Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Norðmönnum afhent mótmæli Stefán Skjaldarson, sendiherra Íslands í Noregi, afhenti í dag norskum stjórnvöldum ítrekuð mótmæli íslenskra stjórnvalda við einhliða kvótaúthlutun Norðmanna á síld úr norsk-íslenska síldarstofninum við Svalbarða. Það standist ekki fjölþjóðlegan samning um Svalbarða og feli í sér brot á hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna og brot á almennum reglum þjóðarréttar. 12.8.2004 00:01
Mismunandi afkoma kúabænda Mismunur á góðum bændum og búskussum kemur glöggt í ljós þegar skyggnst er í búreikninga kúabúa sem Bændasamtökin taka saman. Þar kemur í ljós að afkoma þerra kúabænda sem leggja sig fram um að fá sem mesta mjólk úr hverri kú er mun betri en þeirra sem fá að meðaltali minna úr hverri kú. 12.8.2004 00:01
Nýr framkvæmdastjóri ráðinn Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Magnús Skúlason, deildarstjóra í heilbrigðisráðuneytinu, framkvæmdastjóra hinnar nýju Heilbrigðisstofnunar Suðurlands sem mun þjóna um sautján þúsund manns. 12.8.2004 00:01
Skjálftahrina austur af Grímsey Skjálftahrina er í hafinu austur af Grímsey. Milli tuttugu og þrjátíu skjálftar hafa komið fram á mælum síðan í gær. Sá stærsti var klukkan að ganga þrjú í dag og var hann 2,9 á Richter. Skjálftahrinur eru algengar á þessum slóðum. 12.8.2004 00:01
Íslensk sumargotssíld fyrir norðan Komið er á daginn að síldin, sem tók upp á því um síðustu helgi að vaða í haffletinum við síldarminjasafnið í Siglufirði, var íslensk sumargotssíld en ekki norsk-íslensk síld. 12.8.2004 00:01
Bæjarráð Kópavogs mótmælir Bæjarráð Kópavog mótmælir þeirri skoðun sem kemur fram í samþykkt Borgarráðs Reykjavíkur frá 10. ágúst um að eignarhald á Vatnsendakrikum sé umdeilt. Þetta kemur fram í ályktun fundar ráðsins frá því fyrr í dag. 12.8.2004 00:01
Drengur brenndist í Laugarvatni Engar merkingar hafa verið við Laugarvatn til að vara fólk við hitalaugum sem geta myndast fyrirvaralaust. Ungur drengur brenndist á fæti þegar hann var að vaða í fjöruborðinu þar í gærkvöldi. 12.8.2004 00:01
Sumarblíða en engin met Einmuna veðurblíða var á Suður- og Austurlandi í dag. Íbúar höfuðborgarinnar gerðu sitt besta til að sinna daglegu amstri utan dyra, hvort sem um var að ræða tómstundir, vinnu eða líkamsrækt. Engin hitamet voru slegin í dag en heitast var á Þingvöllum þar sem hitinn fór upp í 26,2 stig um miðjan dag. 12.8.2004 00:01
Kröfur kennara sanngjarnar? Sveitarfélögin búa sig undir kennaraverkfall í haust. Deilan snýst ekki um það hvort félögin hafi efni á að greiða kennurum hærri laun, heldur hvort kröfur kennara séu sanngjarnar. 12.8.2004 00:01
Of blint fyrir blindflug Kvöldfluginu frá Reykjavík til Egilsstaða síðasta sunnudag var snúið við skammt frá áfangastað vegna þoku sem myndaðist við upphaf hitabylgjunnar sem þá reið yfir. Þar er þó fullkominn blindflugsbúnaður, enda alþjóðaflugvöllur á Egilsstöðum. 12.8.2004 00:01
Flugu lágt yfir miðbænum Nokkuð margir litu upp frá ísnum sínum á Lækjartorgi um klukkan hálf þrjú í gær þegar herþyrla varnarliðsins flaug lágflug yfir miðbæ Reykjavíkur. Þyrlan var svo enn á ferð lágt yfir borginni upp úr klukkan fjögur síðdegis. 12.8.2004 00:01
Beðið eftir bæjarstjóra Umfjöllun um vasapeningamál hælisleitenda hér á landi sem bíða úrskurðar Útlendingastofnunar hefur verið frestað hjá Reykjanesbæ þar til Árni Sigfússon bæjarstjóri snýr aftur úr sumarleyfi undir lok mánaðarins. 12.8.2004 00:01
Einungis ein tilnefning borist Einungis ein tilnefning hefur borist fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar um fjölskylduvænt fyrirtæki í bænum. Frestur til að skila tilnefningum hefur verið framlengdur til 20. ágúst næstkomandi. 12.8.2004 00:01
Samningar ekki fullreyndir Þórólfur Árnason, borgarstjóri í Reykjavík, segir að víst sé uppi ágreiningur um landareign Reykjavíkur og Kópavogs í Heiðmörk. "Það heitir ágreiningur þegar annar aðilinn er ekki sáttur við það sem hinn segir," segir borgarstjórinn. 12.8.2004 00:01
Enginn vilji til samkomulags Oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík segir formann bæjarráðs í Kópavogi misskilja deilu sveitarfélaganna um vatnsleiðslu frá Vatnsendakrika um Heiðmörk. Kópavogsbær ætlar að kalla eftir upplýsingum frá óbyggðanefnd um stöðu mála. 12.8.2004 00:01
Gatnagerð og lokanir í Hafnarfirði Í vikunni átti að hefjast steypuvinna við brúargólf í Lækjargötu í Hafnarfirði. Á mótum Lækjargötu og Hringbrautar er unnið að gerð hringtorgs, auk lagningar regnvatnslagna frá hringtorginu að Ljósutröð. Umferð á aftur að vera komin á Lækjargötuna með hringtorgi um 29. ágúst næstkomandi. 12.8.2004 00:01
Óvissa um rekstrargrundvöll Tetru Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segja óvíst að 250 prósenta hækkun á þjónustugjöldum Tetra Ísland tryggi rekstrargrundvöll fyrirtækisins. Í bókun í borgarráði eru þjónustugjöld sögð hækka úr 17,5 milljónum á ári í 60,4 milljónir. 12.8.2004 00:01
Flóðahætta jafnvel liðin hjá Yfirborð Jökulsár á Dal lækkar óðum og telja menn að flóðahætta sé jafnvel liðin hjá. Enn er ekki vitað af hverju frárennslisgöngin fluttu ekki eins mikið vatn og þeim var ætlað. 12.8.2004 00:01
Krían sækir í flugvöllinn Síðsumars sækir krían meira í flugvöllinn í Grímsey með þeim afleiðingum að stundum verða árekstrar fugla og flugvéla í aðflugi. Flugmálastjórn segir reynt að fæla fugl með óhljóðum en hann venjist þeim jafnharðan. 12.8.2004 00:01
Ólafar enn leitað Ólöf A. Breiðfjörð Guðjónsdóttir, þrítug kona sem ekki hefur sést síðan á föstudagskvöld, hefur ekki enn komið fram. Síðast er vitað um ferðir Ólafar við Gullfoss. Ekki hefur ennþá verið ákveðið að hefja formlega leit að Ólöfu en víðtæk eftirgrennslan lögreglu er í gangi. 12.8.2004 00:01
Sáttagreiðsla upp á tæpan milljarð Hugbúnaðarfyrirtækið Opera Software í Noregi, sem Íslendingurinn Jón S. von Tetzchner stýrir, fékk greiddar á árinu rúmlega 900 milljónir króna í sáttagreiðslu í dómsmáli. Ekki fást nánari upplýsingar um tilurð greiðslunnar, en ákvæði sáttarinnar komi í veg fyrir að fyrirtækið tjái sig frekar um málið. 12.8.2004 00:01
Áfram mjög hlýtt Áfram verður mjög hlýtt loft yfir landinu þrátt fyrir að heldur fari að draga úr hlýindunum, fyrst vestast á landinu. Á sunnudag er gert ráð fyrir svalara veðri og auknum líkum á skúrum. Veðurblíðan síðustu daga einsdæmi, segir veðurfræðingur. 12.8.2004 00:01
Ekki árás Valhallar Oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn segir ekkert hæft í ásökunum Gunnars I. Birgissonar, flokksfélaga síns í Kópavogi, um að höfnun borgarráðs á vatnslögn Kópavogsbæjar um land Reykjavíkurborgar sé árás Valhallar á sjálfstæðismenn í Kópavogi. Hann segir afstöðu sjálfstæðismanna í borgarráði byggjast á faglegri umsögn borgarlögmanns. 12.8.2004 00:01
Skattadeilur hjá stjórnarflokkum? Sjálfsstæðismenn eru reiðubúnir að lækka tekjuskatt um meira en fjögur prósent á kjörtímabilinu eða meira en kveðið er á um í stjórnarsáttmálanum. Líklegt er að deilt verði um þessi mál á stjórnarheimilinu í haust en eins og fréttastofan komst að hafa þingmenn ólíkar skoðanir á því hvernig eigi að útfæra loforð um skattalækkanir. 12.8.2004 00:01
Fjölmörg atriði á Menningarnótt Heilgrillað naut, tilfinningaþrungið torg og bongótrommu-maraþon er meðal fjölmargra atriða sem boðið verður upp á á menningarnótt eftir rúma viku. Stjórn menningarnætur var í sumarskapi þegar hún bauð til blaðamannafundar í blíðviðrinu í dag en laugardaginn 21. ágúst verður hátíðin haldin hátíðleg í níunda skipti. 12.8.2004 00:01
Skaðvaldsskiltið fært Talsvert minni líkur eru nú á því en áður að þeir sem eiga leið um Hálsabraut, skemmi bílinn sinn. Á mótum Krókháls og Hálsabrautar hefur staðið akreinaskilti undanfarin ár sem hefur líklega eyðilagt bíla fyrir margar milljónir króna eins og Stöð 2 greindi frá á dögunum. Úr þessu var hins vegar bætt í gær þegar skiltið var fært u.þ.b. einum metra aftar. 12.8.2004 00:01
Harlem Sophisticate í Loftkastala Andi svartra tónlistarmanna svífur yfir vötnum í Loftkastalanum en á morgun verður söngskemmtunin Harlem Sophisticate frumsýnd þar. Fjöldi bandarískra og íslenskra tónlistarmanna kemur fram í sýningunni en alls verður verkið sýnt fjórum sinnum. 12.8.2004 00:01
Hitamet fellur í Reykjavík Veðurstofan hefur aldrei mælt hærri hita í Reykjavík en í dag. Talið er að hitabylgjan í landinu hafi náð hámarki. Verslunum var lokað og fundum frestað vegna veðurs. Það var mollulegt um að litast í höfuðborginni í dag, svo heitt að fólk þusti út í sólina að njóta blíðunnar. 11.8.2004 19:00
Útlánaeftirlit stóraukist Samkeppni um hag hluthafa bankanna hefur orðið til þess að útlánaeftirlit hefur stóraukist í bankakerfinu. Bankarnir hafa tekið upp nýjar innri reglur. Eftirlit með innheimtu hefur einnig verið aukið. Afskriftahlutfall sagt of hátt hér á landi. 11.8.2004 00:01
Gott uppgjör hjá Marel Sex mánaða uppgjör Marels sýnir töluvert betri niðurstöðu en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir. Hagnaður af rekstrinum á öðrum ársfjórðungi nam 2,54 milljónum evra (um 220 milljónir króna) en á sama tímabili í fyrra nam hagnaður af rekstrinum 1,7 milljónum evra. 11.8.2004 00:01
Fundu þýskan pilt út frá farsíma Björgunarsveitamenn fundu undir morgun fjórtán ára þýskan pilt, sem hafði orðið viðskila við föður sinn á Fljótsdalsheiði í gærkvöldi og villst. Pilturinn var heill á húfi en illa brugðið. Feðgarnir höfðu fest bíl sinn og ætlaði pilturinn að fara fótgangandi eftir aðstoð. 11.8.2004 00:01
Brúin yfir Jöklu á kaf Brúin yfir Jöklu fór á bóla kaf í gærkvöldi þótt vatnsrennsli framan af degi gæfi vísbendingar um að ekki yrði flóð í gærkvöldi. Vatnsborðið fór upp í 478 metra yfir sjávarmál og vantaði tuttugu metra upp á að það næði hæð varnargarðsins ofan stíflustæðisins, þar sem vinna er hafin á ný eftir hátt í viku hlé. 11.8.2004 00:01
Norsk strandgæsla um borð í skip Norskir strandgæslumenn fóru um borð í íslenskt fiskiskip, sem er á síldveiðum við Svalbarða, og tilkynntu skipstjóranum formlega að öll íslensk skip, sem ekki væru farin af svæðinu fyrir miðnætti á sunnudag, yrðu tekin sem landhelgisbrjótar. 11.8.2004 00:01
Áheitasund yfir Faxaflóann Í dag þreyja sundmenn úr Sundfélagi Akraness sitt árlega áheitasund yfir Faxaflóann frá Reykjavík til Akraness, um 18 km langa leið. Ferðin hófst á því að sundfólkið sigldi með hafnsögubátnum Leyni til Reykjavíkur, þar sem sundið hófst kl. 9:30 frá syðri innsiglingarvitanum í Reykjavíkurhöfn. 11.8.2004 00:01
Ungmennabúðir að Laugum í vetur Ungmenna- og tómstundabúðir verða opnaðar í vetur að Laugum í Dalasýslu. Að rekstrinum koma Ungmennafélag Íslands og Dalabyggð og munu Dalabyggð og Saubæjarhreppur leggja mannvirkin að Laugum til rekstursins. 11.8.2004 00:01
Nýja kerfið reynist vel Reynslan af nýju símkerfi lögreglunnar í Reykjavík hefur reynst vel segir í fréttatilkynningu frá embættinu. Lögreglan í Reykjavík tók í síðasta mánuði upp Centrexkerfi þar sem öll símanúmer og símar hafa verið sameinuð í eitt kerfi með nýju símanúmeri 444-1000. 11.8.2004 00:01
Hitamet í Reykjavík Nærri þrjátíu ára hitamet í Reykjavík er að öllum líkindum fallið þar sem hiti er kominn yfir 25 stig. Veðurfræðingar vilja þó ekki staðfesta metið fyrr en eftir mælingar í lok dags. Það má með sanni segja að Ísland sé heitt þessa dagana. 11.8.2004 00:01
Tvö börn vitni að líkamsárás Sjö manns, þar á meðal tvö börn, voru á vettvangi í Öxnadal þar sem karlmaður á þrítugsaldri á að hafa höfuðkúpubrotið annan mann í síðustu viku. Hinn grunaði hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Lögreglan á Akureyri yfirheyrir nú þá sem voru á staðnum. 11.8.2004 00:01
Flóð í Jöklu í hámarki annað kvöld Búist er við að flóðin í Jöklu nái hámarki annað kvöld og rennslið verði þá álíka mikið og þegar það varð mest á fimmtudag í síðustu viku. Þetta er samkvæmt reiknilíkani verkfræðistofunnar Vatnaskila, sem spáir fyrir um rennsli út frá veðurspá og hefur aðferðin reynst áreiðanleg. 11.8.2004 00:01
900 milljónir í verkfallssjóði Kennarar eru tilbúnir að eyða 900 milljóna króna verkfallssjóði sínum, segir formaður Félags grunnskólakennara. Fyrsti fundur deilenda eftir sumarhlé hefst klukkan eitt í dag og má búast við stífum fundarhöldum á næstunni. 11.8.2004 00:01
Þurrkatíð rýrir afkomu bænda Þurrkatíðin að undanförnu rýrir afkomu bænda þar sem gróður fölnar og er ekki eins kjarngott fóður og ella. Jóhanna Pálmadóttir á Akri í Húnavatnssýslu segir þetta hafa ótvíræð áhrif á afkomu sauðfjárbænda þar sem lömbin dafni hægar en ella , en nú styttist í sláturtíð. 11.8.2004 00:01
Bátur brann og sökk Skipverjinn á hraðfiskibátnum Eyrarröst slapp ómeiddur þegar eldur kom upp í bátnum í hádeginu og hann sökk. Ekkert neyðarkall barst frá manninum, en Landhelgisgæslunni barst tilkynning um það klukkan hálf eitt að reykjarstrókur sæist á hafinu um það bil sex sjómílur vest-norðvestur af Garðskaga. 11.8.2004 00:01
Finnar kaupa mest af sterku áfengi Finnar kaupa mest af sterku áfengi á Norðurlöndum. Þetta kemur fram í tölum um áfengissölu sem Stakes, rannsóknastofnun um félags- og heilsuvernd, hefur birt. Árlega kaupa Finnar, 15 ára og eldri, að meðaltali 13 hálflítra flöskur af sterku áfengi. Það er nær tvisvar sinnum meira en Norðmenn og Svíar kaupa. 11.8.2004 00:01
Upplagseftirlit á fyrri hluta árs Meðaltalssala Morgunblaðsins frá janúar til júní 2004 var 53.135 eintök á dag. Á sama tíma á síðasta ári var hún um 350 blöðum meiri. Prentuð blöð Fréttablaðsins á frá janúar til júní í ár, voru að meðaltali um 101 þúsund eintök á dag. Þetta kemur fram í upplagseftirliti Verslunarráðs Íslands. 11.8.2004 00:01
Brjóta ekki gegn EES samningi Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel (ESA) hefur samþykkt að starfsskilyrði Íbúðalánasjóðs brjóti ekki gegn ákvæðum EES-samningsins. Stofnunin samþykkir einnig hækkun hámarksláns Íbúðalánasjóðs í 90% af kaupverði íbúðar. 11.8.2004 00:01