkjörstjórnar. 28.4.2007 18:53
Eik sjái um uppbyggingu miðbæjarhúsanna Fasteignafélagið Eik hefur óskað eftir að taka yfir samningaviðræður borgaryfirvalda við eigendur lóðarinnar að Austurstræti 22. Samkvæmt heimildum fréttastofu kemur það vel til greina af hálfu borgarinnar að eftirláta Eik samningana og framtíðaruppbyggingu, en borgaryfirvöld myndu skipuleggja reitinn í samvinnu við Fasteignafélagið. 28.4.2007 18:52
Efndir um lóðir eða kokgleyping kosningaloforða? Sjálfstæðismenn eru að kokgleypa kosningaloforð sitt um ódýrar lóðir fyrir alla, með því að bjóða einbýlishúsalóðir á ellefu milljónir króna, segir oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn. Aldeilis ekki, segir formaður skipulagsnefndar, þetta er kostnaðarverð og framboðið verður nægt til að svara eftirspurn: 1500 íbúðir á ári hið minnsta. 28.4.2007 18:32
List án landamæra speglaðist í tjörninni Þátttakendur í gjörningi á vegum listahátíðarinnar List án landamæra tóku höndum saman í dag og mynduðu hring umhverfis tjörnina í Reykjavík. Síðan gekk fólkið saman einn hring í kringum tjörnina og speglaði sig í henni í leiðinni. Hátíðin stuðlar að því að auka þátttöku fólks með fötlun eða þroskaskerðingu sem ekki er nógu áberandi í „almennu“ menningarumhverfi. 28.4.2007 16:00
Framboðslistum hafnað af yfirkjörstjórnum Framboðslistum Baráttusamtaka eldri borgara og öryrkja í Reykjavíkurkjördæmi suður og Suðurkjördæmi hefur verið hafnað. Listarnir bárust of seint fyrir komandi alþingiskosningar og var þess vegna hafnað af yfirkjörstjórnum. Baráttusamtökin skiluðu lista sínum í Reykjavíkurkjördæmi norður einnig of seint. Yfirkjörstjórn þar er enn að funda um málið. 28.4.2007 15:08
Flugslysaæfing á Sauðárkróki Rétt uppúr klukkan 13 hófst flugslysaæfing á Sauðárkróksflugvelli. Æfingin fer fram á vettvangi á Sauðárkróki og er líkt eftir flutningi slasaðra með loftbrú á sjúkrahús. Líkt er eftir slysi tuttugu og átta farþega og tveggja áhafnarmeðlima. Samhæfingarstöð Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð tekur einnig þátt í æfingunni. 28.4.2007 14:57
Vinstri grænir krefjast rannsóknar á Kárahnjúkum Þingflokkur vinstri grænna hefur sent frá sér tilkynningu þar sem segir að flokkurinn krefjist opinberrar rannsóknar á aðbúnaði verkamanna við Kárahnjúka. Fjöldi verkamanna á svæðinu hefur veikst vegna mengunar og matareitrunar. Rannsóknin skuli beinast að alvarlegum ásökunum í fréttum undanfarna daga um: „vítaverða vanrækslu af hálfu Impregilo á vinnusvæðinu við Kárahnjúkavirkjun.“ 28.4.2007 13:43
Varðskipið Óðinn breytist í leiksvið Varðskipið Óðinn umbreytist í leiksvið þegar flutt verður þar leikritið Gyðjan í vélinni. Verkið er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík og verður frumflutt 10. maí næstkomandi. Áhorfendur verða leiddir um vistarverur skipsins þar sem brugðið verður upp táknmyndum af konunni gegnum árþúsundir á nýstárlegan hátt. 28.4.2007 13:33
Nemendur setja sig í spor þingmanna Í nýju kennsluveri Alþingis er búið að útbúa aðstöðu svo nemendur geti farið í hlutverkaleik og sett sig í spor þingmanna. Nemendur í efri bekkjum grunnskólanna geta þar sett lög og farið á þingfundi og fengið að sjá hvernig dagleg störf þingmanna eru. 28.4.2007 13:00
Landsbankinn með viðskiptaskrifstofu í Winnipeg Landsbankinn opnaði í gær viðskiptaskrifstofu í Winnipeg í Manitoba. Að mati stjórnenda bankans býður borgin upp á ýmis tækifæri en tengslin við frændsystkin okkar í Vesturheimi höfðu einnig sitt að segja við staðarákvörðunina. 28.4.2007 12:45
Leggja ekki meira fé í Bakkavík Bæjaryfirvöld í Bolungarvík munu ekki leggja meira hlutafé inn í fiskvinnslufyrirtækið Bakkavík, sem hefur sagt upp 48 starfsmönnum. Bolungarvíkurkaupstaður á talsverðan hlut í fyrirtækinu, en að sögn bæjarstjórans liggur lausnin ekki í auknu hlutafé, verðmætin í sjávarútvegi liggi í kvótanum og hann eigi fyrirtækið ekki. 28.4.2007 12:43
Geðfatlaðir fá húsnæði um allt land Hátt í 70 geðfatlaðir fá viðvarandi húsnæði um allt land á þessu ári og er áætlað að rúmlega helmingur þeirra fái það afhent í sumar. Þetta er liður átaks í þjónustu við geðfatlað fólk sem félagsmálaráðuneytið kynnti í lok síðasta árs. 28.4.2007 12:38
Líðan drengsins óbreytt Líðan fimmtán ára drengs sem fannst meðvitundarlaus á botni Sundlaugar Kópavogs í fyrradag er óbreytt. Honum er haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. 28.4.2007 12:17
Skíðasvæði á Akureyri og Siglufirði opin Skíðasvæði á Akureyri og Siglufirði eru opin í dag. Færi á báðum stöðum ber merki vorsins. Það er blautt og þungt en veður gott. Í Hlíðarfjalli er sól og blíða og í tilkynningu segir að þótt færi sé þungt, sé hægt að njóta veðurblíðunnar og fuglasöngsins í fjallinu. 28.4.2007 12:04
Geitburður hafinn í húsdýragarðinum Sex kiðlingar fæddust í Húsdýragarðinum í gær og þykja tíðindin endanlega boða vorkomu. Fjórar kvenkynsgeitur báru kiðlingana sex og var jafnræði milli kynjanna, því þrír hafrar komu í heiminn og þrjár huðnur, eða geitastelpur. Hafurinn Brúsi er faðir allra kiðlinganna, en mæðurnar eru Perla, Snotra, Dáfríð og Ísbrá. 28.4.2007 11:59
Vorhreinsun Reykjavíkurborgar hófst í morgun Árleg vorhreinsun Reykjavíkurborgar hófst í morgun og stendur til 5. maí. Hverfstöðvar munu sjá um að fjarlægja garðaúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðarmörk. Garðeigendur eru beðnir um að nýta tækifærið og klippa grópur sem vex út fyrir lóðamörk og hindrar umferð. 28.4.2007 11:09
Kveikt í óskráðum bifreiðum í Keflavík Grunur leikur á að kveikt hafi verið í óskráðum bíl rétt eftir miðnætti í nótt í Keflavík. Slökkvilið var kallað til og réði niðurlögum eldsins. Á síðustu tveimur vikum er grunur um íkveikju í fimm tilfellum þar sem eldur kom upp í óskráðum bifreiðum í Njarðvík og Keflavík. 28.4.2007 10:48
Slasaðist alvarlega á fjórhjóli Maður slasaðist alvarlega á fjórhjóli við Hvítársíðu skammt frá Húsafelli um tvö leitið í nótt. Hann var fluttur á slysadeild í Reykjavík. Samkvæmt vakthafandi lækni er maðurinn hryggbrotinn og liggur á gjögræslu. Hann fer í aðgerð seinna í dag. Tildrög slyssins eru ókunn. 28.4.2007 10:12
Búið að opna þjóðveginn á Öxnadalsheiði Búið er að opna þjóðveginn á Öxnadalsheiði eftir að vegurinn lokaðist þegar tengivagn af olíubíli valt þar í morgun. Enginn slys urðu á fólki en vagninn fór á hliðina ofan við Bakkaselsbrekku og úr honum lak skipaolía. Lögregla beindi umferð um Lágheiði, en nú er umferð stjórnað um svæðið þar sem óhappið varð. 28.4.2007 10:01
Eldur í heimahúsi í Hafnarfirði Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk klukkan 21:10 í kvöld tilkynningu um eld í heimahúsi við Öldugötu í Hafnarfirði. Íbúum hafði tekist að slökkva eldinn þegar að slökkvlið og lögreglu bar að garði en það var aðeins fjórum mínútum síðar. Á meðan reykræstingu stóð þurfti að loka götunni. Talið er að um minniháttar tjón hafi verið að ræða. Engin slys urðu á fólki. 27.4.2007 21:26
Kostnaður við endurbætur margfaldast Kostnaður við endurbætur á Grímseyjarferju verður margfalt meiri en áætlun gerði ráð fyrir. Klúður segir þingmaður í samgöngunefnd alþingis sem telur að ódýrara hefði verið að kaupa nýtt skip. 27.4.2007 20:16
Fannst liggjandi í blóði sínu Í dag kl. 17:13 barst lögreglunni á Selfossi tilkynning um að maður á sextugsaldri lægi í blóði sínu í húsi í Hveragerði. Lögregla og sjúkraflutningamenn fóru þegar á vettvang . Maðurinn var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík og er þungt haldinn. 27.4.2007 20:08
Sorpa fékk sjö metanknúna bíla Sorpa bs. fékk í gær afhenta sjö metanknúna Volkswagen bíla frá Heklu. Þetta kom fram í fréttatilkynningu sem Hekla sendi frá sér í kvöld. Um er að ræða fjóra VW Caddy life EcoFuel og þrjá VW Caddy EcoFuel. Bílarnir eru með tvíbrennihreyfli, sem þýðir að þeir geta gengið bæði fyrir metani og bensíni. 27.4.2007 19:48
Lýsir yfir vonbrigðum með þjóðkirkjuna Formaður Samtakanna '78 segir vonbrigði að þjóðkirkjan sé ekki tilbúin að leggja hjúskap samkynhneigðra til jafns við gagnkynhneigðra. Tillaga um að þjóðkirkjan fari þess á leit við Alþingi, að lögum verði breytt á þann veg að prestar fái að gefa saman samkynhneigð pör, var felld á Prestastefnu sem lauk í gær. 27.4.2007 19:24
Uppsagnir í Bolungarvík Stærsti vinnuveitandi Bolungarvíkur hefur sagt upp meginhluta starfsfólks síns. 48 starfsmönnum hjá rækjuvinnslunni Bakkavík í Bolungarvík hefur verið sagt upp í landvinnslu félagsins. Hjá landvinnslunni störfuðu 60 manns áður en til uppsagna kom Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að rekstur rækjuvinnslunnar hafi gengið erfiðlega undanfarin ár. 27.4.2007 19:22
Reyndu að senda inn framboð eftir að frestur rann út Baráttusamtökin náðu aðeins að skila inn framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar í einu kjördæmi áður en framboðsfrestur rann út á hádegi í dag. Samtökin gerðu hins vegar tilraun til að skila inn framboðum í hinum fimm kjördæmunum eftir að fresturinn rann út. Alls bjóða sex flokkar fram á landinu öllu en tæplega átta hundruð einstaklingar eru í framboði. 27.4.2007 19:11