Fleiri fréttir

Tedrykkja yfir brúðkaupinu

Brúðkaupi Karls Bretaprins og Camillu Parker Bowles var fagnað víða í dag. Stjórn Hins konunglega fjelags á Íslandi kom til dæmis saman til tedrykkju yfir sjónvarpsútsendingu frá brúðkaupinu.

Bæjarstjórinn fær víkingatign

Einstaklingar á Akureyri hafa hug á að halda fjölþjóðlega víkingahátíð í bænum í júní, svo fremi að fjármögnun gangi eftir. Bæjarstjórinn verður gerður að heiðursvíkingi.

Bóndinn ábyrgur fyrir kindinni

Héraðsdómur Reykjavíkur gerði með dómi sínum í gær bónda ábyrgan fyrir kind sem slapp upp á þjóðveg og olli tjóni á bíl sem ók á hana. Lausaganga búfjár er bönnuð þar sem atvikið varð og er bóndinn talinn bera ábyrgð á því að hún slapp upp á veg.

Ekki söguleg sátt í fjölmiðlamáli

Því fer fjarri að söguleg sátt ríki um tillögur fjölmiðlanefndar menntamálaráðherra, segir í ályktun Frjálshyggjufélagsins. Þótt ýmis sósíalísk viðhorf hafi verið sætt með nýjum hugmyndum um skerðingu á tjáningarfrelsi frá fjölmiðlanefnd eru frelsisunnendur ekki sáttir, segja félagsmenn.

Ný aðstaða Granda

Verið er að byggja nýjan hafnarbakka við Sundahöfn. Vignir Albertsson, skipulagsfulltrúi hjá Faxaflóahöfnum, segir að lokið sé við byggingu fyrsta áfanga hafnarbakka við frystihús Granda.

Ferðaþjónustan harmar gengið

Samtök ferðaþjónustunnar lýstu á aðalfundi áhyggjum af því að tregðu væri farið að gæta í eftirspurn eftir ferðum til Íslands. Þau bentu jafnframt á að þrátt fyrir að rúmlega 362 þúsund ferðamenn hafi komið á síðasta ári, 13 prósentum fleiri en árinu á undan, hafi gjaldeyristekjurnar aðeins vaxið um fimm prósent.

Davíð lagður inn

Davíð Oddsson utanríkisráðherra leggst inn á Landspítala - Háskólasjúkrahús í dag til áður ákveðinnar eftirmeðferðar vegna þeirra sjúkdóma sem meðhöndlaðir voru þar sl. sumar og haust. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Eins og kunnugt er var utanríkisráðherra skorinn upp vegna krabbameins á síðasta ári.

Hundrað kennarar ræða sérsamninga

Margir grunnskólakennarar vilja skoða sérsamninga á meðan aðrir telja þá ganga þvert á niðurstöðu síðustu kjaraviðræðna, segir skólastjóri Sjálandsskóla í Garðabæ. Um hundrað kennarar mættu á málstofu Kennarafélags Reykjavíkur um bókun fimm í kjarasamningnum sem gefur svigrúm til sérsamninga í eitt ár.

Fimm sækja um hjá RÚVAUST

Fimm umsækjendur eru um starf forstöðumanns svæðisútvarps RÚV á Austurlandi sem auglýst var nýlega.

50% hærra olíuverð fyrir fiskiskip

Meðalverð á olíu til fiskiskipa er fimmtíu prósentum hærra í dollurum talið það sem af er mánuðinum en það var að meðaltali í fyrra og horfa útvegsmenn jafnvel fram á tap af úthafskarfaveiðum og kolmunnaveiðum. 

Gamalt fólk lamið og bitið

Allir öldrunarlæknar á landinu hafa séð dæmi um ofbeldi gagnvart sjúklingum sínum. Algengast sé að reynt sé að hafa af þeim fé. Öldrunarlæknir segir að fólk þurfi að átta sig á að líkamlegu ofbeldi linni ekki þótt eftirlaunaaldri sé náð.</font /></b />

Fækkun banaslysa minni á Íslandi

Fækkun banaslysa hefur verið minni hér á landi síðustu ár en hjá nágrannalöndum okkar samkvæmt nýrri skýrslu Umferðarstofu. Umferðarverkfræðingur segir ýmsar skýringar vera á þessu eins og langt vegakerfi og fáir bílar.

Ýmsar skýringar á verðbreytingunum

Stóru olíufélögin þrjú, Essó, Skeljungur og Olís, sem nýverið hækkuðu verð á bensíni, drógu svo hækkuninina til baka og hækkuðu svo aftur í gær, gefa upp ýmsar skýringar á þessum verðbreytingum, ýmist að þær megi rekja til verðs á heimsmarkaði eða til markaðsaðstæðna á innanlandsmarkaði.

Enginn þarf að taka við styrkjum

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra sagði á aðalfundi landssambands kúabænda í dag að enginn væri neyddur til að taka við styrkjum frá ríkinu. Jafnframt sagði hann ekki vera bann við framleiðslu á ostum utan framleiðslukerfisins en miklar umræður hafa verið um nýja mjólkursamlagið, Mjólku ehf., sem hyggst framleiða osta án styrkja ríkisins.

Fengu frí vegna útfararinnar

Fjöldi kaþólikka hér á landi fylgdist með útför páfa í dag. Öllum kaþólskum starfsmönnum Síldarvinnslunnar í Neskaupsstað var gefið frí frá störfum í dag vegna útfararinnar og vinnslan er því keyrð á lágmarks afköstum þar sem stór hluti starfsmanna er pólskur.

Brýtur blað í sögunni

Pálína Ásgeirsdóttir hefur brotið blað í sögu íslenskra hjúkrunarfræðinga hjá Rauða krossinum. Hún verður fyrst þeirra til að setjast í stól yfirmanns spítalahjúkrunarþjónustu Alþjóða Rauða krossins í Genf. Hún tekur við starfinu um mánaðamót og hlakkar til. </font /></b />

Falsaðar happaþrennur til lögreglu

Fölsun á happaþrennum er ein leið sem óprúttnir reyna til að svíkja út fjármuni. Þrjár slíkar falsanir voru nýlega kærðar til lögreglunnar í Reykjavík. Mest er um að svikararnir reyni að svíkja út fimm þúsund króna vinninga. </font /></b />

Ágreiningur um Íbúðalánasjóð

"Þegar menn tala um að Íbúðalánasjóður eigi að einbeita sér að einhvers konar félaglegum lánum þá finnst mér skorta upplýsingar um hvað menn eiga við með þessu", segir Árni Magnússon félagsmálaráðherra.

Ágreiningur um Íbúðalánasjóð

"Þegar menn tala um að Íbúðalánasjóður eigi að einbeita sér að einhvers konar félaglegum lánum þá finnst mér skorta upplýsingar um hvað menn eiga við með þessu", segir Árni Magnússon félagsmálaráðherra.

Pólverjar á Íslandi syrgja páfa

Gera má ráð fyrir að meginþorri allra Pólverja á Íslandi hafi tekið sér frí frá störfum í gær til að geta fylgst með sjónvarpsútsendingum frá útför Jóhannesar Páls páfa annars.

Grefur ekki undan kerfinu

Þórólfur Sveinsson, formaður Landssambands kúabænda, telur að starfsemi og tilvist Mjólku, sem hyggst starfa utan við greiðslumarkskerfið, grafi ekki undan kerfinu hjá kúabændum.

Vill setja skilyrði

Þórólfur Sveinsson, formaður Landssambands kúabænda, telur koma til greina að setja skilyrði um að vextir á lánum kúabænda hjá Lánasjóði landbúnaðarins verði ekki hækkaðir upp fyrir ákveðið mark fyrstu árin eftir sölu skuldabréfanna og að skuldararnir geti fært skuldabréfin annað ef þeir telja vextina ekki nógu hagstæða.

Óska Mjólku velfarnaðar

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra telur að starfsemi nýja mjólkurbúsins Mjólku standist lög. "Mér sýnist að bændum sé heimilt að standa utan við kerfið. Það er ekkert sem bannar framleiðslu á ostum utan greiðsulmarks," segir hann.

Hlýnar á landinu

Hlýnað hefur á öllu landinu síðasta sólarhring nema á Norðausturlandi; þar er snjókoma. Ekki er hægt með vissu að segja til um hvort komi annað kuldakast en samkvæmt dagatalinu og ferðum lóunnar er vorið komið.

Stjórnvöld samþykki dagskrárstefnu

Fjölmiðlanefnd leggur til að ljósvakamiðlum verði gert að fá samþykki opinbers stjórnvalds fyrir dagskrárstefnu sinni og að slíkt samþykki verði skilyrði leyfisveitingar. Stjórnarformaður Og Vodafone kallar þetta „yfir-ritstjórn“ ríkisins og efast um að það standist prentfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar.

Helstu auðlindir Íslands?

Fimm kílómetra djúpar borholur með um sex hundrað gráðu heitri gufu gætu orðið helstu auðlindir Íslands ef tilraunaboranir Landsvirkjunar og samstarfsfyrirtækja ganga vel.

6 milljarða niðurskurður

Ný samgönguáætlun, sem ríkisstjórnin hefur lagt fram á Alþingi, felur í sér nærri sex milljarða króna niðurskurð á kosningaloforðum sem gefin voru fyrir tveimur árum. 

Hættulegar aukaverkanir gigtarlyfs

Gigtarlyfið Bextra verður tekið af markaði á næstunni vegna gruns um hættulegar aukaverkanir. Fyrir hálfu ári var gigtarlyfið Vioxx innkallað af sömu ástæðu.

Ókeypis búslóðir

Tíminn er að renna út fyrir þá sem komu búslóðinni sinni einhvern tímann í geymslu í húsnæði að Skeifunni 5. Ef eigendurnir vitja ekki eigna sinna um helgina, verða þær gefnar. 

Heimsmeistari í uppstoppun

Íslendingar hafa eignast heimsmeistara í uppstoppun fiska. Íslensku keppendurnir tveir komu til landsins í morgun. Við komuna til Bandaríkjanna, þar sem keppnin var haldin, eyðilögðu tollverðir uppstoppaða fugla annars þeirra. 

Vitleysa að stunda sauðfjárbúskap

Það er hagfræðileg vitleysa að stunda sauðfjárbúskap á Íslandi, segir formaður sauðfjárbænda. Fjórtán prósenta söluaukning kindakjöts innanlands á síðasta ári skapar þó von um betri hag en um leið áhyggjur af skorti á kjöti fyrir vaxandi markaði erlendis.

Akureyri sótt heim

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og forsetafrúin, Dorrit Moussaieff, verða í opinberri heimsókn á Akureyri á mánudag og þriðjudag en á miðvikudag sækja forsetahjónin íbúa Eyjafjarðarsveitar heim.

Íslandskynning í hartnær öld

Nýlega birtist í þýska vikuritinu Die Zeit nokkuð ítarleg og lofsamleg grein um rithöfundinn Jón Sveinsson, Nonna, bæinn hans Akureyri og fleira tengt Íslandi.

Fær ekki starfslokasamning

Útvarpið skýrði frá því í gær að Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri hefur hafnað beiðni lögmanns Auðuns Georgs Ólafssonar um viðræður um starfslokasamning við Ríkisútvarpið.

Liggur mikið á hjarta

Alþýðusambandið ætlar að hefja átak gegn félagslegum undirboðum og ólöglegum ráðningum útlendinga í byrjun maí. Daglega hringja margir til að koma með ábendingar um ólöglega starfsemi og undirboð.

11 milljónir barna deyja

Áætlað er að ellefu milljónir barna fimm ára og yngri deyi í ár vegna einhvers sem koma má í veg fyrir. Þetta kom fram á fundi á Nordica hótelinu í gær, sem haldinn var í tilefni af Alþjóðaheilbrigðisdeginum.

6.000 umsóknir bárust

Tæplega 6.000 umsóknir höfðu borist um lóð við Lambasel í Reykjavík þegar umsóknarfrestur rann út síðdegis í gær. Dregið verður úr pottinum hjá sýslumanninum í Reykjavík í næstu viku.

Forsetahjónin til Eyjafjarðar

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og Dorrit Moussaieff forsetafrú halda í opinbera heimsókn til Akureyrar og Eyjafjarðarsveitar í næstu viku að því er fram kemur í tilkynningu frá skrifstofu forsetans. Heimsóknin til Akureyrar hefst að morgni mánudagsins 11. apríl og lýkur að kvöldi þriðjudagsins 12. apríl. Opinber heimsókn forsetahjónanna til Eyjafjarðarsveitar hefst að morgni miðvikudagsins 13. apríl og lýkur um kvöldið með fjölskylduhátíð í Hrafnagilsskóla.

Fagna Mjólku

Heimdellingar fagna stofnun Mjólku ehf, nýs mjólkursamlags sem stendur fyrir utan styrkjakerfi landbúnaðarins.

Efasemdir um Kárahnjúkavirkjun

Tæplega helmingur Íslendinga, eða 39,6 prósent, telur að rangt hafi verið að ráðast í virkjun við Kárahnjúka. 50,5 prósent telja það rétt.

Vildu breyta ákvörðun bæjarráðs

Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar nú í vikunni kom fram tillaga um að breyta ákvörðun bæjarráðs um lóðaúthlutun á Völlunum. Tillögunni var mótmælt og samþykkt að vísa henni aftur til bæjarráðs.

Fjöldi bensínstöðva og verð óháð

Af tíu þéttbýlisstöðum á landinu er hæsta bensínverð hjá Skeljungi. Er það þrátt fyrir samkeppni við aðrar bensínstöðvar á stöðunum.

Vilja frekar stytta grunnskólanám

Á fimmta hundrað framhaldsskólanema mótmælti fyrirhugaðri styttingu náms til stúdentsprófs á Austurvelli í dag. Það var Hagsmunaráð íslenskra framhaldsskólanema sem stóð fyrir mótmælunum, en að ráðinu standa sex framhaldsskólar. Þar telja menn eðlilegra að stytta nám á grunnskólastigi og hafna þeim rökum að fara eigi að fordæmi annarra norrænna ríkja.

Hvíti dauði ekki í landinu

Rétt tæplega eitt þúsund manns sem hafa sprautað fíkniefnum í æð fóru í meðferð á Vogi á síðustu fimm árum og 770 ópíumfíklar hafa farið í meðferð á síðustu tíu árum. Á síðustu sjö árum hafa um sex stórnotendur heróíns, stundum nefnt hvíti dauði, farið í meðferð árlega.

Úrræði vantar fyrir forfallna

Alls hafa 502 núlifandi landsmenn komið oftar en tíu sinnum til meðferðar á meðferðarsjúkrahúsinu Vogi. Er það tæplega þrjú prósent allra sem þangað hafa sótt.

Sjá næstu 50 fréttir