Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Beið bana í Hvalfirði Karlmaður á þrítugsaldri beið bana í umferðarslysi í Hvalfirði í gærmorgun. Slysið átti sér stað á níunda tímanum þegar flutningabíll og fólksbíll rákust saman. Hinn látni var ökumaður fólksbílsins. 27.5.2005 00:01
Enginn misskilningur Vegna ummæla Steinars Arnar Magnússonar friðargæsluliða um að misskilningur milli stofanna hefði valdið því að þeir hefðu ekki fengið bætur frá Tryggingarstofnun vill Karl Steinar Guðnason forstjóri Tryggingarstofnunar árétta að einskis miskilnings gætti af hálfu stofnunarinnar. 27.5.2005 00:01
Símtal breytti bankasölunni Selja átti Landsbankann og Búnaðarbankann til almennings og tryggja dreifða eignaraðild. Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson skiptu um skoðun og ákváðu að selja bankana til eins fjárfestis hvorn um sig eftir að Björgólfur Guðmundsson hringdi í Davíð og vildi kaupa annan hvorn bankann. 27.5.2005 00:01
Stýrðu sölu bankanna Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson tóku völdin af framkvæmdanefnd um einkavæðingu við sölu Landsbankans og Búnaðarbankans til að stýra því hver fengi að kaupa. Átökin um bankana og VÍS voru svo mikil að ríkisstjórnarsamstarfið var í uppnámi um tíma. 27.5.2005 00:01
Fallvölt ímynd í stjórnmálum Hveitibrauðsdögum nýrrar forystu Samfylkingarinnar lauk á fyrsta degi eftir tímamótalandsfund um síðustu helgi. Trúverðugleikinn er á vogarskálum þar sem Ágúst Ólafur Ágústsson verst ásökunum um að hafa beitt sviksamlegum vinnubrögðum í kjöri um embætti varaformanns.</font /></b /> 27.5.2005 00:01
Skorrdælingar velja sér framtíð Íbúar í Skorradalshreppi ákveða um næstu helgi hvort þeir vilja sameinast nágrannasveitarfélögunum eða ekki. Oddvitinn vísar því á bug að þriðjungur þeirra sem eigi lögheimili í Skorradalshreppi séu sumarbústaðareigendur úr höfuðborginni. Blaðamaður kannaði hvort sameiningarmálið væri í raun aðeins átök um auð.</font /></b /> 27.5.2005 00:01
Mesta síld í þrjátíu ár Það eru miklar gleðifréttir að norsk-íslenska síldin finnist aftur innan íslenskrar lögsögu að sögn Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóra Landssambands íslenskra útvegsmanna. Sjómenn segja hennar ekki hafa orðið vart í jafn miklu magni í þrjátíu ár. 27.5.2005 00:01
Dæmdir fyrir vopnaburð Þrír menn á þrítugsaldri voru dæmdir til að greiða 30 þúsund krónur hver, fyrir að bera ólögleg bitvopn á almannafæri í miðborg Reykjavíkur þann 12. apríl síðastliðinn. 27.5.2005 00:01
Ríkið dæmt til bótagreiðslna Íslenska ríkinu var gert að greiða fyrrverandi starfsmanni á sambýli fatlaðra á Blönduósi 800 þúsund krónur vegna ólöglegrar uppsagnar. 27.5.2005 00:01
Þyrla sækir vélsleðamann Þyrla landhelgisgæslunnar var kölluð út rétt fyrir tíu í kvöld vegna vélsleðamanns á Langjökli. Þyrlan lagði af stað 24 mínútur yfir tíu. Maðurinn fór fram af stalli og lenti harkalega. Ekki lá fyrir hve alvarlegt slysið var, en um einhvers konar bakáverka var að ræða og rétt þótti að kalla björgunarþyrluna út. 27.5.2005 00:01
Endurskoða lög um kynferðisbrot Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur falið Ragnheiði Bragadóttir lagaprófessor að semja drög að frumvarpi um breytingar á kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga. Um er að ræða þau ákvæði sem eru um nauðgun og önnur brot gegn kynfrelsi fólks, kynferðisbrot gegn börnum og vændi. 27.5.2005 00:01
Bráðkvaddur í bát sínum Eldri maður lést um borð í bát sínum sem strandaði í fjöru um þrjár sjómílur frá Bolungarvík í gærmorgun. Talið er að maðurinn hafi orðið bráðkvaddur. 27.5.2005 00:01
Vélarvana við Látrabjarg Björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Patreksfirði, Vörður, var í gærmorgun kallað út vegna vélarvana báts eina og hálfa sjómílu suður af Látrabjargi. 27.5.2005 00:01
Skipaði tvo nýja sendiherra Davíð Oddsson utanríkisráðherra hefur skipað þá Helga Gíslason og Svein Á. Björnsson sendiherra frá og með næstu áramótum. 27.5.2005 00:01
Sjö sjóræningjar að veiðum Sjö svokölluð sjóræningjaskip sáust á veiðum á karfaslóð á Reykjaneshrygg í gær þegar flugvél Landhelgisgæslunnar flaug þar yfir. Sjóræningjaskipin eru togarar sem ekki hafa leyfi til veiða á fiskveiðistjórnunarsvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar. 27.5.2005 00:01
Ákærður fyrir að rassskella konu Sævar Óli Helgason er ákærður fyrir að veitast að konu sem lagði fyrir innkeyrsluna hans í fyrrahaust. Hann segir leikskólakennarann hafa vegið að sér kynferðislega og reynt að sparka í punginn á sér, hann hafi því rassskellt hana.</font /></b /> 27.5.2005 00:01
Gæsluvarðhaldið framlengt Gæsluvarðhald yfir fylgdarmanni fjögurra kínverskra ungmenna sem komu hingað á leið til Bandaríkjanna á dögunum hefur verið framlengt um viku. Maðurinn er grunaður um skipulagt mansal. 27.5.2005 00:01
Varar við byggð í eyjunum Hugmyndir borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins um íbúðabyggð á eyjunum í kringum Reykjavík eru fáránlegar, segir Jóhann Óli Hilmarsson formaður Fuglaverndunarfélags Íslands. 27.5.2005 00:01
Biðlistar á líknardeild Síðustu tvö ár hafa allt að tíu manns verið á biðlista að komast á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Þar eru nú átta rúm en til stendur að fjölga rúmunum um fjögur. Stjórn spítalans hefur sent beiðni um viðbótarfjármagn til heilbrigðisráðuneytisins en talið er að það kosti um 10 milljónir króna aukalega á ári. 26.5.2005 00:01
Segja Alfreð hóta samstarfsslitum Vinstri grænir segja Alfreð Þorsteinsson hóta að slíta meirihlutasamstarfinu í Reykjavík. Hótanir hans um að mynda meirihluta með sjálfstæðismönnum í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur til að selja rafmagn til stóriðju spilli viðræðum um framtíð Reykjavíkurlistans. 26.5.2005 00:01
San Fransisco flugið hafið FL Group hagnaðist um 25 milljónir króna fyrstu þrjá mánuði ársins. Þetta er næstbesta afkoma félagsins frá upphafi á þessum árstíma en fyrirtækið hefur utan einu sinni tapað á fyrsta ársfjórðungi. San Fransisco er nýjasti staður félagsins og var fyrsta flugið farið síðastliðinn miðvikudag. 26.5.2005 00:01
Eldur í Ingunnarskóla í morgun Eldur kviknaði í Ingunnarskóla í Grafarholti í morgun. Tilkynnt var um eldinn klukkan hálffimm. Að sögn lögreglu var kveikt í fiskikörum við skólann með þeim afleiðingum að eldur barst í þakskegg skólans og hlaust töluvert tjón af. 26.5.2005 00:01
Enginn verið handtekinn í Keflavík Enginn hefur enn verið handtekinn vegna gruns um að hafa ætlað að tæla ungan dreng upp í bíl sinn við skóla í Reykjanesbæ. Lögreglan er nú að kanna þær vísbendingar sem borist hafa. 26.5.2005 00:01
Niðurstaða Samkeppnisráðs ómarktæk Niðurstaða Samkeppnisráðs um að banna auglýsingar Umferðarstofu er ómarktæk að mati Umferðarstofu þar sem reglur um vanhæfi hafi verið brotnar. Samkeppnisráð bannaði nokkrar auglýsingar sem eiga að bæta öryggi í umferðinni á þeim forsendum að þær geti misboðið börnum. 26.5.2005 00:01
Gunnar fær ekki biðlaun Gunnar I. Birgisson, verðandi bæjarstjóri Kópavogs, fær ekki biðlaun þegar hann lætur af því starfi. Hann tekur við starfinu af Hansínu Björgvinsdóttur um næstu mánaðamót. 26.5.2005 00:01
Flugslys á Akureyri á morgun Flugslys þar sem flugvél með fimmtíu farþega hlekktist á verður sviðsett á Akureyrarflugvelli á morgun. Þar verða æfð viðbrögð og aðgerðir og munu á fjórða hundrað manns taka þátt í æfingunni. 26.5.2005 00:01
Æ fleiri heitir reitir hjá OgVodafone Sífellt fleiri fyrirtæki bjóða viðskiptavinum sínum upp á Heita reiti (Hot Spot), þráðlausa háhraða nettengingu, frá Og Vodafone. Um 50 veitinga- og kaffihús og ýmiss konar þjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjanesbæ og á Akureyri hafa nú þegar tekið þjónustuna í notkun. 26.5.2005 00:01
Segir Hermann Jónasson föður sinn Lúðvík sem ekki er Gizurarson á leið í héraðsdóm til að sanna samband móður sinnar og Hermanns. 26.5.2005 00:01
Smitaðist líklega ekki á LHS Maðurinn sem liggur þungt haldinn á Landspítalanum með hermannaveiki er starfsmaður spítalans. Nær útilokað er talið að hann hafi smitast þar en fátítt er að fólk smitist af hermannaveiki hér á landi. 26.5.2005 00:01
Einvígi við heimsmeistarann? Vonir standa til að Bobby Fischer og núverandi heimsmeistari í skák heyi einvígi. Verði af því fer einvígið fram á Íslandi og Fischer teflir þá að sjálfsögðu sem Íslendingur. 26.5.2005 00:01
Afpláni tvö síðustu árin á Íslandi Einar S. Einarsson, einn þeirra sem eru að reyna að fá Aron Pálma Ágústsson leystan úr haldi fangelsisyfirvalda í Texas, segir vonir standa til að hann fái að afplána tvö af tíu síðustu árum dóms síns hér á landi. 26.5.2005 00:01
Bótakrafa friðargæsluliða samþykkt Tryggingastofnun hefur samþykkt bótaskyldu vegna þriggja friðargæsluliða sem slösuðust í sjálfsmorðssprengjuárás í Afganistan í fyrrahaust. Stofnunin, sem hafði áður hafnað bótaskyldu, hefur nú samþykkt að um bótaskylt slys hafi verið að ræða samkvæmt vinnuslysatryggingu almannatrygginga. 26.5.2005 00:01
Komið aftan að tugþúsundum heimila Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður segir komið aftan að fimmtíu til sextíu þúsund heimilum í landinu ef vaxtabætur verði skertar enn frekar. Á síðustu tveimur árum hafa vaxtabætur verið skertar um 900 milljónir. 26.5.2005 00:01
Kosningar á landsfundi lögmætar Ný kjörstjórn landsfundar Samfylkingarinnar hefur gefið út yfirlýsingu um að kosningar í öll embætti á landsfundi Samfylkingarinnar hafi verið lögmætar og í samræmi við reglur flokksins. 26.5.2005 00:01
Mannbjörg þegar Gideon sökk Áhöfn íslenska togarans Péturs Jónssonar RE bjargaði öllum fimmtán í áhöfn lettneska skipsins Gideon þegar það sökk á Flæmska hattinum um kvöldmatarleytið í fyrrakvöld. Barst neyðarkall frá skipinu laust eftir klukkan fjögur og höfðu allir skipverjar bjargast rúmum þremur klukkustundum síðar. 26.5.2005 00:01
Gáfu 13 sjónvörp Lionsmenn komu færandi hendi á Grensás fyrr í þessari viku þegar þeir afhentu 13 sjónvarpstæki sem þeir höfðu safnað fyrir. 26.5.2005 00:01
Niður með áfengisneysluna Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hvetur aðildarríki sín til að setja sér skýr markmið til að draga úr skaðlegri notkun áfengis í því skyni að bæta almennt heilsufar þjóða sinna. 26.5.2005 00:01
Þurrkar hamla gróðursetningu Ekki er hægt að hefja gróðursetningu í Heiðmörk vegna langvarandi þurrka. Fyrirhugað er að setja niður á annað hundrað þúsund trjáplöntur, en það verk getur ekki hafist fyrr en jörðin hefur fengið góða vætu. Plöntur frá því í fyrra eru í hættu. </font /></b /> 26.5.2005 00:01
Hverfandi líkur á að fólk smitist Það þarf náið samneyti við fugla sem eru með veiruna í sér, mikla útsetningu og mikið magn af henni til að menn veikist. 26.5.2005 00:01
Björguðu mönnum af brennandi skipi Áhöfnin á Pétri Jónssyni RE bjargaði í gær fimmtán manna áhöfn brennandi skips frá Lettlandi. Þrír Íslendingar voru í áhöfn lettneska skipsins. Skipstjórinn á Pétri Jónssyni segir það mikla gæfu að bjarga fimmtán mannslífum. 26.5.2005 00:01
Fyrirtækið virti ekki samninga Fjórir menn voru í gær sýknaðir fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfu fyrrverandi vinnuveitanda þeirra, Iceland Seafood International, sem fór fram á dómurinn staðfesti lögbann á að mennirnir hæfu störf hjá samkeppnisaðila í samræmi við upprunalegan ráðningarsamning mannanna. 26.5.2005 00:01
Deyja 100 árlega vegna mistaka? Gera má ráð fyrir að mistök í meðferð sjúklinga hér á landi leiði árlega til um það bil til 130 dauðsfalla og kosti þjóðarbúið um 1,3 milljarða króna. Þá má ætla að um eitt þúsund manns verði fyrir heilsutjóni árlega vegna rangrar meðferðar í heilbrigðiskerfinu. 26.5.2005 00:01
Einelti á meðal háskólamenntaðra Málum sem varða hugsanlegt einelti félagsmanna í Bandalagi háskólamanna hefur fjölgað verulega undanfarnar vikur. Þetta eru mál þar sem einstaklingar leita aðstoðar stéttarfélagsins vegna vandamála í samskiptum við stjórnendur. 26.5.2005 00:01
Skuldir heimilanna 900 milljarðar Heimilin í landinu skulduðu tæpa 900 milljarða um síðustu áramót sem jafngildir um þremur milljónum á hvern Íslending. Skuldirnar jukust um 107 milljarða á einu ári. Heimilin hafa eignast meira og var eignamyndunum meiri en skuldir á sama tíma. 26.5.2005 00:01
Sakar DV um gróft virðingarleysi Forstjóri Landspítalans sakar DV um að sýna manni, sem sýktist af hermannaveiki, gróft virðingarleysi með því að birta mynd af honum og nafn hans í blaðinu í dag. 26.5.2005 00:01