Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
70 prósent telja Ingibjörgu hæfari Sjötíu prósent samfylkingarfólks telja Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur hæfari en Össur Skarphéðinsson, til að gegna formennsku í Samfylkingunni. Sextíu prósent sjálfstæðismanna telja Össur hins vegar hæfari til starfans. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem Gallup gerði fyrir Mannlíf í janúar og birtist í nýjasta tölublaði þess. 9.2.2005 00:01
Segir frágang farms ófullnægjandi Allar líkur benda til þess að frágangur á farmi Jökulfells, sem hvolfdi og sökk norðaustur af Færeyjum í fyrrakvöld, hafi verið ófullnægjandi þannig að farmurinn hafi kastast út í aðra síðu skipsins og valdið slysinu. 9.2.2005 00:01
Sakfelldur fyrir nefbrot Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag mann á tvítugsaldri í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að nefbrjóta sautján ára dreng fyrir utan Menntaskólann við Hamrahlíð í apríl síðastliðnum. Þá er honum einnig gert að greiða fórnarlambinu hundrað þúsund krónur í skaðabætur. 9.2.2005 00:01
Sjálfstæðismenn með langmest fylgi Sjálfstæðismenn bera höfuð og herðar yfir aðra flokka á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt nýrri skoðanakönnun Frjálsrar verslunar. Framsóknarflokkurinn mælist í annað sinn á einni viku með um fimm prósenta fylgi í höfuðborginni. 9.2.2005 00:01
Einkaviðtal við Halldór í kvöld Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra talar út um Íraksmálið í einkaviðtali sem hann féllst á að veita fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar. Í viðtalinu, sem verður sýnt í fréttatíma Stöðvar 2 og í Íslandi í dag í kvöld, skýrir hann í fyrsta sinn frá því hvað nákvæmlega varð til þess að nafn Íslands lenti á lista þeirra þjóða sem studdu innrás Breta og Bandaríkjamanna í Írak. 9.2.2005 00:01
Markið sett á 2015 Hægt er að ná svokölluðum þróunarmarkmiðum árþúsundsins árið 2015 með samhentu átaki alþjóðasamfélagsins. Þetta var meðal niðurstaðna fundar um sjálfbæra þróun sem haldinn var í Delí á Indlandi dagana 3. til 6. febrúar. 9.2.2005 00:01
Forleggjarar gefa milljón Félag íslenskra bókaútgefenda hefur gefið eina milljón króna til hjálparstarfs ABC barnahjálpar vegna hamfaranna við Indlandshaf. Sigurður Svavarsson formaður félagsins og Benedikt Kristjánsson framkvæmdastjóri afhentu Guðrúnu Margréti Pálsdóttur, frumkvöðli ABC barnahjálpar, upphæðina í janúar. 9.2.2005 00:01
Farmurinn líklega orsökin "Rannsókn stendur yfir og á meðan svo er vil ég ekki fara út í getgátur um hvað fór úrskeiðis þegar slysið átti sér stað," segir Claus Thornberg, framkvæmdastjóri Tesma-skipafélagsins, en það félag sá um rekstur og mönnun MS Jökulfells, sem sökk á mánudagskvöldið með þeim afleiðingum að fjórir létust og tveir eru taldir af. 9.2.2005 00:01
Brýn verkefni víðar en á Reykjanes "Réttlætingin fyrir því að frekari tvöföldun Reykjanesbrautarinnar var ákveðin þrátt fyrir að annars staðar sé umferð meiri og þyngri er fyrst og fremst vegna öryggisþátta," segir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra. Ákveðið hefur verið að bjóða það verk út í vor meðan vegir á borð við Vesturlandsveg og Suðurlandsveg bíða seinni tíma. 9.2.2005 00:01
Samkomulag um verð á hjartalyfi Samkomulag hefur náðst milli lyfjaverðsnefndar og lyfjafyrirtækisins Actavis um verðlagningu á nýju hjartalyfi sem kemur á markað innan skamms. 9.2.2005 00:01
Um 1,5 - 2 milljarðar í fangelsin Stefnt er að því að byggja eitt fangelsi og endurbæta stórlega þrjú til viðbótar fyrir 1,5-2 milljarða króna, að sögn forstjóra Fangelsismálastofnunar. Það er sama fjárhæð og upprunalega var gert ráð fyrir að bygging Hólmsheiðarfangelsis myndi kosta. </font /></b /> 9.2.2005 00:01
Tveir hópar á eina neyðarmóttöku Ef sú leið verður farin að setja ekki á fót sérhæfða móttöku fyrir þolendur heimilisofbeldis heldur nýta neyðarmóttöku fyrir þolendur nauðgana fyrir báða hópana verður að tryggja meira fjármagn í þá móttöku, að mati Ágústs Ólafs Ágústssonar alþingismanns, sem segir að þegar komi að baráttu gegn heimilisofbeldi þá þurfi hún að njóta forgangs.</font /> 9.2.2005 00:01
Eldur í bræðslu í Grindavík Slökkviliðsmenn berjast nú við eld sem kviknaði í bræðslunni Fiskimjöli og Lýsi í Grindavík, sem er í eigu Samherja, á fjórða tímanum. Sjónarvottar segjast hafa heyrt öfluga sprengingu í upphafi og í kjölfarið hafi þykkur reykur stigið upp frá húsnæði fyrirtækisins. Ljóst er að þetta er stórbruni og hefur slökkvilið víða að verið kallað á staðinn en ekki er ljóst á þessari stundu hvað olli sprengingunni. 9.2.2005 00:01
Snuð tekin af markaði Komið hefur í ljós við eftirlit á Norðurlöndum að þrjár tegundir af snuðum eru það hættulegar að þær verða teknar af markaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá norrænu ráðherranefndinni. Um er að ræðs snuð af gerðunum <em>Baby Nova</em>, <em>Stera</em> og <em>Pussy Cat</em> en þau féllu á prófinu í sameiginlegri, norrænni vöruprófun. Á tveimur þeirra losnaði sjálft snuðið af hringnum og af einu losnaði haldið. 9.2.2005 00:01
Lögregla rannsakar leyfin Atvinnu- og dvalarleyfi Litháa, sem eru að störfum hjá Impregilo á Kárahnjúkum, eru til rannsóknar hjá lögreglu á Egilsstöðum. 9.2.2005 00:01
J. Edgar Hoover á hælum Laxness Forstjóri Bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, vélaði um mál Halldórs Laxness í Bandaríkjunum. Bandarísk skjöl, sem voru gerð opinber í desember, sýna að J. Edgar Hoover bæði fékk og sendi skeyti með fyrirspurnum um tekjur Halldórs og ferðir. Í kjölfar afskipta Hoovers af Halldóri var hætt að gefa bækur skáldsins út í Bandaríkjunum. </font /></b /> 9.2.2005 00:01
Strætó kaupir strætó Strætó hefur keypt 30 nýja strætisvagna af Irisbus gerð og fékk fyrstu fimm vagnana afhenta í gær. Ásgeir Eiríksson, forstjóri Strætó, reynsluók einum vagnanna um götur Reykjavíkur í gær og lét vel af. 9.2.2005 00:01
Verksmiðja að mestu brunnin Fiskimjölsverksmiðjan Fiskimjöl og Lýsi í Grindavík er að mestu brunnin, en eldur kviknaði í henni á fjórða tímanum. Sjónarvottar segjast hafa heyrt öfluga sprengingu í upphafi og í kjölfarið hafi þykkur reykur stigið upp frá húsnæði fyrirtækisins. Slökkvilið í Grindavík barðist við eldinn ásamt slökkviliðsmönnum frá Brunavörnum Suðurnesja og úr slökkviliðinu af Keflavíkurflugvelli. 9.2.2005 00:01
Bæjarútgerðin í Hafnarfirði rifin Það stendur bókstaflega varla steinn yfir steini í gömlu bæjarútgerð Hafnarfjarðar. Hús félagsins eru að hverfa af yfirborði jarðar og áður en langt um líður verða risin þar fjölbýlishús. 9.2.2005 00:01
Lögsækir ríkið fyrir uppsögn Valgerður H. Bjarnadóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu, hefur stefnt ríkissjóði til greiðslu liðlega þrettán milljóna króna vegna þess að hún var neydd til að segja af sér. 9.2.2005 00:01
Ekki bræðsla í verksmiðju Samherja Gríðarlegt tjón varð þegar eldur kom upp í fiskimjölsverksmiðju Samherja í Grindavík nú síðdegis. Nokkuð ljóst er að engin bræðsla verður starfrækt í Grindavík á komandi vertíð. 9.2.2005 00:01
Þrýst hart á íslensk stjórnvöld Bandaríkjastjórn sótti hart að íslenskum stjórnvöldum að fara á lista hinna viljugu þjóða í Íraksstríðinu og það er þess vegna sem nafn Íslands lendir þar þann 18. mars 2003. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra viðurkennir í viðtali að ákvörðunin um að fara á þennan lista hafi tengst hagsmunum Íslands í varnarsamningunum við Bandaríkin. 9.2.2005 00:01
Ekki nóg að sigra í könnunum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir ekki nóg að sigra í könnunum. Það séu kosningarnar sjálfar sem gildi. Hún segist þó gleðjast yfir nýrri könnun sem sýnir að átta af hverjum tíu Samfylkingarmönnum telja hana hæfari til formennsku í flokknum en sitjandi formann, Össur Skarphéðinsson. 9.2.2005 00:01
Nýir tímar hjá Háskólasjóði Nýir menn, breyttir tímar, segir Björgólfur Thor Björgólfsson stjórnarformaður Háskólasjóðs Eimskipafélags Íslands. Hér eftir muni sjóðurinn þjóna hagsmunum háskólans og styðja hann með veglegum fjárframlögum eins og Vestur-Íslendingarnir sem stofnuðu sjóðinn ætluðust til. 9.2.2005 00:01
Engin gögn um innrás "Það má draga þá ályktun að það sé óeðlileg stjórnsýsla að haga málum með þessum hætti," segir Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður um skort á skriflegum gögnum frá forsætis-, utanríkis- og dómsmálaráðuneytinu um aðdraganda innrásinnar í Írak og stuðningi Íslands við hana. 9.2.2005 00:01
Auglýsingar úr umferð Auglýsingar Umferðarstofu, þar sem meðal annars barn sést falla fram af svölum, brjóta gegn ákvæðum samkeppnislaga að mati Samkeppnisstofnunar. Mikið hefur verið deilt um ágæti auglýsinganna og barst Samkeppnisstofnun kvörtun frá umboðsmanni barna sem bað stofnunina að kanna hvort þær samræmdust íslenskum lögum. 9.2.2005 00:01
Skilorð fyrir misnotkun Héraðsdómur Reykjaness dæmdi karlmann á sextugsaldri í gær í sex mánaða fangelsi fyrir að beita sonardóttur sína kynferðislegu ofbeldi. Dómurinn er skilorðsbundinn til þriggja ára. 9.2.2005 00:01
Veittist að lögreglu Rúmlega þrítugur karlmaður veittist að lögreglumanni í tollsal Leifsstöðvar á þriðjudagskvöld og hótaði honum. Tollverðir höfðu skömmu áður stöðvað manninn vegna gruns um að hann væri að reyna að smygla fíkniefnum innvortis. 9.2.2005 00:01
Fyrirtækinu stolið á mínútu Ljósmyndari við Laugaveginn brá sér á salernið á föstudag illu heilli. Þegar hann sneri aftur innan við mínútu síðar var fyrirtækið horfið. 9.2.2005 00:01
Ekki á dagskrá að lýsa Hellisheiði Ekki er áætlað að lýsa veginn um Hellisheiði á næsta áratug. Þetta kom fram á Alþingi í fyrradag í svari Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingarinnar. 9.2.2005 00:01
Tveimur feðrum vísað úr landi Tveimur erlendum feðrum sem kvæntir eru íslenskum konum hefur verið vísað úr landi eftir að breytingar á útlendingalögum tóku gildi síðasta vor. Þetta kom fram á Alþingi í gær í svari Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra við fyrirspurn Katrínar Júlíusdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar. 9.2.2005 00:01
Tvöfalt fleiri velja Ingibjörgu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir nýtur rúmlega tvöfalt meiri stuðnings en keppinautur hennar um formannssæti í Samfylkingunni, Össur Skarphéðinsson, samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Gallup vann fyrir Mannlíf. 9.2.2005 00:01
Skelfilegt að horfa á brunann "Skelfilegt er að horfa á vinnustað sinn brenna," sagði Loftur Guðmundsson starfsmaður fiskimjölsverksmiðjunnar Fiskimjöls og lýsis. Hann stóð utan við húsið í gær og fylgdist með slökkvistarfi rúmlega þrjátíu manna úr þremur slökkviliðum. 9.2.2005 00:01
Óljóst með áframhaldið Of snemmt er að segja hvort verksmiðjan Fiskimjöl og lýsi í Grindavík verður endurbyggð eftir brunann að sögn Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja. 9.2.2005 00:01
Boðar hertari aðgang í Háskólann Vegna aðhaldsaðgerða við Háskóla Íslands fækkaði nemendum hans um 321 milli ára. Nemendum hefur ekki fækkað að neinu ráði frá því árið 1992. Páll Skúlason, rektor Háskóla Íslands, segir að neita hafi þurft fólki án stúdentsprófs sem sótt hafi um nám á haustönn um aðgang. 9.2.2005 00:01
Ógnaði fólki með riffli Maður vopnaður riffli reyndi að ræna söluturn við Langholtsveg í gærkvöldi. Að sögn Eydísar Ástráðsdóttur, eiganda söluturnsins, kom ungur grímuklæddur maður inn um níuleytið, ógnaði starfsfólki með riffli og heimtaði peninga. Hann hvarf þó á braut tómhentur. 9.2.2005 00:01
100 milljónir á ári í rannsóknir Háskólasjóður Eimskipafélagsins mun árlega geta lagt Háskóla Íslands til 100 milljónir króna sem nýta á til að efla rannsóknartengt framhaldsnám meistara- og doktorsnema. Verðmæti sjóðsins er nú um 2,2 milljarðar króna. 9.2.2005 00:01
Jökulfell sokkið, sex manna leitað Sex manna úr ellefu manna áhöfn flutningaskipsins Jökulfells, sem valt og sökk um 60 sjómílur norðaustur af Færeyjum í gærkvöldi, er enn saknað og hefst víðtæk leit að þeim úr lofti strax í birtingu. Fokkervél Landhelgisgæslunar er um það bil að leggja af stað frá Reykjavík til að taka þátt í leitinni. 8.2.2005 00:01
Klámstjarna í bíómynd á Ströndum Fjögurra manna amerískt kvikmyndatökuteymi heimsótti Strandasýslu um helgina. Austur-Evrópska klámmyndastjarnan Kyla Cole lék aðalhlutverkið í myndinni, sem tekin var upp í heitum potti á Hótel Laugarhóli. Hótelstjórana grunaði ekki neitt. 8.2.2005 00:01
Smygl á 4 kílóum af amfetamíni Þjóðverji og Íslendingur, báðir á þrítugsaldri, hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna smygls á fjórum kílóum af amfetamíni með flugi hingað til lands nýverið. Það er fjórfalt meira magn en áður hefur náðst af flugfarþega. 8.2.2005 00:01
Tvöföldun haldið áfram Haldið verður áfram við tvöföldun Reykjanesbrautar strax í sumar, eða mun fyrr en gert var ráð fyrir í Vegaáætlun. Það var Sturla Böðvarsson samgönguráðherra sem tilkynnti þetta á fjölmennum borgarafundi í Stapa í gærkvöldi og sagði að verkið yrði boðið út strax í vor. 8.2.2005 00:01
Vopnað rán í söluturni Vopnað rán var framið í söluturni við Kirkjustétt í Grafarholti klukkan rúmlega ellefu í gærkvöldi og komst þjófurinn undan með eitthvað af peningum. Hann ógnaði tveimur starfsmönnum með hamri en vann þeim ekki mein. Talið er að ræninginn hafi komist undan á bíl og er hann ófundinn. 8.2.2005 00:01
Jökulfell: Leit hafin úr lofti Leit er nú hafin úr lofti að þeim sex skipverjum af Jökulfelli sem ekki fundust við mikla leit af sjó í alla nótt eftir að skipinu hvolfdi norðaustur af Færeyjum og sökk fyrir miðnætti. Þyrla af danska eftirlitsskipinu Vædderen bjargaði fimm skipverjum sem voru á sundi í sjónum þegar þyrlan kom að og síðan fannst mannlaus gúmmíbjörgunarbátur. 8.2.2005 00:01
Meintur brennuvargur enn í haldi Karlmaður, sem er grunaður um að hafa kveikt í gömlu íbúðarhúsi við Kársnesbraut í Kópavogi í gær, er enn í haldi lögreglu og ræðst í dag hvort óskað verður eftir gæsluvarðhaldsúrskurði yfir honum. Húsið stórskemmdist. 8.2.2005 00:01
Atli Dam látinn Atli Dam, fyrrverandi lögmaður Færeyja, er látinn, 72 ára gamall. Atli var einn áhrifamesti stjórnmálamaður Færeyinga um langt árabil og lögmaður færeysku stjórnarinnar um 16 ára skeið en það embætti jafngildir forsætisráðherraembætti hér á landi. 8.2.2005 00:01