Fleiri
Byko-konur í bankaráðum 28.10.2004 00:01 Friðargæsluliðarnir á heimleið Íslensku friðargæsluliðarnir þrír, sem særðust í sjálfsvígssprengjuárás í Kjúklingastræti í Kabúl á laugardag, koma heim í dag. Af því tilefni var slegið upp kveðjuhófi, þeim til heiðurs og lyftu menn glösum að skilnaði. Létt stemning var í hópnum þrátt fyrir ófarirnar á laugardag og þær hörmungar sem af þeim hlutust. 28.10.2004 00:01 Brautarljósin björtu 28.10.2004 00:01 Miðlunartillaga lögð fram? Ríkissáttasemjari vill ekki segja hvort miðlunartillaga verður lögð fram á næstunni í kennaradeilunni. Sá möguleiki var ræddur á fundi með forystumönnum samninganefndanna í morgun. Formlegur samningafundur hefur ekki verið haldinn í dag. 28.10.2004 00:01 Árfundir á glæsihótelum Alþýðusamband Íslands heldur um þessar mundir ársfund sinn á Hótel Nordica, Suðurlandsbraut. Landssamband íslenskra útvegsmanna heldur ársfund sinn á sama tíma á Grand hótel Reykjavík 28.10.2004 00:01 Teppakaupin ekki einu einkaerindin Teppakaup yfirmanns flugvallarins í Kabúl, sem enduðu með hryðjuverkaárás um síðustu helgi, eru ekki einu einkaerindin sem skotið hafa íslenskum friðargæsluliðum skelk í bringu. Friðargæsluliðarnir sem særðust eru væntanlegir heim til Íslands á morgun. 28.10.2004 00:01 Forsendur kjarasamninga bresta Alþýðusamband Íslands spáir því að verðbólga verði rúm fjögur prósent á næsta ári og forsendur kjarasamninga bresti. Ólafur Darri Ólafsson, hagfræðingur samtakanna, sakaði stjórnvöld um að beita atvinnuleysi sem hagstjórnartæki á ársfundi ASÍ í dag. 28.10.2004 00:01 Norðurljós dótturfélag Og Vodafone Norðurljós eru orðin dótturfélag Og Vodafone. Fjölmiðlar Norðurljósa, þar á meðal Stöð 2 og Bylgjan, verða þar með skráðir í Kauphöll Íslands. Jafnframt eru gerðar skipulagsbreytingar sem fela í sér framkvæmdastjóraskipti. Sigurður G. Guðjónsson víkur fyrir Gunnari Smára Egilssyni. 28.10.2004 00:01 Segir engan hafa verið í lífshættu Páll Björnsson, sýslumaður á Höfn í Hornafirði, segir að hætt hafi verið að rannsaka sprenginguna sem samgönguráðherra sprengdi í Almannaskarðsgöngunum í byrjun október. Hann segir ljóst að menn hafi ekki verið í lífshættu. Hann segir einnig að frumrannsókn hafi verð gerð og verði einhverjir eftirmálar séu gögnin á vísum stað. 28.10.2004 00:01 Sigurður kveður Sigurði G. Guðjónssyni, framkvæmdastjóra Norðurljósa og útvarpsstjóra Íslenska útvarpsfélagsins, var sagt upp störfum eftir tæplega þriggja ára starf á miklum umbrota- og átakatímum í sögu félagsins. 28.10.2004 00:01 200 grömm af hassi í pósti Rúmlega tvítugur maður var handtekinn eftir að hafa móttekið póstsendingu með um 200 grömmum af hassi á pósthúsinu á Flateyri í fyrradag. 28.10.2004 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Óvíst hvort hún tekur gildi Óvíst er hvort hin nýja stjórnarskrá Evrópusambandsins, sem undirrituð var með mikilli viðhöfn í morgun, tekur nokkurn tíma gildi. Bæði Bretar og Danir eru líklegir til að fella málið í þjóðaratkvæðagreiðslu. 29.10.2004 00:01
Voru að hlýða skipunum Íslensku friðargæsluliðarnir þrír sem slösuðust í sjálfsmorðsárásinni í Kabúl sögðust hafa verið að hlýða skipunum er þeir stóðu vörð um teppabúð sem yfirmaður þeirra var að versla í. Þremenningarnir komu heim í gær. </font /></b /> 29.10.2004 00:01
Rannsókn að ljúka Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir að nuddstofan sem auglýsi erótískt nudd hefði verið undir rannsókn á þeim forsendum að þar væri stundað vændi. Rætt var við á annan tug viðskiptavina, auk starfsmanna. 29.10.2004 00:01
Keyrt á vörubíl Umferðarslys varð á Ólafsfjarðarvegi í gær þegar fólksbíll, á leið norður fór á rangan vegarhelming og ók framan á vörubíl. 29.10.2004 00:01
Ný drög að sáttatillögu Forystumenn samninganefnda kennara og sveitarfélaga hafa verið boðaðir til fundar hjá Ríkissáttasemjara fyrir hádegi og samninganefndirnar í heild hafa svo verið boðaðar til sáttasemjara síðar í dag. 28.10.2004 00:01
Þrír slasaðir eftir bílveltu Þrír voru fluttir slasaðir á slysadeild eftir að bíll þeirra valt út af Reykjanesbraut í Kúagerði um klukkan fimm í morgun. Engin þeirra er í lífshættu. Einn var fastur í bílflakinu og þurftu björgunarmenn að beita klippum til að ná honum út. 28.10.2004 00:01
Kveikt í gámum við Sorpu Eldur var kveiktur í tveimur gámum í gámastöð Sorpu við Sævarhöfða upp úr miðnætti í nótt. Logaði glatt í hjólbörðum og rúmdínum þegar slökkvilið kom á vettvang. Slökkviliðsmenn heftu frekari útbreiðslu eldsins og slökktu hann. Brennuvargurinn er ófundinn. 28.10.2004 00:01
Tunglmyrkvinn sást víða Tunglmyrkvinn sást vel víðast hvar á landinu í nótt en skyggni tók að versna á höfuðborgarsvæðinu upp úr klukkan tvö í nótt þegar sjálfur almyrkvinn var að hefjast. Hann sást hins vegar vel víða á landinu. 28.10.2004 00:01
Og Fjarskipti keyptu 90% hlutafjár Eignarhaldsfélagið Og Fjarskipti hefur keypt 90 prósent hlutafjár í Norðurljósum sem reka sex útvarpsstöðvar, fjórar sjónvarpsstöðvar, gefa út tvö dagblöð, tímarit og reka netmiðil. Norðurljós verða þar með komin inn á verðbréfamarkaðinn. 28.10.2004 00:01
Óbreytt ástand í kennaradeilunni Ekkert markvert gerðist á fundi forystumanna samninganefnda kennara, sveitarfélaga og skólastjóra, sem hófst hjá Ríkissáttasemjara klukkan átta í morgun og lauk á tólfta tímanum. Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari sagði að ekkert nýtt hefði gerst á fundinum en þar hafi verið farið yfir stöðuna. 28.10.2004 00:01
Vopnin kvödd Svo til öll vopn Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli hafa verið flutt úr landi. Þetta kemur fram í Víkurfréttum. Þar segir að starfsemin á vellinum muni dragast verulega saman á næstu árum. 28.10.2004 00:01
Dæmdur í 4 mánaða fangelsi Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í morgun tvítugan karlmann í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás og að framvísa fölsuðum lyfseðli í apóteki. Líkamsárásin átti sér stað í september á síðasta ári þegar maðurinn réðst á annan fyrir utan Félagsheimilið Festi í Grindavík og sló hann í andlitið þannig að kinnbein brotnaði. 28.10.2004 00:01
Stærsti þjóðgarður Evrópu Stærsti þjóðgarður Evrópu er orðinn að veruleika en Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra staðfesti nýja reglugerð um stækkun Skaftafellsþjóðgarðs í dag. Flatarmál þjóðgarðsins þrefaldast og verður hann rúmlega 4800 ferkílómetrar og er 57% Vatnajökuls nú innan hans, sem og Lakagígasvæðið. 28.10.2004 00:01
Átelja ríkisstjórnina harðlega Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands átelur harðlega að tíu mánuðir skuli vera liðnir án þess að þorri öryrkja hafi fengið þá kjarabót sem samið var um fyrir síðustu þingkosningar. Nú sé ár liðið frá því að ríkisstjórnin upplýsti að hún treysti sér ekki til að efna nema hluta samkomulagsins sem gert var. 28.10.2004 00:01
Lítið má fara úrskeiðis segir ASÍ Sérfræðingar Alþýðusambands Íslands segja ekki mega fara mikið úrskeiðis til að forsendur kjarasamninga bresti. Þeir segja verðbólgu fara vaxandi og spá þeir að hún verði í efri mörkum verðbólgumarkmiðs Seðlabankans á næsta og þarnæsta ári. Beri eitthvað út af gæti þurft að segja upp eða endurskoða kjarasamninga á næsta ári. 28.10.2004 00:01
Enginn samningafundur boðaður Enginn samningafundur hefur enn verið boðaður í deilu grunnskólakennara. Forystumenn deilenda voru á fundi hjá ríkissáttasemjara frá klukkan átta í morgun og fram undir hádegi en eiginlegur samningafundur hefur enn ekki verið boðaður. 28.10.2004 00:01
Víglundur úr stjórn Íslandsbanka Víglundur Þorsteinsson gengur úr stjórn Íslandsbanka á hluthafafundi sem haldinn verður næsta miðvikudag. Framboðsfrestur rann út í dag og eru allir núverandi stjórnarmenn í kjöri nema Víglundur og Orri Vigfússon. Orri er hins vegar í framboði sem varamaður. 28.10.2004 00:01
Fjöltengi samhliða ljósleiðara Gagnaflutningar um rafmagnslínur sem Fjöltengi Orkuveitu Reykjavíkur hefur boðið upp á verða áfram í boði þrátt fyrir áherslu Orkuveitunnar á ljósleiðaravæðingu heimila í höfðuborginni. 28.10.2004 00:01
Áherslan á öryggismál Aukið öryggi friðargæslufólks er einn af þeim hlutum sem Hjálmar W. Hannesson, sendiherra og fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York í Bandaríkjunum lagði áherslu á þegar hann ávarpaði fjórðu nefnd allsherjarþingsins við umræðu um stefnu í friðargæslu síðasta miðvikudag. 28.10.2004 00:01
Áherslan á bjargráð heimamanna Rauði krossinn kynnti í gær árbók um hamfarir og hjálparstarf. Bókin nefnist World Disasters Report og er nú gefin út í tólfta sinn. Með útgáfu bókarinnar reynir Rauði krossinn að gefa árlegt tölulegt yfirlit yfir viðfangsefni hjálparstofnana auk gagnrýninnar umfjöllunar um alþjóðlegt hjálparstarf. 28.10.2004 00:01
Varnaðarorð á ársþingi ASÍ Verkalýðsforystan hefur af því verulegar áhyggjur að forsendur kjarasamninga séu að bresta, en í samningum sem gerðir voru í vor eru ákvæði um verðlagsforsendur og viðbrögð standist þær ekki. 28.10.2004 00:01
400 fleiri flytja úr landi Um fjögurhundruð fleiri Íslendingar munu flytjast frá landinu en aftur heim á þessu ári, að því er fram kemur í vefriti fjármálaráðuneytisins. 28.10.2004 00:01
Óþefur yfir Þorlákshöfn Bæjarstjóri Ölfuss fundaði með Heilbrigðiseftirliti Suðurlands í byrjun mánaðarins til að knýja á um úrbætur vegna lyktarmengunar í Þorlákshöfn, en hún hefur plagað bæjarbúa síðustu ár. 28.10.2004 00:01
Skelfing greip um sig Hópur íslenskra lögfræðinema upplifði jarðskjálfta í Rúmeníu. "Skelfing greip um sig í hópnum þegar við urðum vör við jarðskjálftann enda var hann sá öflugasti í landinu í fjórtán ár," segir Helga K. Auðunsdóttir, varaformaður ELSA, félags lögfræðinema á Íslandi, sem stödd er í Rúmeníu á alþjóðaráðstefnu lögfræðinema. 28.10.2004 00:01
Suðurstrandarvegur í útboð Til stendur að bjóða út gerð Suðurstrandarvegar Þorlákshafnarmegin á næstu vikum, hefur Ólafur Áki Ragnarsson bæjarstjóri í Þorlákshöfn, eftir þingmönnum Suðurlands, en þeir funduðu með honum í gær. Kjördæmavika stendur yfir og fara þingmenn víða. 28.10.2004 00:01
Iðnneminn vekur viðbrögð Það hafa nokkrir hringt hingað og lýst óánægju sinni með myndbirtinguna," segir Jónína Brynjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Iðnnemasambands Íslands og ábyrgðarmaður blaðsins, þegar hún er spurð hvort myndin á forsíðu tímaritsins Iðnnemans, sem út kom í gær, hafi vakið viðbrögð fólks. 28.10.2004 00:01
Ögmundur vill ræða Kabúl Ögmundur Jónasson, þingmaður vinstri-grænna hefur óskað eftir umræðu utandagskrár á Alþingi um störf íslenska friðargæsluliðsins í Kabúl. 28.10.2004 00:01
Vopnaður friður veldur ófriði Svo róttækar breytingar hafa orðið á þátttöku Íslands í friðargæslu frá því fyrstu friðargæsluliðarnir voru sendir út í heim til Bosníu fyrir rúmum tíu árum að því er haldið fram að þar sé ekki um stigs- heldur eðlismun að ræða. 28.10.2004 00:01
Mannrán í Kabúl veldur uppnámi Öllum erlendum hjálparstarfsmönnum hefur verið skipað að halda sig innandyra eftir að þremur erlendum kosningastarfsmönnum á vegum Sameinuðu þjóðanna var rænt á götu úti í Kabúl í gær. 28.10.2004 00:01
Samningar haldi Ein mikilvægasta forsenda þess að þjóðfélag fái staðist er að fólk virði og haldi gerða samninga, segir í ályktun aðalfundar Öryrkjabandalags Íslands. 28.10.2004 00:01
Bílstjórinn braut ekki lög Vöruflutningabílstjóri braut ekki lög þegar hann ók vöruflutningabifreið í meira en sjö daga án þess að taka sér lögboðna vikuhvíld. Þetta þótti brjóta í bága við hvíldartíma sem fjallað er um í EES-samningnum. Ríkissaksóknari gaf út opinbera ákæru á hendur manninum. 28.10.2004 00:01
Endurskoðun á sjúkraþjálfun Samninganefnd heilbrigðisráðherra boðaði á fyrsta samningafundi með sjúkraþjálfurum endurskoðun á kerfi þeirra. Sjúklingum fer stöðugt fjölgandi og kostnaður Tryggingastofnunar hefur aukist um 84% á síðustu fimm árum. </font /></b /> 28.10.2004 00:01
Stærsti þjóðgarður í Evrópu Stærsti þjóðgarður í Evrópu er orðinn til eftir að umhverfisráðherra, Sigríður Anna Þórðardóttir, staðfesti nýja reglugerð um stækkun Skaftafellsþjóðgarðs sem stofnaður var árið 1967. 28.10.2004 00:01
Vilja allt sorp til Þorlákshafnar Viðræður eru um að allt sorp af höfuðborgarsvæðinu verði urðað skammt vestan við Þorlákshöfn. Heimamenn segjast hafa áhuga á að gera nútímasorpstöð. Samkomulag um Sorpstöð Suðurlands kynnt í dag. </font /> Hafin er athugun á því að flytja allt sorp af höfuðborgarsvæðinu á stórt svæði vestan við Þorlákshöfn, þar sem því yrði eytt. </b /> 28.10.2004 00:01
Friðargæsluliðarnir á heimleið Íslensku friðargæsluliðarnir þrír, sem særðust í sjálfsvígssprengjuárás í Kjúklingastræti í Kabúl á laugardag, koma heim í dag. Af því tilefni var slegið upp kveðjuhófi, þeim til heiðurs og lyftu menn glösum að skilnaði. Létt stemning var í hópnum þrátt fyrir ófarirnar á laugardag og þær hörmungar sem af þeim hlutust. 28.10.2004 00:01
Miðlunartillaga lögð fram? Ríkissáttasemjari vill ekki segja hvort miðlunartillaga verður lögð fram á næstunni í kennaradeilunni. Sá möguleiki var ræddur á fundi með forystumönnum samninganefndanna í morgun. Formlegur samningafundur hefur ekki verið haldinn í dag. 28.10.2004 00:01
Árfundir á glæsihótelum Alþýðusamband Íslands heldur um þessar mundir ársfund sinn á Hótel Nordica, Suðurlandsbraut. Landssamband íslenskra útvegsmanna heldur ársfund sinn á sama tíma á Grand hótel Reykjavík 28.10.2004 00:01
Teppakaupin ekki einu einkaerindin Teppakaup yfirmanns flugvallarins í Kabúl, sem enduðu með hryðjuverkaárás um síðustu helgi, eru ekki einu einkaerindin sem skotið hafa íslenskum friðargæsluliðum skelk í bringu. Friðargæsluliðarnir sem særðust eru væntanlegir heim til Íslands á morgun. 28.10.2004 00:01
Forsendur kjarasamninga bresta Alþýðusamband Íslands spáir því að verðbólga verði rúm fjögur prósent á næsta ári og forsendur kjarasamninga bresti. Ólafur Darri Ólafsson, hagfræðingur samtakanna, sakaði stjórnvöld um að beita atvinnuleysi sem hagstjórnartæki á ársfundi ASÍ í dag. 28.10.2004 00:01
Norðurljós dótturfélag Og Vodafone Norðurljós eru orðin dótturfélag Og Vodafone. Fjölmiðlar Norðurljósa, þar á meðal Stöð 2 og Bylgjan, verða þar með skráðir í Kauphöll Íslands. Jafnframt eru gerðar skipulagsbreytingar sem fela í sér framkvæmdastjóraskipti. Sigurður G. Guðjónsson víkur fyrir Gunnari Smára Egilssyni. 28.10.2004 00:01
Segir engan hafa verið í lífshættu Páll Björnsson, sýslumaður á Höfn í Hornafirði, segir að hætt hafi verið að rannsaka sprenginguna sem samgönguráðherra sprengdi í Almannaskarðsgöngunum í byrjun október. Hann segir ljóst að menn hafi ekki verið í lífshættu. Hann segir einnig að frumrannsókn hafi verð gerð og verði einhverjir eftirmálar séu gögnin á vísum stað. 28.10.2004 00:01
Sigurður kveður Sigurði G. Guðjónssyni, framkvæmdastjóra Norðurljósa og útvarpsstjóra Íslenska útvarpsfélagsins, var sagt upp störfum eftir tæplega þriggja ára starf á miklum umbrota- og átakatímum í sögu félagsins. 28.10.2004 00:01
200 grömm af hassi í pósti Rúmlega tvítugur maður var handtekinn eftir að hafa móttekið póstsendingu með um 200 grömmum af hassi á pósthúsinu á Flateyri í fyrradag. 28.10.2004 00:01
Utanríkisráðherra Breta á Íslandi: „Gleður mig að Ísland vill vera með í bandalagi viljugra þjóða“ Innlent