Innlent

Olíuverð er á hraðri uppleið

Olíuverð er aftur á hraðri uppleið og í gær fór verðið á fatinu upp í rúmlega sextíu og sex dollara og hefur ekki verið hærra í tvo mánuði. Ástæðan er aðallega hörð viðbrögð stjórnvalda í Íran við ályktun öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna. Sérfræðingar telja að þess verði ekki langt að bíða að verðið á fatinu nái sjötíu dollurum, sem er hæsta verð sem það hefur náð hingað til. Þessa er þegar farið að gæta hér á landi því Essó hækkaði bensínverð í gær og er bensínlítrinn kominn upp í röskar 119 krónur á stöðvum með fulla þjónustu, sem er álíka og hámarkið, sem það náði í águst í fyrra



Fleiri fréttir

Sjá meira


×