Fleiri
Úrskurður um Baugsmál í dag 19.9.2005 00:01 Braut framtönn í lögreglumanni Maður braut framtönn í lögreglumanni í Kópavogi í nótt þegar verið var að handtaka hann. Maðurinn, sem hafði verið með ólæti fyrir utan skemmtistaðinn Players, barðist um á hæl og hnakka við handtökuna og sparkaði í andlit lögreglumannsins. Hann var fluttur í fangageymslur þar sem hann er látinn sofa úr sér vímuna. 18.9.2005 00:01 Annríki hjá lögreglu í Hafnarfirði Mikið var um að vera í Hafnarfirði í nótt og hafði lögregla í nógu að snúast. Fyrir utan venjulegt skemmtanahald voru tveir dansleikir. Annar þeirra var í Kaplakrika þar sem voru um 1500 manns. Eitthvað var um pústra í tengslum við ölvun í bænum þótt engin hafi meiðst alvarlega. Tveir sitja inni eftir nóttina. 18.9.2005 00:01 Slökkvilið í tvö útköll í nótt Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað tvívegis út í nótt. Á þriðja tímanum var útkall í Vesturbæ þar sem nágrannar tilkynntu um reykskynjara í gangi. Þegar komið var á staðinn reyndist húsráðandi vera að útbúa sér eitthvað í gogginn. Hann fékk aðstoð við að reykræsta. Á sjötta tímanum logaði svo eldur í bifreið í Mosfellsbæ. Vel gekk að slökkva eldinn. 18.9.2005 00:01 Enn hrynur grjót í Óshlíð Lögreglunni í Bolungarvík barst í gærmorgun tilkynning um að grjóthnullungar hefðu fallið á veginn í Óshlíð í grennd við þann stað þar sem stór sprunga er efst í fjallsbrúninni á Óshyrnu. Nokkuð grjóthrun hefur verið þarna að undanförnu. Stórir steinar höfðu fallið á veginn utan við varnarnetið yst á hlíðinni. 18.9.2005 00:01 Júlíus Vífill sækist eftir 2. sæti Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi, gefur kost á sér í annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hann gældi lengi við að bjóða sig fram í fyrsta sætið gegn þeim Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni og Gísla Marteini Baldurssyni, en niðurstaðan varð að sækja gegn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur sem einnig sækist eftir öðru sæti á listanum. 18.9.2005 00:01 Bætir engu við yfirlýsingu sína Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, lætur skila því gegnum aðstoðarmann sinn að hann hafi engu við yfirlýsingu sína á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna að bæta um framboð Íslands til öryggisráðsins. Þar sagði Halldór í ræðu að framboð Íslands stæði. 18.9.2005 00:01 Bryndís nýr formaður LFK Bryndís Bjarnason var í dag kjörin formaður Landssambands framsóknarkvenna á landsþingi sem fram fór á Ísafirði. Bryndís tekur við af Unu Maríu Óskarsdóttur sem ekki gaf kost á sér í embættið aftur. Með Bryndísi í stjórn LFK eru Gerður Jónsdóttir, Inga S. Ólafsdóttir, Kolbrún Ólafsdóttir og Margrét Þórðardóttir. 18.9.2005 00:01 Vilja styttu af Tómasi í miðbæinn Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sakna myndastyttu af Tómasi Guðmundssyni borgarskáldi úti undir beru lofti og vilja að borgarstjórn samþykki að gerð sé slík stytta og henni komið fyrir á áberandi stað í hjarta Reykjavíkur. 18.9.2005 00:01 Vilja að staðið verði við framboð Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna hvetur ríkisstjórnina til að skorast ekki undan ábyrgð í alþjóðasamstarfi og leggst eindregið gegn því að framboð til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna verði dregið til baka í ályktun sem hún sendi frá sér í dag. 18.9.2005 00:01 Vill þétta lista sjálfstæðismanna Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi, gefur kost á sér í annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Með framboði sínu vill hann þétta lista flokksins en telur ekki ástæðu til stórtækra breytinga. 18.9.2005 00:01 Öll rök séu fyrir flutningi Gæslu Þingflokksformaður Framsóknarflokksins telur öll rök vera fyrir því að höfuðstöðvar Landhelgisgæslunnar verði fluttar til Keflavíkur. Forstjóri gæslunnar segir hugmyndirnar vel þess virði að skoða vandlega. Þessar hugmyndir gætu jafnvel falið í sér aukið hlutverk á sviði varnarmála dragi Bandaríkjaher enn saman seglin hér á landi. 18.9.2005 00:01 Blindur leikur á fiðlu Guðfinnur Vilhelm Karlsson hefur verið blindur frá fæðingu en það aftrar honum ekki að seiða fram úr hljóðfærinu sínu fagra tóna. Hann hefur lært á fiðlu í níu ár og leikur oft á tónleikum og í veislum. Guðfinnur Vilhelm, geriði svo vel. 18.9.2005 00:01 Olíutankar fara af Hvaleyrarholti Fyrsti olíutankurinn af sex á Hvaleyrarholti í Hafnarfirði hefur verið rifinn. Gert er ráð fyrir að byrjað verði að taka grunna fyrir nýrri íbúðabyggð á næstu vikum. 18.9.2005 00:01 Vantar 60 starfsmenn Sextíu manns vantar til starfa hjá álveri Norðuráls á Grundartanga. Áhersla verður lögð á að ráða konur. 18.9.2005 00:01 Vilja styttu af Tómasi Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja að stytta af Tómasi Guðmundssyni skáldi verði sett upp í Hljómskálagarðinum. 18.9.2005 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Verka portúgalskan jólamat Starfsmenn í saltfiskvinnslu Brims í Grenivík eru nú í óðaönn að undirbúa jólamatinn fyrir Portúgali. Þar starfa fjórtán manns við að verka jólasaltfiskinn en í Portúgal er saltaður þorskur jólamatur á fjölda heimila. 19.9.2005 00:01
Talar við leiðtoga allra flokka Angela Merkel lýsti því yfir fyrir stundu að hún ætlaði sér að tala við leiðtoga allra stjórnmálaflokka landsins um stjórnarmyndun í Þýskalandi. Ingólfur Bjarni Sigufússon, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar, er í Berlín. 19.9.2005 00:01
Eina landleið Bolvíkinga Almannavarnanefnd Bolungarvíkur kemur saman til fundar í dag vegna grjóthruns úr Óshlíð niður á þjóðveginn um helgina og vegna þess að hrun virðist vera að aukast úr hlíðinni. Sýslumaður þeirra minnir á að þetta sé eina landleið Bolvíkinga. 19.9.2005 00:01
Verjum mestu fé til menntamála Íslendingar verja mestu fé OECD ríkja til menntamála. Formaður Kennarasambands Íslands segir að verja mætti meira fé til menntunar kennara 19.9.2005 00:01
Stöð 2 braut ekki siðareglur BÍ Fréttastofa Stöðvar 2 braut ekki gegn siðareglum Blaðamannafélags Íslands í umfjöllun sinni af slagsmálum við Hverfisgötu, að mati siðanefndar. Átökin áttu sér stað í apríl á þessu ári. 19.9.2005 00:01
Grjót sprengt fyrir ofan Ísafjörð Sprengingar hófust á grjóti á brún Gleiðarhjalla fyrir ofan Ísafjörð í morgun. Engin sérstök hætta er talin á ferðum en nokkrir tugir íbúa við Urðarveg eru samt beðnir um að vera ekki heima milli níu og þrjú í dag og á morgun. 19.9.2005 00:01
30% ökumanna yfir hámarkshraða Lögreglan í Reykjavík var með sérstakar hraðamælingar í Grafarvogi í síðustu viku. Mælt var við skólana í hverfinu og í götum þar sem hámarkshraði er 30 kílómetrar á klukkustund. Nær 30 prósent þeirra ökumanna sem voru mældir reyndust vera yfir hámarkshraða og mega þeir ökumenn eiga von á sektum. 19.9.2005 00:01
Sandrækja finnst hér við land Sandrækja (<i>Crangon crangon</i>) greindist í fyrsta sinn hér við land í vor. Tegundin fannst við sýnatöku á skarkolaseiðum við Álftanes og við frekari rannsóknir fannst tegundin víðar á Faxaflóasvæðinu. Frá þessu greinir á vef Hafrannsóknastofnunar í dag. 19.9.2005 00:01
Ísland í uppáhaldi hjá ferðamönnum Ísland hefur verið útnefnt uppáhalds Evrópuland ferðamanna af breska dagblaðinu <em>Guardian</em>. Í fyrra var Slóvenía vinsælasti áfangastaðurinn og Ísland í öðru sæti og árið þar áður var Ísland einnig efst. 19.9.2005 00:01
Vilja skuldbundna friðhelgi Norður-Kóreumenn eru nú sagðir vilja hverfa frá áformum sínum um kjarnorkutilraunir og leyfa eftirlitsferðir alþjóðlegra eftirlitsmanna, fái þeir í staðinn vilyrði um vernd og fjárhagslegan stuðning Kínverja og Bandaríkjamanna. Bandaríkjamenn sagðir vilja skuldbinda friðhelgi við stjórnina í Pyongyang. 19.9.2005 00:01
Krefst viðurkenningar bótaskyldu Tekið var fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær mál séra Sigríðar Guðmarsdóttur gegn Biskupsstofu. Farið var fram á að bótaskylda væri viðurkennd vegna þess að Biskupsstofa hefði gengið framhjá Sigríði þegar ráðið var í stöðu sendiráðsprests í London. 19.9.2005 00:01
Frávísun dregin til baka Ragnar Hall dró til baka kröfu um að framhaldsákæra á hendur Sveini R. Eyjólfssyni, Eyjólfi Sveinssyni og átta öðrum sem hafa verið ákærðir fyrir að standa ekki skil á sköttum og launatengdum gjöldum í fyrirtækjarekstri tengdum Frjálsri fjölmiðlun verði vísað frá. 19.9.2005 00:01
Tíu takast á um sex sæti Framboðsfrestur forvals Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs fyrir borgarstjórnarkosningar næsta vor rann út á föstudag, en forvalið verður 1. október. Utankjörfundar atkvæðagreiðsla fer fram 28. og 30. september. 19.9.2005 00:01
Orrustuþoturnar yfirgefa landið Fjórar orrustuþotur breska flughersins tóku á loft frá Reykjavíkurflugvelli í dag. Þoturnar fóru í æfingaflug til Keflavíkur fyrir helgi en gátu ekki lent þar vegna veðurs. Sjaldgæft er að eins hreyfils orrustuþotum sé lent með blindflugstækjum. 19.9.2005 00:01
Uppgjör söfnunarinnar birt Þjóðarhreyfingin hefur birt uppgjör söfnunarinnar „Innrásin í Írak - ekki í okkar nafni“. Meira en fjögur þúsund manns stóðu straum af kostnaði við birtingu auglýsingar í bandaríska stórblaðinu <em>The New York Times</em> þar sem lýst var andstöðu við þá ákvörðun íslenskra stjórnvalda að styðja innrásina. 19.9.2005 00:01
Ringulreið í Þýskalandi Tveir gera tilkall til kanslaraembættisins í Þýskalandi en hvorugur virðist geta myndað starfhæfa stjórn. Ringulreið er í landinu kjölfar þingkosninganna í gær sem skiluðu í raun engri ákveðinni niðurstöðu. 19.9.2005 00:01
Hærri laun í ræsinu en á leikskóla Pólskur innflytjandi hefur rekið sig áþreifanlega á að hér á landi sé það betur metið að vinna í ræsinu en að annast leikskólabörn. Hann fær rúmum fjörutíu þúsund krónum meira á mánuði í tekjur eftir að hann skipti um starfsvettvang. 19.9.2005 00:01
Geir frekar fylgjandi framboðinu Davíð Oddsson utanríkisráðherra segir ekkert athugavert við ummæli fosætisráðherra á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna um að Íslendingar væru í framboði til Öryggisráðsins. Yfirlýsingin hafi verið gefin í samráði við Geir H. Haarde, verðandi utanríkisráðherra, sem frekar hefði verið fylgjandi framboði en ekki. 19.9.2005 00:01
50 milljónir í umsóknina Alþingi hefur að minnsta kosti fimm undanfarin ár fjallað um og samþykkt aukin framlög til fastanefndar Íslands í New York vegna framboðs til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. 19.9.2005 00:01
Laugalækjarskóli sigraði Skáksveit Laugalækjarskóla tryggði sér sigur á Norðurlandameistaramóti grunnskólasveita sem haldið var í Árósum í Danmörku um síðustu helgi. Vilhjálmur Pálmason og Einar Sigurðsson voru sigursælastir í sigurliðinu; hvor um sig var með fjóra og hálfan vinning en fimm skákir voru tefldar. 19.9.2005 00:01
Þora ekki til Bolungarvíkur "Bolvíkingar láta sig nú flestir hafa það að keyra undir Óshlíðinni þótt þeir séu nú meðvitaðir um þá hættu sem því fylgir, en ég tel að fáir aðrir geri sér ferð til Bolungarvíkur eins og ástandið er," segir Jónas Guðmundsson, sýslumaður í Bolungarvík og formaður Almannavarnanefndar. 19.9.2005 00:01
Tugir húsa rýmd á Ísafirði Rýma þarf tugi heimila á Ísafirði meðan verið er að sprengja stórgrýti í Gleiðahjalla sem er fyrir ofan bæinn. "Þetta eru fimmtíu steinar sem þarf að sprengja og við gefum okkur fjóra daga til verksins," segir Halldór Halldórsson bæjarstjóri en byrjað var að sprengja í gær. Hann segir ennfremur að sprengt sé frá klukkan níu til þrjú en þá eru flestir íbúanna í vinnu og því verður röskun minni en ella. 19.9.2005 00:01
Líf og fjör í réttum Um sex þúsund fjár og tvö hundruð manns voru í Oddstaðarétt í Lundarreykjadal í síðustu viku. Að sögn Davíðs Péturssonar, hreppsstjóra í Skorradal, var glatt á hjalla enda var tappi tekinn úr flösku eins og hefð er fyrir á svona stundum. Hann segir þó að sveitungar á þessum slóðum verði seint lofaðir fyrir mikla sönggleði. 19.9.2005 00:01
Fléttulistar um allt land Landsamband framsóknarkvenna samþykkti ályktun þess efnis að Framsóknarflokkurinn byði fram fléttulista um allt land fyrir sveitastjórnarkosningarnar sem fram fara næsta vor, að sögn Bryndísar Bjarnarsonar nýkjörins formanns sambandsins. 19.9.2005 00:01
Ólína klagar Finnboga Ólína Þorvarðardóttir hefur farið fram á að útvarpsráð fjalli um fréttaflutning Finnboga Hermannssonar, forstöðumanns Svæðisútvarps Vestfjarða, um málefni Menntaskólans á Ísafirði. 19.9.2005 00:01
Gjaldþrot og launalækkanir Gengi íslensku krónunnar hefur ekki mælst hærra í meira en áratug og er farið að hafa sífellt meiri áhrif á stöðu útflutningsgreinanna. Að sögn Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóra Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir að hátt gengi krónunnar hafi þegar haft gríðarlega skaðleg áhrif á sjávarútveginn 19.9.2005 00:01
Margra mánaða bið eftir aðgerð Pör sem þurfa á tæknifrjóvgunaraðgerðum að halda verða að sætta sig við að bíða fram í apríl á næsta ári, nema þau hafi tök á að greiða aðgerðina að fullu úr eigin vasa. Skýringin er sú að fjármagn til tæknifrjóvgunaraðgerða er uppurið. 19.9.2005 00:01
Bæti aðstoð við sjúklinga Heilbrigðisráðherra telur nauðsynlegt að stofnanir í heilbrigðiskerfinu bæti aðstoð sína við sjúklinga og öryrkja sem leita úrræða hjá hinu opinbera. Fréttastofan hefur bent á að ofbeldisbrotaþolar hafi ekki fengið upplýsingar um hvaða hjálp sé að fá heldur villist þeir endalaust í völundarhúsi kerfisins. 19.9.2005 00:01
Fóstureyðing jákvæð lífsreynsla? Bæklingur frá Landspítalanum um fóstureyðingar hefur verið sendur í endurskoðun eftir að yfirlækni kvennasviðs var bent á óskiljanlega setningu í honum. 19.9.2005 00:01
Braut framtönn í lögreglumanni Maður braut framtönn í lögreglumanni í Kópavogi í nótt þegar verið var að handtaka hann. Maðurinn, sem hafði verið með ólæti fyrir utan skemmtistaðinn Players, barðist um á hæl og hnakka við handtökuna og sparkaði í andlit lögreglumannsins. Hann var fluttur í fangageymslur þar sem hann er látinn sofa úr sér vímuna. 18.9.2005 00:01
Annríki hjá lögreglu í Hafnarfirði Mikið var um að vera í Hafnarfirði í nótt og hafði lögregla í nógu að snúast. Fyrir utan venjulegt skemmtanahald voru tveir dansleikir. Annar þeirra var í Kaplakrika þar sem voru um 1500 manns. Eitthvað var um pústra í tengslum við ölvun í bænum þótt engin hafi meiðst alvarlega. Tveir sitja inni eftir nóttina. 18.9.2005 00:01
Slökkvilið í tvö útköll í nótt Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað tvívegis út í nótt. Á þriðja tímanum var útkall í Vesturbæ þar sem nágrannar tilkynntu um reykskynjara í gangi. Þegar komið var á staðinn reyndist húsráðandi vera að útbúa sér eitthvað í gogginn. Hann fékk aðstoð við að reykræsta. Á sjötta tímanum logaði svo eldur í bifreið í Mosfellsbæ. Vel gekk að slökkva eldinn. 18.9.2005 00:01
Enn hrynur grjót í Óshlíð Lögreglunni í Bolungarvík barst í gærmorgun tilkynning um að grjóthnullungar hefðu fallið á veginn í Óshlíð í grennd við þann stað þar sem stór sprunga er efst í fjallsbrúninni á Óshyrnu. Nokkuð grjóthrun hefur verið þarna að undanförnu. Stórir steinar höfðu fallið á veginn utan við varnarnetið yst á hlíðinni. 18.9.2005 00:01
Júlíus Vífill sækist eftir 2. sæti Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi, gefur kost á sér í annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hann gældi lengi við að bjóða sig fram í fyrsta sætið gegn þeim Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni og Gísla Marteini Baldurssyni, en niðurstaðan varð að sækja gegn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur sem einnig sækist eftir öðru sæti á listanum. 18.9.2005 00:01
Bætir engu við yfirlýsingu sína Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, lætur skila því gegnum aðstoðarmann sinn að hann hafi engu við yfirlýsingu sína á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna að bæta um framboð Íslands til öryggisráðsins. Þar sagði Halldór í ræðu að framboð Íslands stæði. 18.9.2005 00:01
Bryndís nýr formaður LFK Bryndís Bjarnason var í dag kjörin formaður Landssambands framsóknarkvenna á landsþingi sem fram fór á Ísafirði. Bryndís tekur við af Unu Maríu Óskarsdóttur sem ekki gaf kost á sér í embættið aftur. Með Bryndísi í stjórn LFK eru Gerður Jónsdóttir, Inga S. Ólafsdóttir, Kolbrún Ólafsdóttir og Margrét Þórðardóttir. 18.9.2005 00:01
Vilja styttu af Tómasi í miðbæinn Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sakna myndastyttu af Tómasi Guðmundssyni borgarskáldi úti undir beru lofti og vilja að borgarstjórn samþykki að gerð sé slík stytta og henni komið fyrir á áberandi stað í hjarta Reykjavíkur. 18.9.2005 00:01
Vilja að staðið verði við framboð Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna hvetur ríkisstjórnina til að skorast ekki undan ábyrgð í alþjóðasamstarfi og leggst eindregið gegn því að framboð til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna verði dregið til baka í ályktun sem hún sendi frá sér í dag. 18.9.2005 00:01
Vill þétta lista sjálfstæðismanna Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi, gefur kost á sér í annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Með framboði sínu vill hann þétta lista flokksins en telur ekki ástæðu til stórtækra breytinga. 18.9.2005 00:01
Öll rök séu fyrir flutningi Gæslu Þingflokksformaður Framsóknarflokksins telur öll rök vera fyrir því að höfuðstöðvar Landhelgisgæslunnar verði fluttar til Keflavíkur. Forstjóri gæslunnar segir hugmyndirnar vel þess virði að skoða vandlega. Þessar hugmyndir gætu jafnvel falið í sér aukið hlutverk á sviði varnarmála dragi Bandaríkjaher enn saman seglin hér á landi. 18.9.2005 00:01
Blindur leikur á fiðlu Guðfinnur Vilhelm Karlsson hefur verið blindur frá fæðingu en það aftrar honum ekki að seiða fram úr hljóðfærinu sínu fagra tóna. Hann hefur lært á fiðlu í níu ár og leikur oft á tónleikum og í veislum. Guðfinnur Vilhelm, geriði svo vel. 18.9.2005 00:01
Olíutankar fara af Hvaleyrarholti Fyrsti olíutankurinn af sex á Hvaleyrarholti í Hafnarfirði hefur verið rifinn. Gert er ráð fyrir að byrjað verði að taka grunna fyrir nýrri íbúðabyggð á næstu vikum. 18.9.2005 00:01
Vantar 60 starfsmenn Sextíu manns vantar til starfa hjá álveri Norðuráls á Grundartanga. Áhersla verður lögð á að ráða konur. 18.9.2005 00:01
Vilja styttu af Tómasi Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja að stytta af Tómasi Guðmundssyni skáldi verði sett upp í Hljómskálagarðinum. 18.9.2005 00:01