Ekki bræðsla í verksmiðju Samherja 9. febrúar 2005 00:01
Gríðarlegt tjón varð þegar eldur kom upp í fiskimjölsverksmiðju Samherja í Grindavík nú síðdegis. Nokkuð ljóst er að engin bræðsla verður starfrækt í Grindavík á komandi vertíð. Mikill eldur braust út í verksmiðjunni eftir sprengingu í þurrkara um klukkan hálffjögur í dag. Guðmundur Ólafsson varð vitni að henni og segir að rétt fyrir hálffjögur hafi hann heyrt mikinn hvell og tíu mínútum seinna hafi allt skíðlogað. Hann hafi verið inni á skrifstofu og fljótlega eftir hvellinn hafi allt horfið í gufumekki. Loftur Ólafsson, starfsmaður í verksmiðjunni, segir að um átta manns hafi verið að vinna í henni þegar eldurinn braust út en að en hann telur að enginn hafi verið í hættu. Ásmundur Jónsson, slökkviliðsstjóri í Grindavík, segir að þakið á verksmiðjunni hafi að mestu verið farið af þegar slökkvilið hafi komið á vettvang og honum sýnist sem öll verksmiðjan sé ónýt. Aðspurður hvernig gengið hafi að fást við eldinn segir Ásmundur að baráttan hafi verið mjög erfið. Reynt hafi verið að verja skrifstofubygginguna og mjölskemmu en slökkviliðið hafi fyrst varið gufukatla og sýrur til þess að missa það ekki. Það hafi verið töluverð vinna. Þorsteinn Már Baldvinnsson, forstjóri Samherja, segir að fyrirtækið hafi verið byggt upp á undanförnum árum og þeirri uppbyggingu hafi lokið síðastliðið sumar. Ljóst sé að ekki verði brædd loðna í verksmiðjunni í vetur. Aðspurður hvort rétt sé að það kosti 1,5 milljarða að byggja upp sams konar verksmiðju segir Þorsteinn ekki vita það. Þegar svona hlutir gerist sé byrjað á því að athuga hvort nokkur hafi slasast. Sem betur fer séu allir heilir en seinna verði spáð í eignatjón.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Sjá meira