Fleiri fréttir

Rannsókn lögreglu ábótavant

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði tæplega fimmtugan karlmann af ákæru um tilraun til manndráps. Dómurinn segir rannsókn lögreglu á málinu stórlega ábótavant en þær rannsóknir sem hefði átt að gera í tengslum við málið, en voru ekki gerðar, hefðu ein eða fleiri getað haft úrslitaáhrif á niðurstöðu þess.

Sjávarútvegsakademíu komið á fót

Komið hefur verið á fót norrænni sjávarútvegsakademíu sem mun standa fyrir námskeiðum í fiskveiðistjórnun og fylgjast með fiskistofnum og auðlindum hafsins. Sjávarútvegsakademían verður ekki með fast heimilisfang heldur mun hún starfa sem tengslanet og verður því stjórnað frá Háskólanum í Björgvin eftir því sem segir í tilkynningu frá Norðurlandaráði.

Sektuð vegna samráðs

Samkeppnisráð dæmdi í dag þrjú tryggingafélög til að greiða 60,5 milljónir króna í sekt vegna ólögmæts verðsamráðs. Félögin sem um ræðir eru Sjóvá-Almennar, Tryggingamiðstöðin og VÍS.

Könnun á munnheilsu barna

Nú stendur yfir könnun á munnheilsu sex, tólf og fimmtán ára barna í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu og næsta nágrenni.

Ráðgjöf gegn HIV - smiti

Starfsfólk á göngudeild smitsjúkdóma á Landspítala - háskólasjúkrahúsi veitir nú aukna þjónustu þeim sem koma í HIV próf, að sögn Más Kristjánssonar yfirlæknis á deildinni.

Skólastjórinn fann drenginn

Fjórtán ára pilturinn, sem leitað hefur verið að undanfarna viku, er fundinn. Skólastjórinn hans fann hann í gærmorgun

Neitar klámfengnum skilaboðum

Fyrrum kennari í Grunnskólanum í Stykkishólmi er ákærður af ríkissaksóknara fyrir kynferðisbrot gegn tveimur nemendum sínum. Aðalmeðferð málsins er lokið og verður dómur kveðinn upp þann 28. febrúar næstkomandi.

Orðlaus yfir sýknudómi

Leigubílstjóri sem var skorinn á háls í lok júlí í fyrra sagðist hafa orðið gjörsamlega orðlaus þegar maðurinn sem var ákærður fyrir árásina var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Einn af þremur dómurunum taldi manninn sekan og vildi dæma hann í fimm ára fangelsi fyrir þessa stórhættulegu árás.

Ákærður fyrir bílbrennur

Ríkissaksóknari hefur ákært 22 ára gamlan mann fyrir að kveikja í bílum og að hafa með því stofnað lífi níu manna í hættu. Maðurinn er einnig ákærður fyrir vopnalagabrot og akstur undir áhrifum deyfandi lyfja.

Beitti úðavopni á afgreiðslukonu

Eigandi Bettís við Borgarholtsbraut í Kópavogi var að vinna í fyrrakvöld þegar dökkklæddur ræningi með úðavopn ruddist inn og heimtaði peninga. Hann spreyjaði úðanum í andlit hennar. Sami ræninginn er talinn hafa verið verki í söluturninum Videospólunni við Holtsgötu í Reykjavík.

Lóðaverð nýtt sem tekjustofn

"Það er ánægjulegt að það verði skoðað hvernig koma á í veg fyrir að sveitarfélögin stuðli að hækkun fasteignaverðs," sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður í utandagskrárumræðum á Alþingi í gær um þróun fasteignaverðs.

Vilja Íbúðalánasjóð út af markaði

"Frelsinu fylgir ábyrgð og bankarnir verða að axla þá ábyrgð gagnvart markaðnum til langtíma," segir Hjálmar Árnason, alþingismaður Framsóknarflokksins, en hann hefur ásamt Ögmundi Jónassyni, þingmanni Vinstri-grænna, farið hvað hörðustu orðum um Samtök banka og sparisjóða og aðför þeira að Íbúðalánasjóði.

Lögmaður dæmdur fyrir auðgunarbrot

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag starfandi lögmann í átta mánaða fangelsi fyrir auðgunarbrot þegar hann reyndi að skerða rétt þrotabús. Maðurinn bjó til kröfu og falsaði dagsetningu til að koma í veg fyrir að þrotabú gæti gert kröfu í eign skjólstæðinga hans.

Fólk er misnotað

Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, segir að innflutningur á vinnuafli á vegum ólöglegra og óskráðra starfsmannaleiga, sérstaklega frá Lettlandi og Portúgal, sé farinn að hafa mikil áhrif á vinnumarkað á Íslandi.

Vislandia selur þjónustu

Ilona Wilke, eigandi Vislandia, vísaði á GT verktaka og lögmann þeirra, Martein Magnússon, eða Fyrirtækjaskrána í Lettlandi þegar Fréttablaðið hafði samband við hana í Lettlandi í fyrradag.

Skýrslutaka fyrir sunnan

Stjórnendur GT verktaka verða á næstunni kallaðir til skýrslutöku á vegum Sýslumannsins á Seyðisfirði.

Verðlaun fyrir rafræna skráningu

Landlæknisembættið hefur hlotið IcePro-verðlaunin 2005 fyrir innleiðingu rafrænna skráninga bólusetninga frá heilsugæslustöðvum.

Lettnesk kona flytur inn fólk

Lettnesk kona, Ilona Wilka, rekur fyrirtækið Vislandia í Lettlandi og hefur flutt inn tugi Letta og Litháa á síðustu mánuðum. Vinnuaflið hefur starfað víða, m.a. við byggingu Salaskóla fyrir Kópavogsbæ. </font /></b />

Gefur falska mynd

Starfsmenn Hagstofunnar reikna húsaleigu vegna eigin húsnæðis til gjalda en ekki tekna í neysluvöruverðsvísitölunni. Þetta veldur því að vísitalan sýnir verðbólgu upp á rúm fjögur prósent þegar hún er í raun aðeins um 2,5 prósent. </font /></b />

Kennarastarfið er hugsjón

Paloma Ruiz Martinez er nýkjörin í stjórn Félags grunnskólakennara. Hún er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum þar sem spænskur faðir hennar og íslensk móðir búa. Paloma ákvað ung að verða kennari og lifir fyrir starfið. Hún segir kennara enn vera að jafna sig eftir verkfallið í vetur.

Raddir þingmanna á netinu

Síðan í haust hefur verið hægt að hlusta á raddsýnishorn alþingismanna á vef þingsins, althingi.is.

Birtingin gæti verið lögbrot

Svo virðist sem birting myndbands á netinu þar sem ungur maður verður fyrir banvænni líkamsárás samrýmist ekki lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

Með falsað vegabréf

Rúmlega þrítugur útlendingur sótti um pólitískt hæli þegar hann kom úr ferjunni Norrænu á þriðjudagsmorgun. Við komuna til landsins hafði hann framvísað ungversku vegabréfi sem grunur lék á að væri falsað. Hann viðurkenndi að svo væri og óskaði hælis hér á landi sem pólitískur flóttamaður.

Vinnsla hafin á ný í Grindavík

"Við frystum aðeins um helgina, en það er annars bara engin loðna til að frysta. Við bíðum bara eftir því," segir Óskar Ævarsson yfirmaður fiskimjölverksmiðju Samherja sem brann í Grindavík 9. febrúar eftir að mjöl ofhitnaði í þurrkara.

Hass og smygl á Reyðarfirði

Lögreglan á Eskifirði lagði í gær hald á fíkniefni og smyglvarning í vöruskemmu á Reyðarfirði um hádegisbilið í gær.

Alltof mikill hraðakstur

Rúmlega 40 bílstjórar voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í Kópavogi í gær og fyrradag. Sævar Finnbogason, varðstjóri í Kópavogi, segir þetta óvenjulega mikið og honum finnst undarlegt að þokan á þriðjudag hafi ekki einu sinni hægt á mönnum.

Mistök í útkalli

Bæjarstjórinn í Bolungarvík og forsvarsmenn Heilbrigðisstofnunar Bolungarvíkur voru meðal þeirra sem funduðu með Ólafi Þórhallssyni, forstjóra Neyðarlínunnar, á mánudag.

Iðnskólinn fær rausnarleg gjöf

Iðnskóli Reykjavíkur fékk að gjöf raflagnaefni til forritanlegra raflagna að andvirði 400 þúsund króna í tilefni hundrað ára afmæli skólans. Það var GIRA GmbH í Þýskalandi og S. Guðjónsson ehf., umboðsaðili GIRA á Íslandi sem gáfu skólanum gjöfina.

Aðför að landsbyggðinni

Stjórn Vinstri grænna í Skagafirði mótmælir hugmyndum Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðarráðherra um sameiningu og einkavæðingu Landsvirkjunar, RARIK og Orkubús Vestfjarða.

Höfðu samráð í nýju tjónakerfi

Tryggingafélögin höfðu með sér ólögmætt verðsamráð þegar þau tóku í notkun samræmt kerfi til að meta tjón. Samkeppnisráð sektar félögin um sextíu milljónir króna.

Metur lánstraustið óbreytt

Matsfyrirtækið Standard og Poors metur lánstraust Landsvirkjunar óbreytt miðað við núverandi eignarhald en segir horfurnar neikvæðar vegna boðaðrar einkavæðingar.

Bæði undrandi og glaður

Sjón átti ekki svefnsama nótt en varð bæði undrandi og glaður þegar hringt var í hann í morgun og honum tilkynnt að bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs féllu honum í skaut fyrir skáldsöguna Skugga-Baldur.

Segir sönnunarbyrði óeðlilega

Klúður í rannsókn lögreglu varð til þess að maður, sem sakaður var um manndrápstilraun var sýknaður í dag. Óeðlileg sönnunarbyrði, segir varalögreglustjóri.

Fargjald til Keflavíkur lækkar

Leigubílafargjaldið milli Reykjavíkur og Keflavíkur lækkar um rúmlega tvö þúsund krónur í haust þegar bílstjórar fá leyfi til að aka báðar leiðir með farþega.

Sektuð um 60,5 milljónir

Tryggingafélögin voru í gær sektuð um 60,5 milljónir af samkeppnisráði vegna ólöglegs verðsamráðs. Tryggingamiðstöðin hefur fallist á að greiða 18,5 milljónir í sekt og VÍS hefur fallist á að greiða 15 milljónir. Sjóvá-Almennar tryggingar eru sektuð um 27 milljónir, en tryggingafélagið hyggst áfrýja niðurstöðunni.

Sakar R-listann um lóðabrask

Guðlaugur Þór Þórðarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sakaði Reykjavíkurlistann um að hagnast á lóðabraski í borginni við utandagskrárumræður um þróun íbúðaverðs.

Mótmæla byggingu Brimborgar

Íbúar í Kópavogi óttast jákvæð viðbrögð skipulagsnefndar við fyrirhugaðri nær níu þúsund fermetra byggingum Brimborgar við Dalveg. Þeir segja að rísi húsin verði það umhverfisslys fyrir byggðina. Brimborg segir húsin hönnuð til að auka veg hverfisins. </font /></b />

Umsátursástand á fasteignamarkaði

Það er víðar en á suðvesturhorni landsins sem margir bítast um þær fáu eignir sem í boði eru. Spurn eftir húsnæði á Akureyri er jafnvel meiri en í Reykjavík. Fasteignasalar tala um umsátursástand á markaðnum. Vestfirðir skera sig þó úr. </font /></b />

Sjö króna sekt fyrir grammið

Bannað er með lögum að flytja inn munntóbak sem engu að síður margir nota. Allt munntóbak sem finnst er gert upptækt á Keflavíkurflugvelli og er sjö króna sekt á hvert gramm sem næst. Heildsali sem blaðið veit um selur um 125 kíló af munntóbaki á tveggja vikna fresti. </font /></b />

Fyrstu húsin í fimmtán ár

Verktakafyrirtækið Sniðill í Mývatnssveit áformar að reisa tvö parhús með fjórum íbúðum í Reykjahlíðaþorpi á næstu mánuðum en það eru fyrstu húsin sem byggð eru í þorpinu í hálfan annan áratug. Byrjað er á jarðvinnu við fyrra parhúsið og eru báðar íbúðirnar seldar.

Endurupptaka ekki útilokuð

Í dag eru 25 ár síðan Hæstiréttur kvað upp dóm sinn í Guðmundar- og Geirfinnsmálum, en þá héldu margir að lokið væri einhverju umtalaðasta sakamáli Íslandssögunnar. Sex sakborningar voru dæmdir í fangelsi allt frá einu ári og upp í sautján ár. Sú var þó ekki raunin. Gerð var árið 1997 tilraun til endurupptöku, sem var hafnað. Síðan hafa verið gerðar lagabreytingar og enn eru uppi ráðagerðir um að fá málin tekin upp.

Flutt í sjúkrabíl til Reykjavíkur

Kona, sem var ein í bíl sínum, var flutt með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans eftir að hún ók á mannlausan bíl við Austurveg á Selfossi í gærkvöldi. Hún mun ekki vera lífshættulega slösuð. Við áreksturinn kastaðist mannlausi bíllinn á annan mannlausan bíl og varð mikið eignatjón.

13,5 stig á Kirkjubæjarklaustri

Hitametið féll, eða öllu heldur kolféll, á Kirkjubæjarklaustri í gær þegar hitastigið komst upp í 13,5 stig en fyrra metið í febrúar var 9,9 gráður. Nýja metið er því rúmlega þremur og hálfu stigi hærra en það gamla.

Stúlkunnar enn leitað

Lögreglan í Reykjavík lýsir enn eftir Jónu Thuy Phuong Jakobsdóttur, fjórtán ára af asískum uppruna. Hún er 160 sm á hæð, svarthærð með brún augu. Ekki er vitað hvernig hún er klædd.

Sjá næstu 50 fréttir