Fleiri fréttir

Óræk sönnun ölvunaraksturs

Ökumaður sem lögreglan á Akranesi stöðvaði aðfaranótt sunnudags, grunaðan um ölvun við akstur, dó áfengisdauða eftir blóðsýnatöku og reyndist lögreglu ómögulegt að vekja hann.

Einn ók niður ljósastaura

Ölvaður ökumaður ók niður tvo ljósastaura á Reykjanesbraut við bensínstöð Orku um klukkan hálf ellefu í gærmorgun. Að sögn lögreglu í Kópavogi slapp maðurinn ómeiddur en bíllinn er talinn ónýtur.

Braut tönn í lögreglumanni

Ungur maður sem sparkaði í andlit lögregluþjóns fyrir utan skemmtistaðinn Players í Kópavogi aðfaranótt sunnudags var látinn laus að loknum yfirheyrslum um miðjan dag í gær. Við árásina brotnaði tönn í lögregluþjóninum.

Hraðakstur á Faxabraut

Nokkur erill var hjá lögreglu á Akranesi aðfaranótt sunnudags en fyrr um kvöldið fór fram knattspyrnuhátíð ÍA sem lauk með balli með Stuðmönnum og Jónsa í svörtum fötum, að sögn lögreglu.

Fleyttu blómum á slysstaðnum

Félagar í Snarfara, félagi sportbátaeigenda í Reykjavík, fleyttu í gær blómum þar sem bátur eins félaga þeirra fórst á Viðeyjarsundi um síðustu helgi. Í gær var haldin bænastund í félagsheimili Snarfara í Naustavogi vegna slyssins og felld niður áður fyrirhuguð hátíð vegna 30 ára afmælis félagsins.

Hús rýmd vegna sprenginga

Gera átti litlar prufusprengingar í Gleiðarhjalla ofan Ísafjarðar í gær til að undirbúa aðgerðir í dag og á morgun til varnar grjóthruni sem náð gæti ofan í byggð. Að sögn lögreglu á Ísafirði verða hús á Urðarvegi rýmd í dag og á morgun frá níu að morgni og fram til klukkan þrjú síðdegis.

Einn blóðugur eftir slagsmál

Aðfaranótt sunnudags barst lögreglu í Keflavík tilkynning um slagsmál í Sandgerði, en þau voru yfirstaðin þegar komið var á vettvang. Einn var á staðnum blóðugur í andliti og var hann fluttur á sjúkrahús til skoðunar, að því er fram kemur í dagbók lögreglu.

Eldamennska fór úr böndum

Kveikt var í blaðagámi við Flókagötu í Reykjavík um miðjan dag í gær, en að sögn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var fljótgert að slökkva í honum.

Einn með leiðindi á réttaballi

Einn gisti fangageymslu lögreglu á Blönduósi aðfaranótt sunnudags, en sá hafði að sögn lögreglu verið með leiðindi á réttaballi einn manna. Maðurinn var með óspektir og drykkjulæti. Allir aðrir munu hafa skemmt sér vel.

Ófremdarástand undir Óshyrnu

Almannavarnanefnd Bolungarvíkur kemur saman seinni partinn í dag til að ræða hættu af grjóthruni á veginn á Óshlíð undir stórri sprungu efst í fjallsbrúninni á Óshyrnu. Jónas Guðmundsson sýslumaður, sem er formaður almannavarnanefndar Bolungarvíkur, segir illgerlegt að sprengja í fjallinu til að losa um hrun.

Sameiningarskýrsla kynnt

Ný skýrsla sem PARX hefur unnið vegna sameiningar Hafnarfjarðar og Voga verður kynnt á morgun, en vinna við undirbúning sameiningarkosninga stendur nú sem hæst.

Efasemdir innan stjórnarflokka

Í báðum þingflokkum stjórnarflokkanna eru efasemdir um réttmæti þess að Íslendingar sæki um setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, lýsti því yfir á leiðtogafundi samtakanna að framboð Íslands stæði en Hjálmar Árnason þingflokksformaður segir að málið sé ekki afgreitt úr þingflokknum.

Fleiri treysta Vilhjálmi en Gísla

Rétt liðlega 57 prósent Reykvíkinga treysta Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni vel til að gegna starfi borgarstjóra í Reykjavík en rúmlega 42 prósent treysta Gísla Marteini Baldurssyni vel. Vilhjálmur hefur ekki bara vinninginn á helsta keppinaut sinn um forystu fyrir Sjálfstæðisflokkinn í borginni að þessu leyti í nýlegri könnun Gallups, mun fleiri treysta Gísla Marteini en honum illa til að gegna starfi borgarstjóra.

Ólafur og Clinton ræddust við

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, átti í gær viðræðufund með Bill Clinton, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í New York, en Ólafur Ragnar tekur nú þátt í alþjóðlegri ráðstefnu, Clinton Global Initiative, í boði Clintons. Fjölmargir þjóðarleiðtogar víða að úr veröldinni, forystumenn á alþjóðavettvangi, fræðimenn og áhrifamenn í vísindum og viðskiptum sitja einnig ráðstefnuna.

Yfirgripsmikil leit að Friðriki

Stórtæk leit að Friðriki Ásgeiri Hermannssyni, sem saknað er síðan bátur fórst á Viðeyjarsundi fyrir viku síðan, er hafin. Búist er við að á annað hundrað manns taki þátt í leitinni í dag.

Stofna kvennahreyfingu í flokki

„Pæjur og pólitískt plott“ er yfirskrift stofnfundar kvennahreyfingar Samfylkingarinnar sem stendur yfir í Hveragerði. Saman eru komnar um 120 konur af öllu landinu til að taka þátt í þessum viðburði.

Hringlandaháttur sé í ríkisstjórn

Samfylkingin styður ákvörðun ríkisstjórnarinnar um framboð til setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna en í báðum þingflokkum stjórnarflokkanna eru hins vegar komnar upp efasemdir um réttmæti þess. Formaður Samfylkingarinnar kallar það hringlandahátt ríkisstjórnarmeirihlutans.

Fagnar niðurstöðu könnunar

Reykvíkingar treysta Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni betur en Gísla Marteini Baldurssyni til að gegna starfi borgarstjóra ef marka má nýlega skoðanakönnun Gallups. Gísli Marteinn fagnar niðurstöðunni og segir hana m.a. sýna að vinstrimenn vilji alls ekki fá hann sem andstæðing sinn.

Hóphjólreið niður í miðbæ

Um hundrað manns hjóla nú sem leið liggur niður Laugaveginn og stefna að Hljómskálagarðinum í hóphjólreið sem efnt var til í tilefni af hjóladegi samgönguvikunnar í borginni.

Stjórn kvennahreyfingar valin

Bryndís Friðgeirsdóttir var í dag valinn formaður nýrrar kvennahreyfingar innan Samfylkingarinnar sem stofnuð var í Hveragerði í dag. Með Bryndísi í stjórn verða Ragnhildur Helgadóttir, Sigrún Stefánsdóttir og Drífa Kristjánsdóttir, en auk þess mun þingflokkur Samfylkingarinnar skipa eina konu í stjórnina.

Leit hefur ekki borið árangur

Víðtæk leit af Friðriki Ásgeiri Hermannssyni, sem saknað er eftir að bátur fórst á Viðeyarsundi, hefur staðið yfir í allan dag en hefur enn ekki borið árangur. Gengnar hafa verið fjörur frá Gróttu fram yfir Hofsvík á Kjalarnesi. Kafarar frá Björgunarsveitunum, slökkviliði höfuðborgarsvæðisinns og Landhelgisgæsluni hafa kafað á Viðeyjarsundi en einnig hefur verið notast við sónarleitartæki og neðansjávarmyndavél.

Áfram í varðhaldi vegna smygls

Hæstiréttur hefur staðfest áframhaldandi gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Austurlands yfir litáískum karlmanni sem ákærður hefur verið fyrir að smygla til landsins tæplega fjórum kílóum af metamfetamíni með Norrænu í júní síðastliðnum.

Fleiri borgarbúar vilja Vilhjálm

Fleiri Reykvíkingar treysta Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni til að gegna starfi borgarstjóra en Gísla Marteini Baldurssyni. Fleiri sjálfstæðismenn í Reykjavík vilja sjá Gísla Martein skipa fyrsta sæti flokksins í borgarstjórnarkosningunum.

Vill fjölga valkostum eldra fólks

Ríkisstjórnin mun í þessum mánuði hitta fulltrúa samráðsnefndar eldri borgara til að ræða málefni eins og stöðu þeirra á vinnumarkaðnum. Heilbrigðisráðherra vill fjölga valkostum gamals fólks.

3-4% ungra kvenna með átröskun

Á milli þrjú og fjögur prósent kvenna undir þrítugu þjást af átröskun af einhverju tagi. Á málþingi í dag mátti heyra átröskunarsjúklinga segja sína sögu.

Pæjurnar plotta

Stofnfundur kvennahreyfingar Samfylkingarinnar fór fram í Hveragerði í gær. Yfirskrift fundarins var "Pæjur og pólitískt plott" en um hundrað konur af öllu landinu voru þarna saman komnar og var Bryndís Friðgeirsdóttir bæjarfulltrúi á Ísafirði kosin formaður.

Líkið af Friðriki Ásgeiri fundið

Líkið af Friðriki Ásgeiri Hermannssyni fannst seinni partinn í dag. Rétt fyrir klukkan sex náðu kafarar líkinu upp og var komið með hann að landi nú rétt fyrir fréttir.

Framboð til öryggisráðs í uppnámi

Framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna er í uppnámi að mati varaformanns Framsóknarflokksins sem segir að Einar Oddur Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sé kominn í stjórnarandstöðu. Stjórnarandstaðan skilur ekkert í hringlandahætti ríkisstjórnarinnar.

Júlíus Vífill líklegur í toppslag

Líklegt er talið að Júlíus Vífill Ingvarsson gefi út yfirlýsingu í dag um að hann bjóði sig fram í efsta sæti lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor.

Stjórnarandstaðan saklaus

"Það opinberast fyrir framan alþjóð að stjórnarliðar tala í austur og vestur. Ríkisstjórnin hefur haldið á þessu eins og hún ætli sér í framboð til öryggisráðsins og hefur varið til þess miklum fjármunum," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar.

Búa til ágreining

"Ég bið menn nú að oftúlka ekki mín orð. Þessi umræða hefur ítrekað farið fram innan þingflokksins," segir Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins.

Lík Friðriks fundið

Lík Friðriks Ásgeirs Hermannssonar, sem fórst þegar bátur strandaði á Viðeyjarsundi laugardaginn 10. september síðastliðinn, fannst eftir umfangsmikla leit í gær.

Íbúar ráði sjálfir uppbyggingu

Sigurður Jónsson bæjarstjóri Garðs segir að bæjarstjórnin hafi allt frá byrjun verið nánast einróma þeirrar skoðunar að leggjast gegn sameiningu sveitarfélagsins við Sandgerði og Reykjanesbæ.

Vilja virkja konur í stjórnmálum

Konur eru ekki eins virkar og karlar í stjórnmálum og þessu þarf að breyta, segja Samfylkingarkonur, sem hafa stofnað kvennahreyfingu innan flokksins.

Kosningaskrifstofan opnuð

Gísli Marteinn opnaði kosningaskrifstofu sína í gær í Aðalstræti 6. "Það hefur verið góð stemning hér í allan dag," sagði Gísli Marteinn í gær og bætti við að um þrjú hundruð manns hefðu mætt og lýst yfir stuðningi sínum.

Fjör í Skeiðaréttum í dag

Menn og fé undu sér vel í Skeiðaréttum í dag. Landbúnaðarráðherrann lét ekki sitt eftir liggja.

Varavinnuafl á Íslandi

Samkvæmt íslenskum lögum eru erlendir starfsmenn hér á landi ekkert annað en varavinnuafl. Þetta kom fram á fundi um málefni innflytjenda sem haldinn var í húsakynnum Reykjavíkurakademíunnar.

Boðaði framboð í öryggisráð

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra tók í gærkvöldi af skarið með framboð Íslendinga til setu í Öryggisráði Sameinuðuþjóðanna þegar hann lýsti því yfir á leiðtogafundi samtakanna að Íslendingar ætluðu að bjóða sig fram. Miðað er við kjörtímabilið 2009 til 2010.

Á tvöföldum hámarkshraða á Sæbraut

Lögreglan í Reykjavík stöðvaði í nótt ökumann á Sæbraut á 132 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 60. Han var því á ríflega tvöföldum hámarkshraða og var hann sviptur ökuréttindum á staðnum.

57% vilja Vilhjálm í fyrsta sætið

52 prósent sjálfstæðsimanna í Reykjavík vilja sjá Gísla Martein Baldursson skipa fyrsta sæti á lista flokksins við komandi borgarstjórnarkosningar og 48 prósent Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson. Þetta er niðurstaða könnunar sem Gallup vann fyrir einkafyrirtæki og birt er í <em>Morgunblaðinu</em>. Dæmið snýst hins vegar við þegar borgarbúar úr öllum flokkum voru spurðir. Þá völdu rúmlega 57 prósent Vilhjálm og tæp 43 prósent Gísla Martein.

Grútur yfir gljáfægðan brúðarbíl

Glansinn hvarf heldur betur af gljáfægðum væntanlegum brúðarbíl þegar hann mætti vörubíl með grútarfarmi á Ólafsfjarðarvegi í gærkvöldi. Í sama mund rann hluti farmsins af vörubílnum með þeim afleiðingum að brúðarbíllinn varð löðrandi í grút og fitu og lagði af honum mikinn fnyk langar leiðir.

Tók af öll tvímæli um framboð

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra tók í gærkvöldi af öll tvímæli um framboð Íslendinga til setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna þegar hann lýsti því yfir á leiðtogafundi samtakanna að Íslendingar ætluðu að bjóða sig fram. Verðandi utanríkisráðherra vill ekki tjá sig um málið.

Heildarlaun VR-félaga hækka um 10%

Heildarlaun félagsmanna í VR hafa hækkað um tíu prósent frá því í fyrra, þremur prósentum meira en almennt á vinnumarkaði.

Og Vodafone og Neyðarlínan semja

Og Vodafone og Neyðarlínan hafa gengið frá samningi sem gerir Neyðarlínunni kleift að staðsetja farsíma Og Vodafone um leið og hringt er í 112.

Sjálfstæðisflokkurinn fengi 53,9%

52 prósent Sjálfstæðismanna í Reykjavík vilja sjá Gísla Martein Baldursson skipa fyrsta sæti á lista flokksins í komandi borgarstjórnarkosningum og 48 prósent Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson. Þá mælist fylgi Sjálfstæðisflokksins í borginni tæplega 54 prósent.

Sjá næstu 50 fréttir