Fleiri fréttir

Átelja KR harðlega fyrir strippdans

Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur átelur harðlega að Knattspyrnufélag Reykjavíkur hafi keypt til sín skemmtiatriði sem gengur út á hlutgervingu og lítillækkun kvenna. Vísað er til karlakvölds KR á dögunum þar sem keypt var atriði frá Goldfinger sem fólst í því að bjóða upp föt af stúlkum sem stóðu loks uppi brjóstaberar frammi fyrir fullum sal af körlum í íþróttahúsi.

Eldur kom upp hjá Hringrás

Eldur kom upp í bát hjá Hringrás á ellefta tímanum í morgun. Verið var að rífa bátinn niður þegar eldurinn kom upp. Einn dælubíll frá slökkviliðinu í Reykjavík fór á staðinn og gengur slökkvistarf vel. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu er ekki talin hætta á að eldurinn breiðist út en fyrirtækið er á svokallaðri gjörgæslu þar sem á landi þeirra er mikið af eldfimum efnum.

Fagna að tekið sé á ofbeldi gagnvart lögreglu

Landssamband lögreglumanna fagnar niðurstöðum í tveimur nýföllnum dómum er varða ofbeldi gagnvart lögreglumönnum og segir að með þeim sé verið að gefa skýr skilaboð út í þjóðfélagið að ekki sé liðið að einstaklingar ráðist gegn lögreglu við skyldustörf. Dómarnir sem um ræðir eru annars vegar dómur Hæstaréttar í gær þar sem dómurinn tvöfaldaði refsingu hérðasdóms og dæmdi mann til þriggja ára fangelsisvistar fyrir líkamsárás

Reykjavíkurborg kærir Landsvirkjun

Reykjavíkurborg hefur kært Landsvirkjun til Samkeppniseftirlitsins fyrir að hafa ákveðið að taka Laxárvirkjun út úr Landsvirkjun á undirverði og færa hana í fyrirtæki í eigu ríkisvaldsins. Landsvirkjun ákvað þetta 13. janúar síðast liðinn en hvort tveggja borgarráð og borgarstjórn gerðu athugasemdir við að meirihlutaeigandi Landsvirkjunar, ríkisvaldið, hafi beitt afli sínu til að taka eigir út úr rekstri Landsvirkjunar.

Halli á vöruskiptum við útlönd

Vöruskiptajöfnuður var 9,5 milljörðum lakari fyrstu tvo mánuði ársins en á sama tíma í fyrra og nam hallinn á vöruskiptum við útlönd nú 18,6 milljörðum. Fluttar voru út vörur að verðmæti tæplega 29 milljarða fyrstu tvo mánuði ársins og var langstærstur hluti þeirra sjávarafurðir sem námu 59 prósentum alls útflutnings.

Sundabraut verði fjórar akreinar

"Aldrei hefur annað verið í umræðunni en að Sundabraut verði fjórar akreinar" segir í yfirlýsingu sem íbúasamtök Grafarvogs hafa sent frá sér. Í yfirlýsingunni kemur enn fremur fram að öll vinna samtakanna hefur miðast við þetta og að þeirra mati eigi að hraða sem kostur er að leggja brautina alla leið upp á Kjalarnes.

Sinueldar loga enn glatt víða á Mýrum í Borgarfirði

Sinueldar loga enn glatt víða á Mýrum í Borgarfirði og hafa bændur átt annríkt við að bjarga hrossum úr beitarhólfum, undan eldinum, og verja hús sín með því að sprauta vatni úr haugsugum. Slökkviliðsmenn, sem höfðu barist við elda á Mýrum og í Reykholtsdal frá því í gærmorgun tóku sér hvíld í nótt þegar vind hæðgi, en lögreglumenn og bændur hafa verið á þönum í alla nótt til að varna þess að eldarnir nálgist mannvirki. Bændur hafa meðal annars dælt vatni með haugsugum.

Olíuverð er á hraðri uppleið

Olíuverð er aftur á hraðri uppleið og í gær fór verðið á fatinu upp í rúmlega sextíu og sex dollara og hefur ekki verið hærra í tvo mánuði.

Nokkuð um sinuelda

Lögreglan í Hafnarfirði hefur verið kölluð út þrisvar í kvöld vegna sinuelda. Eldarnir hafa þó allir verið með minna móti og hafa lögreglumenn getað slökkt eldinn með lítilli fyrirhöfn. Mikið hefur verið um að sinueldar hafi verið kveiktir síðustu daga.

Hollvinasamtök skattgreiðenda stofnuð í dag

Hollvinasamtök skattgreiðenda voru stofnuð í dag en markmið þeirra er að standa vörð um hagsmuni skattgreiðenda. Hátt á þriðja tug manna höfðu skráð sig í samtökin nú síðdegis.

Fasteignagjöld hafa hækkað um allt að 64 prósent

Álögur stærstu sveitarfélaga landsins á íbúðarhúsnæði hafa hækkað langt umfram almennar verðlagsbreytingar síðustu þrjú árin segir í nýrri skýrslu ASÍ. Þetta gerist þrátt fyrir yfirlýsingar ráðamanna að um að álagningarprósenta fasteignagjalda lækki vegna hækkunar fasteignamats.

Umgengni um borgina ábótavant

Umhverfissvið Reykjavíkurborgar hefur hafið síðasta liðinn í átakinu Virkjum okkur en markmið þess er að fá fólk til að huga að umgengni um borgina sem víða er ábótavant. Árlega fara um 23 milljónir króna í hreinsun borgarinnar.

Dæmdur í þriggja ára fangelsi

Tuttugu og sjö ára karlmaður var dæmdur í þriggja ára fangelsi í Hæstarétti í dag, fyrir hættulega líkamsárás, líflátshótanir við lögreglu og vörslu fíkniefna.

Lýst eftir vitni vegna mannráns

Lögreglan í Keflavík lýsir eftir ökumanni Land-Rover jeppa sem aðfaranótt síðasta sunnudags ók framhjá manninum rænt var af heimili sínu í Garðinum. Ökumaðurinn ók framhjá manninum á Biskupstungnabraut eða Laugarvatnsvegi á öðrum tímanum þá nótt og veitti honum athygli án þess þó að stöðva bifreið sína.

OR samþykkir að kanna orkusölu til Helguvíkur

R-listaflokkarnir klofnuðu innan stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur nú síðdegis þegar stjórnin gaf grænt ljós á að stefna að raforkusölu til álvers í Helguvík. Fulltrúi vinstri grænna, sem var einn á móti, segir niðurstöðuna í andstöðu við samþykkt flokkanna í fyrra.

Hálka fyrir norðan, austan og vestan

Hálka er á Vestfjörðum, Norðurlandi og Norðausturlandi og éljagangur að auki á Vestfjörðum og Norðausturlandi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Miklir sinueldar á Mýrum

Um fimmtán slökkviliðsmenn hafa barist við sinuelda á Mýrum í Borgarfirði síðan um klukkan 9 í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu í Borgarnesi er nú brunnið um 80 ferkílómetra svæði.

Ekið á tíu ára pilt

Ekið var á tíu ára pilt á reiðhjóli í Vestmannaeyjum á þriðja tímanum í dag. Pilturinn brákaðist en meiðsl hans voru talin minniháttar.

Leikskólagjöld lækka um 30 prósent

Bæjarráð Kópavogs samþykkti á fundi sínum í dag að lækka leikskólagjöld um 30 prósent. Í tilkynningu frá Kópavogsbæ um ákvörðunina segir að þessi ákvörðun sé tekin með hliðsjón af góðum rekstri bæjarsjóðs. Þar segir enn fremur að eftir þetta verði Kópavogur það stóru sveitarfélaganna þar sem verður ódýrast að búa fyrir barnafjölskyldur.

Ekki tímabært að afnema verðtryggingu lána

Stefna ber að því til lengri tíma litið að afnema verðtryggingu lána hér á landi en það er ekki hægt nú vegna þeirra sveiflna sem eru í þjóðfélaginu. Þetta sagði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra við utandagskrárumræðu um aukningu á skuldum þjóðarbúsins í dag.

Greiði 34 milljónir hvor um sig

Tveir menn voru í dag dæmdir fjögurra mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar og til greiðslu 34 milljóna króna hvor um sig í sekt til ríkissjóðs. Mennirnir voru fundnir sekir um að hafa ekki staðið skil á greiðslu vörsluskatta og opinberra gjalda þegar þeir stýrðu fyrirtækinu Merkingu.

Dæmdur fyrir fjárdrátt

Fyrrum framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfirðinga var í dag dæmdur í Hæstarétti til eins árs fangelsisvistar fyrir að hafa dregið að sér samtals sautján milljónir króna úr sjóðum sambandsins. Níu mánuðir af tólf eru skilorðsbundnir.

Samningur Ríkiskaupa við Shell og Esso framlengdur

Ríkiskaup hafa ákveðið að framlengja samning sinn við Shell og ESSO um kaup á eldsneyti, olíu og öðrum rekstrarvörum fyrir ökutæki og vélar ríkisins. Að sögn Júlíusar Ólafssonar, forstjóra Ríkiskaupa, var sú ákvörðun tekin í gær, en um er að ræða seinna framlengingarár á samningi við olíufélaganna frá árinu 2003 sem gerður var eftir útboð.

Þrjú ár fyrir árás með hafnaboltakylfu

Hæstiréttur dæmdi Hákon Örn Atlason í dag til þriggja ára fangelsisvistar fyrir hættulega líkamsárás með hafnaboltakylfu, brot gegn valdstjórninni með því að hóta lögreglufulltrúa og fjölskyldu hans ofbeldi og lífláti og vörslu á 63 grömmum af hassi.

Dæmdur fyrir nauðgun

22 ára gamall karlmaður var í dag dæmdur til eins árs fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot gegn nítján ára stúlku. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að maðurinn hefði notfært sér ölvun stúlkunnar og svefndrunga til að hafa við hana samræði eða önnur kynferðismök.

Hafa ekki haft uppi á árásarmönnum

Enn hefur ekkert skýrst um hverjir það voru sem numu karlmann á sjötugsaldri af heimili sínu í Garðinum fyrir rúmri viku. Lögregla hefur rætt við vitni sem sá bílinn en það hefur ekki dugað til að finna hina seku.

Verða að afhenda skattstjóra upplýsingar

Viðskiptabankarnir þrír verða að afhenda skattstjórum sundurliðaðar upplýsingar um öll viðskipti bankanna með hlutabréf og og þá sem viðskiptunum tengdust á árinu 2003.

Samþykkt með þriggja atkvæða mun

Félagsráðgjafar hjá Reykjavíkurborg samþykktu nýgerðan kjarasamning sinn við borgina með aðeins þriggja atkvæða meirihluta. 32 af 63 sem greiddu atkvæði um samninginn sögðu já við honum en rétt tæplega helmingur, 29, greiddu atkvæði gegn honum.

Glitnir og Landsbankinn hækka vexti

Bankastjórn Landsbankans hefur ákveðið að hækka vexti íbúðalána um 0,25 prósentustig og verða þeir nú 4,7 prósent. Ákvörðunin er tekin eftir að Seðlabankinn tilkynnti um 0,75 prósenta hækkun stýrivaxta í morgun.

200 færri á biðlistum LSH

Tvö hundruð færri eru á biðlista eftir skurðaðgerðum á Landspítalanum nú en á sama tíma í fyrra. Þá sýnir bráðabirgðauppgjör fyrir fyrstu tvo mánuði ársins að rekstur spítalans er í jafnvægi.

Áfellisdómur yfir stjórnsýslu Póst- og fjarskiptastofnunar

Úrskurðarnefnd um fjarskipta- og póstmál hefur úrskurðað í ágreiningsmáli Símans og Póst- og fjarskiptastofnunar vegna rekstrargjalds sem stofnunin lagði á Símann. Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að Póst- og fjarskiptastofnun hefði brotið gegn jafnræðisreglu Stjórnarskrár Íslands, helstu meginreglum stjórnsýslulaga og lögum sem gilda um Póst- og fjarskiptastofnun.

Búgarðabyggð í Árborg og Ölfusi

Tveir landeigendur í sveitarfélaginu Árborg og Ölfusi bjóða fólki að byggja búgarða, með aðstöðu fyrir útihús og skepnur. Þetta hentar vel fólki sem vill búa í sveit, en þó nálægt þéttbýli. Alls er boðið upp á um eitt hundrað lóðir á um þúsund hekturum.

Hótel Örk yfirtekur rekstur Hótels Hlíðar í Ölfusi

Örkin veitingar ehf. rekstaraðili Hótels Arkar hefur tekið yfir rekstur Hótels Hlíðar í Ölfusi, sem áður var rekið undir merkjum Fosshótela. Hótel Hlíð er 6 km sunnan við Hveragerði og var opnað í janúar 2003.

Sendinefnd Bandaríkjamanna komin til landsins

Háttsett sendinefnd frá bandaríska utanríkisráðuneytinu, varnarmálaráðuneytinu og aðilar frá höfuðstöðvum Evrópudeildar Bandaríkjahers í Stuttgart er komin til Íslands til að sitja fund um tvíhliða varnarviðræður Íslands og Nefndin mun ræða hvernig vörnum Íslands verður háttað í framtíðinni.

Landið fýkur burt

Moldrok ágerist nú með hverjum deginum ofan af Haukadalsheiði og hálendinu þar fyrir ofan, yfir Gullfoss- og Geysissvæðið og austanverðar Biskupstungur. Snjókoman, sem verið hefur á Norðurlandi, nær ekki suður á sunnanvert hálendið, svo þar skrælþornar jarðvegur og fýkur í minnsta vindi. Nokkur norðanstrekkingur hefur hinsvegar verið á svæðinu í nokkra daga og segja heimamenn að moldrokið nú sé með mesta móti, miðað við undanfarin ár, sem veit á mikinn uppblástur gróðurlendis

Vilja að ríkið bjóði út eldsneyti

Framkvæmdastjóri Atlantsolíu segir Ríkiskaup ekki vilja ræða við fyrirtækið um hugsanlegt útboð á eldsneytiskaupum fyrir ríkið. Hann segir undarlegt að ríkið vilji áfram eiga viðskipti við stóru olíufélögin í ljósi þess að ríkisstjórnin hafi ákveðið að leita réttar síns vegna meints ólöglegs samráðs þeirra.

MS flytur og störfum fækkar

Starfsmönnum Mjólkursamsölunnar í Reykjavík mun fækka um fjörutíu á næstunni, þegar mjólkurpökkunin verður flutt austur á Selfoss í Mjólkurbú Flóamanna, að því er Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar tilkynnti á starfsmannafundi í morgun.

Ráðherrar neita ábyrgð

Hvorki heilbrigðisráðherra né fjármálaráðherra segjast bera ábyrgð á kjarasamningum við starfsfólk á hjúkrunarheimilum, sem fór í setuverkfall í gær. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði á Alþingi í morgun að fjármálaráðherra gæti ekki hlaupist undan ábyrgð í þessu máli.

Skemmdarverk í Vogum

Þrjár rúður voru brotnar í nótt í flutningabíl sem flytja átti stóran tank frá Vogum á Vatnsleysuströnd til álversins á Grundartanga. Bíllinn hefur staðið ferðbúinn alla vikuna með tankinn en ekki getað lagt af stað vegna vinds. Skemmdarverkin koma sér mjög illa vegna þess að erfitt er að flytja bílinn til þess að láta laga rúðurnar. Málið er í rannsókn.

Sjá næstu 50 fréttir