Margra mánaða bið eftir aðgerð 17. október 2005 23:43
Pör sem þurfa á tæknifrjóvgunaraðgerðum að halda verða að sætta sig við að bíða fram í apríl á næsta ári, nema þau hafi tök á að greiða aðgerðina að fullu úr eigin vasa. Skýringin er sú að fjármagn til tæknifrjóvgunaraðgerða er uppurið. Par hafði samband við fréttastofu Stöðvar 2 í morgun og sagði farir sínar ekki sléttar. Því var tilkynnt fyrir skömmu að ekki væri lengur til fjármagn til framkvæmdar tæknifrjóvgunar en þau áttu að fara í sína sjöttu meðferð nú um mánaðamótin ágúst-september. Vegna skorts á fjármagni þurfa þau hins vegar að bíða fram í apríl eftir að komast að eða greiða að fullu fyrir aðgerðina úr eigin vasa. Árið 1991 tók tæknifrjóvgunardeild Landspítalans til starfa og sinnti tæknifrjóvgunum þar til á síðasta ári en þá var deildin lögð niður. Landspítalinn gerði þá þjónustusamning við tæknifrjóvgunarstofuna Art Medica um framkvæmd tæknifrjóvgunaraðgerða en í samningnum var einungis kveðið á um 250 tæknifrjóvganir sem myndu dreifast yfir árið. Barnleysi hrjáir um 15% para og er skilgreint sem sjúkdómur. Kristinn Jón Eysteinsson er formaður Tilveru - samtaka fólks gegn ófrjósemi - en þar eru skráðir 200 félagsmenn. Hann segir að staða fólks á biðlista eftir tæknifrjóvgunaraðgerð sé afar slæm. Samtökin hafa fengið þau svör að Art Medica hafi reynt að fá heilbrigðsiyfirvöld til að koma til móts við sig hvað varðar meðferðir út árið en talað fyrir daufum eyrum. Fólk þurfi því að greiða meðferðirnar fullu verði. Aðspurður segir Kristinn að vitanlega hefði þjónustusamningurinn þurft að hljóða upp á fleiri meðferðir. Að sögn Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra vinna bæði forsvarsmenn Landspítalans og Art Medica að lausn málsins. Vonast ráðherra eftir tillögum þess efnis á næstu vikum.
Fréttir Innlent Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Fleiri fréttir Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Sjá meira