Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Styrkir frá ESB Þrjú íslensk verkefni fá samtals um 80 milljónir í styrk frá Leonardo Da Vinci-starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins. Sjö íslenskir aðilar sóttu um. Þeir sem fá styrkina eru Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Verslunarmannafélag Reykjavíkur. 22.8.2005 00:01
Íbúðaverð hækkar enn Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkar enn þótt veltan sé minni en undanfarið. Alls hækkaði verðið um 3,4 prósent í júlí. Þetta kemur fram í morgunkornum Íslandsbanka í gær. Einbýlishús og raðhús hækkuðu mest, eða um 3,9 prósent. 22.8.2005 00:01
Ósamið við Gæslukonur Ekki hafa enn verið gerðir starfslokasamningar við gæslukonur borgarinnar. Þær hafa nú farið fram á sambærileg réttindi og þau sem starfsmönnum Vélamiðstöðvarinnar voru tryggð við sölu hennar frá borginni á dögunum, en missi þeir störf sín vegna hagræðingar eiga þeir rétt á launum í þrjá mánuði umfram það sem kjarasamningar kveða á um. 22.8.2005 00:01
Fjórðungur fræðimanna óvirkur Fjórðungur fræðimanna í fullu starfi við Háskóla Íslands eru nánast óvirkir í rannsóknum. Þetta kemur fram í úttekt um gæði rannsókna við skólann. Launakerfi fræðimanna er afkastahvetjandi og þeir hafa skyldu til að verja 43 prósentum af tíma sínum til rannsókna en engar lágmarkskröfur eru gerðar um árangur. 22.8.2005 00:01
Litríkt grænmeti Fjólublátt grænmeti gæti vafalaust vakið lukku yngri sem eldri neytenda en það er meðal nýjunga sem íslenskir garðyrkjubændur bjóða upp á í ár. 22.8.2005 00:01
Annarleg ástand tefur yfirheyrslu Lögreglan í Reykjavík vill ekkert segja til um hvort maðurinn sem grunaður er um morð á tvítugum manni í heimahúsi við Hverfisgötu í Reykjavík um helgina hafi játað verknaðinn. Hinn grunaði var úrskurðaður í tíu daga gæsluvarðhald af Héraðsdómi Reykjavíkur á laugardag og ætlar ekki að kæra úrskurðinn til Hæstaréttar. 22.8.2005 00:01
Sáu tilræðismann á myndavél Átján ára piltur, sem stunginn var tvívegis í bakið aðfaranótt sunnudags í miðbæ Reykjavíkur, er á batavegi. Hann var fluttur af gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi á Landspítalann við Hringbraut og segir vakthafandi hjúkrunarfræðingur á hjarta- og lungnaskurðdeild að batalíkur séu góðar og allt stefni í að hann muni útskrifast eftir nokkra daga. 22.8.2005 00:01
F-listinn vill Löngusker "Við teljum að það sé hagsmunamál jafnt fyrir landsbyggðina og höfuðborgarsvæðið að það sé flugvöllur á höfuðborgarsvæðinu og við erum því alfarið á móti því að flytja hann til Keflavíkur," segir Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans um framtíð Reykjavíkurflugvallar.Honum finnst koma til greina að byggja nýjan flugvöll á landfyllingu á Lönguskerjum. 22.8.2005 00:01
Engin aðför gegn Vilhjálmi Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, fullyrðir að valdamiklir menn geri harða atlögu að Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni oddvita sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Atlögu sem beinist að því að koma ungum sjónvarpsmanni fram fyrir Vilhjálm. Sjónvarpsmaðurinn ungi, Gísli Marteinn Baldursson, segir þetta alrangt. 22.8.2005 00:01
Fullkominn staður til rannsókna Háskóli Íslands hefur um árabil, ásamt Flugmálastjórn Íslands, haft frumkvæði að rannsóknum á flugumferðarstjórnun og meðal annars þróað hugbúnað fyrir hermi, sem nýtist við ýmis konar prófanir. 22.8.2005 00:01
Vill auka samvinnu þjóðanna Vakslav Klaus, forseti Tékklands, segir Ísland og Tékkland eiga margt sameiginlegt og vonast til að efnahagsleg og pólitísk samskipti ríkjanna verði aukin í framtíðinni. Opinber heimsókn hans hingað til lands hófst í dag. 22.8.2005 00:01
Fornleifar á Hólum í Hjaltadal Gullþræðir, perlur, steinar úr plómum og hvalspæni er meðal þess sem hefur fundist í fornleifauppgreftri á Hólum í Hjaltadal. Uppgreftrinum í ár er lokið en við tekur viðamikil rannsóknarvinna. 22.8.2005 00:01
Akstursbann ekki komið í gildi Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætó bs., segir trúlega ekki enn hægt að beita ökumenn viðurlögum sem stelast til að aka eftir nýjum akreinum sérmerktum Strætó í Reykjavík. "En það gerist um leið og lögreglan er búin að auglýsa þetta," segir hann og telur þá úrvinnslu hljóta að vera á næsta leiti, enda allt annað til reiðu. 22.8.2005 00:01
Forsetinn kynnti sér orkusöguna Václav Klaus, forseti Tékklands, byrjar daginn í dag á því að funda með Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra áður en haldið verður til Nesjavallavirkjunar og Þingvalla klukkan tíu.Opinber heimsókn Klaus og eiginkonu hans, frú Liviu Klausová, hófst í gærmorgun með hátíðlegri athöfn á Bessastöðum. 22.8.2005 00:01
Óttast um framtíð líknardeildar Stjórn íbúasamtaka Vesturbæjar Kópavogs vill meiri umræður um fyrirhugaðar breytingar á skipulagi íbúabyggðar á Kársnesi og á Kópavogstúni. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út á morgun. Bærinn segir vel staðið að kynningu. 22.8.2005 00:01
Bannað að flytja inn frá Taílandi Umhverfisráðuneytið hefur tímabundið bannað innflutning á ákveðnum tegundum fersks og frosin grænmetis frá Taílandi. Um er að ræða nokkrar ferskar kryddjurtir, bananalauf, bambuslauf, rætur og aspas. Ákvörðunin kemur í kjölfar salmonellumengunar í vörunum. 22.8.2005 00:01
Missti stjórn á blautum vegi Mildi þykir að fólk slapp lítið meitt eftir harðan árekstur fólksbíls og jeppa á Reykjanesbraut nokkru fyrir klukkan þrjú í gær. Fólksbifreiðin fór nánast í tvennt við áreksturinn. Bílnum ók ung kona og í aftursæti var þriggja mánaða gamalt barn. 22.8.2005 00:01
Fundarboð í Garðasókn Sóknarnefndar Garðasóknar hefur samþykkt einróma að boða til aðalsafnaðarfundar Garðasóknar þriðjudaginn 30. ágúst í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. 22.8.2005 00:01
Vopnaburður hefur aukist í borginn Tvö stóralvarleg hnífstungumál komu upp um helgina. Á laugardagsmorgun var ungur maður myrtur í íbúðarhúsi við Hverfisgötu en fyrir snarræði lögreglumanna hélt maður sem stunginn var í bakið miðbænum lífi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni færist það í aukana að menn séu handteknir með eggvopn. 22.8.2005 00:01
Stunginn tvisvar í bakið í bænum Maður um tvítugt var stunginn tveimur stungum með hnífi í bakið í nótt og var hann fluttur á slysadeild þar sem hann gekkst undir aðgerð. Maðurinn er ekki talinn í lífshættu en talið er að önnur hnífsstungan hafi lent á lunganu sem féll saman. Árásarmaðurinn var handtekinn stuttu síðar og fannst hann með hjálp vitna og eftirlitsmyndavéla í miðbænum. 21.8.2005 00:01
Kveikti í herbergi með rakettu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað tvisvar út í nótt vegna bruna. Í fyrra skiptið kom upp eldur í svefnherbergi í Vesturbænum þar sem maður var að fikta með skiparakettu. Svo óheppilega vildi til að hún sprakk í svefnherberginu og við það kviknaði í rúmfötum. Töluverðar skemmdir urðu á íbúðinni. 21.8.2005 00:01
Þrír slösuðust á Reykjanesbraut Þrennt var flutt á slysadeild eftir umferðarslys á Reykjanesbraut við Straum á fimmta tímanum í nótt en fólkið er ekki alvarlega slasað. Bílarnir komur hvor úr sinni áttinni og rákust saman og eru þeir gjörónýtir. Ökumaður annarrar bifreiðarinnar er grunaður um ölvun við akstur. 21.8.2005 00:01
Kominn af gjörgæsludeild Strætisvagnabílstjórinn sem slasaðist alvarlega í umferðarslysi á mótum Laugavegar og Kringlumýrarbrautar á föstudag er kominn af gjörgæsludeild en liggur áfram á Landspítalanum í Fossvogi. Hann hefur beðið fréttastofuna að koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem aðstoðuðu á slysstað, lögreglumanna, sjúkraflutningamanna og vegfarenda, auk þeirra sem hafa annast hann á sjúkrahúsinu. 21.8.2005 00:01
Mannlausan bát rak upp í Aðalvík Mannlausan bát rak upp í fjöru í Aðalvík í Ísafjarðardjúpi í nótt. Legufæri bátsins slitnaði með þeim afleiðingum að hann rak upp í fjöruna. Báturinn er talsvert skemmdur en björgunarbáturinn Gunnar Friðriksson frá Ísafirði er á leið á vettvang ásamt björgunarmönnum. 21.8.2005 00:01
Tvö fíkniefnamál á Akureyri Tvö fíkniefnamál komu upp á Akureyri í nótt. Piltur um tvítugt var stöðvaður við venjubundið eftirlit á bíl sínum og fannst lítilræði af kannabisefnum í bílnum. Piltinum var sleppt eftir yfirheyrslur. Þá var ekið á ljósastaur á Akureyri í nótt og fannst lítilræði af kannabisefnum á ökumanninum. Enginn slasaðist við áreksturinn. 21.8.2005 00:01
Bitinn í nefið í slagsmálum Maður var bitinn í nefið á Hafnargötunni í Keflavík í nótt. Tveimur mönnum hafði orðið sundurorða og slógust þeir í kjölfarið. Maðurinn sem var bitinn var fluttur á slysadeild og þurfti að sauma nokkur spor í nef hans. Hann hefur ekki enn kært árásina. Þá var einn ökumaður tekinn grunaður um ölvun við akstur. 21.8.2005 00:01
Fjórum sleppt eftir yfirheyrslur Þremur piltum og stúlku sem urðu vitni að morðinu á Hverfisgötu í gærkvöldi var sleppt í gærkvöldi eftir yfirheyrslur. Fjórði maðurinn var handtekinn í gærkvöldi þar sem talið var að hann gæti varpað frekari ljósi á atburðinn og verður hann yfirheyrður í dag. Hinn grunaði var í gær dæmdur í tíu daga gæsluvarðhald. Ekki fengust upplýsingar um það hjá lögreglunni hvort hinn grunaði hafi játað verknaðinn. 21.8.2005 00:01
Á gjörgæslu eftir hnífsstungu Tvítugur piltur liggur á gjörgæsludeild eftir að hafa verið stunginn tvívegis í bakið í miðborg Reykjavíkur í nótt. Um 90 þúsund manns voru samankomin í miðborginni vegna menningarnætur og mikið var að gera hjá lögreglunni. 21.8.2005 00:01
Hafna tillögu um Löngusker Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík hafna því sem þeir kalla málamiðlunartillögu um að færa Reykjavíkurflugvöll út á Löngusker í Skerjafirði. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem félagið hefur sent frá sér vegna umræðu um hugsanlegan flutning flugvallarins úr Vatnsmýrinni. 21.8.2005 00:01
Full þjónusta hjá Strætó á morgun Strætó mun veita fulla þjónustu í nýju leiðakerfi frá og með morgundeginum, en fresta þurfti tímabundið akstri á svokölluðum stofnleiðum á tíu mínútna fresti á álagstímum á virkum dögum vegna skorts á starfsfólki. Nú hafa forsvarsmenn Strætós ráðið bót á þessum vanda og mannað allar vaktir þannig að ekið verður á stofnleiðunum á tíu mínútna fresti frá klukkan sjö til hálfníu á morgnana og hálffjögur til sex í eftirmiðdaginn frá og með morgundeginum. 21.8.2005 00:01
Segist hafa heimild til gjaldtöku Lögreglan á Seyðisfirði segir einhliða fréttir hafa borist af máli tengdu gjaldtöku lögreglustjórans á Seyðisfirði af dansleik í tengslum við LungA, Listahátíð ungs fólks á Austurlandi. Í tilkynningu á <em>Lögregluvefnum</em> kemur fram að DV og fréttastofa RUV hafi fjallað um málið þar sem haft hafi verið eftir bæjarstjóra Seyðisfjarðarkaupstaðar og látið að því liggja að engin heimild hafi verið til slíkrar gjaldtöku m.a. vegna þess að ekki hafi verið um útihátið að ræða. 21.8.2005 00:01
Ungt fólk fái tækifæri í kosningum Samband ungra framsóknarmanna hvetur flokksmenn um allt land að leggja áherslu á sem öflugasta aðkomu ungra að framboðum á vegum flokksins í sveitarstjórnarkosningum á næsta ári. Í tilkynningu frá SUF segir að ungt fólk í Framsóknarflokknum sé tilbúið að taka að sér ábyrgðarmikið starf við að byggja upp flokkinn til framtíðar og standa að hugsjónum flokksmanna. 21.8.2005 00:01
Úr öndunarvél eftir hnífsstungu Piltur um tvítug sem var stunginn tvívegis í bakið í Hafnarstræti í miðborginni í nótt er enn á gjörgæsludeild en þó ekki lengur í öndunarvél. Við stungurnar féll annað lungað í honum saman og var hann um tíma í lífshættu en það varð honum til lífs hversu fljótt honum var komið undir læknishendur. 21.8.2005 00:01
Tugþúsundir í bænum allan daginn Talið er að um 90 þúsund manns hafi fylgst með flugeldasýningunni í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi. Menningarhátíðin yfir daginn gekk mjög vel og voru tugþúsundir manna í miðborginni frá morgni til kvölds. 21.8.2005 00:01
Fimm í röð hjá Hannesi Hlífari <font face="Helv"> Hannes Hlífar Stefánsson fagnaði sínum fimmta Íslandsmeistaratitli í röð þegar hann gerði jafntefli við Jón Viktor Gunnarsson í síðustu skákinni. </font> 21.8.2005 00:01
Prammar fluttir vegna mikils brims Flytja þurfti landgönguprammana sem notaðir eru í Hollywood-kvikmyndina <em>Flags of Our Fathers</em> í var í gær vegna mikils brims við ströndina í Sandvík. Prammarnir og flotbryggja sem notuð hefur verið var komið fyrir í var við Ósa rétt við Hafnir á Reykjanesi. Prammarnir skemmdust ekki í briminu og urðu engar tafir á tökum kvikmyndarinnar þrátt fyrir þetta. 21.8.2005 00:01
Strætó í góðum gír Strætó ætlar að standa við stóru orðin frá því fyrir tveimur vikum og því verður akstur á tíu mínútna fresti á álagstímum á stofnleiðunum sex alla virka daga. 21.8.2005 00:01
Ástandið slæmt eftir Menningarnótt Piltur á tvítugsaldri liggur alvarlega slasaður á gjörgæsludeild Landspítala - háskólasjúkrahúss eftir að hafa verið stunginn með hnífi í bakið í nótt. Árásarmaðurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Yfirlögregluþjónn í Reykjavík segir ástandið í miðborginni hafa verið mjög slæmt eftir að skipulagðri dagskrá Menningarnætur lauk. 21.8.2005 00:01
Unnið verði að endurskoðun Það þarf að skoða hvernig hægt sé að koma í veg fyrir ástand eins og skapaðist í miðborginni eftir flugeldasýninguna í gærkvöldi. Þetta segja borgarstjóri og yfirlögregluþjónn í Reykjavík. 21.8.2005 00:01
Ísland jafnhreint og S-Argentína Ísland er jafnhreint og Suður-Argentína þegar kemur að gin- og klaufaveiki, segir dýralæknir í stjórn Dýralæknafélags Íslands. Þrátt fyrir það telur landbúnaðarráðherra áhættuna of mikla við að flytja inn argentínskt nautakjöt til landsins. 21.8.2005 00:01
Mun líklegri til sjálfsmorðs Sam- og tvíkynhneigðir eru sex sinnum líklegri til að fremja sjálfsmorð en gagnkynheigðir. Aukin fræðsla og stuðningur gæti dregið úr þessu að mati sérfræðings á Akureyri sem flytur erindi á ráðstefnu í Færeyjum á morgun en ráðstefnan er undanfari fyrstu Gay Pride hátíðarinnar þar í landi. 21.8.2005 00:01
Kynslóðaskipti í skipulagsmálum Hugmyndir um flugvöll á Lönguskerjum má þakka kynslóðaskiptum í skipulagsmálum borgarinnar. Þetta segir Trausti Valsson sem kynnti hugmyndir að flugvelli á þessum stað fyrir nákvæmlega 30 árum. 21.8.2005 00:01
Tóku öflugan jarðbor í gagnið Öflugur jarðbor var tekinn í notkun við Miðfellsvatn í dag, en tryllitækið getur borað 150 metra á klukkustund í gegnum urð og grjót án þess að raska yfirborðinu. 21.8.2005 00:01
Fimmti sigurinn í röð Hannes Hlífar Stefánsson fagnaði sínum fimmta Íslandsmeistaratitli í röð þegar hann gerði jafntefli við Jón Viktor Gunnarsson í síðustu skákinni í landsliðsflokki á Íslandsmótinu í skák. </font /> 21.8.2005 00:01
Ástarvikan hafin í Bolungarvík Ástarvikan hófst í Bolungarvík í dag. Megintilgangurinn er að fjölga Bolvíkingum og það er að mörgu að huga. Bolvíkingar hvetja nú hvern annan til að borða egg og sjávarfang, náttúruleg frjósemislyf. 21.8.2005 00:01