Fleiri fréttir

Írarnir hafa ekki sótt um leyfi

Hópur Íra, sem gripinn hefur verið við ólöglega sölu ýmiss varnings hér á landi undanfarið, virðist ekki hafa ráðið bót á sínum málum. Á meðal þess sem mennirnir hafa boðið til sölu eru rafstöðvar, borvélar og háþrýstidælur.

Sýknaður af 94 milljóna kröfu

Arngrímur Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri Atlanta, var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun af skaðabótakröfu upp á 94 milljónir króna. Sækjandi í málinu, sem er norskur athafnamaður, stefndi Arngrími á þeim forsendum að hann hafi skuldbundið sig til að gerast aðili að fyrirtæki stefnanda, Scandinavian Historic Flight, og til að leggja tiltekna fjármuni til félagsins.

Einn áfram í haldi lögreglu

Lögregla hefur farið fram á að einn þremenninganna, sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar líkamsárásar í Garðabæ aðfaranótt sunnudags þar sem sveðjum var m.a. beitt, verði áfram í gæsluvarðhaldi. Tveimur félögum mannsins var sleppt úr gæsluvarðahaldi í dag.

Uppgreiðslugjald áfram heimilt

Lánastofnunum verður áfram heimilt að innheimta uppgreiðslugjald þegar lán eru greidd upp, samkvæmt úrskurði Samkeppnisstofnunar. Í september í fyrra sendu Neytendasamtökinn erindi til Samkeppnisstofnunar og kröfðust úrskurðar því Neytendasamtökin og einnig ASÍ héldu því fram að uppgreiðslugjald stæðist ekki lög um neytendalán. Samkeppnisráð komst þá að því að ekkert í ákvæðum laga um neytendalán gerði bönkum óheimilt að krefjast gjaldsins.

Slysavarnarskóli sjómanna 20 ára

Slysavarnaskóli sjómanna fagnar í dag tuttugu ára afmæli sínu. Það var Slysavarnarfélag Íslands, sem nú heitir Slysavarnarfélagið Landsbörg, sem setti skólann á laggirnar. Skólinn sinnir allri öryggisfræðslu fyrir sjómenn.

S-hópurinn með vænlegasta tilboðið

Í skýrslu HSBC um sölu Búnaðarbankans kemur fram að einn helsti kosturinn við tilboð S-hópsins væri aðkoma Societe Generale eða álíka alþjóðlegs fjárfestis. Án hans hefði S-hópurinn samt sem áður þótt álitlegri kostur en Kaldbakur.

Verkfalli á Akranesi ekki frestað

Fyrirhuguðu verkfalli Starfsmannafélags Akraness sem hefjast á á miðnætti á sunnudag verður ekki frestað. Þetta varð niðurstaða fundar trúnaðarmanna nú eftir hádegið, en bæjarráð Akraness hafði í gær skorað á starfsmannafélagið að fresta verkfallinu um viku.

Ófremdarástand í Ártúnsbrekku

Ragnar Sær Ragnarsson, frambjóðandi í prófkjöri sjálfstæðismanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík, fer heldur óvenjulega leið til að vekja athygli á hinni miklu umferð sem fer um Ártúnsbrekkuna. Hann hyggst dreifa upplýsingum um umferðina til ökumanna við umferðarljósin til móts við Suðurlandsveg upp úr klukkan fjögur í dag.

Eigendur beita sér ekki

Kristinn Björnsson og fjölskylda hans á stærri hlut í Morgunblaðinu en Baugur í Fréttablaðinu, 36 prósent á móti 32 prósentum Baugs. Stærstu eigendur þessara miðla segjast ekki beita sér varðandi efnistök þeirra.

Stóru olíufélögin lækka verð

Öll stóru olíufélögin hafa lækkað verð á bensíni um eina krónu á lítra í dag. Ástæða lækkunarinnar er lækkandi heimsmarkaðsverð, en verð á hráolíu lækkaði í gær, fimmta daginn í röð, og er nú komið niður í rétt rúmlega sextíu og einn dollara á fatið.

Varnir í sjávarútvegi að bresta

Varnir í sjávarútvegi eru að bresta vegna hás gengis krónunnar og enginn á að leyfa sér að líta fram hjá því. Þetta sagði Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra í ræðu sinni á fundi samtaka fiskvinnslustöðva í dag.

270 milljónir í sendiráðin

Sendiráð Íslands fá rúmlega 270 milljóna króna aukaframlag á fjáraukalögum. Á fjárlögum ársins sem samþykkt voru í desember í fyrra var gert ráð fyrir að kostnaður við sendiráðin næmi um 1.700 milljónum króna. Aukningin nú nemur því sextán prósentum af því sem gert var ráð fyrir að rekstur sendiráðanna kostaði.

Haldið í gömlu klisjuna

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, gefur lítið fyrir orð Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra um að hann hefði haft aðra afstöðu til innrásarinnar í Írak, hefðu menn vitað fyrir að þar væri engin gjöreyðingarvopn að finna.

Sýknaður af 94 milljóna kröfu

Fyrrverandi forstjóri Atlanta, Arngrímur Jóhannsson, var sýknaður af 94 milljón króna kröfu norsks eiganda flugfélags í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

VÍS sýknað

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Vátryggingafélag Íslands af 29 milljóna króna bótakröfu þrítugrar konu í gær.

Dæmdur fyrir fjársvik

Fimmtíu og níu ára gamall maður var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi til þriggja ára fyrir fjársvik.

Lækkanir að mestu gengnar til baka

Verðlækkanir á matvöru á fyrri hluta ársins hafa að stóru hluta gengið til baka, að því er fram kemur á heimasíðu Alþýðusambands Íslands.

Gæsluvarðhald framlengt

Gæsluvarðhald yfir manni sem sakaður er um alvarlega líkamsárás í Garðabæ aðfaranótt sunnudags, hefur verið framlengt til 2. desember næst komandi. Gæsluvarðhaldsúrkurður yfir honum og tveimur félögum hans rann út í dag og var félögunum tveimur sleppt en krafist lengra gæsluvarðhalds yfir manninum fyrir Héraðsdómi Reykjaness, sem féllst á beiðni lögreglu.

Tillögur um viðbrögð samþykktar

Mikilvægt er að bráðabirgðarniðurstöður á endurskoðaðrar viðbúnaðaráætlunar, vegna hugsanlegs heimsfaraldurs fuglaflensu, liggi fyrir sem fyrst. Ríkisstjórn Íslands samþykkti í dag tillögur um viðbrögð og aðgerðir ef fuglaflensufaraldur fer á stað.

Þjóðleikhúsið fær mest

Lista- og menningarstofnanir fá fjögur hundruð og þrjátíu milljónir króna á fjáraukalögum samkvæmt frumvarpi fjármálaráðherra. Mest rennur til Þjóðleikhússins, sem fær annars vegar tvö hundruð og fimmtíu milljónir vegna endurbóta og viðhalds, og hins vegar tuttugu og fimm milljónir vegna hallareksturs.

Akureyri fær mest úr jöfnunarsjóði

Akureyrarkaupstaður fær allra sveitarfélaga mest greitt úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga samkvæmt tillögu ráðgjafarnefndar sjóðsins. 192 milljónir renna til Akureyrar, næst kemur Reykjanesbær með 109 milljónir króna. Þessi tvö sveitarfélög fá því um 300 milljónir króna samanlagt eða þriðjung þess fjár sem jöfnunarsjóður sveitarfélaga úthlutar.

Vilja sameina Hlíðarnar

Nokkrir íbúar í Hlíðahverfi í Reykjavík hafa tekið höndum saman við að vekja athygli á því að Hlíðahverfið er dag orðið að einskonar hverfi smáeyja, sundurskorið af stórum og umferðarþungum stofnæðum með óþolandi umferðarhávaða og hættulegri mengun sem oftsinnis á vetrum fer yfir heilsufarsmörk.

Hóta verkfalli ef ekki semst

Sjúkraliðar á fimmtán heilbrigðisstofnunum hóta verkfalli ef ekki nást samningar mjög fljótt um kaup þeirra og kjör. Sjúkraliðarnir vinna hjá fyrirtækjum innan raða Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu. Engir samningar hafa náðst og segja sjúkraliðar að þolinmæði þeirra sé á þrotum.

Bóluefni bylting í krabbalækningum

Bóluefni gegn algengustu tegundum leghálskrabbameins er bylting í krabbameinslækningum. Bóluefnið er væntanlegt á markað á næstu mánuðum. Stærsta rannóknarstöð þróunarverkefnisins er hér á landi.

Vatnsendaskóli tekinn í notkun

Vatnsendaskóli í Kópavogi var formlega tekinn í notkun í dag. Skólastarf er þó þegar hafið og stunda 120 nemendur nám við skólann í fimm bekkjardeildum en búist er við að nemendafjöldi tvöfaldist á næsta skólaári þegar næsta áfanga í byggingu skólans er lokið.

Hluthöfum lofað skjótfengnum gróða

Svo virðist sem hluthöfum í Skúlason Limited hafi verið lofað skjótfengnum gróða, fjárfestu þeir í fyrirtækinu. Grunur leikur á að fleiri íslensk fyrirtæki en Skúlason Limited tengist rannsókn á umfangsmiklu peningaþvætti.

Kökudropaþjófur á Siglufirði

Bíræfinn innbrotsþjófur fór inn í fjórar íbúðir á Siglurfiði í nótt og gerði bæði rúmrusk og hafði á brott með sér ýmsan varning. Íbúðirnar voru allar ólæstar eins og Siglfirðinga er siður en í einni íbúðinni var hann hrakinn á brott af hundi og í annrri af fatlaðri konu sem gat gefið góða lýsingu á manninum og var hann fljótlega handtekinn. 

Konum fjölgar í sveitarstjórnum

Ef sameining verður samþykkt má búast við að konum fjölgi í sveitarstjórnum. Sameiningarkosningarnar á morgun snerta 96 þúsund manns í 61sveitarfélagi. Dæmin sýna að hlutur kvenna í sveitarstjórnum er meiri í stærri og fjölmennari sveitarfélögum en þeim fámennari.

Kosið um sameiningu á morgun

Ólíklegt er að Reykjanesbær, Garður og Sandgerði sameinist í eitt bæjarfélag í kosningunum á morgun. Sömu sögu er að segja af Árborg, Hveragerði, Ölfusi, Gaulverjabæjarhreppi, Hraungerðishreppi og Villingaholtshreppi á Suðurlandi - sem og níu sveitarfélögum á Eyjafjarðarsvæðinu. Flestir eru á kjörskrá í Hafnarfirði eða rúmlega fimmtán þúsund manns - en fæstir í Mjóafjarðarhreppi, þar sem aðeins eru 38 á kjörskrá.

Hluthöfum lofað skjótfengnum gróða

Svo virðist sem hluthöfum í Skúlason Limited hafi verið lofað skjótfengnum gróða, fjárfestu þeir í fyrirtækinu. Grunur leikur á að fleiri íslensk fyrirtæki en Skúlason Limited tengist rannsókn á umfangsmiklu peningaþvætti.

Jón Ólafsson býður sættir

Jón Ólafsson er tilbúinn til að sættast við Hannes Hólmstein Gissurarson ef hann biðst afsökunar á ummælum sínum um að Jón hafi auðgast á fíkniefnainnflutningi. Hannes segist hins vegar aðeins hafa verið að segja sannleikann.

Lyf við fuglaflensu til fyrir 1/3

Sóttvarnalæknir segir að til sé lyf gegn fuglaflensunni fyrir þriðjung þjóðarinnar. Ekki er útilokað að loka þurfi landshlutum og banna samkomur berist flensan hingað til lands. Í dag var tilkynnt um fyrsta tilfelli fuglaflensu í Evrópu eftir að þrír fuglar greindust með veiruna við ósa Dónár í Rúmeníu.

Stækkun kostar tæpan milljarð

Tæpan milljarð króna kostar að stækka Bláa lónið. Framkvæmdir eru hafnar og er ráðgert að þeim ljúki vorið 2007.

Átti 38 þúsund skrár með barnaklám

Lögreglan í Reykjavík fann gríðarlegt magn af barnaklámi í tölvu Reykvíkings á fertugsaldri. Hann hafði tengt sig við barnaklámsvefi í Finnlandi og vistað tugþúsundir ljósmynda og hreyfimyndir sem taka tólf klukkustundir í sýningu. >

Sjá næstu 50 fréttir