Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ölvaður maður beit tvo lögreglumenn Lögreglan á Hvolsvelli þurfti í liðinni viku að hafa afskipti af manni vegna heimilisófriðs en hann var gestur í húsi í umdæmi lögreglunnar. Maðurinn mun hafa verið ölvaður og þegar færa átti hann í fangageymslur á Selfossi réðst hann að lögreglumönnum og náði að bíta tvo þeirra auk þess sem hann eyðilagði gleraugu annars lögreglumannsins. 20.2.2007 10:35
Harmar að ekki náist sátt Skólastjórafélag Reykjavíkur harmar það að samninganefndir Launanefndar sveitarfélaganna og Kennarasambands Íslands hafi ekki náð samkomulagi um framkvæmd endurskoðunarákvæðis greinar 16.1. í samningi aðila frá árinu 2004. 20.2.2007 02:30
Grunur um losun olíu að næturlagi Grunur leikur á að ókunnugt skip hafi, í skjóli nætur, dælt úrgangsolíu frá borði og valdið olíumengun í hundruðum sjófugla við Reykjanes. Landhelgisgæslan hefur ekki enn búnað til að fylgjast með slíku að næturlagi. Fokkervél Landhelgisgæslunnar flaug yfir svæðið í morugn að beiðni Umhverfisstofnunar en áhöfnin varð ekki vör við neina olíuflekki. 19.2.2007 20:00
Lét ekki vita af eldi Vanheil kona, sem nágrannar hafa lengi talið að þyrfti að vistast á geðsjúkrahúsi kveikti í íbúð sinni í fjölbýlishúsi í Reykjavík í gærkvöldi og ógnaði þar með öryggi allra í húsinu. Nágrannarnir hafa óttast að hún gæti orðið sjálfri sér og öðrum að voða. Á tólfta tímanum í gærkvöldi fann fólk í nálægum húsum brunalykt og sá hvar reykur stóð út um glugga á íbúð konnnar. 19.2.2007 19:45
Steggjunin fór úr böndunum Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann á þrítugaldri í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa slegið konu í andlitið með glerflösku þannig að hún hlut skurð á enni. Janframt var hann dæmdur til að greiða henni hundrað þúsund krónur í miskabætur. Maðurinn var sakfelldur meðal annars með vísan til Mannhelgisbálks Jónsbókar frá árinu 1281. 19.2.2007 19:30
Klámráðstefnan rataði inn á Alþingi í dag Þátttakendur í samkomu framleiðenda klámefnis ætla ekki að hætta við komu sína hingað til lands. Forsætisráðherra sagðist á Alþingi í dag hafa óbeit á klámiðnaðinum og öllu því sem honum fylgir. Honum væri hins vegar ekki kunnugt um að þeir framleiðendur sem hingað koma standi fyrir mansali eða framleiðslu á barnaklámi. 19.2.2007 19:00
Hringvegurinn klárast ekki Halldór Blöndal, fyrrverandi samgönguráðherra, gagnrýnir Sturlu Böðvarsson, eftirmann sinn á ráðherrastól, fyrir að klára ekki að malbika hringveginn í samgönguáætlun næstu tólf ára. 19.2.2007 18:52
Kosningaloforðið Suðurstrandarvegur vék fyrir Suðurlandsvegi Kosningaloforðið Suðurstrandarvegur varð að víkja fyrir brýnna verkefni, tvöföldun Suðurlandsvegar yfir Hellisheiði. Þetta segja oddvitar stjórnarflokkanna í Suðurkjördæmi, þau Guðni Ágústsson og Drífa Hjartardóttir. 19.2.2007 18:46
Samstarf við Djíbútí Orkuveita Reykjavíkur og fulltrúar Afríkuríkisins Djíbútí undirrituðu í dag samstarfssamning um þróun jarðhitasvæða til raforkuframleiðslu í Djíbútí. Forseti Djíbútí og stjórnarformaður Orkuveitunnar segja þetta mikilvægan samning sem vonandi tryggi orku í sem flest hús í landinu. 19.2.2007 18:45
Síminn og Landsvirkjun fallast á háa fjársekt fyrir ólögmætt samráð Síminn og Landsvirkjun hafa viðurkennt að hafa haft með sér ólögmætt samráð vegna kaupa Símans á fjarskiptafyrirtæki og ljósleiðarastrengjum af Landsvirkjun og fallist á að greiða samtals áttatíu milljóna króna sekt í ríkissjóð. Þetta er hæsta sekt sem samið hefur verið um hérlendis vegna brota á samkeppnislögum. 19.2.2007 18:38
Tré á svörtum markaði Grunur leikur á að mörgum stórum trjám, sem rifin voru upp með rótum í Heiðmörk vegna óleyfilegra vatnsveituframkvæmda Kópavogsbæjar, hafi verið komið undan til gróðursetningar á einkalöndum. Öll tré, sem rifin voru upp í Heiðmörk voru fjarlægð þaðan, í stað þess að búa sem best um þau á staðnum til gróðursetningar í Heiðmörk á ný. Þau virðast vera komin í einskonar svartamarkaðsdreyfingu. 19.2.2007 18:34
Hugsanleg samvinna nýtingu jarðvarma í Djíbútí Möguleiki á samvinnu íslenskra aðila og aðila frá Djíbútí við að nýta jarðvarma til orkuframleiðslu var ræddur á fundi utanríkisráðherra landanna í dag. Utanríkisráðherrarnir Valgerður Sverrisdóttir og Mahmous Ali Youssouf ræddu einnig stöðu kvenna og barna í Djíbútí og aðgerðir ríkisstjórnar landsins til að útrýma fátækt. 19.2.2007 18:05
Flughált á Breiðdalsheiði Vegagerðin varar við flughálku á Breiðdalsheiði. Þá eru víða hálkublettir á stöku stað á Norður- og Austurlandi. Á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku eru einnig hálkublettir hér og þar, en annars greiðfært um allt Suður- og Vesturland. Á vestfjörðum er hálka á hálsum og heiðum. 19.2.2007 18:03
Vilja hækkun lífeyrisbóta Félag eldri borgara í Reykjavík vill að lífeyrisbætur aldraðra verði hækkaðar úr 125 þúsund krónum á mánuði í 210 þúsund krónur og fylgi síðan launavísitölu. Félagið leggur mikla áherslu á fjölgun sambýla, leigu- og hjúkrunaríbúða og að málefni aldraðra verði alfarið flutt til sveitarfélaganna. 19.2.2007 17:48
Fær ekki að snerta bílinn eftir ölvunarakstur Tuttugu og fjórir ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina, langflestir í Reykjavík. Samkvæmt tilkynningu lögreglunnar í Reykjavík var um að ræða tuttugu karlmenn og fjórar konur. 19.2.2007 16:49
Lögregla og björgunarsveitir endurnýja samstarfssamning Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra og Neyðarlínan hafa skrifað undir nýjan samning við svæðisstjórn björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu. 19.2.2007 16:37
OR semur um jarðhitarannsóknir í Djíbútí Orkuveita Reykjavíkur mun starfa að þróun jarðhitasvæða til raforkuframleiðöslu í Djúbúti ásamt yfirvöldum þar samkvæmt samkomulagi sem undirritað var í dag. 19.2.2007 16:29
Síminn og Landsvirkjun viðurkenna samráð og borga sektir Síminn, Landsvirkjun og Fjarski ehf., sem er dótturfélag Landsvirkjunar, hafa gert sátt við Samkeppniseftirlitið og fallist á að hafa haft með sér ólögmætt samráð í tengslum við kaup Símans á eignarhlut í Fjarska og við kaup Símans á sex ljósleiðarastrengjum á milli Hrauneyjarfossstöðvar og Akureyrar. 19.2.2007 15:57
Stjórnarskránefnd þarf lengri tíma en vill breyta 79. greininni Stjórnarskrárnefnd undir formennsku Jóns Kristjánssonar hefur sent frá sér áfangaskýrslu með yfirlit yfir starf nefndarinnar undanfarin tvö ár. Nefndin segist þurfa lengri tíma til að ljúka heildarendurskoðun á stjórnarskránni eins og að var stefnt. 19.2.2007 15:46
Urðu ekki varir við olíuflekki úti fyrir Reykjanesi Starfsmenn Landhelgisgæsllunnar sem fóru í eftirlitsflug á flugvél Gæslunnar, TF-SYN, í dag á svæðinu frá Garðaskaga inn að Njarðvík urðu ekki varir við neina olíuflekki á svæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu Landhelgisgæslunnar. 19.2.2007 15:29
Vill ekki að klámiðnaður nái fótfestu hér á landi Geir H. Haarde forsætisráðherra lýsti þeirri skoðun sinni á Alþingi í dag að hann vildi ekki að klámiðnaðurinn næði fótfestu hér á landi. Með því tók hann undir orð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar, sem gerði fund fólks úr klámiðnaði hér á landi í byrjun marsmánaðar að umtalsefni í fyrirspurnartíma á Alþingi. 19.2.2007 15:17
Sat sinn fyrsta fund í þingflokknum í dag Forseti Alþingis las við upphaf þingfundar nú klukkan 15:00 tilkynningu um inngöngu Kristins H. Gunnarssonar í þingflokk Frjálslynda flokksins. Kristinn hefur skráð sig sem félaga í Frjálslynda flokknum og sat hann í dag sinn fyrsta formlega fund með þingflokknum. 19.2.2007 15:10
Virða þarf ferða- og fundafrelsi Frjálshyggjufélagið hefur sent frá sér ályktun vegna einhliða fréttaflutnings af væntanlegum fundi fólks úr klámiðnaðnum hérlendis. Þar kemur fram að virða þurfi frelsi fólks til að ferðast og eiga fundi. 19.2.2007 14:37
Höfnuðu beiðni Greenpeace um sýnatöku Greenpeace-samtökin vilja rannsaka magn eiturefna í hvalaafurðum. Beiðni þeirra til Sorpurðunar Vesturlands um sýnatöku á urðunarsvæði fyrirtækisins í Fíflholtum á Mýrum var hafnað í síðustu viku. Sorpurðun Vesturlands er í eigu sveitarfélaganna á Vesturlandi. 19.2.2007 13:59
Dæmd fyrir vörslu á hálfu kílói af amfetamíni Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu í sjö mánaða fangelsi, þar af fimm skilorðsbundna, fyrir að hafa haft í fórum sínum yfir hálft kíló af amfetamíni og um fimm grömm af hassi. Konan játaði brot sitt en bar fyrir dómi að hún hefði einungis haft amfetamínið í sinni vörslu í innan við sólarhring. 19.2.2007 13:52
Neitaði ásökunum um bókhaldsbrot Skýrslutaka af Tryggva Jónssyni, sem var aðstoðarforstjóri Baugs á árunum 1998-2002, hélt áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þar svaraði Tryggvi fyrir meint bókhaldsbrot sem kveðið er á um í 11.-13. og 17. ákærulið endurákærunnar í Baugsmálinu. Hann neitaði sök. 19.2.2007 13:35
Forseti Djíbútís kemur til landsins Forseti Djíbútís, Ismail Omar Guelleh, er væntanlegur hingað til lands nú eftir hádegið í svokallaða vinnuferð sem stendur fram á eftirmiðdag á morgun. Með honum í för eru utanríkisráðherra Djíbútís og sendinefnd skipuð embættismönnum og sérfræðingum á sviði jarðhitanýtingar. 19.2.2007 13:22
105 teknir fyrir hraðakstur í borginni um helgina Hundrað og fimm ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá henni. Allmargir þeirra óku á tvöföldum leyfilegum hámarkshraða. 19.2.2007 13:15
Fjölmenni á Þjóðahátíð Austurlands Austfirðingur héldu í gær sína árlegu Þjóðahátíð, í þetta sinn í Félagsheimilinu Skrúði Fáskrúðsfirði. Þetta er í fjórða sinn sem hátíðin er haldin eyrsta en þar kynna erlendir Austfirðingar menningu heimalands síns. 19.2.2007 13:15
Gengið frá kæru vegna rasks í Heiðmörk í kvöld Skógræktarfélag Reykjavíkur gengur formlega frá kæru á hendur Kópavogsbæ vegna jarðrasks í Heiðmörk, á aukastjórnarfundi félagsins í kvöld. Verktakafélagið Klæðning verður líka kært en það hefur annast framkvæmdir fyrir bæinn án framkvæmdaleyfis og valdið talsverðu jarðraski og gróðurskemmdum. 19.2.2007 13:00
Gæslan skoðar svæði þar sem olíublautir fuglar hafa fundist Í undirbúningi er að Landhelgisgæslan skoði í dag úr lofti hafsvæðið úti af Garðsskaga á Reykjanesi eftir að olíublautir sjófuglar fundust þar í hundraðatali um helgina. Umhverfisstofnun er að gera ráðstafanir til að fanga fugl til rannsóknar en ljóst er að olía hefur ekki borist upp í fjörur. 19.2.2007 12:45
Bolla, bolla, bolla Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að bolludagurinn er í dag. Fréttastofa Stöðvar 2 fór á stúfana og leitaði að bollum. 19.2.2007 12:30
Sætir geðrannsókn vegna íkveikju Kona er grunuð um að hafa kveikt í fjölbýlishúsi í Reykjavík í gærkvöldi og með því stofnað lífi og limum samborgara sinna í hættu. Konan hafði komið sér út og yfir í aðra íbúð en lét ekki vita af eldinum. Hún var í annarlegu ástandi þegar hún fannst og verður gert að gangast undir geðrannsókn. 19.2.2007 12:05
Skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu barnaklámsmynda Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu barnarklámsmynda. Myndirnar fundust í tveimur tölvum í eigu mannsins eftir að lögregla hafði gert húsleit hjá honum í september í fyrra. 19.2.2007 12:01
Átök innan Sjúkraliðafélags Íslands Átök eru innan Sjúkraliðafélags Íslands og hefur félagið klofnað í tvær fylkingar vegna afstöðu til nýrrar námsleiðar, sem gefur færi á styttra námi til sjúkraliða. Vegna málsins stefnir hópur óánægðra sjúkraliða að því að fella Kristínu Á. Guðmundsdóttur, sem stýrt hefur félaginu í rúma tvo áratugi, úr formannsembættinu. 19.2.2007 11:59
Jón Ásgeir spurður út í Thee Viking á fimmtudag Ákveðið hefur verið að ljúka skýrslutöku af Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs, í tengslum við endurákæru í Baugsmálinu á fimmtudaginn kemur en þá staldrar hann stutt við hér á landi. Þetta kom fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 19.2.2007 11:19
Fær bætur frá ríkinu vegna líkamsárásar Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag íslenska ríkið til þess að greiða karlmanni rúmar 2,6 milljónir króna í skaðabætur vegna líkamsárásar sem hann varð fyrir á veitingastað í höfuðborginni í febrúar fyrir fjórum árum. Lögregla var kölluð á vettvang en þá var árásarmaðurinn á bak og burt og fannst hann aldrei. 19.2.2007 10:57
Samfylkinguna hungrar í sigur í vor Núverandi stjórnarflokkar hafa eyðilagt velferðarkerfið, sem jafnaðarmenn voru í forystu um að byggja upp, og það þarf jafnaðarmenn til að endurreisa það, sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir á fjölmennum fundi flokksins um málefni aldraðra í dag. Hún sagði öll lið í keppni hungra í sigur og Samfylkinguna hungraði í sigur í kosningunum í vor. 18.2.2007 18:58
Klámsíðueigandi fyllist hryllingi Vestur-Íslendingur, sem hefur skráð sig á samkomu vefstjóra klámheimasíðna á Íslandi í næsta mánuði, segist fyllast hryllingi vegna þess fréttaflutnings sem verið hefur um samkomuna í íslenskum fjölmiðlum. Hann er hneykslaður á ummælum talskonu Stígamóta, borgarstjórans í Reykjavík og viðskiptaráðherra og minnir á að þau kunni að þurfa að standa við ásakanir um barnaklám og þrælahald fyrir dómstólum. 18.2.2007 18:51
Skólabókardæmi um margsvikin kosningaloforð Suðurstrandarsvegur er skólabókardæmi um margsvikin kosningaloforð, segir útgerðarmaður á Suðurlandi. Bæjarstjóri Ölfuss segir ekki hægt að búa við slík svik. 18.2.2007 18:44
Upp í kok af álkjaftæði Fólk er búið að fá upp í kok af þessu álkjaftæði, segir eldri borgari í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Félag eldri borgara á svæðinu lýsir þungum áhyggjum vegna fyrirhugaðra virkjanaframkvæmda í Þjórsá. Talsmenn félagsins segja þær andstæðar ungmennafélagsandanum. 18.2.2007 18:17
Tekur sjálfstæðar ákvarðanir Forseti íslands þarf ekki að bera neinar ákvarðanir undir Forsætisráðuneytið eða Utanríkisráðuneytið. Hann tekur sjálfstæðar ákvarðanir og sækir umboð sitt til þjóðarinnar en ekki stjórnvalda. Þetta sagði Ólafur Ragnar Grímsson í þættinum Silfri Egils í dag um gagnrýni Halldórs Blöndals þingmanns Sjálfstæðisflokksins á setu hans í þróunarráði Indlands. 18.2.2007 17:26
Þjóðhátíð Austurlands haldin í dag Í dag er Þjóðahátíð Austurlands haldin í fjórða skiptið í Félagsheimilinu Skrúði í Fáskrúðsfirði. Á þjóðhátíðinni kynna erlendir Austfirðingar menningu heimalands síns. Markmið hátíðarinnar er að styrkja samskipti og samgang, skilning og vináttu milli allra íbúa Austurlands. 18.2.2007 15:53
Embætti umboðsmanns aldraðra verði stofnað Velferð eldri borgara verði í öndvegi næsta kjörtímabil og stofnað verði embætti umboðsmanns aldraðra. Þetta eru áhersluatriði Samfylkingarinnar og samtakanna 60+ í málefnum eldri borgara. Í yfirlýsingu segir að lögð sé áhersla á mannsæmandi lífeyri, svigrúm til að auka tekjur án skerðingar tryggingabóta og sanngjarna skattlagningu aldraðra. 18.2.2007 15:31
Synjunarvald forsetans er vilji þjóðarinnar Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands segist vera sannfærður um það að yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga vilji halda í synjunarvald forsetans. Eðli stjórnmálanna sé þannig að völd fari oft í taugarnar á þeim sem vilji hafa þau sjálfir. Menn megi hinsvegar ekki gleyma því að grundvöllur íslenskrar stjórnskipunar sé að valdið sé hjá þjóðinni - ekki þinginu eins og til að mynda í Bretlandi. 18.2.2007 14:52