Fleiri fréttir

Hjálparvana fórnarlömb goðsögn

Fólk sem býr á hamfarasvæðum er betur til þess fallið að bregðast við vá en erlendar björgunarsveitir. Það þarf að styrkja íbúa slíkra svæða til sjálfsbjargarviðleitni og eyða goðsögninni um hin hjálparvana fórnarlömb.

Endurskoða málefni útlendinga

Félagsmálaráðherra segir að ákvæði í lögum um atvinnuréttindi útlendinga orki tvímælis. Dómsmála- og félagsmálaráðherra hafa rætt um að endurskoða málefni útlendinga sem heyra undir bæði ráðuneytin.

Niðurskurður LSH óhjámkvæmilegur

Óhjákvæmilegt er að draga úr núverandi þjónustu Landsspítala - háskólasjúkrahúss til að ná fram um 600 milljóna sparnaði á næsta ári. Stjórnarnefnd sjúkrahússins kynnti hugmyndirnar sínar að niðurskurði innan spítalanna á fundi með heilbrigðisráðherra í gær.

Misréttið jarðsett

Fimmtán mannúðarfélög boðuðu til táknrænnar athafnar á Arnarhóli í gær þar sem misrétti breitt gegn konum að hálfu réttarkerfisins var jarðsett. Fjölmargir hlýddu á ávarp Jóhönnu K. Eyjólfsdóttur, framkvæmdastjóra Íslandsdeildar Amnesty.

Ástæða til að endurskoða reglurnar

Fyllsta ástæða er að skoða reglur Kópavogsbæjar um úthlutun á byggingarétti í framhaldi af því að Byggingarfélaginu Viðari ehf. var úthlutað lóð og fyrirtækið síðan selt hæstbjóðanda skömmu seinna. Þetta segir Hafsteinn Karlsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar.

Festu sig við Landmannalaugar

Björgunarsveitarmenn komu fjórum erlendum ferðamönnum til hjálpar eftir að þeir höfðu fest bíl sinn á leiðinni frá Eldgjá að Landmannalaugum í gærdag. Einn ferðamaðurinn hélt fótgangangandi upp í Landmannalaugar og hringdi þaðan á aðstoð undir kvöld og var björgunarsveit þá strax send af stað.

Samkomulag undirritað fyrir austan

Oddvitar L-lista félagshyggjufólks og D lista sjálfstæðisflokks undirrituðu í gærkvöldi samkomulag um meirihlutasamstarf í hinu nýja sveitarfélagi Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs. Soffía Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar, segir að nýtt stjórnskipulag verði tekið í notkun sem kallar á töluverðar breytingar, bæði hjá kjörnum fulltrúum og starfsmönnnum bæjarfélagsins.

Funda hjá sáttasemjara á morgun

Samningamenn kennara og sveitarfélaganna hafa verið boðaðir til fundar hjá Ríkissáttasemjara á morgun en þeir áttu fund með sáttasemjara í gær. Eftir þann fund létu þeir ekkert uppi um gang viðræðna. Í dag hittast samningamenn sveitarfélaga og félags skólastjórnenda hjá Ríkissáttasemjara.

Bílvelta skammt frá Húsavík

Ökumaður bíls slapp lítið meiddur þegar bíllinn valt á hvolf út af þjóðveginum skammt frá Húsavík í gær í krapa og hálku. Maðurinn var fluttur á heilsugæslustöðina á Húsavík en útskrifaður eftir aðhlynningu.

Fimmfaldast tekjur af álverinu?

Tekjur Hafnarfjarðarbæjar af álverinu í Straumsvík myndu ríflega fimmfaldast ef fasteignaskattur yrði tekinn upp og álverið verður stækkað eins og fyrirhugað er að gera. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn bæjarráðsmanna Sjálfstæðisflokksins um tekjur af álverinu í Straumsvík og Víkurfréttir greina frá í dag. </font />

Skólastjórar enn á fundi

Skólastjórar eru nú á fundi hjá ríkissáttasemjara en samningar þeirra eru lausir eins og samningar kennara. Fundur þeirra hófst klukkan hálf ellefu. Skólastjórar hafa ekki boðað til aðgerða svo sem verkfalls. Næsti fundur í deilu grunnskólakennara og launanefndar sveitarfélaganna verður klukkan átta í fyrramálið.

Almyrkvi í nótt

Almyrkvi á tungli verður í nótt og má búast við mikilfenglegu sjónarspili. Almyrkvi er þegar tunglið gengur inn í skugga jarðar og jörðin er stödd á milli sólar og tungls.

Fanga neitað um geðhjálp

Stjórn Geðhjálpar segir að dæmdum einstaklingi í fangelsi, sem gert hefur ítrekaðar sjálfsvígstilraunir, sé neitað um nauðsynlega geðheilbrigðisþjónustu. Þess í stað hafi hann verið vistaður í einangrunarklefa í fangelsinu. Stjórnin lýsir þungum áhyggjum vegna úrræðaleysis í málefnum geðsjúkra fanga.

Semjið strax!

„Réttið hlut grunnskólans og semjið strax!“ er yfirskrift funda sem haldnir verða í framhaldsskólum milli klukkan 10 og 12 á morgun. Fundarefnið verður yfirstandandi kjaradeila grunnskólans. 

Mótmælafundur á Austurvelli

Eftir tæpa klukkustund, eða klukkan fjögur, hefst mótmælafundur Heimilis og skóla á Austurvelli þar sem verkfalli grunnskólakennara verður mótmælt og hvetja samtökin foreldra og börn til að mæta. Stutt ávörp verða flutt, söngvar sungnir og ljóð um börn lesin upp.

Gæsluvarðhald til 3. desember

Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhald yfir karlmanni vegna tilraunar til stórfellds fíkniefnasmygls. Maðurinn tengist stóru máli sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum að undanförnu og snýst um umfangsmikið smygl á amfetamíni og LSD meðal annars. Hæstiréttur staðfestir að maðurinn skuli vera í gæslu allt til 3. desember.

Osta- og tímaritaþjófur fær dóm

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag rúmlega fertugan karlmanna í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að stela oststykki fyrir 286 krónur og tímariti fyrir 1.425 krónur. Dómurinn er skilorðsbundinn. Maðurinn á að baki nokkurn sakaferil og rauf með tímarits- og ostaþjófnaðinum skilorð og var það dæmt með.

Ábyrgir feður skora á deiluaðila

Félag ábyrgra feðra skorar á deiluaðila að binda endi á verkfall grunnskólakennara sem fyrst og skorar á alla feður, hvort sem þeir eru í hjónbandi, sambúð eða forsjárlausir, að veita börnum sínum allan mögulegan stuðning á meðan á verkfallinu stendur. 

Flóki drap ekki féð

"Það er rangt að Flóki hafi drepið fé sitt úr hor," segir Ragnar Guðmundsson á Brjánslæk. Honum er annt um mannorð Hrafna-Flóka sem hafðist við á Brjánslæk í eitt ár á sinni tíð en þá hét Brjánslækur reyndar ekki Brjánslækur heldur eitthvað allt annað eða kannski ekki neitt.

Bolvíkingar gera út togara

Togarinn Kolbeinsey kom til Bolungarvíkur í dag en skipið mun leggja upp hjá Bakkavík í Bolungarvík og er þetta í fyrsta sinn í mörg ár sem togari er gerður út frá bæjarfélaginu. Það er GP-útgerð á Patreksfirði sem á skipið og gerði út undir nafninu Hrafnseyri.

Einstök flensutilvik ytra

Inflúensa hefur enn ekki greinst í nágrannalöndunum, nema í einstökum tilvikum, að sögn Haraldar Briem sóttvarnalæknis hjá Landlæknisembættinu.

Lifrarbólgufaraldur í rénun

Lifrarbólgufaraldur hjá hommum virðist heldur vera í rénun, að því er fram kom í viðtali við Harald Briem sóttvarnalækni hjá Landlæknisembættinu.

500 manns mótmæltu á Austurvelli

Töluverður mannfjöldi, eða um fimm hundruð manns að mati lögreglu, kom saman á fimmta tímanum á Austurvelli þar sem samtökin Heimili og skóli mótmæltu verkfalli grunnskólakennara. Bæði komu þar fullorðnir og börn.

EMC gerir SE-VAR Partner samning við Tæknival

Tæknival og bandaríska fyrirtækið EMC, stærsta fyrirtæki heims á sviði gagnageymslulausna, hafa undirritað samstarfssamning um sölu og þjónustu á EMC búnaði á Íslandi. Tæknival er eina íslenska fyrirtækið sem uppfyllir þær kröfur sem EMC gerir um þjónustu og hefur eitt íslenskra fyrirtækja beinan aðgang að EMC, en alls eru samstarfsfyrirtæki EMC sextíu talsins um heim allan.

Vill breiðari veg og minni hraða

Fjöldi umferðaróhappa hefur orðið á gatnamótum við Suðurlandsveg í nágrenni Reykjavíkur. Bragi Sigurjónsson, bifvélavirkjameistari í Geirlandi við Suðurlandsveg, segist langþreyttur á ástandinu en hann hefur ítrekað kallað eftir úrbætum hjá Vegagerðinni.

Flugbann á ákveðnum svæðum

Tvisvar til þrisvar í viku yfir vetrartímann er ákveðnum svæðum í flugumferðarsvæði landsins lokað vegna æfingaflugs Bandaríkjahers, að sögn Heimis Más Péturssonar, upplýsingafulltrúa Flugmálastjórnar.

Met í fatasöfnun Rauða krossins

Mikil aukning hefur orðið í fatasöfnun Rauða kross Íslands milli ára. Í fyrra söfnuðust 660 tonn af fötum, en nú stefnir í að um 800 tonn safnist á árinu. "Við reiknum með að senda frá okkur svona 75 gáma til útlanda á árinu," segir Örn Ragnarsson, formaður fataflokkunar hjá Rauða krossinum.

Psoriasisfólki bægt frá sundstöðum

Þess eru dæmi að psoriasis-sjúklingum hafi verið meinaður aðgangur að búningsklefum og böðum svo sem í almenningssundlaugum og íþróttahúsum hér á landi, að sögn Guðnýjar Axelsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka psoriasis- og exemsjúklinga.

Friðargæslan var í einkaerindum

Yfirmaður íslenska friðargæsluliðsins í Kabúl var að kaupa teppi þegar sjálfsmorðsárás var gerð á friðargæsluliðana sem fylgdu honum. Friðargæsluliðar eru óánægðir með að hafa þurft að leggja sig í hættu af slíku tilefni. Utanríkisráðuneytið gerir engar athugasemdir við ferðir yfirmannsins og hefur engar upplýsingar um óánægjuna.

Baldur til Karolinska

Íslenski prófessorinn, Baldur Sveinbjörnsson, sem starfað hefur við háskólann í Tromsö í Noregi hefur verið ráðinn við Karolínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi

Fagna reykingabanni

Lungnalæknar fagna áformum heilbrigðisráðherra um að leggja fram frumvarp til laga á Alþingi um reyklausa vinnustaði, þar á meðal veitinga- og skemmtistaði hér á landi.

Geðsjúkur fangi í einangrun

Færa þurfti mjög geðsjúkan fanga frá Sogni í einangrun á Litla - Hrauni, þar sem hann dvaldi í átta daga. Fangelsismálastofnun segir að erfitt sé að fá fanga vistaða á geðdeildum. Þeir hafi jafnvel verið sendir til baka þegar vistun hafi verið reynd. </font /></b />

Tugir bíða fjármálaráðgjafar

Samtals eru nú 54 á biðlista eftir fjármálaráðgjöf hjá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, að sögn Ástu Helgadóttur forstöðumanns.</font />

Stóriðja rúmast ekki innan Kyoto

Áætlanir um að reisa álver á Norðurlandi standast ekki ef tekið er tillit til skuldbindinga Íslands í Kyoto-sáttmálanum um takmörk við losun gróðurhúsalofttegunda. Rússar hafa staðfest samninginn og þar með verður hann bindandi frá árinu 2008 til 2013. Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, segir að nýtt álver verði aldrei minna en 300.000 tonn og því megi gera ráð fyrir að gróðurhúsalofttegundir frá því rúmist ekki innan skuldbindinga.

Glæpur skekur fíkniefnalögreglu

Loft var lævi blandið í dómsal 101 í héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þar sótti ákæruvaldið Hall Hilmarsson, fyrrverandi lögreglufulltrúa í fíkniefnadeild lögreglunnar, til saka. Vitnin gegn honum og um leið ásakendur voru fyrrverandi samstarfsmenn hans hjá fíkniefnadeildinni.

Yfirmaður sakaður um aðgæsluleysi

Friðargæsluliðarnir íslensku sem urðu fyrir sjálfsmorðsárás í Kabúl síðastliðinn laugardag höfðu beðið yfirmanns síns fyrir utan teppaverslun á Chicken street í klukkustund þegar árásin var gerð. Heimildir Fréttablaðsins herma að friðargæsluliðarnir hafi verið uggandi og hafi hafi fjórum sinnum reynt að reka á eftir yfirmanni sínum enda hefði þeim verið ljóst að þessi gata væri talin afar hættuleg.

Risarækjueldi heppnast vel

Fyrsta risarækjan úr tilraunaeldi Orkuveitu Reykjavíkur er fullvaxin og tilbúin til átu. Orkuveitan ætlar nú að ræða við áhugasama sem eru tilbúnir að halda áfram með eldið.

Hert eftirlit í Bandaríkjunum

Milljónir ferðamanna, þar á meðal Íslendingar, verða héðan í frá stöðvaðir við vegabréfeftirlit í Bandaríkjunum og meðal annars tekin af þeim andlitsmynd. Ferðamenn þurfa að framvísa rafrænum vegabréfum með tölvurönd til að komast inn í landið án áritunar. Allt er þetta liður í baráttunni gegn hryðjuverkum.

Mótmæli á Austurvelli

"Hæ, ég heiti Pálmi. Ég er í fyrsta bekk og mér langar að fara í skólann af því að það er svo gaman þar. Þegar ég fer aftur í skólann þá byrja ég að lækna. Takk fyrir," sagði nemandi í 1. bekk á útifundi Heimilis og skóla á Austurvelli í gær.

Bíða félagsdóms

Áhöfn skipsins Sólbaks starfar undir sérsamningi útgerðar dótturfyrirtækis Brims þar til dómur fellur í félagsdómi.

Miðlunartillaga lausn verkfallsins

Miðlunartillaga frá ríkissáttasemjara er vænlegasta leiðin til að ljúka verkfalli kennara, segir Gunnar I. Birgisson, formaður menntamálanefndar Alþingis og formaður bæjarráðs Kópavogs.

Ekki meira maraþonþras

Nú væri nóg komið var viðkvæði foreldra og barna sem mótmæltu verkfalli kennara á útifundi Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra á Austurvelli í gær.

Lúskraði á konunni og heldur barni

Kjartan Ólafsson, sem var dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að misþyrma eiginkonu sinni en fékk enga refsingu, neitar að afhenda konunni barn þeirra hjóna þó konunni hafi verið dæmt forræði til bráðabirgða.

Kærasti misþyrmdi henni hroðalega

Systkini Birgittu Írisar Harðardóttir, sem lést úr of stórum eiturlyfjaskammti á Lindargötu fyrir rúmu ári, segja þrautagöngu hennar hafa byrjað þegar foreldrarnir létust með stuttu millibli þegar Birgitta var 12 ára. Fyrrverandi unnusti, Sverrir Hannesson, fékk þriggja ára fangelsisdóm fyrir að misþyrma Birgittu hroðalega.

Engin sálgæsla fyrir hina dæmdu

Enginn hefur eftirlit með sálarheill þeirra manna sem hljóta þunga dóma og hefja ekki afplánun strax, þótt mikil hætta sé á sjálfsvígi eftir að dómur er kveðinn upp. Fangelsismálastofnun, dómstólar og lögregla segja öll að það sé ekki hlutverk þeirra að sinna slíkri sálgæslu.

Sjá næstu 50 fréttir