Innlent

Veittist að lögreglu

Rúmlega þrítugur karlmaður veittist að lögreglumanni í tollsal Leifsstöðvar á þriðjudagskvöld og hótaði honum. Tollverðir höfðu skömmu áður stöðvað manninn vegna gruns um að hann væri að reyna að smygla fíkniefnum innvortis. Maðurinn var færður í fangageymslur en reyndist ekki vera með fíkniefni á sér en grunur lék á að hann væri undir áhrifum slíkra efna. Maðurinn lét öllum illum látum í fangaklefa svo ekki var hægt að skera úr um hvort hann væri undir áhrifum eða ekki. Málið er nú á borði ríkissaksóknara.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×