Fleiri fréttir

Tilkynnt um blaðamannaverðlaun

Dómnefnd Blaðamannaverðlauna Blaðamannafélags Íslands hefur komist að niðurstöðu um tilnefningar til verðlaunanna fyrir árið 2004. Þrjár tilnefningar eru í hverjum flokki fyrir sig og verður tilkynnt um sigurvegara á Pressuballi sem haldið verður næstkomandi laugardag.

Gerir athugasemdir við álit

Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni hefur borist álit Lýðheilsustöðvar vegna umsóknar sem Ölgerðin sendi Umhverfisstofnun og varðar vítamínbætingu á drykknum Kristal Plús, en Umhverfisstofnun stöðvaði dreifingu hans í síðasta mánuði. Ölgerðin gerir alvarlegar athugasemdir við álitið og segi það einkennast af mótsögnum og ómálefnalegum útreikningum.

Hætt að sýna auglýsingar

Birtingar á auglýsingum frá Umferðarstofu hafa nú verið stöðvaðar tímabundið, eftir að Samkeppnisstofnun fór þess á leit við Umferðarstofu.

Aldrei verið óvinsælli

Þriðjungur landsmanna segist bera minnst traust til Halldórs Ásgrímssonar af öllum stjórnmálamönnum. Aðeins fjögur prósent telja hann trúverðugastan íslenskra stjórnmálamanna. Davíð Oddsson nýtur aftur á móti mests trausts.

Segjast ekki sitja á frumvörpum

Sjálfstæðismenn hafa frestað því að afgreiða þrjú frumvörp Valgerðar Sverrisdóttir um samkeppnismál frá því í nóvember en langt er frá því að hinn stjórnarflokkurinn afgreiddi málið. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir sína menn ekki sitja á frumvörpunum heldur sé þetta dæmi um vönduð vinnubrögð.

Heilræði til Halldórs

Steingrímur Hermannsson var jafnan vinsæll á meðan hann gegndi embætti forsætisráðherra. Hann gefur Halldóri Ásgrímssyni nokkur góð ráð.

Gagnrýnir ný tollalög

Ný tollalög sem fjármálaráðherra mælir fyrir á Alþingi á morgun einkennast um of af þeirri oftrú á refsingum sem tröllríður samfélaginu. Þetta segir Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Afleiðingarnar bitni á almennu starfsfólki sem megi refsa fyrir gáleysi eða mistök í starfi verði frumvarpið að lögum.

Sextán fíkniefnamál í miðbænum

Sextán fíkniefnamál komu upp á tæplega þremur klukkutímum í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt laugardags. Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík, segir málafjöldann staðfesta að mikil fíkniefnaneysla sé samfara skemmtanalífinu í miðborginni. Mest fannst af kókaíni og amfetamíni en þó eitthvað af kannabis.

Leggst gegn vítamínbættum drykk

Lýðheilsustöð leggst gegn því að Kristall Plús frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar verði settur á markað vegna fólasíns í drykknum. Framleiðandinn furðar sig á þessu þar sem nokkuð vantar upp á neyslu slíks vítamíns hjá þjóðinni að mati Lýðheilsustöðvar. Þá segir hann fólasín algjörlega hættulaust efni.

Samfylking spurulust allra flokka

Alþingismenn spyrja um allt á milli himins og jarðar, stjórnarandstæðingar þó sýnu meira en stjórnarliðar. Kynþroski þorsks og símtöl til Grænlands eru á meðal fyrirspurna sem bornar hafa verið upp á yfirstandandi þingi.

Geta tekið á móti stærri skipum

Miklar framkvæmdir standa yfir við höfnina í Bolungarvík en eftir að búið er að dýpka innsiglinguna allverulega á allur loðnuflotinn að geta lagst að höfn í Bolungarvík sem og stærri flutningaskip. Framkvæmdirnar kosta um 54 milljónir.

Segir útvarpslög gölluð

Sjónvarpsstjóri Skjás eins telur að stuttur texti um gang mála í ensku knattspyrnunni fullnægi þýðingarskyldu útvarpslaga. Hann segir að ef þess verði krafist að íslenskir þulir lýsi öllum leikjum verði það gert en útvarpslögin séu gölluð.

Fimm á sjúkrahús eftir ofsaakstur

Fimm voru fluttir á slysadeild eftir ofsaakstur í nótt. Lögreglan í Reykjavík mældi ökumann á 190 kílómetrahraða í Ártúnsbrekkunni um klukkan þrjú og náðist hraðaksturinn á myndband lögreglunnar. Ökumaðurinn stöðvaði ekki bílinn þegar hann mætti laganna vörðum heldur hélt áfram ferðinni og hafnaði aftan á bifreið sem var að taka af stað við umferðarljósin á mótum Miklubrautar og Grensásvegar.

Skíðasvæði víða opin

Skíðasvæðin í nágrenni höfuðborgarsvæðisins eru opin í dag frá klukkan tíu og fram eftir degi. Þar er frost á milli níu og ellefu stig og léttskýjað. Þá er skíðasvæði Tindastóls við Sauðárkrók opið til klukkan fimm. Að sögn staðarhaldara er þar nýfallinn snjór og afskaplega gott færi. Opið er til fjögur á skíðasvæðinu á Siglufirði.

Þurfa að taka útreið alvarlega

Framsóknarmenn þurfa að taka slæma útreið í skoðanakönnunum alvarlega segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Hann hvetur félaga sína til að líta yfir sviðið nú, óróa og fylgistap, og skoða í því ljósi að í haust hafi hann þótt helsta vandamál flokksins.

Skorinn á háls en fær ekki bætur

"Ég er breyttur maður eftir árásina," segir Ásgeir Elíasson sem varð fyrir hrottafenginni árás þegar hann var leigubílstjóri í afleysingum. Eina nóttina komu fjórir menn inn í bíl til hans. Þegar kom að greiðslu var Ásgeir skorinn á háls. Ofbeldi gegn leigubílstjórum er algengt og vekur því furðu að þeir séu ekki tryggðir í starfi.

Aðalfundur Freyju ólöglegur

Laganefnd Framsóknarflokksins komst að þeirri niðurstöðu í gærkvöld að aðalfundur Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi, sem fram fór 27. janúar síðastliðinn hefði verið ólöglegur. Ástæðan fyrir því er sögð sú að láðst hafi að samþykkja breytingar á lögum félagsins fyrir fundinn en ekki sú að fjörutíu og þrjár konur hafi gengið í félagið daginn sem hann var haldinn. Halda verður nýjan aðalfund í þessum mánuði.

550 þúsund safnast að Kárahnjúkum

Starfsmenn Impregilo við Kárahnjúka söfnuðu á dögunum ríflega 250 þúsund krónum til handa þeim sem urðu illa úti í hamförnunum í Suðaustur-Asíu annan dag jóla. Fyrirtækið sjálft rúmlega tvöfaldaði þá upphæð og því voru 550 þúsund krónur lagðar inn á reikning Rauða kross Íslands til hjálpar fórnarlömbum flóðbylgjunnar.

Mikil mildi að ekki varð stórslys

Mikil mildi þykir að ekki hlaust af stórslys þegar ökumaður, sem ekið hafði á tæplega 200 kílómetra hraða eftir Miklubraut, ók aftan á kyrrstæða bifreið sem í voru fjórir farþegar.

Getur skipt upp fyrirtækjum

Nýtt Samkeppniseftirlit fær skýra lagaheimild til að skipta upp fyrirtækjum sem hafa markaðsráðandi stöðu verði nýtt frumvarp viðskiptaráðherra að lögum. Þrjú frumvörp um breytingar á samkeppnislögum hafa verið til umræðu í þingflokkum stjórnarflokkanna frá því í nóvember.

Fíkniefni fundust við húsleit

Sextíu grömm af ætluðu amfetamíni og smáskammtur af LSD fundust við húsleit á Selfossi í gærmorgun. Fjórir voru handteknir.

Innbrot upplýst

Við húsleit á Selfossi í vikunni fannst þýfi úr fimm eða sex innbrotum í bænum síðustu daga.

Fimm ára stúlka á batavegi

Fimm ára stúlka sem féll ofan af svölum á fjórðu hæð fjölbýlishúss við Háaleitisbraut fyrr í vikunni er á batavegi. Hún er komin af gjörgæsludeild og að sögn sérfræðings á Landspítalanum í Fossvogi er líðan stúlkunnar stöðug, hún úr hættu og með meðvitund. Hún hlaut slæm beinbrot og innvortis blæðingar en virðist hafa sloppið við höfuðmeiðsl og meiðsl á hrygg.

Fór betur en á horfðist

Fimm sluppu með minniháttar meiðsl í umferðaróhappi sem varð um áttaleytið í fyrrakvöld á Norðurlandsvegi í Skagafirði.

Bílvelta á svörtum bletti

Ökumaður missti stjórn á jeppabifreið sinni í hálku og endaði í hrauninu utan við þjóðveginn austan við Kirkjubæjarklaustur um miðnætti aðfaranótt föstudags

Nýári fagnað við Kárahnjúka

Í dag verður kínverska nýárinu fagnað við Kárahnjúka en miðvikudaginn 9. febrúar lýkur hinu kínverska ári apans og ár hanans hefst.

Hálf milljón á Kárahnjúkum

Hópur erlendra starfsmanna við Kárahnjúka á ættingja og vini sem urðu illa úti eða létust í flóðbylgjunni í löndunum við Indlandshaf í lok desember 2004.

Aðalfundur Freyju ógiltur

<b><font face="Helv" color="#008080"> Fylkingarnar í kvenfélaginu Freyju í Kópavogi eru báðar ánægðar með niðurstöðu laganefndar Framsóknarflokksins. Gamla stjórnin telur valdaráni afstýrt en nýju konurnar telja hann sýna að vinnubrögð þeirra hafi verið í lagi. </font></b>

Segir valdaráni afstýrt

Naumlega tókst að afstýra valdaráni þegar laganefnd Framsóknarflokksins komst að þeirri niðurstöðu í gærkvöld að aðalfundur Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi, hefði verið ólöglegur, að mati Unu Maríu Óskarsdóttir varaformanns. Aðalheiður Sigursveinsdóttir sem var stjórnarmaður í Freyju segir gleðilegt að nýjar aðildarkonur hafi verið hreinsaðar af áburði um vafasaman tilgang með veru sinni í félaginu.

Erlent vinnuafl notað í hagstjórn

Fyrrverandi forstjóri Útlendingastofnunar segir Íslendinga ekki standa sig nógu vel í málefnum innflytjenda. Hann segir erlent vinnuafl á vissan hátt notað sem hagstjórnartæki.

Bjóðast til að sýna leiki á Sýn

Sjónvarpsstjóri Sýnar hefur boðið sjónvarpsstjóra Skjás eins að senda út á Sýn þá leiki í ensku knattspyrnunni sem Skjár einn sendir út án þula.

Mjólkurvörur lægstar í Bónus

Bónus var langoftast með lægsta verðið í verðkönnun á mjólkurvörum og ostum sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í nokkrum matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu í vikunni. 49 vörutegundir af 56 og sex sem skoðaðar voru reyndust ódýrastar í Bónus. 10-11 var oftast með hæsta vöruverðið en 43 vörutegundir voru dýrastar þar.

Meiri snjór en undanfarin ár

Snjórinn í janúarmánuði var meiri víðast hvar á landinu en verið hefur undanfarin ár samkvæmt yfirliti Veðurstofunnar. Óvenju umhleypingasamt var í mánuðinum og illviðri nokkuð tíð. Síðasta vikan var hins vegar mjög hlý og leysti snjó bæði af láglendi og langt upp eftir fjöllum.

Tók stungu fyrir einstæða móður

Bifhjólamaðurinn Jón Trausti Lúthersson er sagður hafa framið hetjudáð í fyrrakvöld þegar hann gekk á móti óðum hnífamanni sem ofsótti einstæða móður í Mosfellsbæ. Hann hlaut hnífsstungu nokkrum millimetrum frá hjartanu þegar Heimir Sigurðsson sat fyrir konunni sem er fyrrum sambýliskona hans.<b />

Reiðubúinn að leiða í Kópavogi

Ómar Stefánsson, formaður Framsóknarfélagsins í Kópavogi, kveðst reiðubúinn að leiða flokkinn í bæjarstjórnarkosningunum á næsta ári.

70 hafa skráð sig í Samfylkinguna

Sjötíu manns hafa skráð sig í Samfylkinguna frá 10. janúar, þegar framkvæmdastjórn flokksins ákvað að halda landsfund þann 20. maí. Fimm hafa gengið úr Samfylkingunni á sama tíma. Kjörseðlar vegna formannskosninga verða sendir út 20. apríl.

Skipverjum á Sléttbaki sagt upp

Skipverjum á togaranum Sléttbaki frá Akureyri var öllum sagt upp í gærkvöldi því líkur eru á að skipið verði selt innan tíðar. 38 manns eru í áhöfn skipsins og var þeim öllum afhent uppsagnarbréf í gærkvöldi, skömmu áður en lagt var upp í túr.

Tífalt fleiri í offitumeðferð

Undanfarin tvö ár hafa tífalt fleiri sóst eftir meðferð vegna offitu á Reykjalundi en gert er ráð fyrir að stofnunin geti tekið við. Til að bregðast við hefur Reykjalundur tekið við meira en helmingi fleiri en samningur við ríkið kveður á um.

Leikir í enska boltanum án þula?

Skjár einn ætlar að hlíta úrskurði útvarpsréttarnefndar frá því í gær og verður strax um helgina hætt að sýna leiki með enskum þulum. Verkefnastjóri enska boltans á Skjá einum segir að um helgina verði jafnvel sendir út leikir án lýsingar þula.

Könnun endurspegli ekki veruleika

Aðeins átta prósent kjósenda segjast myndu kjósa Framsóknarflokkinn ef gengið yrði til kosninga nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Formaður þingflokks framsóknarmanna segir könnunina ekki endurspegla raunveruleikann.

Þriðja fálkanum sleppt í gær

Kvenkyns fálka var sleppt úr Húsdýragarðinum í gær í fyrsta skipti. Þetta er þriðji fálkinn sem flýgur burt úr garðinum á undanförnum vikum.

Styrki stöðu fjölskyldunnar

Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að skipa nefnd sem hefur það verkefni að styrkja enn frekar stöðu íslensku fjölskyldunnar. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að skipun nefndarinnar komi í kjölfar áramótaávarps Halldórs Ásgrímssonar þar sem hann sagði meðal annars að samheldin fjölskylda væri kjarni hvers þjóðfélags. Formaður nefndarinnar er Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra.

Líti á flóðbylgjuna sem viðvörun

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði á ráðstefnu í Indlandi í dag að líta ætti á hörmungarnar í Asíu um jólin sem viðvörun um það sem gæti gerst ef yfirborð sjávar myndi hækka. Indverskir fjölmiðlar segja Ólaf Ragnar hafa lagt línuna fyrir aðra ræðumenn á þriggja daga ráðstefnu um efnahagsmál og sjálfbæra þróun sem haldin er um helgina.

Sjá næstu 50 fréttir