Fleiri fréttir

Eið Smára á ensku eða íslensku?

Þorri þingflokks sjálfstæðismanna hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um breytingu á útvarpslögum svo útvarpa megi íþróttaviðburðum án þess að lýsing á íslensku fylgi með. Forstöðumaður Íslenskrar málstöðvar er málinu hlynntur en formaður Íslenskrar málnefndar ekki.

Osprey Marine kaupir Sléttbak

Kanadíska útgerðarfyrirtækið Osprey Marine, sem er í eigu hjónanna Ron og Hetty Mann, hefur gert tilboð í togarann Sléttbak frá Akureyri.

Bærinn skiptir sér ekki af

Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, segir að bærinn fái forkaupsrétt ef aflaheimildir fylgi skipi, annars sé ekki um það að ræða.

Tveggja enn saknað

Fjórir skipverjar á flutningaskipinu Jökulfelli fórust þegar skipið sökk skammt frá Færeyjum í nótt. Fimm var bjargað. Tveggja er enn saknað en leit hefur verið hætt vegna veðurs.

Tímasetning samgönguráðherra góð

Sú ákvörðun Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra að bjóða út þann kafla Reykjanesbrautar frá Vogum að Njarðvík í einu lagi nú í vor hlýtur lof bæði hjá Suðurnesjamönnum en eins hjá forsvarsmönnum verktakafyrirtækja sem hyggjast margir bjóða í verkið.

Milljónum Máka átti að skila

Milljónunum 35 sem veitt var til að ljúka barraeldi Máka á Sauðárkróki áttu að bjarga verðmætunum, segir Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Fénu hafi átt að skila.

Netöryggisdagurinn í þrátíu löndum

Alþjóðlegi-netöryggisdagurinn var haldinn hátíðlegur í þrjátíu löndum í gær. Í Hlíðaskóla í Reykjavík tók Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra við kennsluefni fyrir grunnskólabörn um örugga og ábyrga netnotkun.

Tveggja enn saknað af Jökulfelli

Fjórir hafa fundist látnir og tveggja manna er enn saknað eftir að fraktskipinu Jökulfelli hvolfdi skammt frá Færeyjum í fyrrakvöld. Leit var hætt klukkan hálf fjögur í gær vegna vonsku veðurs og myrkurs. Fimm skipverjanna var bjargað um borð í þyrlu sem tilheyrir danska eftirlitsskipinu Vædderen. Fimmmenningunum heilsaðist vel og gátu þeir gengið frá þyrlunni hjálparlaust.

Rafmagnslaust í Garðabæ

Háspennubilun hefur orðið með þeim afleiðingum að heilu hverfin í Garðabæ eru rafmagnslaus. Þessa gætir norðan lækjar í Móum og Flötum og eins er rafmagnslaust í íþróttamiðstöðinni Ásgarði. Leit að biluninni er hafin.

Nýtt varðskip á næsta ári

Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir björtustu vonir standa til þess að nýtt varðskip verði sjósett eftir eitt til eitt og hálft ár. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur falið Landhelgisgæslunni að kanna möguleika á nýjum skipa- og flugvélakosti miðað við þarfir Gæslunnar.

Mannlaus björgunarbátur fannst

Skipverjar á bátnum Benna Sæm fundu mannlausan björgunarbát út af Stafnnesi á Suðurnesjum í gærmorgunn. Ekki reyndist hafa verið á ferðum en björgunarbáturinn hafði fallið frá togaranum Sólbergi.

Selma með forskot í Úkraínu

Selma Björnsdóttir söngkona hefur verið valin flytjandi framlags Ríkisútvarpsins í Eurovision söngvakeppnina.

Áhyggjur af lokun Sorpu

Umhverfisráð Reykjavíkur samþykkti í gær einróma bókun þar sem lýst er yfir áhyggjum vegna lokunar endurvinnslustöðvar Sorpu við Bæjarflöt í Grafarvogi. Um síðustu áramót var endurvinnslustöðinni lokað í sparnaðarskyni.

Skarst í andliti og missti tennur

Ferðaskrifstofa Íslands hefur verið sýknuð af sex milljóna króna skaðabótakröfu tæplegrar tvítugrar konu sem slasaðist í sumarfríi í Portúgal fyrir sex árum. Hún var þréttan ára þegar slysið varð.

Tvöföldun Reykjanesbrautar fagnað

Suðurnesjamenn fögnuðu yfirlýsingu samgönguráðherra á borgarafundi í Stapa í gærkvöld um að annar áfangi tvöföldunar Reykjanesbrautar yrði boðinn út í einu lagi í vor. Ekki er ólíklegt að þeim áfanga ljúki fyrir árslok næsta árs.

Þrír íslenskir hermenn í Írak

Ekki færri en þrír Íslendingar gegna nú hermennsku í Írak og sá fjórði er á leiðinni þangað. Átján ára piltur úr Vogum á Vatnsleysuströnd varð fyrir þeirri lífsreynslu á dögunum að eldflaug lenti við svefnskála hans en til allrar mildi sprakk hún ekki.

Styrkir uppsetningu á Toscu

Landsbanki Íslands styrkir uppsetningu Íslensku óperunnar á Toscu eftir Puccini. Samstarfssamningur þess efnis var kynntur síðdegis í dag. Verkið verður frumsýnt 11. febrúar.

6% stjórnarmanna konur

Konur skipa aðeins sjötta hvert sæti í stjórnum íslenskra lífeyrissjóða. Hlutfallið er enn lægra þegar kemur að stjórnum fyrirtækja í Kauphöll Íslands, en innan við sex prósent stjórnarmanna eru konur. 

Bæta öryggi barna á Netinu

Ísland er í hópi þrjátíu landa sem ætla að gera átak til að bæta öryggi barna á Netinu. Alþjóðlegi netöryggisdagurinn er í dag.

Ástarsorg getur verið lífshættuleg

Ástarsorg getur verið lífsh<font size="2"></font>ættuleg að mati erlendra sérfræðinga. Sorg, sem Íslendingar hafa þekkt til svo öldum skiptir.

Bögglaði fólksbíl undir sig

Minnstu munaði að verr færi þegar skólabíll rann í fljúgandi hálku niður Eskihvamminn í Kópavogi í morgun, hafnaði á fólksbíl á mótum Fífuhvammsvegar og bögglaði fólksbílinn nánast undir sig.

60% nefndu Ingibjörgu Sólrúnu

Sextíu prósent þeirra sem svöruðu í skoðanakönnun Frjálsar verslunar nefndu Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur þegar spurt var hvern viðkomandi vildi sjá sem formann Samfylkingarinnar. Fjörutíu prósent nefndu Össur Skarphéðinsson.

Fok í Grafarvogi

Lögreglan í Reykjavík kallaði út björgunarsveitarmenn laust fyrir miðnætti til að hefta járnplötur sem voru að fjúka af þaki nýbyggingar í Grafarvogi. Verkið gekk vel og fljótlega upp úr miðnætti fór að lægja á ný, mun fyrr en búist var við.

Kjartan Gunnarsson sæti eignarnámi

Gunnar Eydal borgarlögmaður telur fullreynt að ná samningum við Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, um kaup 4 hektara spildu á Norðlingaholti og vill að borgin taki landið eignarnámi. Lokatilboð borgarlögmanns var 50 milljónir króna en Kjartan vill 133 milljónir. Kjartan segir sér mismunað og að borgin beiti hann afli.

Níu stjórnendur sögðu upp

Níu stjórnendur í fyrirtækinu P. Samúelssyni sem rekur Toyota-umboðið hér á landi sögðu í gær upp störfum sínum vegna óánægju yfir því að eigendur fyrirtækisins ákváðu að láta Emil Grímsson framkvæmdastjóra fara. Toyota-umboðið hefur verið eitt umsvifamesta bílaumboðið hér á landi um árabil og var síðsta ár besta rekstrarár þess frá upphafi.

Farþegum Express fjölgaði um 19%

Farþegum Iceland Express fjölgaði um 19% í janúar síðastliðnum frá sama mánuði í fyrra. Alls flugu um þrettán þúsund farþegar með félaginu í síðasta mánuði. Að mestu eru það erlendir ferðamenn sem standa undir fjölgun farþega Iceland Express í janúarmánuði, einkum þó frá London Stansted.

Gámar fuku fyrir austan

Mildi þykir að enginn skyldi vera á ferðinni í stefnu tveggja gáma sem flugu í loftköstum allt að kílómeters leið í vindhviðum á Norðfirði í morgun. Hvor gámur er tuttugu feta langur og lenti annar á gamalli dráttarvél sem verið er að gera upp og braut hana í frumeinidir, eins og lögreglumaður orðaði það.

5 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás

Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í fimm mánaða fangelsi fyrir líkamsárás og brot á vopnalögum. Hann gekk berserksgang í samkvæmi í heimahúsi á Ísafirði í ágúst árið 2003, sló þar mann þannig að talsvert sá á honum og neitaði að leggja frá sér hættulegan hníf þegar lögregla skipaði honum að gera það.

Ágreiningur ekki orsökin

P. Samúelsson ehf., sem rekur Toyota-umboðið hér á landi, hafnar því sem segir í tilkynningu frá nokkrum starfsmönnum að „djúpstæður ágreiningur innan fjölskyldu og meirihlutaeigenda P. Samúelssonar ehf.“ hafi leitt til þess að fyrrum forstjóri hafi þurft að láta af störfum. 

Tugþúsundum bolla sporðrennt í dag

Búast má við að einhverjir tugir þúsunda af bollum renni ofan í landsmenn í dag. Bakarar landsins hafa staðið sveittir við ofna sína frá því fyrir helgi við að baka bollur, enda tóku margir forskot á sæluna og sporðrenndu nokkrum slíkum.

Tvöföldun verði lokið hið fyrsta

Borgarafundur verður haldinn í Stapanum í Reykjanesbæ í kvöld þar sem þess verður krafist að lokið verði við breikkun Reykjanesbrautar hið fyrsta. Fyrri áfanga við tvöföldun vegarins lauk í júlí síðastliðnum og síðari hlutinn er ekki á vegaáætlun fyrr en árið 2010.

Bráðaviðvörunarkerfi opnað

Umhverfisráðherra mun á föstudaginn opna fyrir aðgengi almennings að bráðaviðvörunarkerfi Veðurstofunnar um jarðvá. Með bráðaviðvörun er átt við alhliða viðvörun og upplýsingar sem komið er á framfæri frá þeim tíma sem vart verður við að hamfarir séu að hefjast eða líkur eru á að þær séu yfirvofandi.

Taka Aðalstræti 10 í sína vörslu

Reykjavíkurborg og Minjavernd hf. hafa gert með sér samning um að félagið taki húsið Aðalstræti 10 í vörslu til 35 ára. Markmið samningsins er að húsið verði endurbyggt á þann hátt sem því hæfir sem einu elsta húsi í Reykjavík. Þar með verður endurgerð húsa við Aðalstræti lokið.

Stríðið um Smáralind

Til stóð að halda Gettu betur í Smáralind en í síðustu viku slitnaði upp úr viðræðum um leigu á aðstöðunni. Keppnin hefst á morgun og hefur verið fundinn annar staður.

Franski faðirinn fékk sex mánuði

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag rúmlega fertugan franskan mann í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa numið tveggja ára dóttur sína brott af heimili sínu í Reykjavík og farið með hana til Frakklands. Refsingin er öll skilorðsbundin en verjandi mannsins reiknar með að áfrýja dóminum til Hæstaréttar.

Forstöðumenn ráðnir

Ráðið hefur verið í stöður þriggja verkefnisstjóra Vaxtarsamnings Eyjafjarðar og var gerður samningur við þrjár stofnanir Háskólans á Akureyri um stjórnun þeirra verkefna.

Dagar salkjöts og bauna

Fólk velur heldur magrara saltkjöt en áður og saltminna, segir sölustjóri Sláturfélags Suðurlands. Sala hafi heldur aukist en dregist saman síðustu ár.

Fleiri gista á hótelum

Á sama tíma og erlendum ferðamönnum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæp þrettán prósent milli áranna 2003 og 2004, fjölgaði gistinóttum á heilsárshótelum um tæp níu prósent.

Tvöföldunin boðin út á árinu?

Búist er við að samgönguráðherra tilkynni á fundi í Njarðvík í kvöld að næsti áfangi í tvöföldun Reykjanesbrautar verði boðinn út á þessu ári.

Grunaður um íkveikju

Karlmaður á sextugsaldri er í haldi lögreglunnar í Kópavogi grunaður um að vera valdur að eldsvoða í einbýlishúsi við Kársnesbraut. Samkvæmt upplýsingum lögreglu kom eldur upp í húsinu um tvöleytið í dag en nágrannar höfðu gert slökkviliði viðvart.

Uppsagnir á Hofsósi

"Við erum að fara yfir þetta allt saman og kanna hvort þessar uppsagnir séu lögmætar og samkvæmt bókunum," segir Jón Karlsson, formaður stéttarfélagsins Öldunnar á Sauðárkróki. Fjórtán starfsmönnum fiskvinnslunnar Kolku á Hofsósi hefur verið sagt upp störfum og er það talsvert áfall fyrir ekki stærra bæjarfélag.

Elsta húsið fær andlitslyftingu

"Þetta samkomulag þýðir að Minjavernd tekur Aðalstræti 10 í sína vörslu næstu 35 árin og mun færa húsið í sitt upprunalega horf næstu mánuði," segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri. Reykjavíkurborg hefur gert samning við Minjavernd um að lagfæra Aðalstræti 10 en það hús er það elsta í borginni.

Vilja breytingar á útvarpslögum

"Okkar mat er að ríkið eigi ekki að skipta sér af einkarekstri með neinum hætti og frumvarpið er í fullu samræmi við þá skoðun okkar," segir Hafsteinn Þ. Hauksson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna.

Halldór áhyggjulaus

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra kippir sér ekki upp við það að skoðanakönnun sýni að hann sé sá stjórnmálamaður sem þjóðin ber minnst traust til. Hann segir að kannanir séu líka mismunandi vandaðar.

Frumvarp til að leyfa enska þuli

Allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins að ráðherrum undanskildum hafa lagt fram frumvarp á Alþingi sem gerir það að verkum að hægt verður að sýna frá íþróttaviðburðum án þess að nota íslenska þuli eða þýðingartexta. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins neitar því að flokkurinn sé að rétta Skjá einum hjálparhönd.

Sjá næstu 50 fréttir