Fleiri fréttir

Tekinn á 146 kílómetra hraða

Lögreglan í Keflavík stöðvaði ökumann á Grindavíkurvegi eftir að bifreið hans hafði mælst á 146 kílómetra hraða. Hámarkshraðinn er hins vegar 90 kílómetrar á klukkustund. Tveir ökumenn voru svo kærðir fyrir ölvun við akstur.

Sameining felld í Eyjafirði

<font size="1"><strong> </strong></font><font size="3">Sameining sveitarfélaga í Eyjafirði var felld á Akureyri á laugardaginn. </font>>

Innbrot í Mosfellsbæ

Um klukkan sjö í gærmorgunn var lögreglunni í Reykjavík tilkynnt um mann sem hafði ætt inn í íbúðarhús að Furubyggð í Mosfellsbæ. Maðurinn sem var í annarlegu ástandi veittist að heimilisfólkinu og virtist vera búinn að tapa öllu veruleikaskini. Húsráðendur náðu að buga manninnn og héldu honum niðri þar til lögregla kom á staðinn.

Bruni á veitingastaðnum KFC

Eldur kom upp á veitinastaðnum KFC í Faxafeni aðfararnótt sunnudags. Tilkynnt var um brunann um klukkan þrjú og var allt tiltækt lið slökkviliðsins kallað á staðinn. Greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins sem var staðbundinn í eldhúsi en töluverðar skemmdir urðu á húsinu vegna elds, hita og reyks.

Fjöltefli í ráðhúsinu

Skákfélagið Hrókurinn og Vin, athvarf Rauða krossins fyrir geðfatlaða, efndu til skákhátíðar í ráðhúsi Reykjavíkur í gær. Tilefnið var alþjóða geðheilbrigðisdagurinn sem haldinn er hátíðlegur dagana 4. til 10. október.

Rólegt hjá lögreglu í nótt

Tiltölulega rólegt var hjá lögreglunni um land allt að öðru leyti á landinu í nótt en maður var þó stöðvaður grunaður um ölvun við akstur á Selfossi á fjórða tímanum í nótt.

Sameiningarkosningar í dag

Þriðjungi kosningabærra manna í landinu gefst færi á að kjósa um sameiningu sveitarfélaga í dag. Kosið er um 16 sameiningartillögur í 61 sveitarfélagi í öllum landshlutum.

Skallaði hurð

Lögreglan í Reykjanesbæ handtók karlmann á þrítugsaldri í gærkvöldi en á honum fannst amfetamín og töflur sem taldar eru E-töflur að sögn lögreglunnar.

Hóta verkfalli

Sjúkraliðar hóta verkfalli á elli- og hjúkrunarheimilum. Á fundi sjúkraliða sem starfa hjá Samtökum fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu í gær var lýst megnri óánægju með hve lengi hafi dregist að ganga frá kjarasamningum.

Vill fimm milljónir

Jónína Benediktsdóttir hefur stefnt Fréttablaðinu fyrir að birta upplýsingar upp úr einkatölvupósti sem Fréttablaðið hafði undir höndum.

Sameiningarkosningar í dag

Kosið er um 16 sameiningartillögur í 61 sveitarfélagi í dag. Ólíklegt þykir að af sameiningu verði flestum þessara staða en bæjarstjórar og oddvitar hafa margir hverjir verið duglegir við að hvetja sitt fólk til að kjósa gegn sameiningu.

Trúfélög fá 40 milljónir aukalega

Þjóðkirkjan og önnur trúfélög fá fjörutíu og einni milljón króna meira í sóknargjöld frá ríkinu í ár en gert var ráð fyrir á fjárlögum ársins. Þar var gert ráð fyrir að sóknargjöld næmu sextán hundruð og þrjátíu milljónum króna.

Misstu mótorinn í sjóinn

Neyðarkall barst frá litlum báti sem staddur var um þrjá kílómetra suður af Gróttu laust eftir hádegið í dag.

Ofstopafullar atlögur stjórnar

Ólína Þorvarðardóttir, skólameistari Menntaskólans á Ísafirði, segist í grein á vef Bæjarins besta ekki geta orða bundist vegna yfirlýsingar stjórnar Félags framhaldsskólakennara sem hún kallar „ákæruskjal" gegn sér.

Stefnir í verkfall annað kvöld

Viðræður um nýjan kjarasamning starfsmanna Akranesbæjar eru á viðkvæmu stigi segir Valdimar Þorvaldsson, formaður Starfsmannafélags Akraness.

Fáir hafa kosið í Reykjanesbæ

Kjörsókn vegna sameiningarkosninganna á Suðurnesjum hefur verið afar dræm í Reykjanesbæ. Klukkan þrjú höfðu 5,4 prósent íbúa kosið að sögn Ottós Jörgensens, formanns kjörstjórnar. Þá voru sex klukkutímar liðnir síðan kjörstaðir opnuðu. Rétt fyrir fjögur hafði hins vegar rúmur fjórðungur atkvæðabærra manna í Garðinum kosið.

Eldur í Smáralind í nótt

Eldur kom upp í plastdrasli við veitingastað Pizza Hut í Smáralind laust fyrir klukkan tvö í nótt. Öryggisverðir urðu varir við eldinn og náðu að slökkva hann áður en slökkvilið kom á staðinn.

Fáir kjósa í stórum sveitarfélögum

Kjósendur fámennari sveitarfélaga eru mun viljugri til að mæta á kjörstað en íbúar stærstu sveitarfélaganna í sameiningarkosningunum. Búið er að loka kjörstað í Mjóafirði, fámennasta sveitarfélagi landsins. Þar höfðu sjötíu og átta prósent kjósenda greitt atkvæði, eða allir þeir sem gátu og vildu kjósa eins og Mjófirðingar orðuðu það.

Rauði krossinn í viðbragðsstöðu

Rauði krossinn á Íslandi er í viðbragðsstöðu vegna jarðskjálftanna í Pakistan, Afganistan og Indlandi síðustu nótt. Reynist þörf á aðstoð er Rauði kross Íslands reiðubúinn að veita þá aðstoð sem eftir verður leitað.

Meiri pening þarf í fæðingarorlof

Sex milljarðarnir sem ætlaðir voru til að greiða foreldrum laun í fæðingarorlofi þetta árið duga ekki til. Farið er fram á 350 milljóna króna aukafjárveitingu í frumvarpi til fjáraukalaga og byggir sú beiðni á endurskoðaðri útgjaldaáætlun Fæðingarorlofssjóðs.

Ölvaður og keyrði glannalega

Lögreglumenn stöðvuðu ökumann eftir að hann tók fram úr bíl á Reykjanesbraut á miklum hraða og glannalegan hátt. Þegar lögreglumenn fóru að tala við ökumanninn kom í ljós að hann keyrði ekki aðeins hratt og glannalega heldur var hann einnig ölvaður.

Vilja skattfrjálsan grunnlífeyri

Eldri borgarar í Kópavogi krefjast þess af stjórnvöldum að grunnlífeyrir ellilífeyris verði undanþeginn tekjuskatti. Ályktun þessa efnis var samþykkt á félagsfundi í Félagi eldri borgara í Kópavogi í dag. Þar segir að þetta séu sjálfsagðar mannréttindakröfur eldri borgara.

Kosningaþáttaka misgóð í Eyjafirði

Kosningaþátttaka í sameiningarkosningunum á Eyjafjarðarsvæðinu er misgóð eftir sveitarfélögum. Í stærsta sveitarfélaginu, Akureyri, er þáttakan minni en í sameiningarkosningunum 1993 en þá var hún 36 prósent.

Slys á Hellu

Kona og maður á sjötugsaldri voru flutt á sjúkrahúsið á Hellu eftir að jeppi með pallhýsi sem þau voru farþegar í keyrði út af veginum á Hvolsvelli upp úr klukkan níu í gærmorgun. Brákaðist konan á fæti. Fengu þau bæði að fara heim að lokinni skoðun.</font />

Gúmmíbátur vélarvana

Lítill gúmmíbátur með tveimur mönnum um borð varð vélarvana um þrjá kílómetra suðvestur af Gróttu upp úr klukkan eitt í gær.

Rúta út af vegi

Kalla þurfti á björgunarsveit þegar rúta með 50 grunnskólabörn frá Höfn í Hornafirði fór út af veginum við Oddsskarð, Eskifjarðarmegin, um tíuleytið í fyrrakvöld. Engin slys urðu á farþegunum.

Eldur í Smáralind

Allt tiltækt slökkvilið var kallað í Smáralind upp úr klukkan hálftvö í fyrrinótt eftir að tilkynnt var um að eldur hefði komið upp á veitingastaðnum Pizza Hut.

1,3 milljónir söfnuðust

1,3 milljónir króna söfnuðust á vel heppnuðum styrktartónleikum sem voru haldnir fyrir strætóbílstjórann Björn Hafsteinsson sem missti báða fætur í alvarlegu bílslysi í lok ágúst.

Sameining eina skynsamlega leiðin

Alls var kosið um sextán sameiningartillögur í sextíu og einu sveitarfélagi víðs vegar um landið í dag. Þótt líklegt þyki að margar þeirra verði felldar, segir félagsmálaráðherra sameiningar einu skynsamlegu lausnina og aðeins sé tímaspursmál hvenær af þeim verði.

Skiptar skoðanir fyrir austan

Á Norðausturhorninu verður kosið um sameiningu Skeggjastaðahrepps og Vopnafjarðar, og á MiðAusturlandi um sameiningu Mjóafjarðar, þar sem fæstir eru á kjörskrá eða 38 manns, Fjarðabyggðar, Austurbyggðar og Fáskrúðsfjarðarhrepps.

Nýr vegur opnaður

Nýi vegurinn um Svínahraun var opnaður í dag. Vegarkaflinn er um fimm kílómetrar að lengd og styttist hringvegurinn um tæpan kílómetra. Með nýja veginum heyra tvær hættulegar beygjur sögunni til.

Enginn beigur í friðargæsluliðum

Ekki er talin mikil hætta á, að árás verði gerð á íslensku friðargæsluliðana sem hefja störf í Afganistan í vikunni. Hópurinn verður við störf í landinu næstu fjóra mánuði. Íslensku friðargæsluliðarnir fara til Osló á miðvikudag og þaðan með norska hernum til Kabúl í Afganistan.

Vill hætta við skattalækkanir

Formaður Samfylkingarinnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, vill hætta við skattalækkanir sem ríkisstjórnin hefur boðað til og nota þá fjármuni til að lækka matarskattinn sem hefði áhrif á vísitölu neysluverðs.

Förufálki í Húsdýragarðinum

Lítill förufálki er nú til sýnis í Húsdýragarðinum, en förufálkar eru afar sjaldgæfir hér við land. Fálkinn örmagnaðist á hafi úti á leið sinni frá Grænlandi suður um höf, en var svo heppinn að vera bjargað um borð í íslenskt skip í stað þess að hverfa í öldurnar. </font />

Svipting ferðafrelsis ómannúðleg

Rauði kross Íslands segir ómannúðlegt að svipta alla hælisleitendur ferðafrelsi, eins og hugmyndir eru uppi um, vegna þess að einhverjir glæpamenn kunni að misnota kerfið. Rauði krossinn mun lýsa áhyggjum sínum af þessu viðhorfi við stjórnvöld.</font />

Fellt í Vestur-Barðastrandarsýslu

Ekkert verður af sameiningu Tálknafjarðar og Vesturbyggðar í eitt sveitarfélag. Þetta er ljóst eftir að íbúar beggja sveitarfélaga höfnuðu sameiningartillögunni. 72 prósent kjósenda í Tálknafirði höfnuðu sameiningu og 58 prósent kjósenda í Vesturbyggð.

Ekki hjálparsveit til Pakistan

Rauði Kross Íslands mun að öllum líkindum ekki senda hjálparsveitir til Pakistans. Þetta er vegna þess að pakistönsk stjórnvöld hafa ákveðið að þiggja hjálp frá þeim þjóðum sem hafa bein stjórnmálatengsl við landið. Hjálparsveitir fara frá Bretland, Japan og Þýskalandi til Pakistan í kvöld.

Ein sameiningartillaga samþykkt

Kjósendur í fjórum sveitarfélögum á Austfjörðum samþykktu tillögu um að sameina sveitarfélögin og urðu þar með fyrstir, og enn sem komið er einir, til að samþykkja sameiningartillögu. Mjóifjörður, Fjarðarbyggð, Austurbyggð og Fáskrúðsfjarðarhreppur sameinast því í eitt sveitarfélag. Fjórtán sameiningartillögum hefur verið hafnað.

Fólk með lífsskrá gefur líffæri

Milli fimmtíu og sextíu manns hafa nú lagt inn undirritaða lífsskrá hjá landlæknisembættinu þar sem þeir lýsa yfir hinsta vilja sínum. Flestir þeirra vilja gefa líffæri sín að sér gengnum.

Vill upplýsingar um sendiherra

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, hefur lagt fram fyrirspurn til Geirs H. Haarde utanríkisráðherra vegna skipana sendiherra frá árinu 1995. Sigurjón vill vita hversu margir af þeim sendiherrum sem skipaðir hafa verið hafi fengið embættið eftir störf í utanríkisþjónustunni og hversu margir hafi verið skipaðir í stöðu sendiherra eftir störf á öðrum vettvangi.

Sluppu ómeidd úr eldsvoða

Eldur kom upp í húsi við Hvanneyrarbraut á Siglufirði laust fyrir klukkan fimm í morgun. Eldurinn kviknaði í kjallara en barst fljótlega upp á hæðina fyrir ofan. Tvennt var í húsinu og bæði komust ómeidd út af sjálfsdáðum.

Samningar náðust um endurreisn

Samningar hafa náðst milli KEA, fjárfestingafélagsins Sjafnar og Sandblásturs og málmhúðunar um að félögin leiti leiða til að endurreisa rekstur Slippstöðvarinnar á Akureyri með samningum við þrotabú og aðra eigendur tækja og húsnæðis. Skiptastjóri búsins segir erfitt að segja til um hvenær samningar náist. 

178 hluthafar í Skúlason Ltd

Hundrað sjötíu og átta hluthafar eru í breska fyrirtækinu Skúlason Limited sem á meirihluta í Skúlason ehf. Það félag sætir nú rannsókn bresku lögreglunnar vegna gruns um peningaþvætti.

Sjá næstu 50 fréttir